Morgunblaðið - 07.08.1946, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 07.08.1946, Blaðsíða 6
e MORGUNBEAÐIÐ Miðvikudagur 7. ágúst 1946 Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.). Frjottaritstjóri: ívar Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla, Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald: kr. 8.00 á mánuði innanlands, kr. 12.00 utanlands. í lausasölu 50 aura eintakið, 60 aura með Lesbók. Eru þetta yfirtroðslur? ENN HELDUR HÚN sama hætti, — hin „konunglega" stjórnarandstaða, — að láta Tímann birta um það hverja dálkafylluna af annari, hversu núverandi ríkisstjórn geri bændum landsins að miklum olnbogabörnum í þjóðfje- laginu. Tíminn hefir fregnað að Danir sjeu nú að gera einhver- ar ráðstafanir til þess að efla landbúnað sinn, og gefur þetta ritstjóranum tilefni til að skrifa forustugrein með fyrirsögninni: „Ólíkt hafast þeir að“ — en efni greinar- innar það, að meðan Danir sjeu að undirbúa að efla land- búnaðinn, reyni íslenska ríkisstjórnin með öllum mætti að brjóta á bak aftur þessa atvinnugrein hjer á landi. Segir um þetta svo: „Hjer á landi hafa stjórnarvöldin litið öðru vísi á (þ. e. en Danir) nú um stund. Þau virðast hafa talið litlu skifta hverju fram yndi um landbúnað á íslandi, og í samræmi við það hafa af hálfu ríkisvaldsins verið hafð- ar í frammi við bændastjettina og fólkið í dreifbýlinu ýmsar yfirtroðslur, sem ekki hefir þótt sæma að beita við aðrar stjettir, jafnvel þótt ekki sje um eftirlætisfólk rík- isstjórnarinnar að tefla, heildsala og aðra slíka“. ★ Skyldu menn vera farnir að kannast við þennan tón í Tímanum? Skyldu Tímamenn halda að fólk leggi trúnað við slíkan þvætting? Eða skyldu kosningarnar hafa sýnt að bændur dæma aðgerðir stjórnarinnar öðru vísi og með meiri skilningi en þeir, sem Tímann rita? Eða hverjar skyldu þær vera, þessar „yfirtroðslur“ við bændastjett- ina, sem Tíminn er að tala um? I stefnuskrá núverandi stjórnar er um það samið, að verja, af þeim gjaldeyri, sem sjerstaklega væri til hliðar lagður til nýsköpunar, um 50 milj. kr. til landbúnaðar- þarfa. Eru þetta ,,yfirtroðslur“ við bændur? Af þessu áætlaða fje er nú búið að verja um 18 milj. kr. til kaupa á allskonar landbúnaðarvjelum. Samtímis keyptir jeppar og vörubílar og alls konar vjelar og tæki önnur, sem mikið eru hagnýtt við landbúnaðarstörf fyrir á annan tug miljóna? Eru þetta „yfirtroðslur“ við land- búnaðinn? Reiknað hefir verið út, að frá 1927—1939, eða á 12 ára valdatíma Framsóknar í landbúnaðarmálum hafi verið fluttar inn landbúnaðarvjelar fyrir samtals 1 milj. 844 þúsund krónur. Ekki ómyndarlegt til samanburðar! Já — „ólíkt hafast þeir að“ — mundi einhver segja! ★ Lög um landnám, nýbygðir og endurbyggingar í sveit- um, voru samþykt á þingi í vetur, og átti enginn einn þingmaður drýgri hlut að rnáli en lítill vinur Tímamanna, Jón á Akri. Samkvæmt þessum lögum á að verja 60—70 miljónum króna á næstu 10 árum úr ríkissjóði til rækt- unar og bygginga í sveitum, og lána þetta með 2% vöxt- um til 42 ára. Eru þetta ,,yfirtroðslur“ við sveitabúskap- inn? Samþykt hafa verið í tíð núverandi stjórnar lög um jarðræktar og húsagerðarsamþyktir í sveitum, er heimila 3 milj. króna framlag úr ríkissjóði til vjela- og verk- færakaupa. Eru þetta „yfirtroðslur“ við sveitafólkið? Sett voru á síðasta þingi í vetur almenn raforkulög, sem stefna að því að koma raforku um land allt. Jafn- framt samþykt þingsályktun um vjelar til raforkuvinslu á sveitaheimilum, sem miðar að sjerstakri aðstoð þess opinbera, þar sem skilyrði til afnota af almennarafveitum eru ekki fyrir'hendi. Eru þetta „yfirtroðslur“ við fólkið í dreifbýlinu? Með skólafrumvörpunum frá síðasta þingi er stórlega ljett undir með sveitunum að byggja .skóla og hin nýju lög um húsmæðrafræðslu auðvelda hjeruðunum mjög að koma upp húsmæðraskólum. Eru þetta „yfirtroðslur"? 