Morgunblaðið - 18.01.1936, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 18.01.1936, Blaðsíða 7
Laugardaginn 18. jan. 1936. MORGUNBLAÐIÐ l Athugið! Nautakjöt af ungu í buff, steik og gullash. Hakkað kjöt. Dilkakjöt. Hangikjöt af Hólsfjöllum. Saltkjöt. Ódýrt frosið kjöt á 55 aura Vz kg. Höfum daglega nýjar Vínarpylsur, Miðdagspylsur ■og reykt Kindabjúgu. Rjúpur. Grænmeti: Gulrætur, Rauðbeður, Purrur, Selleri. Ennfremur Ertur í dósum og lausri vigt og Asparges. Rjómabússmjör- Ostar, Islensk Egg og Álegg allskonar í dósum og lausri vigt. HerOubreiO. Bríkirkjuveg 7. Sími 4565. Gerir alla hluti úr málmi spegil- fagra og gljá- andi. Irmihelct- ur engar sýrur eða gróf efni, sem rispa pól- eringuna. Með Venus-fægilög fæst hinn var- anlegi r j e 11 i g 1 j á i. Minningarorð: FRAMH. AF SJÖTTU SÍÐU. byrjaði formennsku á unglings- aldri á opnum bátum, sem þá tíðkuðust, og varð brátt einn hinn ötulasti sjósóknari á binni tíð. Hann stundaði sjó og var for- maður nær tíl bins síðasta. Hann var afbragðs fengsæll. Var altaf í tölu hinna aflahæstu formanna í sínu pláfjsi. Að stunda sjómennsku á opnum bátum, eins og hún tíðkaðist lengst af ævi Gunnars sál., var ekki heigl- um hent, það vita og skilja þeir einir, er þá atvinnu urðu að stunda, en Guqnari brá ekki, „þó hiunnajó hömpuðu ægisdætur“. Jeg he'ld að hann hafi ekki kunn- að að æðrast, hvorki á sjó nje landi, en hitt hygg jeg að hann hafi kunnað og ekki látið ógert, að óttast og elska guð, biðja hann og treysta honum, enda skilaði hann fleygi sínu og hásetum heil- um í vör að leiðarlokum og alla þá tíð er hann var formaður, eins og hann líka alla æfi sína og loks að æfilokum skilaði með góðum vöxtum, meðbræðrum sínum og guði, því pundi sem honum var Ijeð. Ábúðarjörð sína hirti hann og nytjaði sómalega. Annars var hann um alla hluti stakur hirðumaður og bar heimili hans vott um hirðu snyrtimensku utanbæjar og innan. Skapstillingarmaður var hann mik ill, friðsemjandi og friðsamur með afbrigðum, mátti ekki vamm sitt vita í neinu. Dulur mjög í skapi, eb þjettur fyrir ef á hann var leitað, og hjelt velli fyrir hverjum sem var, fór þó sýnu fram með hógværð og stillingu, en forðaðist að særa aðra, eins og úrvals dreng ir einir géra. Jeg efast um að hann hafi átt óvin de'gi lengur, og er það meira en hægt er að segja um marga á langri lífsbraut. Gest- risinn og góður heim að sækja, og þótt dulur væri út á við hversdag- lega, var hann þó mjög reifur og skemtilegur heim að sækja. í hreppsnefnd og sóknarnefnd var hann mörg ár, og þótti mjög til- lögugóður. Hreppsfjelagið á því á bak að sjá einum sinna allra nýt- asta borgara. Konu sinni var hann ástríkur maki, bar með henni hennar þunga sjúkdómskross með ástúð og þol- inmæði. Börnum sínum var hann og ástríkur faðir, enda varð að vera þeim bæði faðir og móðir, eftir missi konu sinnar, og rækti það með prýði og trúmensku, sem öll önnur störf sín. Haun var trúr til dauðans og hefir því að vonum, að lokum öðlast hin fyr- irheitnu laun triimennskunnar, lífsins kórónu. Á. Th. Kvöldvaka á Elliheimilinu. í fyrralcvöld komu nokkrir góðir ge'stir á Elliheimilið til þess að skemta gamla fólkinu með upp- lestri, orgelleilc og kveðskap. Síra Árni Sigurðsson las upp, þá ljek Þorsteinn Sigurðsson kaupmaður nokkur lög á orgel og að lokum skemti Jóse'f Húnfjörð með rím- um og kveðskap. Hefir Mbl. ver- ið beðið að skila kæru þakklæti til þessara manna, sem gerðu þgim kvöldvökuna svo skemtile'ga. Keflavíkursamskotin: Guggó 10 kr., A. S. 5 kr., tveir bræður 5 kr. DagbóR. Veðrið (föstud. kl. 17): Lægðin