Morgunblaðið - 10.10.1917, Síða 1
Miðv.dag
10.
okt. 1917
KUNBLABIÐ
4. árgangr
337.
tölublað
Ritstjórnarsími nr.
500
Ritstjóri:
Vilhjálmur Finsen
ísafoldarprentsmiója
Afgreiðslusimi nr. 500
Gamla Bió
;r=ir==ir
r
i! arnarkíom.
Þessi fallega myad verður
sýnd i sióasla shifíi í hvöídí
Hin f llega
landslags-
rr ynd
frá
Svíþjóð:
Yið f
Eifkarleö !1
verður líka
sýnd.
Lesbók I., II. og III.
er nú komin á markaðinn aftur.
Losbók I., eem er ný prentuð, kostar kr. 1,50, en Lesbók
H. og III. eru með gamla verðinu (kr. 1,00).
Isafold - Olsfur Björnsson.
Skeytamálin.
Skýring Þjóðverja
»Norddeutsche Allgemeine Zeit-
mngc segir:
— Samkvæmt frétt til R uters
Bureau hefir utanrikisráðuneytið i
Washington birt þrjú símskeyti, sem
•pýz'ú sendiherrann í Buenos Aires
hefir sent í mai—jtili 1917 fyrir
milligöngu sænska sendiherrans. Þau
skeyti voru viðvíkjandi afrtöðu Ar-
gentinu til vor.
Birting þessi á auðvitað rót sína
að rekja til þess hvað bindamenn
eru nú i slæmu skapi út af hernað-
arhorfunum, hinum slðustu uppljóst-
unum Þjóðverja og þvi, að »Thorunn-
málið. var jafnað i bróðerni. Og
með þeim ætla þeir að slá tvær flug-
ur i einu höggi, að vekja sundur-
lyndi með ^jóðverjum og Argentinu'
mönnum og auka sænsku stjórninni
rý vandræði.
Sænsku stjórninni á sérstaklega
aft koma i koll þetta nýjasta skeyta-
hnupl sem ameríkska stjórnin á að
hrcsa sér af, og öll blöð bandamanna
kyrja sama sönginn um það, að þetta
sé brot á hlutleysi.
Til þess að skýra þetta mál skal
tekið fram:
Þýzka stjórnin hefir látið sænsku
stjó nina hjálpa sér til þess að koma
skeytum til hlutlausra landa og frá
þeim, vegna þess að þeim varð eigi
kornið beint sökum þess að Bretar
og bandamenn þeirra hafa brotið al-
þjóðalög um það efni.
Þýzka stjórnin hefir virt alþjóða-
reglur um póstflutninga yfir hafið,
bæði frá hlutleysingjum og hernað-
arþjóðum og talið bréfapóst á hlut-
lausum skipum friðhelgan, hvort sem
skipin voru á leið frá óvinalandi til
hlutlauss lands, eða frá hlutlausu
landi til óvinalands. En brezka stjórn-
in hefir brotið bág við I. grein í n.
Haag-samþyktinni, því að Þegar í
öndverðu stöðvaði hún póstflutninga,
eigi að eins milli hlutlausra tíkja og
óvina sinna heldur 1 innig milli hlut-
lausra rikja innbyrðis.
Það er þess vegna skiljanlegt að
hlutlausar stjórnir vilji greiða fyrir
hernaðarþjóðunum, með því að láta
þær koma skeytum til hlutlausra
þjóða. Það gerði líka Bandaríkjastjórn
meðan hún var hlutlaus á yfirborð-
inu. Þá tók hún það þrásinnis að
sér að flytja dularmálsskeyti fyrir
þýzku stjórnina.
Sviar höfðu þó enn gildari istæðu
til þess að gera Þjóðverjum þennan
greiða, því að vegna legu Svíþjóðar
hafa þeir vtrið milliliðir Rússa og
Breia um skeytaflutning milli þessara
óvina Þýzkaland'-.
Jiýfa Bió
Fanlomas.
