Morgunblaðið - 15.03.1953, Page 8

Morgunblaðið - 15.03.1953, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 15. marz 1953 Ctg.: H.f. Árvalcur, Reykjavlk. , Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgOarm.) Lesbók: Árni Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. ÁSkriftargjald kr. 20.00 á mánuði, imuuoJanaa. í lausasöiu 1 krónu eintakið Umboðsmaður Rússa í Prag er látinn CoffwaSd náði völdtsm með efbeSdi og ríkli með ógnum n J Hiitn kiökki hupr Einars f>ÆR STUNDIR, sem fylgja láti þjóðsnillinga og mikilmenna eni jafnan sérstæðar og sorgum blendnar. Mannslát er ávallt við- burður, en dauðdaga þjóðhöfð- íngja fylgir þjóðarsorg og eftir- sjá þúsundanna. En það er sjaldan, sem undir siíkar harmatölur og hugarangur er jafnt tekið utan landamær- anna, sem innan. Útlendir menn telja sjaldnast til neinnar þjóð- hollustu né þegnskyldu við ann- arra þjóða höfðingja. En stundum getur þó út af því brugðið, og síðasta vika færði mönnum á furðulegan hátt heim sanninn um það. ★ Sá maður, sem verður skipað í flokk með meiriháttar var- mennum veraldarsögunnar, Jósef Stalin, gaf upp öndina austur í Rússlandi fyrir skömmu, sem frægt er orðið. Var það í sjálfu sér enginn merkisviðburður. Ann að atriði dauða einvaldsins sam- fara, var þó miklum mun athyglis verðara fyrir íslenzku þjóðina. Það var afstaða hinnar komm- únisku flokksdeildar. hér á landi til dauða Stalins. Þá kom hin sanna stefna og Wð gamla innræti flokksins bet- nr í ljós en nokkru sinni á liðn- om árum. Háværar harmtöiur og grátþrungnar minningarat- hafnir um sálaðan einvald er- lends einræðisríkis sýna berlega hvar í sveit þegnhollusta og þjóð rækni íslenzku kommúnistanna líggur. Svo mikið þótti við þurfa, að nýju húsbændurnir í Kreml skyidu ekki efast um einlæga sorg og sáran söknuð íslenzku fiokksdeildarinnar á þessum miklu tímamótum, að Einar Olgeirsson valdi sjálfum sér það hlutverk að skrifa líkræðulofið S leiðara Þjóðviljans. Og þar er ekki verið að fara í launkofa með aðdáunina, virðinguna og trún- aðartraustið, sem íslenzkir komm únistar haía ætíð borið í brjósti til hins mikla Stalins. Grein þessi er hin merkilegasta og gefur Einar félaga sínum og föður þar m. a. þessi heiti: Brautryðjandi, Iærifaðir, eldhugi, hugsuður, hetja, baráttumaður, hyltingaleiðtogi, þjóðaleiðtogi. Minna mætti nú gagn gera í eínni stuttri blaðagrein, en hinir hógværu mannkostir Stalins eru hvergi nærri upptaldir. Harrn á líka að hafa unnið mesta stórvirki veraldarsögunn- ar, forðað öllum heimi frá harð- stjórn, ævi hans á að „vera ein- hver stórbrotnasta ævi, sem lifað hefur verið“ og hann á að hafa vísað mannkyninu öllu leiðina til friðar! Jafnframt þessu birtir svo blað ið dag eftir dag heilsíðugreinar um Stalin á öllum hans æviskeið- um og risastórar myndir af ein- valdinum. Og til að bíta höfuðið af skömminni var haldinn sér- stakur minningarfundur í einu af bíóum bæjarins til að gefa enn fleirum kommúnistum tæki- færi til að trega enn einu sinni, opinberlega og sameiginlega, hinn mikla Stalin! Svo langt gekk hin lægsta anðmýkt íslenzkra manna fyrir grimmasta einræðisherra þessar- ar aldar. Slík er þjóðhollustan, ættjarðarástin í hugum íslenzkra kommúnista. 