Morgunblaðið - 27.03.1945, Side 14

Morgunblaðið - 27.03.1945, Side 14
MORGUNBLAÐlt/ ÞriðjudagTir 27. mars 1945. A SÓ HRING Eftir Louis Bromfield 8. dagur. Við Lexington Avenue nam hann alt í einu staðar. — Hann hafði rjett að segja rutt gam- alli konu um koll. Hann stóð andartak og starði á hana. Hann var ekki á því hreina með, hvort hann var vakandi, eða hvort hann var aðeins að dreyma. Þetta var gömul kona og hún var ekkert frábrugðin öðrum gömlum einstæðings- konum. Hún var bogin í baki, andlitið lítið og holdskarpt og því nær alveg hulið bak við rif ið, óhreint sjal, sem hún hafði vafið um höfuðið. Hún var að róta í öskutunnu. Hún var að leita að einhverju nýtilegu. — Hún leit ekki einu sinni upp, jpegar hann rakst á hana. Hugs un hans skýrðist smám saman og hann stakk hendinni í vas- ann, af gömlum vana. Þegar hann stóð andspænis einhverj- um vesalingum, sem lífið hafði leikið grátt, kenndi hann í brjósti um þá og fanst hann verða að gefa þeim ölmusu, ef til vill vegna þess, að það var það eina, sem hann gat gefið. Ef til vill fann hann einnig til blygðunar yfir því, hvernig hann hafði sóað og sólundað þeim verðmætum, sem lífið hafði lagt honum í hendur, án þess hann hefði nokkuð til Jpeirra unnið, meðan í kringum hann úði og grúði'af fólki, sem átti ekki málungi matar, án þess það hefði nokkuð af sjer gert, annað en vera til. Hann dró tíu dollara-seðil upp úr vasa sínum. Gamla konan var svo niðursokkin í að róta í ösku tunnunni, að hann varð að kalla tvisvar í hana, til þess að vekja athygli hennar á sjer. Hann rjetti henni peningana og var um leið gripinn ákafri löngun til þess að hlaupa burt, eins og fætur toguðu. En gamla konan tók ekki strax við peningunum. Hún horfði fyrst tortryggnis- lega á hann stundarkórn, en þreif síðan utan um hönd hans og hjelt dauðahaldi í hana og tautaði fyrir munni sjer: „Guð blessi yður, herra — guð blessi yður!“ Það var ótrúlegt, að svo gömul kona skyldi geta verið svona sterk. Hann hafði als ekki afl til þess að rífa sig laus an, þótt hann hefði feginn viljað. Loksins sleppti hún honum. Hann sagði loðmæltur: „Það er ekkert að þakka, kona góð“, sneri sjer snögt frá henni og skundaði á brott. Hann blygð- aðist sín fyrir, að standa leng- ur auglitis til auglitis við hana. Hann hjelt áfram göngu sinni og hugsaði um það, hve gæð- um veraldar væri ójafnt skipt milli mannanna. Það þyrfti eiginlega að gera eitthvað! Hann ætlaði að tala við Savinu á morgun. Það var altaf hægt að treysta Savinu gömlu. Hann hefði átt að spyrja gömlu kon- una að heiti og fá heimilisfang hennar, en ef til vill átti hún ekkert heimili og ekkert nafn. Hann sneri við, tii þess að tala betur við hana, en þegar I hann kom aftur að öskutunn- unni, var hún horfin. í henn- ar stað var kominn stór, svart- ur köttur, sem skaut upp krypp | unni og hvæsti, þegar hann kom auga á Jim. Jim rölti af stacf á ný, en nam staðar, eftir að hafa geng- ,ið nokkur skref, og hallaði sjer upp að húsveggnum. Hann 'mundi ekki lengur, hvert hann jvar að fara. Það var komin yf- | ir hann einhver deyfð, og það jeina, sem gat hrakið hana á brott, var að hann fengi sjer í staupinu. Hann hrestist til muna við að hugsa um brenni- |vínið, og mundi nú, að hann ! var á leiðinni til „Rosa’s Place“. Hann bretti frakkakraganum | upp fyrir eyru og hjelt enn einu jsinni af stað. Þegar hann var jkominn á Fifth Avenue, beygði hann í suður. Fáir voru á ferli, og það greip hann undarlegur, hrollkendur geigur, þegar breið gatan blasti við honum, auð og mannlaus. Jim þoldi ekki ein- veru og undi sjer aldrei nema , þegar hann var innan um ; margt fólk. Hann var ekki einn jþeirra heppnu manna, sem eru sjálfum sjer nógir. Hugheimur hans var mjög takmarkaður — í raun rjettri enginn. Líf hans alt mótaðist af yfirborðs áhrif- um og hann braut aldrei heil- ánn um sál sína eða skapgerð, því að hann leit svo á, að það hvorttveggja — eins og raun- ar alt annað í tilveru