Stórfenglegur leynilögreglusjónleikur í 6 þáttum, 100 atr.
Þá loks kemur nú framhald af Fantomas, sem
margir hafa þ r á ð að siá, sem von er, því
Fantomas mun vera einhver hin stærsta og full-
komnasta leynilögreglumynd sem komið hefir
----— — — á markaðinn. — — —-------
eð c
O* »*
® E
Myndin stendur yfir hátt á annan tíma.
Tölusett sæti kosta 0.80, almenn sæti 0.60, barnasæti 0.25 aura.
Tfíkfæði
sérsíakíega falíegt — nýkomið
t 7Jusfursfræfí 1.
cftsg. S. <&unn laugsson & @o.
Svo sem sjá má á þessu, hefir
sænska stjórnin eigi gert sig seka um
hlutleysisbrot að þessu sinni, þar sem
hún hefir auk þess gert Bandaríkjun-
um samskonar greiða, með því að
koma áleiðis skeytum fyrir þau yfir
Þýzkaland til Austurlanda.
Hlutleysismerki skipa.
F*au eru að hverfa.
Eftir að kafbátahernaðurinn hófst,
létu útgerðarmenu eftir tillögum vá-
tryggingarfélatanna mála hlutleysis-
merki á skip sin, fána skipsins með
litum og nafn landsins, sem skipið
var frá. Vaið þetta i fyrstu til þess,
að skipin komust hjá árásum krf-
bátanna, þvi Þjóðverjar skutu eigi
niður þau hlutlausu skip, sem eigi
fluttu bannvöru til óvinalandanna.
Þá voru þau skip, sem fengið
höfðu leyfi Breta og Þjóðverja til
þess að sigla milli tveggja ákveðinna
hlutlausra hafna, máluð á sérstakan
hátt, með þjóðernislitum skipanna
rákum á hliðum þess — og voru
þau þá óáreitt af bæði Bretum og
kafbátum.
Nú eru öll þessi merki á skips-
hliðunum að hverfa úr sögunni. Það
hefir hvað eftir annað komið í ljós,
að Þjóðverjar kæra sig kollótta um
öll hlutleysismerki skipa, og skjóta
nú niður hvaða skip sem þeir hitta
og hvar sem þeir hitta þau. Hinn
ótakmarkaði kafbátahernaður þeirra
Theódóf Árnason
fluttur i Klrkjustræti 8.
Sími 231.
Kennir: fiðluspil og hljómfræði.
hefir gert það að verkum, að það
þykir nú heppilegra að hafa engin
hlutleysismerki á skipunum, en mála
þau sem likast þvl, að þau séu vopn-
uð óvinaskip, þvf þá þora Þjóðverj-
ar eigi að koma nærri þeim af ótta
fyrir þvi, að skipverjar verði fyrri
til og sökkvi kafbátnum.
Þjóðverjum kvað vera bölvanlega
við þessa ráðstöfun hlutlausu þjóð-
anna. Árangurinn hefir orðið sá, að
skipum þeim, sem kafbátarnir geta
grandað, fer nú mjög fækkandi, svo
sem sjá má af skýrslum þeim, sem
birtast um þá hluti.
Það þykir nú áreiðanlegt meðal
fróðra manna erlendis, að Þjóðverj-
ar geti aldrei unnið sigur með kaf-
bátahernaðinum. En á honum hafa
þeir síðasta misserið bygt alla sfna
von. Þeir gera sjálfum sér raikla
bölvun með kafbátahernaðinum. Því
enginn vafi mun vera á þvi, að þó
eigi verði nokkur þjóðanna látin
gjalda skaðabætur til annarar að
ófriðnum loknum, þá munu Þjóð-
verjar aldrei komast hjá því, að
gjalda fult verð allra þeirra kaupfara,
sem þeir hafa sökt, og skaðabætur
til ættingja þeirra sjómanna, sem
mist hafa lifið vegna kafbátanna.
En það er þegar orðin allálitleg
fúlga.