Morgunblaðið - 11.10.1946, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.10.1946, Blaðsíða 1
33. árgangur. 230. tbl. — Föstudagur 11. október 1946 ísafoldarprentsmiðja h.í. RÍKISSTJÓRNIN BIÐST LAUSNAR Náðunarbeiðnum nasist- anna neitað 11 æðstu menn Hitlers- Þýskalands• verða hengdir Niirnberg í gærkvöldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. HERRÁÐ fjórveldanna kom saman til fundar í dag og ákvað að synja náðunarbéiðnum þeim, sem borist hafa frá hinum sak- felldu í Nurnberg. Jafnframt þessu var tilkynt, að beiðnir Görings, Jodls og Keitels um að verða skotnir en ekki hengdir, yrðu ekki teknar til greina. Þá var auk þessa Raeder flota-1 foringja, sem dæmdur var til ævilangrar fangelsisvistar, synj- að um þá beiðni hans, að verða skotinn. Þjóðverjar vilja dæma þá sýknuðu. Þeir Fritsche og Papen hafa báðir fengið fyrirskipun um, að fara ekki frá Nurnberg. Munu Þjóðverjar hafa í hyggju að draga þá fyrir dómstóla, og hefir Schacht þegar verið hand tekinn í Stuttgart. Leyntflokkur konungssinna í Berlín Berlín í gærkveldi. BERLINER Zeitung, sem gefið er út á hernámshluta Rússa, flytur þá fregn í dag, að í Berlín sje starfandi póli- tískur leynifjelagsskapur, sem haldi með sjer reglulega fundi og hafi komið á fót sjerstökum æskulýðsflokki, þar sem með- limirnir sjeu flestir fyrverandi fjelagar í fjelagsskap þeim, sem gekk undir heitinu Hitlers æsk- an. Blaðið segir að flokkur þessi kalli sig „Frjálsan lýðræðisleg an ríkisflokk“, og bætir því við, að sömu öflin, sem studdu Hitler til valda, þykist sýnilega þegar vera orðin nógu sterk til að ráðast á hið nýstofnaða þýska lýðveldi. Flokkur þessi, heldur blaðið áfram, stefnir að því, að kon- ungssinnar komist til valda í Þýskalandi, strax og aðstæður leyfa. — Reuter. Tyrkir jvara fíl- Washington í gærkvöldi. TYRKNESKA stjórnin mun í dag hafa svarað beiðni Rússa um sameiginlegar varnir Dardanellasunds. Herma góð- ar heimildir, að svar stjórnar- innar muni . vera líkt fyrra svari hennar við samskonar beðni Rússa, með öðrum örð- um, að Tyrkir geti aðeins fall- ist á það, að alþjóðaráðstefna verði látin útkljá þetta mál, og að tyrkneska stjórnin geti ekki orðið við tilmælum Rússa um herstöðvar þeim til handa á tyrknesku landi. — Reuter. Egypski forsætis- lands Bjargað úr eldi. LONDON. Fyrir snarræði slökkviliðsmanns eins, björg- uðust nýlega tvö börn, 11 mán- aða stúlka og fimm ára dreng- ur, úr húsi í Birchington í Kent. Var húsiý því nær alelda. Cairo í gærkvöldi. EGYPSKI forsætisráðherr- ann flutti ræðu í útvarp í dag og skýrði þjóðinni frá til- gangnum með -hinni vænt- anlegu för sinni til Eng- lands, en þangað fer hann til viðræðna við bresku stjórnina um endurskoðun bresk-egypska samningsins. í ræðu sinnni komst forsætis- ráðherrann svo að orði, að hann gerði sjer vonir um, að komast að samkomulagi við Breta. Egypska sendinefndin, sem ícrsætisráðherrann er fyrir, leggur af stað til Englands þ. 17. þessa mánaðar. — Reuter. Færeyjar mm£ feerðemet ' . : 1111* £ Færeyjar koma oft fyrir í frjettunum þessa dagana vegna sjálfstæðismáls þeirra. Hjer er kort af Færeyjum. Efri mynd- in sýnir legu eyjanna og af- stöðu til Islands, Bretlandseyja og Norðurlandanna. Neðri myndin er af sjálfum