sinni — hefði verið ákveðið löngu áður en hann fæddist. Hann hafði I því ekki önnur úrræði en | drekka eða sofa, þegar hann j var einn. Onotakend sú, sem hafði gripið hann, kom því til , leiðar, að hann fór, gegnt vilja sínum, að hugsa um það, sem honum tókst oftast að hrinda frá sjer og gleyma. Það fór að renna upp fyrir honum, að líf hans væri ömurlegur hræri- grautur. Hann hafði í raun rjettri vitað það lengi, en ekki j viljað viðurkenna það fyrir sjálfum sjer. Hann vissi, að eitthvað varð að gera — en hann vissi bara ekki, hvað hann ætti helst til bragðs að taka. Skipbrotið hafði tekið jafn- ^ langan tíma og þegar skip lið- ast sundur í sandkviku, svo að hann hafði ekki orðið þess var, hvernig komið var, fyrr en um seinan. Hann reyndi að telja sjálfum sjer trú um, að þetta j væri alt sjer að kenna. Sannur ! sjentilmaður átti altaf að. taka j sökina á sig — en hvernig sem ; hann reyndi, tókst honum það ekki. j Hann viðurkendi að vísu, að i hann hefði vanrækt Fanneyju nú í mörg ár. En við hverjp var | hægt að þúast af manni, sem . kvæntur var konu, er hafði það j fyrir sið að bjóða heim til sín I alls konar fólki — rithöfund- I um, sem urðu fullir af því að j lykta af vínglasi, montnum I leikurum, ljelegum málurum og : fleira fólki af því sauðahúsi, ! sem ræddi um list, heimspeki og aðra vitleysu af litlu viti. Þessu fólki geðjaðist ekki að honum, og ekki gat hann láð því það. En það var heldur lak- ara, að því geðjaðist einnig illa iað Fanneyjú, gerði gys að henni og kom á heimili hennar einungis vegna þess, að þar var nógan og góðan mat að fá, og þrátt fyrir alt sitt heimspki- tal voru þetta hjegómagjarnar j höfðingjasleikjur, sem vildu gjarna koma á heimili frú Towner í Park Avenue. Það myndu flestir skilja, aðrir en Fanney. Jim tók að ræða hátt við sjálfan sig. Honum fanst heili sinn þrunginn visku, er yrði að fá einhverja útrás, og var ! hann svo niðursokkinn í þær samræður, að hann gekk beint ■ á hornið á St. Thomasar- kirkjunni. Hann nam staðar j andartak og neri á sjer höfuð- ! ið, en hjelt síðan áfram. Hann 'spurði sjálfan sig að því, hvað hefði eiginlega komið fyrir jFanneyju. Hún var ekki lengur eins og þegar þau giftust. Und- anfarið hafði hún sífelt verið að tala um tómleik tilveru sinn ar, eins og börn hennar tvö, eiginmaður hennar og vinir væru henni einskis virði. Þessir þankar hans trufluð- ust af því, að einhver kallaði: „Komdu sæll, Jim!“ Hann sneri sjer við og sá engan, en svo kom hann auga á mann á gangstjettinni hinum megin, sem gekk hratt í öfuga átt við hann. Hann reyndi að greina manninn, en fjúkið var svo mikið, að honum tókst það ekki. — Þau urðu að reyna að ! finna hvort annað aftur, hann 1 og Fanney, annars voru þau bæði glötuð. Hann var á því, að Fanneyju væri nú þegar farið að standa á sama um, hvað fólk sagði um hana. — Maðurinn, sem hafði heils að honum áðan, myndi senni- lega básúna það út um alt á morgun, að hann hefði enn einu sinni mætt Jim greyinu Town- er þreifandi fullum. — En jeg 'er alls ekkert drukkinn, sagði Jim við sjálfan sig. Jeg finn ! varla á mjer. — Það er furðu- legt, hvernig fiskisagan flýgur í jafn stórri borg og New York er. En það vissi enginn um Rósu ennþá. Hann gat a. m. k. ver- ið þakklátur fyrir það. Rósa var góð stúlka. Hún vissi, hvern ig fara átti að því að láta karl- manni líða vel, og hún elskaði mann, eins og ekkert í heim- inum væri eðlilegra. Hún var ekki eins og Fanney, sem hegð- aði sjer eins og ástin væri eitt- hvað, sem maður þyrfti að blygðast sín fyrir. ! Hann gekk nú hægar en áð- ur og athugaði vandlega fram- hliðarnar á húsunum. í einum glugganum var spjald, sem á stóð: Madame Elline, Modes. Þar nam hann staðar. Hann þurfti nauðsynlega að fá sjer hressingu. j Hann hringdi dyrabjöllunni. Meðan hann beið eftir því, að einhver ansaði, hallaði hann sjer upp að járngrindunum, sem voru fyrir glugganum, og tók hann þá eftir því, að það voru blettir í snjónum fyrir framan dyrnar. . . . Ef Loftur í^etur bað ekto ™ bi hver? 