Morgunblaðið - 11.10.1946, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.10.1946, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 11. okt. 1946 ] Alþingi sett í gær ÞINGSETNING fór fram í gær. Hófst sú athöfn að venju pneð guðsþjónustu í Dómkirkj- unni. Sjera Bjarni Jónsson vígslubiskup prjedikaði. Við- staddir athöfnina var forseti Islands, sendiherrar erlendra ríkja og ýmsir embættismenn. I Dómkirkjunni. ■ Texti vigslubiskups var úr sálmi 118, versunum 25—26 og hljóðaði á þessa leið: Drottinn, hjálpa þ.ú, Drottinn gef þú gengi. Hver sem kemur sje blessaður í nafni Drottins, frá húsi Drottins blessum vjer yður. í ræðu sinni sagði vígslu- biskup meðal annars: ,,Nýlega hefir verið haldin 100 ára minningarhátíð Menta- skólans. Þess var og minst hjer í Guðs húsi. Jeg vil draga línu frá Mentaskólanum hingað að kiakjunni. Alþingi hjelt fundi sína í Latínuskólanum og þing var helgað hjer í Dómkirkj- unni. Á spjöldum sögunnar geymast ártöl, sem benda til þess, er gerðist í þessum hús- um. Hingað kom Jón Sigurðs- son og með honum forystumenn þjóðarinnar. Hjer áttu þeir heilagar stundir. Uppi í hinu gamla skólahúsi gengu þeir til starfa. Hjer í kirkjunni var í fyrsta sinni sunginn þjóðsöng- urinn: O, Guð vors lands, ó, lands vors Guð. Það var á þús- und ára hátíð hinnar íslensku þjóðar. Jeg dreg línuna frá skólan- urn að Dómkirkjunni og yfir í næsta hús, sem er Álþingis- húsið. Jeg sje þar ártalið 188J,. Mentaskólinn — Dómkirkjan og Alþingishúsið. Jeg horfi daglega á húsin þrjú. Um margra ára skeið hafa fulltrúar þjóðarinnar gengið út í Alþingishús. En þeir hafa numið staðar hjer í Dómkirkj- unni. Til hvers? Til þess að hjer værr lýst blessun yfir þeim störfum, sem áttu að vera til til alþjóðar heilla. Þetta er einnig erindi al- þingismanna í dag. Hver sem kemur sje blessaður í nafni Drottins. Hingað koma fulltrú- ar þjóðarinnar og eftir nokkur augnablik er gengið hjeðan hin fáu spor út í Alþingishúsið. Hjer nemum vjer staðar rflkkur augnablik. Til hvers? Til þess að taka á móti bless- un, er gengið er til hins ábyrgð- armikla starfs. Þess vegna hefi jeg valið þessi orð að texta: Frú húsi Drottins blessum vjer yður“. Forseti íslands setur Alþingi. Er þingmenn höfðu hlýtt messu gengu þeir til þinghúss- ins. Þar fór þingsetningin fram. Forseti Islands las forseta- brjef um.að reglulegt Alþingi væri kvatt saman til setu, og lýsti því næst yfir að þingið væri sett. Þetta er 81. sam- koma frá endurreisn. Alþingis, ep 66. þing í röðinni frá því er pgið fjekk löggjafarvald fyr- ú'2 árum og 49. aðalþing. F^rseti bað þingmenn að njinnast fósturjarðarinnar, með að rísa úr sætum. Þing- Forsetar kjörnir menn hrópuðu ferfalt húrra fyrir fósturjörðinni. Bað forseti íslands þvínæst aldursforseta þingsins (Björn Kristjánsson) að stjórna fundi, þar til kjörinn væri forseti Sþ. — Var nú fundi frestað, að beiðni forsætisráðherra. Kjörnir forsetar Sþ. Kl. 6 síðd. hófst fundur að nýju, og fór fram kjör for- seta Sþ. Var Jón Pálmason kjörinn forseti Sþ. með 25 atkv., Bjarni Ásgeirsson hlaut 12 atkv., Kat- rín Thoroddsen 10. en 3 seðlar voru auðir. (Tveir þingmenn, Ásg. Ásg. og Hannibal Valdi- marsson voru fjarverandi). Fyrri varaforseti Sþ. var kjörinn Stefán Jóh. Stefánsson með 26 atkv., Katrín Thorodd- sen hlaut 10 atkv., 14 seðlar voru auðir. Annar varaforseti Sþ. var kjörinn Gunnar Thoroddsen með 25 atkv., Katrín Thorodd- sen hlaut 9 atkv., 16 seðlar auðir. Skrifarar Sþ.: Sigurður Krist jánsson, Skúli Guðmunds^n. í kjörbrjefanefnd voru kosn- ir: Þorst. Þorsteinsson, Lárus Jófiannesson, Ásgeir Ásgeirs- son, Hermann Jónasson, Sig- urður Guðnason. Sjálfstæðisflokkurinn og Al- þýðuflokkurinn höfðu sam- vinnu um kjör forseta Sþ. og í deildum. Forsetakjör í deildum. Neðri deild: Forseti Nd. var kjörinn Barði Guðmundsson með 18 atkv., Sigfús Sigurhjart arson hlaut 7 atkv. og Jörund- ur Brynjólfsson 7. 