'k Aldrei hafa verið jafn stórfeldar framkvæmdir á sviði samgöngumála, aldrei varið eins miklu fje til vega, brúa og síma og nú. Eru þetta „yfirtroðslur“ við einhverja? \Jílutirji ilr'Jan ÚR DAGLEGA LÍFINU Vonbrigði. HÆTT ER VIÐ að margir hafi orðið fyrir vonbrigðum um helgina löngu því veðrið var erfitt, eins og oft hefir komið fyrir áður, þegar bæjar- búar höfðu búið sig út í ferða- lög í langa fríið. — Það stóð mikið til fyrir helgina og fátt manna var í bænum frá því á laugardag og þangað til á sunnudag. Það er trúlegt, að þeir, sem fóru með tjöld og viðleguút- búnað í nærliggjandi sveitir hafi einhverntíma um helgina bölvað veðrinu og skal þeim ekki láð það. • Söngelskir næturhrafnar. Á MÁNUDAGSKVÖLD munu hafa verið dansleikir í sam- komuhúsum bæjarins, en það er orðinn fastur og leiður siður að halda dansleiki síðasta kvöld margra frídaga, sem leiðir það af sjer, að margir koma rotin- púrulegir til vinnu sinnar eftir alt fríið og þreyttari en er þeir hófu það. Ekki veit jeg hvort það hafa verið vonsviknir útilegumenn, eða hvað þeir voru, piltarnir, sem gengu suður Garðastræti aðfaranótt þriðjudagsins klukk an að ganga fjögur. Þeir gengu öskrandi eins og villidýr, en hafa víst sjálfir haldið, að þeir væru að syngja, því við og við mátti greina ensk orð í öskr- inu. Það, sem furðaði mig mest í þessu sambandi var að óhljóð piltanna skyldu ekki vekja þá á lögreglustöðinni, því fólk í nærliggjandi götum í miðbæn- um hlýtur að hafa vaknað við öskrin. Lokuðu símarnir. í FYRRI VIKU var lítillega minst á hve óþægilegt það væri fyrir símanotendur, sem dvalið hefðu utanbæjar í fríum að koma að símum sínum lokuð- um. Var farið fram á að þetta yrði lagað þannig, að inn- heimtan væri ekki eins ströng yfir sumarmánuðina og ella. Ráðamenn símans, sem ávalt eru reiðubúnir að gera það, sem þeir geta til að þóknast við- skiftavinunum, hafa tekið vel í þetta mál, eins og eftirfar- andi brjef frá Guðmundi Hlíð- dal póst- og símamálastjóra sýnir: „Víkverji góður! í Morgunblððinu í gær hefir þú skrifað nokkur orð um það, hversu óþægilegt það geti ver- ið fyrir ýmsa símanotendur, að koma heim úr sumarfríum og hitta fyrir síma sína lokaða vegna vangreiðslu. Um þetta er jeg þjer alveg sammála og víst væri æskilegt að geta komist hjá slíku. En þá er að finna til- tækileg ráð við þessu án þess að gera innheimtufyrirkomu- lagið of örðugt eða of dýrt. Vissulega skal það ekki stranda á viljaleysi yfirstjórnarinnar einu saman. • Oft til athugunar. UMRÆTT ATRIÐI hefir oft verið til umræðu og athugunar hjá þeim mönnum, sem með þessi mál fara, en býsna margir örðugleikar reynast á því, að vinsa úr hjá hverjum skal loka og hjá hverjum ekki, ef víkja á frá hinni almennu reglu um að loka hjá þeim, sem ekki hafa greitt innan ákveðins frests eftir endurtekna tilkynn- ingu og aðvörun. Tilraunir í þessa átt hafa meir að segja verið gerðar, en hver getur framkvæmt slíkt með nokkru rjettlæti og þannig að ekki leiði mistök og misnotkun af. • Kvöldiunheimta. „ÞÚ BENDIR á kvöldinn- hemitu, sem neyðarlausn, að því er mjer skilst. En bæði er hún dýr, eins og nú er komið starfsafgreiðslum, og mundi koma mjög fáum að liði. Starfs menn og forráðamenn þeir, sem með þessi mál fara, hafa þvert á móti lagt til, — á grundvelli sinnar reynslu, — að innheimtunni sje lokað fyr en nú er yfir sumartímann. Þegar alt kemur til alls; hef- ir okkur starfsmönnum og yf- irmönnum, sem um þessi mál fjöllum, ekki ennþá tekist að finna aðra tiltækilega og ein- faldari lausn á þessu máli en þá, að jafnt gangi yfir alla og að símnotendur greiði símgjöld in einhverntíma innan hins til- tölulega langa frests, sem gef- inn er, hvort sem það kallast „haustak" nú eða annað. Ekki viljaleysi. VIÐ UMRÆÐUR um þetta mál hafa sumir bent á það sem sem hliðstæðu, að ekki biða bankarnir heldur með afsögn víxla og aðra innheimtu, þótt menn taki sjer sumarfrí eða sjeu fjarverandi af öðrum nauðsynlegum ástæðum. Þótt jeg því miður geti ekki, eða minsta kosti ekki að svo stöddu, gefið betri svör en þetta, hygg jeg að jeg geti með góðri samvísku fullvissað les- endur blaðsins um, að ekki er um að kenna viljaleysi til úr- bóta hjá þeim mönnum, sem þar um ráða og þar að starfa. 