sem var yfir Húnaflóa á fimtu- dagskvöld hefir hreyfst mjög hratt suðaustur eftir og er nú yfir Skotlandi. Ve'ldur hún þar allhvassri NA-átt og mikilli snjó- komu. Hjer á landi er yfirleitt NA-kaldi og 3—5 st. frost og dá- lítil snjójel eru á Vestfj. og á NA-landi. Veðurútlit í Rvík í dag: N- kaldi. Urkomulaust. Messur á morgun: í dómkirkjunni kl., 11, síra Bjárni Jónsson (altarisganga). I fríkirkjunni kl. 5 sira Árni Sigurðsson. í fríkirkjunni í Hafnarfirði kl. 5, lir. Einar H., Kvaran rithöfund- ur, prjedikar. Barnaguðsþjónustá kl. 2, að henni lokinni sjeu spurn- ingabörn til viðtals við prestinn. íþróttafjelag kvenna fer í göngu og skautaför að Elliða- vatni á morgun e'f veður leyfir. Lagt verður af stað frá Lækjar- torgi kl. 9 f. h. með strætisvögn- um inn að Elliðaám. Snorri Arinbjarnar seldi á mál- verkasýningu sinni í gær, eina pastelmynd, tvær vatnslitamynd- ir og tvö málverk. K. R. efnir til skíðaferðar á morgun, ef veður leyfir. Upplýs- ingar um skíðaförina fást á skrif- stofu K. R. kl. 6—7 í kvöld — sími 2130. Brauðverð lækkar. Bakara- meistarafjelag Reykjavíkur hefir lækkað ve'rð á öllum brauðum sín- um um 15% að jafnaði. MeSt er lækkunin á rúgbrauðum og nor- malbrauðum, úr 45 aurum í 40 aura. fþróttafjelag Reykjavíkur efn- ir til skautaferðar á morgun (sunnudag) ef véður leyfir. Lagt verður af stað kl. 2 e. h. stund- víslega frá bifreiðastöð Steindórs. Pagnandi bær. Frjettaritari Morgunblaðsins á Seyðisfirði sím- ar í gær: í dag á norski ræðis- maðurinn hjer, Jón Jónsson í Firði 62 ára afmæli og sjötugsaf- mæli fyrverandi bæjarfógeti kaup- staðarins um langan aldur, Jó- hannes Jóhannesson í Reykjavík. Fyrir þessum vinsælu mönnum blalcta fánar á stöng um allan bæinn. Eimskip. Gullfoss er í Kaup- mannahöfn. Goðafoss er í Ham- borg. Brúarfoss kom til Yest- mannaeyja í gær. Dettifoss er á leið til Austfjarða frá Hull. Lag- arfoss er á leið til Austfjarða frá Leith. Selfoss er í Leith. Ármenningar efna til skíðaferð- ar á morgun, ef veður leyfir. Lagt verður af stað kl. 9. Þátttaka ósk- ast tilkynt á skrifstofuna, sími 3356, kl. 6—7 í kvöld. Hjónaband. Síðastl. laugardag voru gefin saman í hjónaband ungfrú Anna Guðjónsdóttir og Karl Ólafsson ljósmyndari. Heim- ili þeirra er á Sóleyjargötu 5. Útvarpið: Laugardagur 18. janúar. 8,00 Enskukensla. 8,25 Dönskukensla. 10,00 Veðurfrégnir. 12,00 Hádegisútvarp. 15,00 Veðurfregnir. 19,10 Veðurfregnir. 19 20 Illjómplötur: Ljett lög. 19,45 Frjettir. 20,15 Leikrít: „Kristrún í Hamra- vík og himnafaðirinn", eftir Guðmund G. Hagalín (Guðný Hangikjöt, nýreykt kemur ð markaðinn I dag. mataröeilöin, matarbúðin, Hafnarstræti 5. Sími 1211. Laugaveg 42. Sími 3812. Kjötbúð 5ólualla, Kjötbúðin, Sólvallagötu. 9. Sími 4879. Týsgötu 1. Sími 4685. Kjötbúð Rusturboejar, Laupfavep: 82. Sími 1947. Fröken FIX Þvotta- Hrærið duftið mjög vel út í köldu vatni, og hell- ið síðan upplausninni í bala með heitu vatni, og látið þvottinn liggja í honum eina nótt. — Þjer þurfið ekkert að nudda tauið, hið sjálfvirka efni duftsins losar óhreinindin (einnig kaffi- og súkkulaðibletti) án minstu fyrirhafnar. Tauið er svo undið upp á venjulegan hátt og soðið í nýjum Fix-lög- og loks skolað úr köldu vatni. Þjer veitið því samstundis eftirtekt að þvotturinn yðar verður venju fremur blæfagur og ilmandi frískur, og hendurnar algerlega óskemdar. Guðmnndsdóttir Hagalín, Arn- dís Björnsdóttir, Brynjólfur Jó- hannesson, Indriði "Waage, Val- ur Gíslason). 22,00 Útvarpstríóið leikur. 22,25 Danslög (til kl. 24).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.