Morgunblaðið - 23.12.1956, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 23.12.1956, Blaðsíða 8
8 MORCílJSP r * f f> Sunnudygur 23. des. 1956 X * I I |- 5 | f í 1 f | únuelninqa <i \ * 1 íCP^Q^CP^^Cr^C^CT^Q^Ö^^b^ö LANDSFRÆGT er orðið, að úr Húnavatnssýslu komu þrír framherjar íslenzkrar lækn- isfræði, og hétu allir Guðmundar. í fótspor þeirra tókst ungur hún- vetnskur læknir, Sigurður Sig- urðsson frá Húnsstöðum á nend- ur forystu um útrýmingu berkla- veikinnar á íslanai með þeim ár- angri að árleg dánartala af völd- um hennar er nú lægri hér en í nokkru öðru landi. Á Blöndubökkum er rhm eín full- komnasta heilbrigðisstofnun landsins A GAMLA LÆKNISTUNINU Það er dimmt haustkvöld, stormur af hafi og úrhellisrign- ing. Aðalfundur Stéttasambands bænda stendur yfir á Blönduósi. Þar eru staddir fulltrúar bænda í öllum sýslum landsins og nokkr- ir gestir þeirra. Nokkrum okkar hefur verið boðið að heimsækja hið nýja sjúkrahús Húnvetninga og yfirlækni þess, Pál V. G. Kolka. Við höldum frá hinum myndarlega Kvennaskóla, sem stendur á eystri bakka Blöndu yfir brúna upp á svokallað Læknistún. Þar stendur þessi nýja og glæsilega heilbrigðis- stofnun. Störfljótið veltur fram þung- búið og ógnandi. Stormurinn lemur straumiðuna og hausthim- ininn grætur köldum tárum yfir Norðurland. Þarna, á gamla Læknistúninu stendur ný og reisuleg bygging. Hún er öll uppljómuð. Yfirbragð hennar er létt og ljóst. Hún sting ur þægilega í stúf við umhverfið, óhugnanleik myrkursins, storms- ins, haustsins og jökulvatnsins í þúsund ár hefur íslenzkt sveitafólk barizt við óblíða nátt- úru lands síns, stórfljót, áhlaup, Skurðstoían Þegar við þetta bætist, að í Húnavatnssýslu hefur nú um langt skeið starfað einn þrótt- mesti og fjölgáfaðasti héraðslækn ir landsins verður það varla tal- ið til tilviljana, að á bökkum Blöndu er nú risin ein fullkomn- asta og merkilegasta heilbrigðis- stofnun á íslandi. Ræðir hér um Héraðshæli Austur-Húnvetninga á Blönduósi. fi-ost og fannkyngi. I dag ligg- ur brú yfir fljótið og á bakka þess stendur upplýst höll handa sjúkum og ellimóðum. Þetta er í litlu þorpi í miðju viðlendu og fögru sveitahéraði. BYGGT Á 32 MÁNUÐUM Hin bjarta höll opnast. Yfir- læknirinn, Páll V. G. Kolka, hér- aðslæknir, sem einnig er Hún- vetningur að ætt, tekur á móti Iléraðshæli Austur-Húnvetninga. okkur. Við göngum inn í hlýtt og ’ fagurt anddyri og læknirinn hef- ur þegar ferðalag með okkur um bygginguna. Hann segir okkur allt um hana, frá undirbúningi að henni, teikningum, innrétt- ingu og kaupum á tækjum til lækninga og heímilishalds. Þetta stóra hús hefur aðeins verið í byggingu í 32 mánnði. Það kostar um 6 milljónir króna. Við það bætast allir innanstokks- munir og lækningaáhöld, sem áætlað er að kosti allt að einni milljón króna. Gjafir frá ein- staklingum og félögum nema um 660 þús. kr. Hafa Húnvetningar sjólfir sýnt hið mesta örlæti gagn vart þessari heilbrigðisstofnun. Ríkissjóður mun greiða % hluta byggingakostnaðarins. Kemur þá í hlut Austur-Húnavatnssýslu að standa undir tveimur milljónum króna af honum. FJÓRAR HÆÐIR — NÍU ÞÚS- UND RÚMMETRAR Héraðshælið er 9 þús. rúm- metrar að stærð. Það er fjórar hæðir og kjallari. Stórar svalir eru á öllum hæðum og sjúkra- lyfta gengur frá kjallara til þak- hæðar. Ennfremur er í húsinu matarlyfta frá eldhúsi til fjórðu hæðar. Geislahitun er í bygging- unni og hreinlætistæki öll hin fullkomnustu. í henni eru sjö baðherbergi og níu snyrtiklefar