Morgunblaðið - 27.03.1945, Side 12

Morgunblaðið - 27.03.1945, Side 12
12 MORGUNBLABIÐ Þriðjudagur 27. mars 1945. — Siettinius Framh. af bls 9 áform við starfsmenn sína, talar við forsetann og skrif- ar hjá sjer ýmsar athuga- semdir. Utanríkisráðherrann er maður kröftugur og þjettur á velli, en honum vinst lít- ill tími til að iðka líkams- Var bjargað úr lík- húsinu Frá yfirheyrslum Þjóð- verja í Noregi. Frá norska blaðafull- trúanum. FRJETTARITARI við Afton- æfingar. Á stórbýli hans í Virginía ríki, er einkasundlaug og fjöldi reiðhesta; langar hann mjög að skreppa þangað sjer til afþreyingar, en hefir víst enga .von um það. Skjót afgreiðsla. VIÐ fyrstu móttöku Stett iniusar eftir að hann tók við embætti. gafst mönnum ágætt tækifæri til að sjá hvernig hann ætlar að hafa hraðan á um embættisrekst ur sinni. Fjöldi diplomata hafði óskað þess að ná fundi hins nýja utanríkis- ráðherra. Hann bauð þeim þá öllum samtímis til veislu í húsi einu við sömu götu og andspænis utanríkisráðu neytinu. Þegar allir gest- irnir voru saman komnir, stóð Stettinius upp, kvað það gleðja sig að sjá þá og þakkaði þeim hlýhug þeirra. Hann sá svo um, að einn svaraði fyrir hönd þeirra allra. Síðan gekk hann aftur vf- ir götuna og hvarf til vinnu sinnar. Myndaspjald Hallveigarstaða af hinni fögru höggmynd Einars Jónssonar, „Verndin", fæst í flest um bókabúðum. Sömuleiðis í skrifstofu Kvenfjelagasambands íslands og hjá fjáröflunarnefnd Hallveigarstaða. bladet í Gautaborg skýrir frá því, að norskur ættjarðarvinur einn hafi nýlega komið frá Noregi eftir að hann hann hafði orðið fyrir hroðalegum pynd- ingum af hendi nazista. Þjóðverjar höfðu fleygt hon- um inn í líkhús. Þeir hjeldu, að hann væri dauður. Vinir hans ætluðu að ná líkinu til greftrunar, en urðu þess varir, að lífsmark var með honum. Var nú farið með hann til læknis. Hann komst að raun um, að handleggir mannsins vóru brotnir á 13 — þrettán — stöðum. Mörg rifin brotin, fing ur mölvaðir, nokkrar tennur dregnar út og varir með mörg- um skurðum. Nefið var möl- brotið. En auk þess för um allan líkamann eftir fótaspörk. Þjóðverjar grunuðu hann um að hafa tekið þátt í mótþróa- verkum, og tóku hann til yfir- heyrslu, þar sem honum var misþyrmt hroðalega til þess að pína hann til sagna. Síðan var honum fleygt í myrkraklefa. Þjóðverjar ætluðu að pína hann til að segja frá, hverjir hefðu verið að verki með hon- um. Það tókst ekki. Nokkru seinna var hann aft- ur tekinn fyrir, og þá mis- þyrmt svo, að böðlar hans hjeldu að hann væri skilinn við. Hann lifði þetta af, en er örkumla maður, er aldrei get- ur neina björg sjer veitt. Aðalfundur Ekkna- Sjoðs AÐALFUNDUR Ekknasjóðs Reykjavíkur var haldinn 12. þ. m.. Vígsluþiskup sr. Bjarni Jónsson, sem um áratugi hefir verið formaður sjóðsins, minnt ist með fögrum orðum í fundar byrjun þjóðarinnar og mælti hluttekningarorð vegna harma þeirra er orðið hafa. Eignir sjóðsins höfðu aukist á liðnu ári um kr. 4.511,00 og er sjóðurinn nú kr. 118.631,74 og er að mestu ávaxtaður í Söfnunarsjóði Islands og Veð- deildarbrjefum. Fjelagar eru tæp 300 og höfðu þeir allir greitt árgjöld sín. Skipt hafði verið