'Mwsrn. Æfintýr æsku minnar 8/Ur J4. C. jU. ersen 35. En jeg, sem með fögrum orðum og hrifningu hafði lýst fyrir móður minni þeirri hamingju, sem mjer hafði hlotn ast, átti nú að snúa heim aftur og verða þar að athlægi. Jeg varð ákaflega sorgmæddur, en samt býst jeg við því, að það hafi verið sorgin, sem benti mjer á lausn málsins. Og þegar jeg stóð þarna einn og yfirgefinn og var að brjóta heilann um, hvað jeg' ætti að gera, og hvert að snúa mjer, þá mundi jeg alt í einu eftir því að hjer í Kaup- mannahöfn bjó skáldið Guldberg, bróðir ofurstans í Od- ense, sem hafði verið mjer svo góður. Jeg komst fljótt að því, að hann bjó nærri Assistens-kirkjugarðinum, sem hann hefir lýst svo fagurlega í kvæðum. Jeg skrifaði hon- um, þar sem jeg var feiminn yfir að tala við menn um á- stæður mínar og þrár, en eftir að hann hafði fengið brjef- ið, fór jeg til hans og var fullt af bókum og reykjarpípum inni hjá honum, hann var enn hinn ernasti maður, heils- aði mjer mjög vingjarnlega, og þar sem hann hafði sjeð á brjefinu frá mjer, hve ljelegur jeg var í rjettritun, lof- aði hann að segja mjer til í dönsku, og þegar hann svo reyndi mig í þýsku, sem jeg sagðist hafa talað töluvert hjá Siboni, þá fannst honum ekki vanþörf á því að jeg fengi einhverja tilsögn í því máli líka og tók það að sjer. Tekj- urnar af riti, sem hann gaf út, jeg held það hafi verið ræða flutt á afmælisdegi Friðriks sjötta, ljet hann renna í minn vasa. Ýmsir komust á snoðir um það, og jók það sölu rits- ins, jeg held að komið hafi inn meira en 100 ríkisdalir. Weyse hjelt líka áfram að sýna áhuga sinn á mjer, hann og fleiri gáfu mjer smáupphæðir mánaðarlega, og þar á meðal voru báðar vinnukonurnar hjá Siboni, sem komu og lofuðu að gefa níu mörk af kaupi sínu ársfjórðunglega. Jeg fjekk nú aldrei nema fyrir fyrsta ársfjórðunginn, en þær vildu mjer vel, síðan hefi jeg misst sjónar á þeim báðum. Einnig tónskáldið Kuhlau, sem jeg talaði aldrei við á æfinni, skrifaði sig fyrir nokkrum skildingum, hann þekkti líka, hvað það er að vera fátækt barn. Hann hafði alist upp á sveitinni, og mjer er sagt, að hann hafi orðið að fara í sendiferðir hvernig sem viðraði og eitt kvöldið datt hann með stóra ölflösku, sem hann var að sækja í og missti sjónina á öðru auga af glerbrotunum. Hagskýrslur sýna að, Banda- ríkjamenn eru mestu kjötætur í heimi. Að meðaltali boraði hver maður í Bandaríkjunum 73 kg. af kjöti á ári fyrir styrj- öldina. Englendingar komu næstir með 54 kg. og Þjóðverj- ar með 51 kg. á mann á ári. ★ í ríkinu Tennessee gilda þau lög, „að uppboðshaldari skuli tala svo skýrt mál, að hver meðalmaður skilji hann“. ★ Menn halda ef til vill, að Reykjavík sje eini bærinn, sem hefir orðið rafmagnslaus af völdum rottu. Þetta er þó ekki svo. Fyrir stríð kom nákvæm- lega það sama fyrir í norska bænum Skien. ★ Dýr geta lifað miklu lengur matarlaus en menn. Dæmi eru til þess, að hestar hafi lifað í 70 daga án þess að fá næringu, og í dýragarði í París var-eitt sinn slanga, sem var ekki gef- inn matur í tvö áy og lifði það af. 'k Indíánar seldu nokkrum Hol- lendingum eyjuha, sem New York-borg stendur á árið 1668 fyrir 10 milliskyrtur, 80 pör a£ sokkum, 5 kg. af tóbaki, nokkr ar byssur og steikarpönnu. Indíánum fannst, að þeir hefðu gert góð kaup. ★ — Hann fær gott veður í gröf ina, hann Jón. — Já, hann hefir altaf haft heppnina með sjer, karluglan. Faðirinh fór með litlu dóttur í leikfangaverslun. — Jæja, Elsa mín, sagði hann, hvernig brúðu langar þig helst til að eiga? Elsa: — Tvíbura. Atvinnulaus maður hringir dyrabjöllunni. — Er það hjer, sem auglýst var eftir týndu peningaveski og lofað háum fundarlaunum? — Já. Hafið þjer fundið veskið? —, Nei, en jeg hafði hugsað mjer að leita að því og ætlaði að vita, hvort jeg gæti ekki fengið hluta af fundarlaunun- um greiddan fyrirfram.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.