Morgunblaðið - 11.06.1958, Blaðsíða 16
I fáum orðum sagf
Sjá bls. 9.
Fréttir frá Ægi :
Allt líf í sjónum seinna
til í ár en í tyrra
DAVÍÐ Ólafsson, fiskimálastjóri,
skýrði blaðinu svo frá í gær-
kvöldi, að borizt hefði skeyti frá
Ingvari Hallgrímssyni, leiðang-
urrsstjóra á Ægi.
Skipsmenn hafa undanfarna
daga athugað svæðið milli Siglu-
fjarðar og Langaness, allt norður
á 69° 16' nbr. Nyrzt á svæðinu
varð vart við töluvert magn af
pólsævarátu. Nær landi var frem
ur lítið af rauðátu, en hins vegar
talsvert af ljósátu. Þörungagróð-
ur er mjög mikill, sérstaklega ut-
an landgrunnsins. — Óverulegar
síldarlóðningar voru á öllu svæð-
inu. Hitastigið mældist um 2°
lægra á miðsvæðinu en var á
sama tíma í fyrra, en sá mis-
munur minnkar, þegar austar
dregur. Yfirleitt virðist allt líf í
sjónum vera mun seinna á.ferð-
inni en í fyrra.
Ægir fer nú um svæðið norð-
austur af landinu. — Fréttir
hafa borizt af norskum sildveiði-
skipum á þessum slóðum. Þau
munu hafa lóðað lítið af síld og
ekkert veitt enn.
Síldraleitarbáturinn Rán leitar
á vestursvæðinu, og stjórnar
Ingvar Pálmason, skipstjóri,
bátnum. Reknet hafa verið lögð
í lóðningar á Strandagrunni, en
ekkert fengizt. Báturinn var í
gær í Reykjarfjarðarál. Báts-
verjar hafa ekki séð neina síld
vaða, en orðið hennar varir með
mælitækjum. Norsk skip í vest-
ursvæðinu munu ekki heldur
hafa fengið neina síld.
Happdrætti SjálfstœÖisflokksins
Drcetti fresfað til 24. juní
EINS og frá var sagt í blaðinu
í gær, átti að draga í happdrætti
Sjálfstæðisflokksins í gærkvöldi,
en sökum þess, að ekki hafa enn
borizt skil frá öllum umboðs-
mönnum úti á landi, reyndist
óhjákvæmilegt að fresta drætti
um sinn. Sá frestur er þó mjög
Aðeins fjórir úti
AKRANESI 9. maí. — Aðeins
fjórir reknetabátar voru úti í
nótt. Hafa þeir litla eða enga
síld fengið, því enginn kom inn.
Eru nú flestir að hætta é rek-
netum og leggja kapp á að undir-
búa bátana undir síldarvertíðina
fyrir norðan. Munu um 17 bátar
fara norður.
Hingað kom togarinn Bjarni
Ólafsson í dag af Grænlandsmið-
um, með rúmar 200 lestir fisks.
Mikið af aflanum er þorskur.
— Oddur.
Álíka mörg síld-
veiðiskip i ar
GERT er ráð fyrir að tala ís-
lenzkra síldarskipa á komandi
vertíð muni verða mjög svipuð
því sem hún var 1 fyrra, en þá
munu flest hafa verið að veið-
um 234. Samkvæmt upplýsingum
frá sjávarútvegsmálaráðuneytinu
hafa nú verið veitt veiðileyfi til
134 skipa. Meðal þeirra er aðeins
einn togari, Þorsteinn þorskabít-
ur, sem mun vera í þann veginn
að halda til síldveiðanna.
BreiðfirÖingafélagið
skemmtir öldungum
Á UPPSTIGNINGARDAG sl.
hélt Breiðfirðingafélagið í Reykja
vík öldruðum Breiðfirðingum hér
hóf í Breiðfirðingabúð, en þetta
hefur tíðkazt hjá félaginu árum
saman. Þarna er alltaf stutt guðs-
þjónusta, söngur, gamanleikir og
kvikmyndasýning. Sú nýbreytni
var tekin upp sl. ár að félags-
konur sjá um allar veitingar. Er
eldra fólkið mjög þakklátt félags-
konum og félaginu í heild fyrir
þessa ánægjulegu samverustund.
Efst til vinstri Sigurhjörtur Pétursson í sveit Ar na M. Jónssonar, með spilin, en Þórður Elíasson,
í sveit Hjalta Elíassonar, fylgist með. — Efst tii hægri: Stefán Stefánsson heldur á „kortunum“,
en sveitarforinginn, Hörður Þórðarson, horfir á ásamt Mikael Jónssyni frá Akureyri. — Neðst til
vinstri: Óli Kristinsson frá Húsavík segir „spilið stendur", og Vigdís Guðjónsdóttir í íslandssveit
kvenna, athugar hvort rétt sé. Louisa Þórðarson fylgist með. — Neðst til hægri: Jóhann Jóhanns-
son í sveit Asbjarnar Jónssonar í útspili. Áhorfendur: Guðm. Kr. Sigurðsson og Petrína Færseth.
