Morgunblaðið - 18.01.1936, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 18.01.1936, Blaðsíða 5
Laugardaginn 18. jan. 1936. MORGUNBLAÐIÐ I 13 R O T T I R - Á SKÍÐUM Á HELLISHEIÐL SKAUTAÍÞRÓTTIN. Skiðaferðir á morgun. T\ÁLÍTIÐ hefir snjóað á Hellisheiði undanfarna daga og er skíðafæri þar efra nú allsæmilegt. Skíðaf jelagið efnir til skíða- ferðar upp að Sldðaskálanum í Hveradölum í fyrramálið kl. 9. Þeir, sem ætla að verða með í förinni — og þeir verða sjálf- sagt margir — eiga að skrifa sig á lista hjá formanni fje'lagsins, L. H. Miiller, kaupm., í Austur- stræti. Nokkur fleiri íþróttafjelög efna til skíðaferða á morgun. Þegar blaðið átti tal við Muller í gærkvöldi sagði hann að skíða- færið væri dágott, og yrði ágætt ef dálítill snjór kæmi í viðbót. En e'f ekki snjóar meira fyrir helgi, vcrða menn að fara varlega, sjer- staklega í brekkum. SkiHaiélk I Ölpunum. Mikill áhugi meðal unga fólksins. l\/rTrn n in lo t av o rt ATOn Ov» T obrn v» ohnm vn t Olympseldurinn. Olympsleikarnir að sumri verða opnaðir þe'gar hinn heilagi Olymps eldur kemur frá Grikklandi til Berlín. En sem kunnugt er verða það hlauparar sem hlaupa með hann alla leið. * Eldurinn, sem á að vera tákn hins endurreista gríska. anda, ve'rð- ur ekki tendraður með eldspítu, sú aðferð þykir of almenn. Forn- grikkir þektu heldur ekki þá að- ferð. Þegar þe'ir kveiktu bál, var það sólguðinn Phoebus Appolon, sem tendraði og verndaði elda þeirra. Guðinn á nú enn einu sinni að skapa hinn heilaga eld, sem borin verður til Berlín. * Verslunarfjelagið Zeiss, í Jena, hefir boðist til að veita guðinum aðstoð sína. 1 því augnamiði hefir fjelagið Iátið gera stækkunargler eitt mikið og genum það tendrar sólin hið heilaga bál. * Þegar íþróttaleiðtogi Þýska- lands var á ferð í Grikklandi ný- lega var ákveðið að altari eldsins skyldi. reist í hinum helga lundi í Olympiu, þar sem altari Zeus var til forna. * Olympíunefndin gríska hefir á- kveðið að me'ð hlaupurunum skuli fylgja tveir bílar. f öðrum verða íþróttaráðsmenn, læknar og blaða- mennn, en í hinum verða vara- hlauparar og aðstoðarmenn. * Þegar eldurinn kemur til Berlín, klukkan 1 miðdegis, hinn 1. ágúst ve*rða meðlimir Alþjóða-olymps- hefndarinnar staddir í Lustgarten og taka þar á móti hlauparanum, sem kemur með eldinn til Berlín. Þaðan halda þeir til forsetahall- arinnar, og tekur Hitler sjálfur ,á móti þeim þar. Vivax. Myndin hjer að ofan er tekin fyrir skömmu við einn af hinum mörgu skíðaskálum, eða vetraríþróttahótelum, í Alpafjöllunum. Hundruðum saman streymir fólk úr öllum heimsálfum á veturna til Alpafjallanna til að iðka hinar hollu vetraríþróttir. — Nýlega hafa borist frjettir um að veturinn hafi verið óvenju mildur í ár. Má og sjá það á myndinni, því víða standa ber- ar níbbur upp úr snjónum. Þaðgeta því fleiri talað um slæmt skíðafæri en við Reykvíkingar. CKAUTAFÓLK hjer í bæn- ^ um hefir átt góða daga undanfarið. Bæði á Austur- velli 0£ Tjörninni hefir verið spegilsljett skautasvell. Bæði ungir og gamlir hafa far- ið á skauta og áhugi fyrir þess- ari íþrótt Iiefir blossað upp að nýju hjer í bænum meðal unga fólks- ins. í gærkvöldi er talið að hafi verið hátt á fjórða hundrað manns á skautum á Austurvelli, þegar mest var. Skautasvellið var spraut- að í fyrrinótt og var það „hált eins og gler“ í gærkvöldi. Austur- stræti var eyðilegt eins og und- anfarið en „svart“ af fólki kring- um „skautavöllinn“. Einn óánægður: Skautasvellið. Hnefaleikar í Nýja Bíó, Schmeling — Hamas. an hljómsveitin leikur „Deutsch- land, Deutschland úber alle's‘‘, en Hamas er studdnr örmagna af. hólmi. Vivax. | Max Schmeling og Steve Hamas j börðust í Hamborg í fyrra vor og : í endaði sá leikur sem kunnugt er ; með því að Schmeliog vann glæsi-! legan sigur. 