Morgunblaðið - 03.12.1943, Side 12
J’östudagfur 3. desember 1943,
J2
Fuliveldiskveðjur
erlendis frá
RÍKISST.JÖKA ok ríkis-
stjórn bárust kvcðjur á full-
veldisdaginn erlendjs frá bæði
frá Islendýigum búsettum
ytra og frá Roosevelt forseta.
Kveðja Roosevelts til Sveius
Bjömssonar ríkisstjóra var á
)>essa leið:
„Bandaríkjabjóðin og jeg
sendum yður og íslensku þjóð-
iuni -kveðjur og heillaóskir á
þcssum þjóðarafmælisdegi Is-
lands. Leyfið mjer einnig að
færa yður minar persónulegu
'óskir uni heilsu yðar og vel-
ferð. -— Franklin D. Roose-
veit“.
Frá íslendingum
í Svíþjóð.
„Islendingar í Svíþjóð, sem
inn 45 eru samankomnir í
sendiráðinú á fullveldisdag-
inn senda ríkisstjóra, ríkis-
stjórn og öllum íslendinguni
bjartanlegar kveðjur og heit-
ustu óskir um framtíð ætt-
jarðarinnar. Lifi hið frjáls
Jsland' ‘.
Frá íslending'um
í Noregi.
„Islendingar í Noregi biðja
sendiráðið í Stokkhólmi, að
hera fram alúðarfyllstu kveðj-
ur og bestu óskir til ríkis-
stjóra og ríkisstjórnar á 25'
ára fullveldisdegi".
Frá Islendingunl
í London.
. „Á 25 ára afmæli fullVeld-
is Islands sendi jeg yður og
allri íslensku þjóðinni mínar
irmilegustu hamingjuóskir.
Jeg óska af alhug, að nýja
árið færi fullkomna lausn og"
tndurreisn fullvcldisins, sem
A'jcr mistiun 1262. Björn
T’jörnssón, forseti íslendinga-
fjelagsins í London“.
Frá Islendingum
í Edinborg.
„Islendingar í Edinborg
senda þegnlegar kveðjur í til-
efni af 1. desember og inni-
legustu óskir um framtíðina
og fullkomið sjálfstæði. Sig-
ursteinn Magnússon ræðis-
rnaður“.
Frú Gerd Grieg les
upp í Iðnó í kvöld.
FRÚ GERD GRIEG leikkona
ætlar að lesa upp í Iðnó í kvöld
með aðstoð Arna Kristjánsson-
ar píanóleikara.
Frúin mun lesa m. a. upp
Bergljót eftir Björnson, „Fjall-
ið klætt“ og kvæði eftir Werge-
land. Auk þess- syngur frú
Grieg nokkur norsk þjóðlög.
Arni Kristjánsson leikur m.
a. Ballade eftir Edvard Grieg.
RÁÐIST Á CHER-
BOURGH.
London í gærkveldi. — Bresk-
ar Boston- og Typhoonflug-
vjelar rjeðust í björtu í gær á
ýmsa flugvelli og aðrar stöðv-
ar Þjóðverja í næsta nágrenni
við borgina Cherbourgh í
Norður-Frakklandi. Flugvjel-
arnar komu allar aftur.
Sitja fimd í Teheran
Fullveldisins minst á
Akureyrí
Frá frjettaritara vorum
á Akureyri.
FULLVELDIS ÍSLANDS var
Churchill.
NEÐRI DEILD lauk loks í
gær umræðunni um þings-
ályktunartillögu Gunnars 'Thor
oddsen, um rannsókn mjólkur-
mála.
Umræður um tillögu þessa
hafa verið miklar og harðar,
en mikið endurtekningar á
því, sem búið var að marg-
stagast á áður í deildinni.
Atkvæðagreiðslu um málið
var frestað í gær.
Kvæði Nordahls
Grieg prenluð hjer
á norsku
RJETT FYRIR JÓLIN er von
á nýrri bók frá Helgafellsútgáf
unni, eftir eitt kunnast ljóð-
skáld Norðurlanda, og það, sem
mesta athygli hefir vakið hin
síðari ár, Norðmanninn og
frelsishetjuna Nordahl Grieg.
Kvæðin verða prentuð á norsku
og aðeins gefin út í tvö hundr-
uð tölusettum eintökum. Mun
höfundurinn bregða sjer hing-
að og dvelja hjer einn dag til
þess að lesa prófarkirnar. —
Fyrsta kvæðið í bókinni hefir
skáldið tileinkað konu sinni
frú Gerd Grieg, sem hjer vinn-
ur nú meðal annars að undir-
búningi að uppfærslu á Pjetri
Gaut fyrir Tónlistarfjelagið og
Leikfjela,g Reykjavíkur.