1 Það er íslenzku þjóðinni til stóraukins fróðleiks, að hafa lif- að dauða og tilbeiðslu Stalins síðustu daga. En maðurinn sem skrifaði leiðarann um Stalin ,pneð klökkum hug og djúpri virðingu" hugsandi um hinn „ógleyman- lega látna leiðtoga“ lét það hjá farast af einhverjum ástæðum að minnast andláts forseta fslands fyrir rúmu ári siðan. Þá eyddi Þjóðviljinn ekki tiunda hluta þess rúms, er Stalin hefur verið helgað undanfarna daga, til minningar þjóðhöfðingja íslands. Þá voru fallegu orðin spöruð og engir minningarfundir haldnir. Þá lá engum á að tjá virðingu sína og samúð. Hér á milli er regindjúp stað- fest. Öðru megin er íslenzk þjóð- arvitund og þegnhollusta, á hinn bóginn auðmýkt og undirgefni fyrir erlendu stórveldi og ein- ræðisstjóm þess. And’át bóndans í Kreml hefur fært íslenzku þjóðinni enn frekar heim sanninn um, að hún á innan vébanda sinna stóran hóp manna, sem einskis svífast ef erlent stór- veldi, hagsmunir þess og stjórn- endur eiga í hlut. Á síðari árum hefur þessi flokkshópur þó jafn- an reynt eftir beztu getu að breiða yfir nafn og númer, þótzt réttborinn arftaki frelsishugsjóna Fjölnismanna og náskyldir Fjall- konunni. Slíkur blekkingarleikur hefur þó ekki verið einhlítur til ár- angurs. Einn flokkur breytir ekki um stefnu þótt hann breyti um nafn, ef sömu mennirnir halda um stjórnvölin eftir sem áður. En það er við tækifæri sem andlát Stalins, er menn eins og Einar Olgeirsson, geta jafnvel ekki stillt sig um að sperra úlfs- eyrun upp fyrir sauðarfeldinn. Og þá veit alþjóð hvaðan vind- urinn blæs. FÉLAGSSAMTÖK ein, sem nefna sig Menningar og friðarsamtök kvenna, kölluðu nýlega blaða- menn á sinn fund og báru hraust- lega af sér allar sakir um að þau væru nokkuð við kommúnista riðin. Sama skoðun var og ítrek- uð á fundi samtakanna í Stjörnu- bíói, sem getið var hér í blaðinu. En það var ekki að ástæðulausu sem iður hinna meinleysislegu kvennasamtaka höfðu verið álitin rauðleit úr hófi fram. Helzta verk samtakanna hefur sem sé verið að gefa út áróðurs- skýrslu hinnar kommúnisku árás- arstjórnar Norður-Kóreu. En ef hinum friðelskandi kven- skörungum er alvara í hug og heilar í friðarbaráttu sinni gegn vopnavaldi og hervæðingu skal þeim bent á að rannsaka og skýra frá eftirtöldum atriðum: 1) Hvaða land veraldar hefur stærstan her? 2) Hvaða land er það, sem eitt Ver helmingi þjóðarútgjaldanna til vígbúnaðar? 3) í hvaða landi er börnum veitt hernaðarmenntun strax og þau ná 12 ára aldri? 4) í hvaða landi eru öll hátíða- hö!d fólgin í hersýningum? Hvað segja friðarsamtökin um þetta verkefni? KLEMENT Gottwald koramún-, ista forseti Tékkóslóvakíu lézt í gærmorgun. Hann var 57 ára gamall. Sem foringi kommúnista- flokksins komst hann til valda í föðurlandi sínu með ofbeldi. Og með ógn hefur hann síðan ríkt. Verkið sem liggur eftir þenn an rússneska lepp er sú hryggi- lega staðreynd, að hann breytti föðurlandi sínu, sem áður var hamingjuland 15 milljón ibúa, sem iifðu þar í velsæld og frelsi, í hörmulegan blóðvöll lögreglu- morða og ofsókna. Hversu vel sem menn vildu reyna að virða minningu látins manns, þá verð- ur ómögulega fram hjá þeirri staðreynd gengið að Klement Gottwald hefur verið hinn mesti ógæfumaður fyrir þjóð sína. ÓÞEKKT NAFN SEM HÓFST TH, VALDA Hann var af almúgafólki kom- inn, líkt og svo margir aðrir kommúnistaforingjar í Austur- Evrópu. Óþekkt nafn, sem hófst til æðstu metorða. Hann mun vera fædjjur í suðurhluta Bæ- heims. Gekk hann í skóla í Austur riki og til að sýna þjóðerniskennd þessa foringja kommúnista á yngri árum hafa verið sagðar þær sögur af honum, að hann hafi neit að að tala þýzku í skólanum, að hann hafi aðeins viljað tala tékk- nesku. Vegna þessa lenti hann í