3. ágúst 1946. G. Hlíðdal.“ • Vel tekið í málið. ÞAÐ ER ALTAF gleðilegt þegar embættismenn, eða aðrir taka vel í þegar fundið er að einhverju hjá stofnun þeirra. Þannig hefir þetta ætíð verið með símann, en því miður verð ur það ekki sagt um flestar aðr ar opinberar stofnanir. For- stjórunum hættir við að hlaupa upp á nef sjer eins og nöðrur hversu lítið sem að er fundið hjá þeim. ..................... | MEÐAL ANNARA ORÐA .... | • MIIIIIIIIIMMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIUIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIMIIIIIIIII Harmleikurinn í Gyðingalandi LANGVARANDI ókyrrð í Gyðingalandi hefir nú brotist út í uppreisn gegn hinu breska verndarliði. Svo breska liðið hefir ekki getað komist hjá því að láta hart mæta hörðu og taka f jölda Gyðinga fasta. Gyð- ingar ákæra svo bresku yfir- völdin fyrir brot á gefnum lof- orðum og snúa máli sínu ekki síst til Bandaríkjamanna. Deilan, sem hjer er risin, er mjög erfið fyrir Breta, og sorg- leg fyrir Gyðinga þá, víðsvegar í Evrópu, sem nú eiga um sárt að binda og líta vonaraugum til Gyðingalands, að þangað geti þeir fyrr eða síðar flúið. En deila þessi er ekki síst sorg- leg vegna þess, að hjer eigast þjóðir við, sem eru skyldar í hugsunarhætti og hafa svipuð sjónarmið í lýðræðis- og mann- úðarmálum. Árið 1917 frelsuðu breskir hermenn Gyðingaland undan þúsund ára yfirfáðum Tyrkja, þá gaf utanríkismála- ráðherra Breta, Balfour út yf- irlýsingu um það, að breska stjórnin myndi leitast við að stofna framtíðar griðastað fyr- ir Gyðinga í Gyðingalandi, þó með fullu tilliti til Araba, sem búið hafa í landinu um aldir. Árið 1922 fól Þjóðabanda- lagið Bretum að hafa umsjón með Gyðingalandi, með tilliti til Balfour-yfirlýsingarinnar. Tekið var það þó fram í upp- hafi, að Bretar skuldbindu sig ekki til þess að tryggja Gyð- ingum ótakmarkaðan innflutn- ing til búsetu í landinu, enda ekki hægt að koma svo mörg- um innflytjendum fyrir þar. Hafa breskir stjórnmálamenn hvað eftir annað tekið þetta fram, þ. á m. Churchill. Engu að síður hefir sú skoð- un náð útbreiðslu meðal Gyð- inga, að Bretar hafi lofað því, að láta Gyðinga vera eina um hituna í Gyðingalandi. í þreng- ingum síðustu ára, hafa Gyð- ingar blandað saman þessum óskadraum sínum við veruleik- ann. Hefir þessi misskilningur þeirra orðið undirrót að þeim ofbeldisverkum og blóðsúthell- ingum, sem átt hafa sjer stað nú undanfarið og komið af stað uppreisn gegn breskum her- mönnum í landinu. Samfjelag Gyðinga í Palest- ínu, er óx upp í skjóli Balfour- yfirlýsingarinar, gat ekki þrif- ist þar án verndar og samninga lipurðar Breta. Andúð Arab- anna gegn innflutningi Gyð- inga í landið, var svo megn, að Arabar hefðu rekið þá á brott með valdi, ef breskir hermenn hefðu ekki verið þar, þeim til verndar. Enda rjeðust Arabar hvað eftir annað á Gyðinga. Samt sem áður sáu Bretar um að flutningar Gyðinga til lands- ins gátu átt sjer stað í friði og spekt. Árið 1922 voru Gyðingar í landinu samtals 84 þús. af 750 þús. íbúum. En árið 1944 voru Gyðingar orðnir þar 554 þús. og íbúar landsnis alls 1.765.000. Að Gyðingunum fjölgaði þar svo ört, kom vitaskuld fyrst og fremst af hinum miklu Gyð- ingaofsóknum, sem áttu sjer stað í Evrópu eftir 1930 og enginn gat vitað um fyrirfram þegar Balfour gaf út yfirlýs- ingu sína. Þessi rás viðburðanna hefir gerbreytt aðstæðunum, frá því að Bretar tóku að sjer Framh. á bls. 8.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.