Morgunblaðið - 11.01.1938, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 11.01.1938, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 1L janúar 1938. iiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiimiiiiiii Júlíana prinsessa og nsaður hennar Tvöhundruð og fjörutíu skot ef það eru tvíburar FEÁ FRJETTARITAKA VOEUM. KAUPMANNAHÖFN í GÆR. Pað er húist við því, að Juliana Hollandsprinsessa muni þá og þegar eignast ríkiserfingja. Kunnasti fœð- ingalæknir Hollendinga, Grot er kominn til Socstdijk- hallarinnar, þar sem prinsessan dvelur. I Hollandi er nú ekki um annað rætt meir en það, hvort barnið verður sonur eða dóttir. Allir Hollendingar ganga með storksmerki í hnappagatinu, sem áletrað er: Velkomið konungsbarn. Allan sólarhringinn bíða blaða-myndatökumenn fyr- ir utan höllina og heill hópur af erlendum blaðamönnum hefif sest að í gistihúsi, rjett hjá höllinni. Kallarar, skrýddir á miðaldavísu, eiga að tilkynna fæðinguna frá „Grand“-húsinu í Haag. Samtímis verður skotið fimmtíu og einu skoti, ef það er dóttir, hundrað og einu ef það er sonur, og tvö hundruð og fjörutíu ef það eru tvíburar sem fæðast. aiiHiiiiiinmuiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiimiiimiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimimiiiiiiniiiHiimiiiiiimHiiiiumiiiiiiíí Lffvðrður Stalins FEÁ FEJETTAKITAEA VOE.IJM. KHÖFN í GÆR. Tuttugu og fimm þúsund manna lögreglulið hefir verið dregið saman í Moskva, til þess að vernda Stalin, er rússneska ,,þingið“ kemur sam- an á fyrsta fund sinn n.k. mið- vikudaginn. Sjómannakveðjur. Lagðir af stað áleiðis til Englands. Góð líð- an. Kærar kveðjur. Skipverjar á Belgaum. — Byrjaðir á fiskveið- um. Vellíðan. Kærar kveðjur. Skipshöfnin á Skallagrími. Pólverjar og Þjóðabandalagið London,10.jan. F.Ú. Beck, utanríkismálaráðherra Póllands, hjelt ræðu í dag, þar sem hann sagði að Pólland vildi ekki auka á erfiðleika og áhyggjur Þjóðabandalagsins, en samt sem áður yrði það að fá greinilega að vita hverjar skuldbindingar Póllands væru og hve langt þær næðu. Hann sagði, að úrsögn ýmsra stórvelda úr Þjóðabandalaginu hefði skerpt áhrifavald þess, og lægi við sjálft að Þjóðabancia- lagið væri nú orðið að banda- lagi þjóða, sem væru í andstöðu við annað bandalag þjóða, sem stæðu utan þess. Breskar kröfur beint til japanska keisarans Ráðstefna í London i gær FRÁ FRJETTARITARA VORUM. KAUPMANNAHÖFN f GÆR. Mr. Neville Chamberlain situr í dag á ráðstefnu með nokkrum af ráðherr- um sínum til þess að ráðgast við þá um hið alvarlega ástand sem ríkir í Shanghai, vegna hinna ítrekuðu árekstra milli Japana og Breta sem þar hafa orðið undanfarið. Sunday Express gefur í skyn að breska stjómin hafi í hyggju að snúa sjer beint til keis- ara Japana, með kröfur sínar. Alment er álitið, að Bretar muni neita að verða við þeirri kröfu Japana, að veita þeim aukna íhlutun um stjórn alþjóðahverfisins í Shanghai. Stjórnin álítur að það muni reynast hættulegt að veita Japönum nokkur hlunnindi. í Bretlandi er álitið að hinar ítrekuðu árásir Japana á er- lenda hagsmuni í Shanghai, sjeu þættir í skipulagðri tilraun til þess að tryggja Japönum yfirráðin yfir öllum erlendum eignum í Kína. Bretar óttast að virðing þeirra sem stórþjóðar murii bíða álitshnekki, ef þeir gera ekkert til þess að hindra að árásir eins og þær, sem gerðar hafa verið undanfarið á breska hermenn, endurtaki sig. Skákþingið 1. umferð C-listinn er listi Sjálfstæðis- manna í Reykjavík. Skákþingið hófst í K. R.-hús- in s.l. sunnudag og urðu úr- slit þessi: í meistaraflokki: Áki Pjeturs- son vann Sturlu Pjetursson, Haf- steinn Gíslasön og Einar Þor- valdsson gerðu jafntefli. Stein- grímnr Guðmundsson og Guð- mundur Ólafsson biðskák. í 1. flokki: Guðm. S. Guðm. vann Vígl. Möller, Ingim. Guðm. vonn Jón Guðm. (fjv.), Vigfús Ólafsson vann Óla Valdemarsson, Kristján Silveríusson vann Sig. Lárusson, Magnús Jónasson vann Árna B. Knudsen, Jón B. Helga- son vann Hölskuld Jóhannesson. 