1. varaforseti var kjörinn Garðar Þorsteinsson með 18 atkv., Sigfús Sigurhjartarson hlaut 6 atkv., auðir seðlar 7. 2. varaforseti - var kjörinn Sigurður Bjarnason með 16 at- kv., Sigfús Sigurhjartarson hlaut 6, auðir seðlar 10. Skrifarar: Ingólfur Jónsson, Páll Þorsteinsson. Efri deild: Forseti Ed. var kjörinn Þorsteinn Þorsteinsson með 8 atkv., Hermann Jónas- son hlaut 3 atkv., Steingrímur Aðalsteinsson 2 og auðir seðl- ar 2. 1. varaforseti var. kjörinn Guðm. í. Guðmundsson með 8 atkv., Steingr. Aðalsteinsson hlaut 2, auðir seðlar 4. 2. varaforseti var kjörinn Gísli Jónsson með 7 atkv., Steingr. Aðalsteinsson hlaut 2, auðir seðlar 4. Skrifarar: Eiríknr Einarsson, Bernharð Stefánsson. Rigndi of seint. LONDON. Eftir að þurkar höfðu gengið vikum saman í Nýju Suður-Wales í Ástralíu, kom tveggja daga steypiregn, en það kom of seint til þess að bjarga hveitiuppskérunni, sem hafði eyðilagst. Algreiðslumaður Morgunblaðsins í 33 ár Hallgrímur Valdimarsson á Akureyri. UM síðustu mánaðamót ljet sá maður af störfum fyrir Morg unblaðið, sem lengst allra hefir haft verk á hendi fyrir blaðið, sem sje síðan það var stofnað, árið 1913, Hallgrímur Valdimarsson, afgreiðslumaður á Akureyri Hann tók við af- greiðslu Morgunblaðsins þar undir eins og blaðið kom þang- að norður. Hallgrímur hefir haft á hendi blaða-afgreiðslu á Akureyri síðan á öldinni sem leið, og innt þau störf af hendi með stakri reglusemi og trúmennsku. sem annað, er hann hefir tekið sjer fyrir hendur. Síðan samgöhgur urðu greiðar á sumrin milli Reykjavíkur og Akureyrar, hef ir afgreiðsla Morgunblaðsins þar nyrðra verið mikilsvert starf fyrir blaðið. Þegar dagleg- ar bílferðir hófust til Akureyr- ar kom Hallgrímur dreifingu blaðsins til áskrifenda í bæn- um strax þannig fyrir, að flest- ir kaupendur þess á Akureyri, gátu sumarmánuðina fengið Morgunblaðið að kvöldi, það, er kom hjer út að morgni. Vegna heilsubilunar hefir Hallgrimur ekki treyst sjer til þess að hafa afgreiðslu blaðs- ins lengur á hendi og hefir af- greiðslumaður ,,íslendings“, Svanberg Einarsson, tekið við útsölu Morgunblaðsins til kaup- enda á Akureyri. I allmörg ár hefir Hallgrímur Valdimarsson einnig verið frjettaritari Morgunblaðsins á Akureyri. Fyrir tilmæli frá rit stjórninni hefir hann fengist til þess að hafa það starf á hendi framvegis, enda mun leitun á samviskusamari frjettaritara en honum. Starfslið Morgunblaðsins hjer í Reykjavík þakkar Hallgrími fyrir langa og góða samvinnu á undanförnum árum, og út- gefendur blaðsins fvrir vel unn ið starf. Höfundur Forsælu: STAKA. Hjalar blóm við hrjúfan stein, heimskan safnar liði, moldin rýkur, manna bein mega ei hvíla í friði. Hgætar móttökur í Englandsförinni íþrótfaárangurinn effir vonum NOKKRIR af íslensku knatt- spyrnumönnunum, sem að und- anförnu hafa verið að keppa úti í Englandi, komu heim með flugvjel frá Prestwick í gær. Þeir sem enn eru ókomnii eru í Prestwick og bíða þar eftir flugfari heim. Morgunblaðið hefir haft tal af einum knattspyrnumann- anna, Hauk Óskarssyni og seg- ist honum svo frá, að móttökur allar hafi verið hinar ágætustu og íþróttaárangur fararinnar mjög að vonum. Sterk íið. Haukur ségir liðin sem flokk urinn keppti við ytra yfirleitt haía'vefið æði öflug, en úrvals- „fslendinprnir Ijeku í síSbuxum" Þann 21. september birti Daily Express þá innrömm- uðu „rosafrjett“ um íslensku knattspyrnumennina, að þeir Ijeku knattspyrnu í síð- buxum, en ekki stuttbuxum, eins og venja sje um knatt- spyrnumenn. Blaðið bætir því við, að íslendingar neyð- ist til að leika