milli 94 ekkna látinna fje lagsmanna þeim hluta af tekj- um sjóðsins er lög hans heim- ila og er svo gjört í byrjun des- ember ár hvert. Hafa nokkrar ekkjur notið þessa í allt að 40 ár. Árgjöld til sjóðsins hafa alt- af verið mjög lá en voru á fund inum ákveðin kr. 15,00 fyrir líð andi ár. Mjög var rætt um nauðsyn þess að efla, sjóðinn, þessa 55 ára gömlu, merku stofnun og voru þar um allir á einu máli. Ýmsar tekjuöflunarleiðir voru ræddar. Sjóðurinn hefir, auk árgjalda fjelagsmanna haft drjúgar tekjur af minningagjöf um og áheitum, sem þykja vel gefast. Stjórn sjóðsins skipa nú sem áður vígslubiskup, sr. Bjarni Jónsson, sem er formaður sjóðsins, Sigurbjörn Þorkelsson kaupmaður, Jón Jónsson frá Bala verslunarmaður, Jón Sig- urðsson innheimtumaður, Sig- urjón Jónsson verslunarstjóri sem er gjaldkeri sjóðsins og Guðni Egilsson múrarameist- ari og hefir hann verið fjelagi í sjóðnum í 50 ár. Trjesmiðir Okkur vantar trjesmiði í inni- og útivinnu um langan tíma. Trjesmiðjan Mjölnisholti 12 — Sími 4483. Alhugasemd í sambandi við frjettatilkynn ingu frá nefndinni, dags. þ. 16. þ. m., sem birt var í blaði yðar, rviljum vjer geta þess, að fisk- mjöl það, er þar um getur, er jeinungis vjelþurkað fiskmjöl. Ekkert var selt af sólþurkuðu fiskmjöli. Reykjavík, 26. mars 1945. Samninganefnd utanríkisvið- Frelsisvinum bjarg- að með snarræði úr Shellhúsinu Frá danska sendiráðinu: ÁREIÐANLEGAR fregnir eru nú komnar af því, að 300—400 Þjóðverjar hafi farist í loftárás inni á Shellhúsið í Höfn. Fyrstu sprengjurnar fjellu fyrir framan húsið, þær urðu varðmönnum að bana. Hið mikla bifreiðaskýli sprakk í loft upp. Næstu sprengjur hittu neðstu og næstneðstu hæð húss ins, en aðrar voru tímasprengj- ur og fjellu í húsagarðinn. Frá einni Moskiloflugvjelinni var skotið af vjelbyssum, á Shellhúsið. En kúlur þaðan hittu hús Stúdentafjelagsins, þar voru Þjóðverjar, Turn Frú- arkirkju og Sívali turn bera merki þeirrar skolhríðar. Höyer skrifstofustjóri verka- mannaráðuneytisins var á leið niður stiga í Shellhúsinu. Stig- inn datt niður með hann á næstu hæð fyrir neðan, en hann slapp ómeiddur og hljóp út úr húsinu yfir særða og dauða Þjóðverja. Lögreglumaður einn, sem var meðal fanganna í Shellhúsinu, sýndi frábært snarræði. Hann 1 lá á bekk og las í bók, er hann heyrði flugvjelarnar lækka flug ið yfir húsinu. Hann gat mölv- að hurðina með rúminu sínu og komst út. náði í lyklana af skjálfandi Gestapomanni og gat opnað klefa nr. 6—22. Hljóp síðan út og hitti frelsisvini fyr- ir utan húsið og Ijet þá hafa lyklana að hinum klefunum. Þegar loftárásin skall yfir, var verið að leiða Dana einn til yfirheyrslu. Er vjelbyssukúl- urnar komu inn um gluggana, fleygðu varðmenn sjer á gólfið og fanginn slapp. I garðinum við húsið var bíll með vjelarnar í gangi. Nokkrir fanganna notuðu sjer af því og keyrðu á flótta í bílum. Fallhlífar finnast. Stokkhólmi: — Tuttugu fall- hlífar, sem í hjengu vopn, skot færi og sprengiefni, fundust ný lega í Svíþjóð, rjett við landa- mæri Noregs. Blöðin í Gauta- borg telja, að þessu hafi verið varpað úr flugvjelum banda- manna og átt að fara til norskra skæruliða. Aðalfundur