brösum við skólafélaga sína og skólastjórn og flæktist frá námi. Tók Gottwald þá að stunda veggfóðrun í Vínarborg, þótt ekki kynntist hann kollega sínum Hitl er, sem sagt er að hafi verið vegg fóðrari þar í borg um líkt leyti eða nokkru fyrr. Um tíma var hann við nám í húsgagnasmíði. Hann var áhugasamur um stjórn- mál og gekk í jafnaðarmanna- flokkinn. Þá skall fyrri heims- styrjöldin á. Gottwald var kall- aður í austurríska herinn. Hann kvað lítinn áhuga hafa haft á styrjöldinni og gerðist líðhlaupi í síðari hluta hennar. FORUSTUMAÐUR KOMMÚNISTA Eftir styrjöldina, þegar Tékkó- slóvakía varð sjálfstætt ríki gerð ist Gottwald brátt virkur meðlim ur í kommúnistaflokknum og tald ist til forustuliðsins. Varð hann aðalritstjóri helztu málgagna kommúnistaflokksins. 1925 varð hann meðlimur í miðstjórn komm únistaflokksins, 1927 aðalritari hans og 1929 var hann fyrst kos- inn á þing. 1938 þegar sýnt var að Þjóð- verjar myndu taka Tékkóslóv- akíu flýði Gottwald til Moskvu. Þar stofnaði hann ásamt Benes forseta, þjóðarráð landflótta Tékka. RÚSSAR VORU ÞÁ „FRELSARAR“ Vorið 1945 sóttu hersveitir Bandaríkjamanna inn í Bæheim vestan frá. Þær komust til borg- arinnar Pilsen og varnir Þjóð- verja voru svo mjög þrotnar, að ekkert virtist því til fyrirstöðu að hersveitir þessar sæktu til Prag og austur um alla Tékkóslóvakíu. Þá kom ströng fyrirskipun um það að þessar bandarísku her- sveitir mættu ekki sækja lengra fram. Ástæðan var sú, að Rússar kröfðust þess að þeir fengju heið urinn af því að hafa „frelsað" Tékkóslóvakíu. Þessi frestun kostaði það að sjálfsögðu að Gestaposveitum Þjóðverja vannst tími til að lífláta þúsundir Tékka. Það voru því Rússar sem ,.frelsuðu“ Tékkóslóvakíu. Það skorti ekki á að þáttur Rússa í frelsuninni væri lofaður. Það þýddi litið að mæla á móti því í Tékkóslóvakíu á þeim árum, að það væru í raúninni Rússar einir, sem hefðu unnið styrjöldina. VEFHJR SKTPAST í LOFTI í því andrúmslofti varð komm- únistaflokkurinn stærsti flokkur Tékkóslóvakíu. Við frjálsar kosn- ipgar hlaut hann 35% greiddra atkvæða. I nokkur ár enn lofaði tékkneska þjóðin Rússa sem frels ara þjóðarinnar. Hinn sári sann- leiki í því máli rann upp fyrir réttum fimm árum, þegar komm- únistar tóku völdin að öllu leyti í sínar hendur með ofbeldi. Hinn elskaði forseti Tékka, Edouard Benes var svívirtur af Gottwald og sviptur áhrifum og völdum. Þegar Benes sagði af sér og andaðist skömmu síðar, settist Gottwald í forsetasæti. ÚR LÝDRÆÐI TIL LÖGREG L URÍKI Síðan hefur ríkt í Tékkóslóvak- íu óslitin ógnaröld. Þetta var þeim mun átakanlegra, þar sem Tékkóslóvakía var eina landið bak við járntjaldið þar sem þró- ast hafði raunverulegt vestrænt | lýðræði og frelsi. Þessir tímar jhafa því verið hryggilegir aftur- faratímar tékknesku þjóðarinnar i Yfir landið þar sem frelsi og rétt- j læti hafði áður brosað við hverj- | um þegn þjóðfélagsins huldist nú allt skuggum hins hræðilega kommúnistíska lögregluríkis. ítrekað hefur þjóðin hvað eftir annað sýnt fyrirlitningu sína og mótspyrnu. Má þar minnast á eitt dæmi skömmu eftir valdaráhið, þegar hundruð þúsunda ung- menna, sem gengu í skrúðgöngu um Prag í Sokol íþróttahátíðínni, hófu upp í talkór samhljóða rhöt- mæli gegn ofbeldisaðgerðum kommúnista. En kommúnistar undir stjórn Gottwalds létu sig engu skipta mótþróa allrar þjóð- arinnar, heldur bæidu öll mót- mæli niður með vægðarlausum handtökum og líflátum. KÚGAÐIR VERKAMENN Flestir þeirra, sem skarað