Morgunblaðið - 20.01.1917, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Hvað kemur bænum það við þótt
landssjóður geri vel við þá menn
sem eru á hans vegum, enda þótt
þeir séu líka starfsmenn bæjarsjóðs?
Nú hefir verið ákveðið að greiða
öllutn starfsmönnum bæjarstjóðs dýr-
tíðaruppbót. Þar með eru taldir
barnakennarar. Þeir eiqa líka að fá
dýrtiðaruppbót eins og allir aðrir.
En vegna þess að landssjóður greiðir
þeim nú dýrtíðaruppbót, þá vill bær-
inn kippa að sér hendinni og ^an^a
á bak orða sinna. Þó vita allir það
er nokkurt skyn bera á slíka hluti,
að kennarar fá svo litil laun að skömm
er að. Og ekki verða þeir ofsælir
þótt þeir fengju dýrtiðaruppbót bæði
frá landssjóði og bæjarsjóði. Og
óþarfi er að gera ráð fyrir því að
aðrir verkamenn bæjarsjóðs fari að
gerast gramir út af þvi þótt' kennur-
um sé greiddur dýrtíðarstyrkur. Það
væri ekki annað en öfund, og óþarfi
er að gera mönnum þær getsakir að
þeir séu öfundsjúkir.
Málinu visaði fundurinn til fjár-
hagsnefndar. Sveinn Björnsson vildi
að kennurum yrði greidd dýrtiðar-
uppbót fyrir fyrsta ársfjórðung 1917,
en málinu að öðru leyti vísað til
nánari athugunar.
Myllulóðin.
Mikið var rætt um eignarrétt á
hinni svonefndu myllulóð i Rauðar-
árholti. Eigendur lóðarinnar, J>eir
sem nú eru taldir (h.f. Pípuverk-
smiðjan) vilja fá fullkominn eignar-
rétt á lóðinni, en byggingarnefnd
þykist vita að lóðin sé *tvímælalaust
eign bæjarins*. Var málinu að síð-
ustu vísað til fjárhagsnefndar til álita.
csstj DAðtíöfiiN. cssa
Afmæli í dag:
Guðlaug Oddgeirsdóttir jungfrú
Gróa Dalhoff jungfrú
Jón Jónsson beykir
Sveinn Ingvarsson ver/.l.m.
Árni Þórarinsson prestur
Bjarni Pálsson prestur
Gísli Einarsson prestur
f. Benedikt Sveinsson 1826
Sólarupprás kl. 9.48
Sólarlag — 3.30
HáflóB í dag kl. 2.19 f.h.
og kl. 3.50 e.h.
Veðrið í gær.
Föstudaginn 19. janúar.
Vm. sa. hvassv., regn, hiti 4,4
Rv. asa. kaldi, regn, hiti 3,8
íf. sv. stormur, hiti 7,5
Ak. s. st. kaldi, hiti 5,0
Gr. s. gola, hiti 0,0
Sf. sv. hvassv., negn, hiti 6,2
Þh. F. s. kaldi, hiti 4,7
Verkamannafólagið Dagsbrún held-
ur árshátíð í Bárunui í kvöld.
Vegna þess að félagið er mannmargt
svo mjög, að elgi er unt fyrir alla að
komast þangað í kvöld, verður skemt-
unin endurtekin annað kvöld á saraa
atað.
tngólfur fór í Borgarnes í gærmorg-
un og er væntanlegur hingað með norð-
an og vestanpóst í dag. Með skipinu
fóru margir norðan þingmenn. Vest-
anþingmenn fara flestir til Stykkis-
hólms á Svaninum sem væntanlega fer
hóðan einhveru næstu daga.
Meseað á morgun í frik. í Rvík:
kl. 2 síðd. síra Ól. Ól.
— 5 — pvóf. Har. Níelsson.
Sfmaskráin. Margir kvarta undan
drættinum á útkomu þeirrar bókar.