1 Hnefaleikarnir fóru fram í hinni stóru Hanse'aten-Halle og voru á- horfendur fullar 25 þúsundir. j Kvikmynd var tekin af hnefa- leikunum og mun það vera ! besta kvikmynd, sem tekin hefir | verið af hnefaleikum; alt eír tekið með, frá því hnefaleikararnir; heilsast í hringnum þangað til . Hamas gengur út úr „hringnum“ : studdur af einvígisvottum sínum. Mynd þessi verður sýnd í Nýja Bíó bráðlega. Gefst Re'ykvíking- um þar í fyrsta skifti kostur á að ; sjá hnefaleika milli tveggja heims ; frægra hnefaleikara, frá fyrstu til síðustu lotu. Maður sjer greinilega hvernig j „ameríski háskólapilturinn“ — Hamas — er barinn sundur og Max Schmeling. sapian. Hvernig honum tekst nokkurnveginn að verja sig í fyrstu 5 lotunum þar t-il hann er sleginn niður í miðri 6. lotu. Þá sjest hvernig dómarinn verð- ur næstum að henda einvígisvott- um Hamas út úr hringnum, eftir 7. lotu, vegna þess að þeim hafði ekki tekist að lífga skjólstæðing sinn að fullu við eftir hvíldina. Að lokum neyðist dómarinn til að stöðva hinn ójafna leik í 9. lotu. Margir áhorfendur voru þá bún- ir að fá nóg og raddir voru farn- ar að heyrast frá áhorfendapall- inum um að stöðva ætti leikinn. Seinustu myndirnar eru ef til vill áhrifamestar, þegar Schmeling stendur með útrjetta hendi á með- íþróttayfirlit. „Knock out“. Englendingur, Jim Stewart barðist fyrir skömmu við landa sinn, Jack Lord í Man- chester og „sló hann út“ e'ftir 12 sekúndur. Nú þarf dómarinn að að telja yfir föllnum hnefaleikara í 10 sek. svo Stewart hefir verið heldur en ekki fljótur og högg- viss úr því honum tókst að berja mótstöðumann sinn niður á 2 sek. Þetta er þó ekki met, því árið 1902 barði fyrv. heimsmeistari í Ijettry vigt, Daninn Battling Nel- son, ke'ppinaut sinn niður eftir 2 sek. og ,þurfti sá ekki rneira. Stóð sá leikur því einnig aðeins yfir í 12 sek. Joe Louis, er nú frægasti hnefa- leikari sem uppi er í lieiminum þó hann hafi enn ekki fengið tæki- færi til að berjast um heimsmeist- aratignina. Hann er svo vinsæll meðal svertingja, að í negrabæn- um, Harb'm í New York, biðja prestar og söfnuðir ætíð fyrir Louis, að hann megi halda sig á hinum rjetta vegi, , og vinna heimsmeistaratignina í hnefaleik, til handa hinum svarta kynflokki. Færi þó betur á því að þeir bæðu fyrir^mótstöðumönnum hans, því þeir munu frekar þurfa á því að halda. Sund. Ameríkumaðurinn Kiefer, sem undanfarið hefir sett hvert heimsmetið á fætur öðru og er þó aðeins 17 ára gamall, setti nýlega nýtt heimsmet í 100 me'tra bak- sundi. Tími 1 mín. 04,9 sek. K. Þ. Það er góðra gjalda vert að hafa loksins fengið svell á Austur völl, eftir að hafa haft þann lengsta frosta- og staðviðriskafla se'm komið hefir um margra ára skeið. — En það er hart að hafa heilt stöðuvatn, í miðjum bænum, og að ekki skuli vera gert meira tjl að halda við góðu svelli á þvi, eins og það hefði líka verið ,auð- velt níi fyrirfarandi. Auðvitað kostar það nokkuð og er stopult fyrirtæki að halda við ís á Tjörninni. En þegar athuguð er atvinnubótavinnan hjema í bænum og þau vinnubrögð sem þar eiga sjer stað, þá getur maður ekki varist þeirri hugsun, að ein- hverju af henni væri betur varið me'ð því að halda við skautaís á Tjörninni. j En það er eins og öll öfl starfi að því í sameiningu að skemma Tjarnarísinn. Jafnskjótt og Tjörn- ina leggur, byrja böm og ungling- ar að' ryðja út á hana öllu því grjóti sem lauslegt finst og brjóta ísinn við lönd, alt um kring. Að þessu er gengið með slíkum dugn- aði, nákvæmni og skyldurækni, sem hvergi sje'st þar sem menn vinna fyrir borgun. Svo kemur náttúrlega veðrið og vindurinn og þekur ísinn með ryki og síðan með sjó. Og svo koma ístökumenn og gera stórar vakir, sem þeir skilja eftir fullar af jakahröngli. Á þe'ssum vökum gæti orðið hið besta skautasvell ef gert væri að skyldu að skila þeim hreinum óg | hafa þær reglulegar í laginu. Er vonandi að aug'u bæjar- stjórnarinnar fari bráðum að opn- ast fyrir því, að það er alls ekki sæmandi fyrir höfuðborg í landi sem heitir ísland og liggur við sjálfan heimskautsbauginn, að geta ekki haldið við neinni skauta- íþrótt vegna skorts á ís. H.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.