með salernum. , I kjallara ei’u kynditæki, fryst- ir, rafstöð, geymslur, smíðahús þvottahús og fleiri nauðsynlegar vistarverur. Er öllu mjög hag- anlega fyrir komið. Er hægt að aka sjúklingum beint inn a4ð sjúkralyftu. Á fyrstu hæð et m.a. ibúð að- stoðarlæknis, eldhús, búr, borð- stofa starfsíólks, ráðskonuher- bergi og líkhús. Á annari hæð er aðal anddyri hússins. Liggja upp að því breiðar tröppur. Yfir vængjahurðum anddyranna er á- formað að setja skjaldarmerki Austur-Húnavatnssýslu, . birnu með tvo húna. Á þessari hæð er biðstofa fyrir sjúklinga, skrif- stofa, rannsóknai’stofa, skiptistofa og slysastofa ásamt viðtalsstofu læknis. Þá er þar iesstofa yfir- læknis og íbúð hans, ljóslækn- ingastofa, röntgenstofa, klefi fyr- ir nudd og rafmagnsmeðferð, dagstofa fyrir sjúklinga, sem hafa fótavist og íbúðir hjúkrun- arkvenna. hagræða, hvernig sem bezt hent- ar við skurðaðgerðir. Kvað Kolka læknir lampa þennan vera hið mesta þing og af nýjustu gerð. Var vissulega ánægjulegt að fylgi ast með lýsingum hins ágæta og reynda skurðlæknis á tækjum og Páll Kolka yfirlækr-5 fyrirkomulagi skurðstofunnar, sem leikmenn hljóta að telja hið „allra helgasta“ á sjúkrahúsi ELLIHEIMILIÐ Á EFSTU HÆÐ Á fjórðu og efstu hæð héraðs- hælisins er svo hjúkrunardeild íyrir rólfæra sjúklinga og gamal- menni. Eru þar 5 herbei’gi fyrir vistmenn, flest tveggja manna herbergi. Þar er því rúm fyrir (Ljósm. Björn Bergmann). 30—40 manns. Samtals tekur þvf héraðshælið 60—70 sjúklinga og gamalmenni. Hafa Austur-Húnvetningar sameinað hér á myndai’legan og merkilegan hátt rekstur fullkom- ins sjúkrahúss og notalegs elli- heimilis. Á efstu hæðinni er einnig „bað stofa“, sem er setustofa hjúkrun- ar- og eliiheimilisdeildarinnar. Er hún stór og rúmgóð með glugg um móti austri, suðri og yestri. Stórt yfirbyggt sólskýlj er fram af henni. Hefur gamla fólkið og sjúklingar deildarinnar þarna hina ákjósanlegustu aðstöðu til þess að láta fara vel um sig. HLÝR HEIMILISBRAGUR Þetta fallega og fullkomna sjúkrahús og elliheimili Austur- Húnvetninga er um ýmsa hluti séi’stætt. Það hefur í raun og veru fremur á sér svip heimilis fólks- ins, sem dvelur þar en opinberrar stofnunar og sjúkrahúss. Okkur finnst athyglisvert að tjöldin fyr ir gluggum íbúðarherbergjanna eru rósótt og veggir og loft eru máluð ýmsum litum, mjúkum og mildum. Þetta gefur húsakynnun- um persónulegri og hlýlegri blæ en tíðkast á sjúkrastofum. Við heilsum upp á nokkra sjúkl inga sem þarna liggja. Þeir taka brosandi á móti yfirlækni sín- um og okkur, sem erum í fylgd með honum. Fólkinu hérna j Húnavatns- sýslu þykir þegar vænt um Hér- ðshælið segir Kolka læknir. Þa8 hefur unnið að stofnun þess af miklum áhuga og fórnfýsi. Þessi heilindismiðstöð og rekstur henn- ar verður merkur þáttur í lífi héraðb' ÆVINTYRID, SEM VARB AÐ VERULEIKA Þessai’i kvöldheimsókn í yngsta og að mörgu leyti glæsilegasta sjúkrahús landsins er að ljúka. Við sitjum hjá yfirlækninum og Framhald neðst á næstu síðu. -^xsalijum RÚM FYRIR 31 SJÚKLING Á þriðju hæð er aðalsjúkra- deild hælisins. Eru þar fjórar fjórbýlisstofur, tvær þríbýlis- Stofur og fjórar tvíbýlisstofur. Ennfremur er þar sérstök fæðing- arstofa. í þessum herbergjum er rúm fyrir 31 sjúkling. Á þessari hæð er einnig rúm- góð skurðstofa búin hinum full- komnustu tækjum, þar á meðal ikurðstofulampa með níu kvika- ..ilfursljósum. sem auðvelt er ac Dagstofa á sjúkradeil

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.