2. flokkur A: Ársæll Júlínsson vann Guðjón B. Baldvinsson, Ingi- mnndnr Eyjólfsson vann Anton Sigurðsson, Þorsteinn Gíslason vann Þórir Tryggvason, Sæm. Ól- afsson vann Stefán Guðmundsson, Karl Gíslason og Bolli Thorodd- sen jafntefli. 2. flokkur B: Þorst. Jóhanns- son og Sæmundur Kristjánsson jafntefli, Jóhannes Halldórsson og Daði Þorkelsson jafntefli, Sig. Jó- hannsson vann Þorleif Þorgríms- son, Einar Einarsson, vann E Blomquist, Björn Björnsson vann Inga Guðmundsson. 2. flokkur C: Aðalst. Halldórs- son vann Ólaf Einarsson, Egill Sigurðsson vann Guðm. Guðm., Gísli Finnsson vann Kristínus Arndal, Gestur Pálsson vann Ottó Guðjónsson, Guðjón Jónsson vann Óskar Lárusson. Norskir alþýðuílokKs- menn vilja ekki láta kommúnistagleypasig Osló í gær. Miðstjórn norska verkalýðs- flokksins hjelt fund í Osló í gær og tók til meðferðar ár- angur inn af samkomulagsumleit- unum þeim sem fram liafa farið milli Verkalýðsflokksins og Komm únistaflokksins. Samþykt var ein- róma ályktun frá miðstjóm flokks ins, þar sem svo er að orði komist, að miðstjórnin slái því föstu, að samkomulagsumleitanir þær, sem fram hafi farið, hafi ekki leitt af sjer skilyrði til skipulagsbnndinn- ar sameiningar á grundvelli stefnu og meginregla (principper) Verka lýðsflokksins. Verkalýðsflokkurinn hóf sam- komulagsumleitanirnar af einlæg- um vilja til þess að ná jákvæð- um árangri. Miðstjórnin hefir því miður komist að rann um, að norski Kommúnistaflokkurinn tel- ur sig enn bundnari kennisetning- um kommúnistiska alþjóðasam- bandsins en að taka tillit til sam- heldni og traustleika norska verka lýðsins. Norski Verkalýðsflokkur- inn mun halda áfram að vinna að því að framkvæma sameining verkamanna í einn flokk. (NRP. — FB.). K. F. U. K. Aðaldeildarfundnr í kvöld kl. 8V2■ Síra Bjarni Jóns- son talar. Nýir fjelagar teknir inn á fundinum. — Kaffi. OrOugleikar Færeyinga: Fyrirætlanir Dana FRÁ FEJETTAEITAEA VOEUM. KHÖFN í GÆR. Istað Niclasens-fyrir- ætlunarinnar utn að veita ítalska fiskkaup- manninum Gismondi leyfi til þess að hafa bækistöð fyrir fimm ítalska togara í Þors- höfn, sem nú er talin endanlega úr sögunni, vegna neitunar af hálfu dönsku stjómarinnar, hefir danska stjórnin í undirbúningi nýjar fyr- irætlanir til þess að rjetta við atvinnulíf Fær eyinga. Helstu atriðin í þessari nýju fyrirætlan eru: 1) að veita Færeyingum 400 þús. króna lán, til þess að hefja fiskniðursuðu, og gera sjer á annan hátt, mat úr fisk- framleiðslu sinni. 2) Að stuðla að endurnýjun veiðiskipaflota Færeyinga. 3) Að auka kolavinslu og vinslu á postulínsleir í Færeyj- um. 4) Að efla sauðfjárrækt og garðrækt, einkum kartöflurækt í Færeyjum. FRANCO VIÐUR- KENNNIR. Kalundborg í gær. FÚ. Utvarpið í Sevilla játar í dag ófarir uppreisnarmanna við Teruel, en segir að ástæðan til þess að þeir hafi gefist upp hafi verið sú að liðsauki, sem þeir áttu von á, hafi komið of seint. Ðylting var yfirvofandi i Portúgal London, 10. jan. F.Ú. Stjórnin í Portúgal sltýrir frá því, að nýlega hafi stjórn- málalegir æsingamenn innan hersins ætlað að stofna til bylt- ingar, í sambandi við umbóta- löggjöf stj órnarinnar, en að því hafi verið komist í tæka tíð, með því að æsingamennirnir sjálfir hafi misstigið sig á þann hátt, að þeir ljetu tilkynna í útvarpi, að byltingin væri haf- in áður en að til hennar kom. í skíðaferðir fór margt manna um helgina. Veður var ágætt og skíðafæri gott, en snjór var held- ur lítill og þurfti að gæta varúð- ar. Um 120 manns tóku þátt í for Skíðafjelagsins og fjöldi fór með > öðrum íþróttaf jelögum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.