Morgunblaðið - 11.06.1958, Blaðsíða 13
Miðviltudagur 11. júní 1958
MORGUHBLAÐIÐ
13
Horfl af brúnni
sýni á Akureyri
AKUREYRI, 9. júní — Leik-
flokkur frá Þjóðleikhúsinu sýndi
„Horft af brúnni“ í samkomuhús-
inu hér í gærkvöldi. Var hvert
sæti skipað og leiknum ákaflega
vel tekið. Að sýningu lokinni var
leikflokkurinn hylltur og sérstak
lega Róbert Arnfinnsson, sem lék
aðalhlutverkið. Leikurinn verður
sýndur aftur í kvöld, en að því
búnu fer leikflokkurinn austur í
Þingeyjarsýslu og sýnir á Húsa-
vík og Skjólbrekku (félagsheimili
Mývetninga). — Leikflokkurinn
mun hafa ætlað til Austurlands
í sömu ferð, en þar sem ekki er
búið að opna Austurlandsveginn
er óvist hvort af því getur orðið.
í bakaleiðinni munu verða fleiri
sýningar hér á Akureyri. Heim-
sóknir Þjóðleikhússins eru mestu
listviðburðir hér um slóðir.
Enn er þurrt hér og kemur ekki
dropi úr lofti. f dag er bjart og
gott veður, en ekki hlýtt, og
gróðri fer mjög hægt fram.
—Job.
Þrír slasast er bíll
velfur í Eyjafirði
AKUREYRI, 9. júní. — í gær-
kvöldi varð umferðarslys í Eyja-
firði er sex manna fólksbifreið
valt út af veginum. I bifreiðinni
voru þrír menn og slösuðust þeir
allir.
Slysið varð á 9. tímanum í gær-
kvöldi. Bifreiðin var á leið til
Akureyrar. Norðan við svonefnda
Konuklöpp skammt utan við
Kristnes mu* bifreiðarstjórinn
hafa ekið yfir hæð, séð bíl koma
á móti sér, en þar eð hann hafði
nýlega tekið próf og var óvanur
akstri, mun honum hafa fatazt
stjórn á bifreiðinni og lenti hún
út af brekkumegin. Þar stöðvaðist
bifreiðin á steini og stórskemmd-
ist, m. a. brotnaði stýrishjólið af.
Auk bifreiðarstjórans voru í
förinni systir hans og unglings-
piltur. Meiddust þau öll, en piltur
inn me»t, mun hann meðal
annars hafa nefbrotnað. Rétt
eftir að slysið varð bar þar að
bíl, sem var á leið í sömu átt.
Tók hann fólkið og ók með það
í sjúkrahús, þar sem gert var að
meiðslum þess. Er pilturinn, sem
mest meiddist enn í sjúkrahúsinu,
en systkinin fóru heim eftir að
gert hafði verið að sárum þeirra.
1 dag komu þau þó aftur í sjúkra-
húsið til myndatöku.
Bifreiðin var sex manna fólks-
bifreið, A-246. Var hún fengin að
láni til þessarar ferðar. Job.
KJÓLAR
með tækifærisverði næstu daga.
Laugaveg 60 — Sími 19031.
Byggingarsamvinnufélag prentara
íbúð í II. fl. til sölu
(við Nesveg), 3 herbergi, eldhús og bað og stórt
herbergi í rishæð með eldunarplássi.
Félagsmenn, sem nota vilja forkaupsrétt sinn,
gefi sig fram á skrifstofu félagsins, Hagamel 18
fyrir n.k. mánudagskvöld, 16. júní.
STJÖRNIN.
Til fastagesta Sýningarsalarins!
Vinsamlegast gangið við og gerið
skil í myndlistar og listiðnaðar-
happdrættinu.
Aðeins útgefnir 3 þús. miðar, 30
vinningar, 100 kr. miðinn. — Til-
valið tækifæri að eignast myndlist
og listiðnað fyrir tug þúsund
króna, .ef heppnin er með. Dregið
18. júní. Sýning á vinningunum verður opnuð á fimmtu-
dag og happdrættismiðar seldir í salnum.
Sýningarsalurinn, Hverfisgötu 8—10.
„Old English”DRI-BJ|IXE(frb- dræ-bríet>
Fljótandi gljávax
— Léttir störfin! — ,
— Er mjög drjúgt! —
— Sparar dúkinn! —
Inniheldur undraefnið „Silicones”, sem
bæði hreinsar, gljáir og sparar — tima,
erfiði, dúk og gólf.
Fæst alls staðar
plastplötur á húsgögn,
eldhúsborð,
skólaborð,
skrifborð,
veitingaborð,
verzlunardiska.
jafnhentugar fyrir rannsóknarstofur og sJúkndMtn
og alls staðar þar sem reinlæti og þokki fara wm-
an.
★ Forðizt eftirlíkingar, nafnið er á hverri plötu.
Dmboðsmenn:
G. ÞORSTEINSSON & JOHNSON H.F.
Grótagötu Y, sími 2-4250.
^ Formica er skrásett vörumerkl fyrir samsettar plastplötyr
framleiddar af Formica Ltd.
MÝ 8EIMDIIMG
„GILBARCO“ olíubrennarar væntanlegir alveg á næstunni.
Þei«* viðskiptavinir vorir, er eiga brennara í pöntun eru vin-
samlegast beðnir að hafa samband við skrifstofu vora.
Willv's Station 19SS !
til sölu. Bíllinn er ísérstaklega
góðu ástandi. Með framdrifi, j
útvarpi og miðstöð. Skipti á 1
góðum 6 -lanan bíl koma til
greina.
BÍLASALAN
Klapparstíg 37 — Sími 1-90-32
íbúðarhús
í landi Hallormsstaðar fæst
leigt til sumardvalar frá 20.
júní nk., til lengri eða skemmri
tíma. — Upplýsingar gefur
Þórarinn Björnsson, sími
11333, Ítoykjavík, eða húseig-
andi, Sigurður Guttormsson,
Hallormsstað.
Tökum iafnframt á móti pöntunum
til afgreiðslu um mánaðarmót
ýúlí og ágúst.
OLÍUFÉLAGIÐ HF.
Sambandshúsinu Sími 24380