Morgunblaðið - 03.12.1943, Side 1
30. árgangur
274. tbl. — Föstudagu'r 3. desember 1943.
Isafoldarprentsmiðja h.f.
O-VA
ÞJÓÐVERJA ROFNAR
Rússland:
Vlest barist {
Dnieperbugnum
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
EFTIR FREGNUM frá Rúss-
landi að dæma, eru nú mestu
orusturnar háðar í Dnieper-
bugnum, einkum suðvestur af
Kremenchug, þar sem Rússar
gera harðvítugar tilraunir til
þess að sækja fram.
Hafa þeir riiætt þar miklum
gagnáhlaupum Þjóðverja, og
bardagar orðið feikna harðir.
Segjast Rússar hafa getað náð
nokkrum stöðvum af Þjóðverj-
um þarná, en við Cherkassi
segja Rússar frá hörðum gagn-
áhlaupum Þjóðverja, sem var
hrundið.
Dregið hefir úr orustum á
svæðinu fyrir norðan Gomel,
en þar eru nú hin verstu veð-
ur, en miklu betri suður í
Dnieperbugðunni. Þó hafa
Rússar sótt nokkuð fram fyrir
austan Slobin.
Hvorugir minnast nú neitt á
bardaga fyrir vestan Kiev, þar
sem orustur hafa verið harð-
astar að undanförnu og lauk
með því, að Þjóðverjar náðu
Korosten.
Þjóðverjar greina frá miklu
áhlaupi Rússa á Perekopeið-
inu, en segjast hafa hrundið
því og gjöreytt árásarliðinu.
Chiang Kai
Shek kominn
heim
London í gærkveldi.
Chiang Kai Shek marskálk-
ur og frú hans eru komin heim
til Chungking og fóru loftleið-
is, að því er opinberlega hefir
verið tilkynt í borginni. Flug-
ferðin heim til Chungking var
farin í tveim áföngum, en ekki
er um það getið, hvar lent hafi
verið á leiðinni þangað frá
Cairo. — Réuter.
Vjelbátur strandar
I ’rú frjettaritara vorum
á ísafirði.
V -1E LBÁTURINN „Sæ-
borg“ frá Súgandafirði strand
aði í fyrradág við Fjallskaga
í Dýrafirði. — Mannbjörg
varð.
„Sæborg“ er 14 rúmlestir
að stærð, eign Sturlu Jónsson-
ar,' útgerðarmanns.
skemdri kirkju
Ögnir ófriðarins ganga ekki síður yfir kirkjur, en önnltr
hús, og hefir fjöldi kirkna víðsvegar verið eyðilagðav í styrj-
öldinni. Myndin er tekin í kirkju á Italíu, sem hefir orðið
fyrir fallbyssukúlum.
Gefumst aldrei upp,
segir Göbbefs
London í gærkveldi. — Hin \
vikulega grein Göbbels í „Das
Reich“, sem kom út í dag, fjall-
. ar enn um uppgjöf. Göbbels
segir m. a. í grein sinni:" „Það
hefir enn ekki verið háð styrj-
. öld án mótlætis. Við megum
I aldrei viðurkenna, að við höf-
um beðið ósigur“.
] „Dagsskipanin er því — gef-
umst aldrei upp“.
(Reuter.)
Menn skyldaðir
til námavinnu
London í gærkveldi.
BEVIN, verkamálaráðherra
Breta, tilkynti í dag, að viss
hundraðshluti þeirra manna,
sem kvaddir verða til herþjón-
ustu í Bretlandi í ár, yrðu að
fara til vinnu í kolanámum, en
ekki í herinn. Verður varpað
hlutkesti um það, hverjir fari
í námuvinnuna, og er svo ráð
fyrir gert, að 30.000 menn hafi
komi'ð í námavinnu á þenna
hátt í apríllok n.k. — Reuter.
Slys í HafnarMi
ÞAÐ SLYS vildi til í Skipa-
smíðastöð Hafnarfjarðar í gær-
dag, að siglutrje fjell á einn
starfsmann stöðvarinnar, Eirík
Ágústsson og slasaðist hann all
mikið. tlann var þegar fluttur
í sjúkrahús. Siglutrjeð hafði
fallið á læri Eiríks.
Ekki var vitað í gærkveldi,
hve maðurinn var mikið slas-
aður, þar sem ekki var búið að
taka mynd af fætinum.
Nýtt vopn handa
flugvjelum
Amerískar sprengjuflugvjel
ar á Kyrrahafssvæðinu hafa
nýlega verið útbúnar með nýju
og mjög öflugu vopni. Eru þetta
umbygðar Mitchell-flugvjelar
og er hið nýja vopn fallbyssa
með 75 mm. hlaupvídd. (Flug-
vjelafallbyssur með meiri hlaup
vídd en 32 mm. hafa hingað til
ekki verið notaðar).