Helgafellsútgáfan mun sam-
hliða þessari útgáfu annast út-
gáfu á ljóðunum, til sölu í Eng-
landi. Mun það vera í fyrsta
skifti, sem íslenskt forlag gef-
ur út bók fyrir enskan markað.
Ný ölgerð
Á SÍÐASTA fundi heilbrigð-
isnefndar var lögð fram beiðni
frá ölgerðinni „Atlantik“,
Hörpugötu 14, um að mega reka
ölgerð í því húsi. Eigandi er
Jón Finnbogason, Hörpugötu
38. Nefndin samþykti að leyfa
rekstur ölgerðarinnar til bráða
birgða.
Roosevelt.
ÞAÐ HEFIR nú verið kunn-
gert opinberlega, að þeir
Churchill, Roosevelt og Chiang
Kai Shek hafi -að undanförnu
setið á fundqm í Kairo og* rætt
þar aðallega styrjöldina við
Japana. Var þar tekin sú á-
kvörðun, að barist skyldi gegn
Japönum, uns þeir gæfust upp
skilyrðislaust, og skyldu síðaú
öll lönd, er þeir hafa unnið,
verða tekin af þei-m og einnig
þau landsvæði, er þeir fengu
hjá bandamönnum frá Þjóð-
verjum eftir síðustu styrjöld,
en þá voru Japanar andstæð-
ingar Þjóðverja, svo sem kpnn-
ugt er. Ekki kváðust aðilar
samt ætla að bæta við sig þeim
löndum, er tekin yrðu af Jap-
önum.
Þeir Roosevelt og Chiang
Kai Shek komu loftleiðis til
Kairo, og var kona Chiang Kai
Shek með manni sínum á ráð-
stefnunni. Hinsvegar er álitið,
að Churchill hafi komið sjó-
veg.
Margir búast við því, að
þessi fundur tákni það, að bráð
lega dragi til mikillar sóknar
gegn Japönum, en annars eru
fregnir af ráðstefnunni litlar
enn sem komið er.
Það var gert kunnugt, að
þremenningunum hefði komið
saman um það, að sumt af lönd
um þeim, er Japanar hafa náð,
skuli verða sjáífstæð eftir stríð
ið, en önnur renná undir þau
lönd, er þau áður töldust til.
Mörgum getum er að því
leitt, hvert þeir Roosevelt og
Churchill hafi farið frá Kairo.
Hefir engin opinber fregn
komið um það, en sumar frjett-
ir segja þegar, að þeir sjeu á
fundi með Stalin einhversstað-
ar í Persíu, jafnvel í Teheran.
Stalin.
Fullveldisdaqsins
minst í Hafnaiiirði
í HAFNARFIRÐI gengust
sjálfstæðisfjelögin Fram, Stefn
ir og Vorboði fyrir fullveldis-
skemtun í Sjálfstæðishúsinu 1.
desember.
Bjarni Snæbjörnsson setti
samkomuna, en ábalræðuna fyr
ir minni dagsins flutti Þorleif-
ur Jónsson. Fleiri tóku til máls.
Þá söng barnakórinn Sólskins-
deildin nokkur lög.
Eftir sameiginlega kaffi-
drykkju var stiginn dans fram
eftir nóttu. Fór skemtun þessi
hið besta fram.
Glæsilegur iullveld-
Isfagnaður Heim-
dallar
HEIMDALLUR, fjelag ungra
Sjálfstæðismanna efndi til full
veldisfagnaðar í Tjarnarcafé 1.
desember. Fagnaðurinn hófst
með sameiginlegu borðhaldi kl.
7 e. h. Ludvig Hjálmtýsson
bauð gesti velkomna með
stuttri ræðu. Undir borðum
voru fluttar ræður og fleira var
þar til skemtunar. Jóhann
Hafstein framkvæmdastjóri
Sjálfstæðisflokksins flutti full-
veldisræðuna. Valtýr Stefáns-
son ritstjóri mælti fyrir minni
æskunnar og ungra Sjálfstæð-
ismanna, en Guðmundur Guð-
mundsson flutti kvennaminni.
Var gerður góður rómur að
máli ræðumanna. Á eftir og á
milli ræðanna var almennur
söngur. Frú Soffía Guðlaugs-
dóttir leikkona las upp ætt-
jarðarkvæði og vakti lestur
frúarinnar almenna hrifningu.