eyja- klasanum. Með brottför ráðherra sósíalista er stjórnar- samstarfið rofið Tage Erlander for- sætisráðherra Svía STOKKHÓLMI í gær: — Eftirmaður Per Albin Hanson sem forsætisráðherra Svía, er TAGE ERLANDER, menta- málaráðherra. Hann er ungur maður. Var hann kjörinn á fundi þingsflokks jafnaðar- manna og miðstjórnar flokks- ins. Erlander hefur tilkynt að ekki verði önnur breyting á sænsku stjórninni en sú, að skipaður verði nýr menta- rriálaráðherra. Á RÍKISRÁÐSFUNDI kl. 5,30 síðdegis í gær baðst Ólafur Thors forsætisráðherra lausnar fyrir ráðuneyti sitt. Forseti íslands varð við lausnarbeiðninni, en bað ráð- herrana að gegna störfum þar til ný stjórn yrði mynduð. Forseti íslands ræddi um stund við forsætis- ráðherra um viðhorf það, sem skapast hefði við lausnarbeiðni ráðuneytisins. Einning ræddi forsetinn við formenn allra þingflokka. Var þessum viðræðum lokið kl. 7,45. Greinargerð forsætisráðherra. Forsætisráðherra hefir sent menntamálaráðherra og at- vinnumálaráðherra brjef það, sem hjer fer á eftir, dagsett 10. október: Jeg tel engin rök hníga. að því að rjett sje að jeg leggi til við herra forseta íslands að Alþingi verði x-ofið og nýjar kosningar látnar fram fara. Mun jeg því ekki gera það. Jeg fellst heldpr ekki á að samstarfsflokkar Sós- íalistaflokksins í ríkisstjórninni hafi á nokkurn hátt brotið í bága við'samning þann er gerður var þegar núverandi ríkisstjórn var mynduð. Hins- vegar er það staðreynd að ráðherrar Sósíalista- flokksins hafa óskað að jeg biðjist lausnar fyrir þá. Með því er grundvöllur stjórnarsamstarfsins úr sögunni, þareð nefndir stjórnarsamningar voru um það að ákveðnum nxálum skyldi hrundið í framkvæmd með stjórnarsamstarfi og stuðningi allra þeirra þriggja flokka er stutt hafa núverandi ríkisstjórn. Jeg mun því beiðast lausnar fyrir nxig og ráðu- neyti mitt nú þegar.“ 9 ÍL: DREGIÐ VAR í 10. fl. Happdrættis Háskólans í gær. Hæsti vinningurinn kom upp á nr. 2464. Öll vinningaskráin er birt á bls. 7. Bevin óánægður mú rúmenska friðarsamninginn París í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. BEVIN utanríkisráðherra, ræddi á friðarráðsteínunni í dag af- stöðu Breta til væntanlegra friðarsamninga við Rúmeníu. Kvað hann bresku stjórriina eiga bágt með að fallast á samnings- uppkastið, ef beita ætti öðrum aðferðum í samningum við Rúmena en aðrar þjóðir. J AFNRJETTI Bevin kvað bresku stjórn- ina stefna að jafnrjetti öllum til handa. Sagði hann stefnu stjórnarinnar þá, að rúmenska þjóðin fengi sem fyrst að velja við frjálsar kosningar sína eigin ríkisstjórn, svo að Rúm enía gæti tekið sæti meðal hnna sameinuðu þjóða. UMFERÐARJETTINDI Á DÓNÁ Um umferðarjettindi á ir allar fórnir Breta, ætti að veikja aðstöðu þeirra frá því sem var fyrir styrjöldina. SKOÐUN BANDARÍKJANNA Vandenberg öldungardeild- arþingmaður skýrði frá af- stöðu Bandaríkjamanna til þessa máls. Kvað hann þá vera sammála Bretum, að um ferð um Dóná ætti að vera laus við allar hömlur og frjáls Dóná sagði Bevin, að tiilögur j öllum þjóðum. Auk þess taldi Rússa um þessi efni væru þingmaðuririn að verslunar- grunsamlegar. Þá kvað hann^hömlur ættu að vera sem það harla einkennilegt, að eftiminstar í Dónárlöndum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.