háfa fram úr í menntun, listum, vis- indum og í hverskonar atvinnu- greinum, hafa nú horfið af sjónar sviðinu í Tékkóslóvakíu. og eftir bíður lemstrað menningar- og at- vinnulíf landsins. Þar sem áður var framleiddur iðnvarningur framúrskarandi að gæðum, vihna nú verkamenn kúgaðir meira en nokkru sinni fyrr. Og framleiðsl- an er svikin, hráefnin ónýt, mikilí Framh. á bls. 12 Velvakandi skriíar: ÚR DAGLEGA LtFENU Cæsar og 15. marz. 1 C marz er kominn en ekki lið- inn“ — sagði eiginkona hins mikla Júlíusar Cæsars að morgni hins 15. marz fyrir 1997 árum. Hún hafði haft draumfarir þungar og latti mann sinn farar- innar til fundar í Senatinu. En Cæsar hafði aldrei kunnað, aldrei viljað hika eða hræðast, heldur ekki í þetta skiptið — og afleið- ingin er hverju skólabarni kunn. Ævilok þessa stórmennis róm- versku fornaldar innar, sem — lom og sá og sigr iði — hafa á sér íarmsögulegan og í senn kald- hæðnislegan >læ. í rauninni oafa þau sífellt verið að endur- taka sig í sögu mannkynsins allt fram á þennan dag. Ofur- , menni, einvaldar og harðstjórar I hafa komið fram á hverjum tíma og þeir hafa ískyggilega margir hlotið sömu eða svipuð örlög og Cæsar, hinn 15. marz í Senatinu í Róm. Þau hafa fært óyggjandi heim sanninn um, að ofurmennið sem drottnar í trausti aflsmunar síns yfir hinum minni máttar er fyrirfram dæmt til falls Og tor- tímingar. Um Skólavörðuholtið. KONA úr Hallgrímssókn hefir skrifað mér eftirfarandi: „Góðir Reykvíkingar! — Gang- ið upp á Skólavörðuholtið og litizt þar um. Hvað sjáið þið? — van- hirðu, auðn og riðgaða herskála. Þarna á að býggja stærstu kirkju landsins, sem tekur sjálf- sagt mörg ár. En væri ekki tíma- bært að athuga þarna umhverfið og gera þar nokkrar umbætur þegar á þessil vori. Væri það ekk’ pjr'mitt verk- efni fyrir u^?1irpp-a. þegar þeir Iosna úr skólunum? Reykvíkingum kær blettur. SKÓLAVÖRÐUHOLTIÐ er kær blettur mörkum Reykvik- ingum. Það ætti ekki að vera mjög erfitt verk að breyta því í gróðurreit, sem allir hefðu unun af að ganga um. Það ætti ekki að þurfa að verða bænum mjög dýrt. Ég er viss um, að margir vildu leggja til vinnu í tómstundum sín um til þess að fegra þennan reit. Vildi ekki nefndín, sem undirbýr og skipuleggur unglingavinnuna taka þetta til athugunar? Margir hafa verið óánægðir yfir því, að- Skólavarðan var rífin. Mætti ekki reisa hana að nýju í sama formi? — Væri það ekki verkefni fyrir menntaskólafólk? — Þökk fyrir birtinguna. — Kona úr Hallgrímssókn". Lélegar þalcrennur BESSI nokkur skrifaði mér rtý- lega smápistil og barmar sér ekki lítið: „Velvakandi góður! Vildirðu ekki koma á framfæri fyrir mig tilmælum um, að gerð verði hið bráðasta rækileg endur- skoðún á þakrennum húsa hér í bænum. Ég skal ekki fullvrða, hvort ástandið á þessu sviði er jafn afleitt í öllum hlutum bæj- arins, en svo mikið er víst, að í hinum fjölförnustu götum, svo sem á Laugaveginum og í Austur stræti er það algerlega óviðun- andi. Ég tók sérstaklega cftír þessu síðustu viku í eilífðar-rign- ingunni miklu, eins og fólk var farið að kalla hana. Nógu margir droparnir duttu á mann samt, þó að ekki stæði bunan niður af öíí- um þökum til viðbótar. Það var helzt að hægt væri að forða sér undan þeim með því að hypja sig: út af gangstéttinni, en hversu óhultur er maður í miðri umferð- inni í Austurstræti eða á Lauga- vegi? — Mætti ekki kippa þessu í dag — og það fyrr en seinna? — Eessi“. j

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.