Pjetur Á. Jónsson óperusöngv-
ari skemti gestum með glæsi-
legum söng, og varð hann að
endurtaka mörg lögin og syngja
aukalög. Eftir að borð höfðu
verið rudd var stiginn dans
fram undir morgun.
minst á Akureyri. 1. des. kl.
11 f. h. var guðsþjónusta í
kirkjunni, sóknarpresturinn
Friðrik J, Rafnar vígslubiskup
prjedikaði. Klukkan 3 e. h,
gekst Stúdentafjelag Akureyr-
ar fyrir samkomu í samkomu-
húsi bæjarins, þar sem minst
var 25’ára sjálfstæðis íslands.
Ræður fluttu þar Sigurður
; Eggerz bæjarfógeti og dr. Krist
inn Guðmundsson mentaskóla-
kennari. Árni JónsSbn stúdent
, las upp kvæði og Karlakórinn
Geysir undir stjórn Ingimund-
ar Árnasonar söng allmörg lög.
Stúdentafjelag Akureyrar
hafði hóf um kvöldið að Hótel
Gullfoss. Aðalræðumenn þar
voru: Sigurður Eggerz bæjar—
fógeti og Stelngrímur Jónsson
fyrv. bæjarfógeti.
Lisíaverk efiir
íslenska konu
í kvikmynd
TJARNARBÍÓ er nú farið að
sýna kvikmyndina „Thd Moon
and Sixpence11, eftir sögu W.
Sommerset Maugham. í þessari
sögu er sagt frá hinu einkenni-
lega lífi málarans Strickland,
sem yfirgaf konu sína og börn
til þess að mála. Hann fór síð-
an til Suðurhafseyjarinnar Ta-
hiti, þar sem hann andaðist
blindur, úr holdsveiki.
Myndin er ' öll hin áhrifa-
. mesta. Vel leikin og vel tekin.
Það mun vekja sjerstaka at-
hygli hjer, að í myndinni er
höggmynd eftir íslensku lista-
j konuna Nínu Sæmundsson. Er
^ hennar sjerstaklega getið í inn
gangi að myndinni. Nína býr í
Kaliforníu og hefir vakið mikla
i athygli á höggmyndum sínum.
- Hátíðahöldin 1. des
Framh. af bls. 2.
norska þjóðin öll öðlist frelsi á
ný og geti hafið öflugt samstarf
með öðrum Norðurlandaþjóð-
um á grundvelli hinnar frjáls-
huga lífsskoðunar, sem um lang
an aldur hefir verið aðalsmerki
norrænna þjóða“.
j Ljek lúðrasveitin þá þjóð-
(söng Norðmanna og tóku allir
I undir.
| Klukkan 3 e. h. hófst sam-
koma í hátíðasal Háskólans.
Um kvöldið gengust stúdent-
ar fyrir hófi að Hótel Borg og
i hófst það með sameiginlegu
borðhaldi, en undir borðum
I töluðu þeir Bjarni Jónsson
i vígslubiskup og Lúðvík Guð-
mundsson. Ríkisstjóri Sveinn
Björnsson heiðraði samkomuna
^með því að koma sem snöggv-
j ast og segja nokkur orð.
Smckklegir sýningar-
gluggar.
Sýningargluggar ýmsra
helstu verslana í bænum voru
skreyttir viðhafnarbúningi og
var það í alla staði smekklegt
og setti mikinn svip á bæinn,
Útvarpið.
Útvarpið mintist dagsins með
samfeldri dagskrá frá klukkan
4—7, „þættir úr sögu lands og
þjóðar og bókmentum“. Þeir
Pálmi Hannesson, Helgi Hjör-
var og Vilhjálmur Þ. Gíslason
höfðu tekið þennan dagskrár-
lið saman og vakti hann mikla
eftirtekt. Þeir Pálmi, Helgi og
Vilhjálmur tóku þátt í flutn-
ingi dagskrárinnar, auk þess
Jón Sigurðsson, Lárus Pálsson,
Helga Valtýsdóttir, Ragnar Jó-
hannesson og Pjetur Pjeturs-
son.
í útvarpinu um kvöldið
flutti Gísli Sveinsson, forseti
sameinaðs Alþingis, ávarp, Ein
ar Arnórsson dómsmálaráð-
herra flutti ræðu og Ólafur
Lárusson prófessor flutti ræðu
af hálfu Stúdentafjelags Reykja
víkur.
SKOTIÐ Á DURAZZO.
London í gærkveldi. — Tveir
breskir tundurspillar hafa á
næturþeli laumast inn á höfn-
ina í Durazzo í Albaníu og skot
ið þar á hafnarmannvirki og
fleiri stöðvar.