Vestfirðinga- fjelagsins AÐALFUNDUR Vestfirðinga fjelagsins var haldinn að Hótel Borg 21. þ. m. — Formaður fje lagsins Guðl. Rósinkranz gaf skýrslu um starf fjelagsins. Fjelagið hafði haft þrjá skemti fundi með fjölbreyttri dagskrá, auk mjög fjölmenns Vestfirð- ingamóts um miðjan febrúar Þá hefir fjelagið með höndum útgáfu á ritverki um Vestfirði og er nú verið að prenta fyrstu bókina í því safni. Bók sú er eftir Steindór Steindórsson menntaskólakennara og fjallar um gróðurlíf á Vestfjörðum. I bókinni verða margir uppdrætt ir og nokkrar myndir. Landa- kort yfir Vestfirði á að fylgja bókinni. Fjelaginu hafa þegar borist 7000 kr. styrktarfje til útgáfustarfseminnar frá sýslu- fjelögunum á Vestfjörðum. Þá hefir fjel. beitt sjer fyrir Bygða safni Vestfjarða og leggur ár- lega 1 kr. af hverjum fjelags- manni í byggðasafnssjóðinn, ent í þann sjóð er verið að safna nú á Vestfjörðum og er tilætlunin ð hefja byggingu safnsins strax að stríði loknu. í þeim sjóði eru nú um 30 þús. kr. En sjóðseign ir Vestfirðingafjelagsins eru nú um 13 þús. kr. Ur stjórn fjelagsins gengu að þessu sinni Guðl. Rósinkranz, Elías Halldórsson skrifstofu- stjóri, dr. Símon Jóh. Ágústs- son og Sigurvin Einarsson kenn ari og voru þeir allir endurkosn ir. Fyrir voru í stjórninni frú Ásta Sveinsdóttir, fröken María Maack ‘ög Sveinbjörn Finnsson, verðlagsstjóri. Um 800 manns eru nú í fjelaginu. Framh. af bls. fimm. er meðal þeirra leikrita Shake- speares sem oftast eru leikin á helstu leiksviðum heimsins. enda er Shylock ein af fræg- ustu persónum skáldsins. Sýn- ing Leikfjelagsins á þessu leik- riti er fjelaginu til hins mesta sóma og má tvímælalaust telj- ast merkisviðburður í sögu fje- lagsins, svo einslæð og athyglis- verð sem sýningin er. Sigurður Grímsson. I X-9 Eftir Roberf Slorm AS FOR OOKTOfC KL006 - \ | YCUR FATHES-ME'LL BE ) I OUT CF CIRCULATION fOf. \ \ TMc OURATION... AMD'—-4 \ ,- TMSN ÚOAÍE.'_/ 1 DON'T J I wANT T0 m Æ ý ' \ 6EE MIM \-ever! T'LL Bc PAS5IN6 THROUSH WA6HINGTON WHcN I FiNlSH WORK ON AIY BOOK1 5HALL I--- THAT 1&, WOULD VOU WANT A1E TO--- 600D-BYB, MISS DORRE — WILPA.. HERE'S ONE FOR THE 0OOK' THANKS FOR FERRVlN& US OFF THE ISLANO, MISS DORRÉ...I'LL SENO A CREW BACK TO REMOVE THE RADIO EOUlP/MENT AND SALVA6E THE PLANE — UNCLE s'------ 6AM WANT5 THAT STUFF • ( TES. ^ BABY, IF YOU DON'T 6IVE M£ A RING, E'LL NEVEP READ ANOTHER , OF VOUP K YARNSl Á' Pcntures SynJicate, Inc , World 'hts rcservcd 1—2) Ottó: — Ungfrú Dorré, þakka yður kær- lega fyrir að ferja okkur í land. Jeg sendi svo nokkra menn eftir sendistöðinni og til þess að ná flugvjelinni. Sam frændi þarf á þessum hiutum að halda. — Vilda: Já, auðvitað. — Ottó: Hvað föður yðar viðvíkur, þá verður hann í fangelsi út stríðið og eitthvað lengur. — Jeg kæri mig ekki um að sjá hann framar. 3—4) Vilda: — Jeg kem við í Washington, þegar jeg hefi lokið við bókina, kærirðu þig þá nokkuð um að hitta mig. — X-9: Góða mín, ef þjer hringið ekki til mín, mun jeg aldrei lesa fleiri bækur eftir yður ... Bless, ungfrú Dorré ... Vilda, hjer færðu einn koss fyrir bókina.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.