Hefir þetta nýja vopn verið
reynt ^árásum, og hitti flug-
maður einn japanskt skip með
einni sprengikúlu úr hinni nýju
fallbyssu, og kviknaði í allri
yfirbyggingu þess. Þessi sami
flugmaður hitti nokkru síðar
japanska flugvjel á flugvelli,
og sprakk hún í loft upp. Kúl-
urnar úr hinni nýju fallbyssu
vega um 14 pund. — Reuter.
Stokkhólmi í gærkveldi.
MERKI um loftárásahættu
voru gefin í Berlín seint í
kvöld, en ekki hefir enn vitn-
ast um það, hvort sprengjum
var varpað á borgina. Síma-
sambandi var slitið milli Stokk
hólms og Berlínar um tíma í
kvöld. — Reuter.
Þýski herinn hörfar
með ströndinni
London í gærkvöldi.
blaðsins frá Reuter.
Einkaskeyti til Morgun-
ÁTTUNDI herinn breski hefir í hörðum bardögum
rofið varnir Þjóðverja norðan Sangro-árinnar á um 24
kílómetra löngu svæði og sótt þar fram alllangt og sækja
enn. Þjóðverjar halda hægt undan og gera áttunda hern-
um miklar skráveifur á undanhaldinu, með baksveita-
hernaði og sprengjulögnum hvarvetna, er því verður við
komið.
______:___________________ Bretar hafa tekið um 1000
fanga í bardögum þeim, er
þarna hafa staðið. — Segja
fregnritarar með áttunda
hernum, að Sangro-virkja-
línan hafi verið allramger,
þótt ekki væri hún ýkja
breið. Voru víða skotbirgi
höggvin út í kletta, enn-
fremur vjelbyssuhreiður,
vel falin.
Sjerfræðingar láta það
álit í ljósi, að Þjóðverjar
muni líklega nema staðar
nokkuð nærri Pescara, en
það er hafnarborg «in all-
stór á Adriahafsströndinni,
en eru þó ekki allir á einu
máli um þetta atriði.
Loftherinn gerði í gær
miklar árásir á stöðvar
Þjóðverja andspænis fimta
hernum, og var árásunum
aðallega beint gegn nokkr-
um hæðum, sem mikið hef-
ir verið barist um, og sem
eru nærri megin veginum
til Róm.
Flugvirki frá Norðvest-
ur-Afríku rjeðust á kúlu-
leguverksmiðjur í Torino,
en önnur flugvirki gerðu
atlögu að höfninni í Mar-
seilles.
Svíar móf-
mæla slúd-
enlahandtök-
unum
London í gærkveldi.
SÆNSKA STJÓRNIN hefir
sent þýsku stjórninni mótmæli
vegna þess, að Þjóðverjar ljetu
í fyrradag handtaka 1200
norska stúdenta við Oslohá-
skóla og alla prófessora við há-
skólann og setja í fangabúðir.
Segir í orðsendingu sænsku
stjórnarinnar, að samkomulag-
ið milli Svía og Þjóðverja muni
fara mjög versnandi, ef Þjóð-
verjar endurskoði ekki afstöðu
sina viðvíkjandi stúdentahand-
tökunum. — Reuter.
ARAS A ENGLAND.
London í gærkveldi. — Nokkr-
ar þýskar flugvjelar komu í
morgun inn yfir suðvestur og
suðurströnd landsins. Sprengj^
um var varpað á nokkrum stöð
um, en' tjón var lítið og mann-
tjón ekkert. Ein flugvjel var
skötin niður. — Reuter.
Verðlækkun-
arskatlurinn
feldur
FRUMVARPIÐ um verð-
lækkunarskattinn var felt við
2. umræðu í efri deild í gær.
Atkvæðagreiðslan varð nokk-
uð sjerstæð. Fyrst voru sam-
þyktar 1. og 2. gr. frv., en síð-
ari greinar feldar. Og að lok-
um var. frv. í heild felt. Var
fáment í deildinni, því að
nokkrir þingmenn eru lasnir
(inflúensa).
Brol á verðlags-
ákvæðum
Frá skrifstofu verlags-
stjóra hefir blaðin bor-
ist eftirfarandi:
NÝLEGA hefir verslun Gísla
Stefánssonar, Garðhúsum, Vest
^ mannaeyjum verið sektuð fyrir
■ að selja vindlinga of háu verði.
Sekt og ólöglegur hagnaður
ínam kr. 250.00.
Tveir íslenskir tog-
arar laskast
í árekstrum
FYRIR SKÖMMU hafa tveir
íslenskir togarar lent í árekstr
um í hafi. Þeir voru ekki sam-
flota, annar var á leið til
Islands, en hinn á leið til Eng-
lands. — Engin slys urðu á
mönnum.
Óli Garða frá Hafnarfirði
lenti í árekstri á leið til Eng-
lands og varð að fara til ann-
arar hafnar en fyrirhugað var
og selja afla sinn þar, og fá
viðgerð.
Vörður frá Patreksfirði lenti
í árekstri, er hann var á leið
til íslands. Skipið leitaði til
hafnar, þar sem gert var við
tjónið.