knattspyrnu í síðum buxum til að verja fótleggi og hnje, sem annars myndu rispast á hraungrýtis völlunum! liðið, sem vann íslendingana með 5:3 þó langsterkast. Styrk- leikur Englendinganna bygðist aðallega á leikni þeirra í því að láta knöttinn vinna og vera á verði, að hlaupa í eyður þær sem sköpuðust í vörn íslend- inganna. Haukur segir Ilford- liðið, sem okkar menn unnu, hafa verið linast af ensku lið- unum. Bæði Dulwich Hamlet og Walthamstove voru sterk lið, en Oxford City síður. En öflug- ast allra liðanna var úrvalið. Grasvellirnir. — Okkur gekk vel að venjast grasvöllunum, segir Haukur enfremur. Verst að við höfðum of litlar æfingar milli leikja. En sá tími fór auðvitað mikið í móttökur. En jeg held að allir hafi kunnað ágætlega við gras- ið og leikni manna á grasvell- inum óx með hverjum leik. Okk ar menn virtust oft og tíðum þolnari en Englendingarnir og hefir það auðvitað komið okkur í hag, enda settum við stundum mörk seint í leikjunum, líklega vegna þess að hinir voru farnir að þreytast meira." Sannir áhugamenn. Móttökurnar voru ljómandi. Oft vorum við í ræðum kallaðir „sannir áhugamenn“. Hefir það sjálfsagt að nokkru verið vegna þess að við kostuðum förina að ýmsu leyti sjálfir. Okkur voru haldnar margar veitslur og sýnt ýmislegt. Dóm- arinn, sem hjer var, Mr. Rae var stundum með okkur og dæmdi einn leikinn. Líka var Mr. Steele og kona hans með flokknum um tíma. Dómararn- ir voru yfirleitt ánægðir og leikirnir mjög prúðmannlega leiknir. Enginn okkar manna meiddist neitt að ráði í þess- um leikjum. Það urðu bara eng in meiðsli í þeim. 1 Ógleymanleg stund. — Okkur var sýndur hinn mikli Wembley-íþróttavöllur og fór þar þá fram kappakst- ur á bifhjólum. Áhorfendum, sem munu hafa verið um 80 þúsund, var tilkynnt, hverjir gestir væru þarna komnir og hylltu þeir okkur innilega. Það var ógleymanleg stund. — En Arsenal og Sparta? — Jú, við sáum þann leik og mjer fannst satt að segja ekk- ert sjerlega varið í hann, þó margir góðir einstaklingar væru í báðum liðum. Vörn Sparta er mjög sterk og mið- framherji þeirra skoraði eitt glæsilegasta mark sem jeg hef sjeð. Arsenal er ekki sterkt lið, eins og stendur, til þess er það of ósamstætt. Albert stóð sið vel þar. Liðin okkar. í liðunum okkar voru að mestu leyti sömu mennirnir yfirleitt, þó skipt væri um ein- staka menn. Margir okkar manna stóðu sig ágætlega, allir yfirleitt mjög vel. Markmenn- irnir voru góðir. Hermann ljek 3 leiki, en Anton tvo. Vörnin var lika sterk, sjerstaklega stóð Karl Guðmundsson sig vel þar. Það sem mjer £annst að okkar leikaðferðum var að ekki var nægilega undirbúið fyrirfram hvaða leikaðferðum skyldi beitt í hverjum leik fyrir sig. En með íþróttalegan árangur af ferðinni he'ld jeg sem sagt að við megum vera ánægðir. — Þeir sem unnu Reykjavík- urliðið? — Það lið keppti aldréi sem heild, en ýmsir úr því stóðu sig ágætlega, t. d. Anton, Ólaf- ur Hannesson og Magnús Ágústs son. Annars voru margir, sem engan leik ljeku Meðal þeirra voru t. d. Brandur Brynjólfs- son o. fl. Löng bið. — Við komum til Prestwick á sunnudag, en úrðum að bíða þetta lengi vegna ills flugveð- urs og bilana á vjelum. í Prest- wick hittum við Björn Björns- son og veit jeg að jeg mæli fyr- ir munn allra knattspyrnu- mannanna, þegar jeg segi að hann hafi verið okkur hin mesta hjálparhella þar og lagt mikið á sig til þess að gera dvölina þar sem ánægjulegasta, meðan við biðum, því það er ckkert garnan að bíða svona í ókunnu l$ndi. Vil jeg í nafni okkar flytja honum þakkir fyr- ir aðstoð hans. Þetta sagði Haukur og hafi ferðin orðið til þess að auka á getu knattspyrnumanna okkar þá er tilganginum með henni náð. J. Bn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.