Eftir beztu heimildum höfum vér
það, að drátturinn er mestmegnis
vegna þess að í bókina eiga einnig að
koma nöfn þeirra manna, sem fengið
hafa talsímanúmer í þessum mánuði. En
margir hafa bæzt við síðan um nýár.
Bókin kvað vera væntanleg í lok
mánaðarins.
Nýhafnarliúsið við Hafnarstræjti
hefir Sigurjón Sigurðssou trésmíða-
meistari keypt af H. Th. A. Thomsen,
En í þv< húsi eru 3 verzlanir og cin
skrifstofa.
Höfðingleg gjöf. Einhverntíma á '
fyrra ári lofaði Einar Jochumsson, að
ef sala á »Ljósinu« hans gengi vei,
skyldi hann gefa Samverjanum 200
krónur. Nú hefir Einar efnt það
loforð. Annan daginn, sem Samverjinn
starfaði á þéssu ári, færði gamli mað-
urinn gjaldkeranum hina lofuðu upp-
hæð. — Það var fallega gert!
Fiskveiðar hjá Jótlandi.
I haust og vetur hefir veiðst
óvenjulega mikið af síld hjá Jótlands-
skaga. Eru það aðallega Svíar, er veið-
kiastunda. En þó hafanetabátar Dana
afla vel, alt að 200 hektólítrum á
eínum degi. Og á tveim dögum
eftir nýárið var flutt á land á Jót-
latrdsskaga (Skagens Horn) síld fyrir
V* miljón króna.
Ung kona
óskar eftir atvinnu við skriftir nokkra
tima á dag. Er vel að sér og vön
skrifstofustörfum.
Tilboð merkt 13 skilist á afgreiðslu
blaðsins.
Ráðherra — bæjarfulltrúi.
Við Reykvíkingar vorum svo
hepnir — ef svo má að orði kveða —
að velja tvo bæjarfulltrúa okkar á
þing. Og enn hepnari vorum við
þegar þinginu þóknaðist að gera
annan þcirra að ráðherra. Var okk-
ur þar eigi s ður sýndur maklegur
heiður heldur en þingmanninum,
bæjatfulltrúanum og bæjarfógetanum.
En með þessu varð Jón Magnús-
son að Iáta af bæjarfógetaembætt-
inu. Verður hann þá ekki líka að
láta af bæjarfulitrúastarfiou ? Er það
eigi nokkuð undarlegt, ef forsætis-
ráðherra íslands, sæti á bæjarstjórnar-
fundutií og tæki þ;.tr í öllum þeim
smásmuglegu deilum, sem þar fara
fram? Til þess hlýtur tími forsæt-
isráðherrans að vera of dýrmætur.
Það virðist því sjáifsagt að hann
leggi niður bæjarfuiltrúastarfið og
við kjósendur förum að svipast um
eftir manni í hans stað.
Nokkrar undanfarnar vikur hafa
hin þýzku skip, sem liggja í Rio de
Janeiro höfn haft talsverðan viðbún-
að. Hafa sum birgt sig að kolum
og matvælum, en önnur hafa verið
Epii Vinber
Tfppefsinur
Laukur
Tfvííkáí
Seííeri
Purrur
Guíræfur
Hödbeder
Harföflur
Tlýhomið í verztun
Einars Arnasonar
Sími 49.
Munil
að vort viðurkenda
Kóronu krónukaffí
hefir ekki hækkað í verði
og er selt gamla lága verðinu
Nýtt Irma
plöntusmjörlíki er komið
með s.s. Islandi.
Smjörhúsið,
Carl Schepler
Hafnarstræti 22 — Reykjavík
Talsimi 223.
Ostar
og
Pylsur
miklar birgðir í verzlun
I
Einars Arnasonar.
máluð. Er það ætlun manna að þau
hafi í hyggju að hverfa með leynd
á brott þaðan, og reyna að komasf
heim tii Þýzkalands,