Fundur út at síldarsamn-
ingunum sennilega í dag
Sáttasemjari ríkisins fjallar nú um
skammur, eða aðeins tvær vikur
og verður dregið á Jónsmessu,
hinn 24. þ. m.
Mönnum gefst því enn um sinn
kostur á að tryggja sér miða í
happdrættinu. — Jafnframt er
þeim mönnum, sem enn hafa
ekki gert skil, vinsamlega bent
á, að draga það ekki lengur, held
ur skila heimsendum miðum eða
andvirði þeirra í skrifstofu happ-
drættisins í Sjálfstæðishúsinu
strax í dag.
Hæslu vinningarnir
í sama umboði
TVEIR kæstu vinningarnir í 7.
flokki Háskólahappdrættisins, er
dregið var í í gær, komu upp á
heilmiða og hálfmiða. Hér var
um að ræða 100.000 kr. vinning,
sem kom á heilmiða nr. 29505,
en 50.000 kr. vinningurinn kom á
%-miða nr. 28157. — Báðir þess-
ir miðar eru í sama umboði hér
í Reykjavík, hjá Guðrúnu Ólafs-
dóttur og Jóni Arnórssyni.
10.000 kr. vinningarnir komu á
númer 3777 14898 20545 25191
34778 og 34899.
5.000 kr. vinningarnir komu á
miða númer 2436 4273 6874
16548 19262 30265 36696 og
38943.
5 vinnudeilur
FRÉTTAMAÐUR frá Morgunbl.
átti í gær tal við Torfa Hjartar-
son, sáttasemjara ríkisins, og
spurðist um samningaumleitanir
í deilunni milli sjómanna á síldar
flotanum og útgerðarmanna.
Sáttasemjari kvaðst ekki hafaboð
að til fundar í gær, en bjóst við,
að fundur yrði í dag. Hér er um
að ræða viðræður milli Lands-
sambands íslenzkra útvegsmanna
og fulltrúa stéttarsamtaka sjó-
manna um land allt, þó ekki sjó-
mannasamtakanna á Vestfjörðum
og í Vestmannaeyjum. Fuiltrúar
félaganna eru nú flestir komnir
til Reykjavíkur.
Sáttasemjari hefur auk þessa
til meðferðar deilur vinnuveit-
enda og Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur, klæðskerasveina-
félagsins Skjaldborgar, prentara-
félagsins og bókbindarafélgsins.
Enn hafa ekki verið haldnir fund
ir vegna væntanlegra samninga
tveggja síðastgreindu félaganna.
Nælurfrosf á
Sauðárkróki
FRÉTTARITARI Mbl. á Sauðár-
króki símaði Mbl. í gær að tvær
undanfarnar *ætur hefðu verið
næturfrost í Skagafirði. Hægt
miðar vorinu, sagði fréttaritar-
inn, og eru tún entu lítið farin
að grænka og úthagi enn grár
og gróðurlaus. Ekki hefur komið
dropi úr lofti þar í margar vikur.
Styrkir til vísinda-
náms
BANDARÍSKA stofnunm Nati-
onal Academy of Sciences hefur
boðizt til að veita íslendingi
styrk til tveggja ára vísindanáms
og rannsóknastarfa í Bandaríkj-
unum.
Styrkurinn nemuf 10.50 doll-
urum á dag. Auk þess greiðir
stofnunin ferðakostnað milli
landa fyrir styrkþega og fjöl-
skyldu hans, ennfremur greiðist
einn dollari á dag fyrir hvern
fjölskyldumeðlim (þó eigi fyrir
fleiri en eiginkonu og þrjú ófjár-
ráða börn).
Umsækjendur þurfa helzt að
hafa lokið doktorsprófi eða að
minnsta kosti að vera færir um
að geta starfað sjálfstætt að vís-
indalegum rannsóknum. Nægileg
enskukunnátta er nauðsynleg.
Þeir, sem kynnu að hafa áhuga
á að sækja um styrk þennan, vitji
umsóknareyðublaða í mennta-
málaráðuneytið. Umsóknir skulu
hafa borizt ráðuneytinu fyrir 15.
júlí næstkomandi.
(Frá menntamálaráðuneytinu)
20 manna leiöangur á
Vatnajökli
EINS og skýrt hefur verið frá
í Mbl., fór allstór leiðangur á
Vatnajökul um helgina á vegum
Jöklárannsóknafélagsins. Tíðinda
maður blaðsins átti í gær tal við
Jón Eyþórsson veðurfræðing, sem
fór með leiðangrinum alit-ausrur
í Jökulheima. Sagði hann, að á
jöklinum væru 20 menn, þeirra
á meðal dr. Sigurður Þórarins-
son, Baldur Jónsson landmælinga
maður og 3 aðstoðarmenn þeirra
svo og þeir Guðmundur Jónasson,
Sigurður Wáge og fleiri kunnir
ferðamenn.
Jökulfararnir komu til Gríms-
fjalls árla dags á mánudag og
þar munu þeir dr. Sigurður,
Baldur og aðstoðarmenn þeirra
dveljast í skála Jöklarannsóknar
félagsins fram að næstu helgi.
Mun Baldur m. a. mæla hæð yfir-
borðs Grímsvatna, svo og hæð
nokkurra klettanefja og fjalls-
tinda, sem síðar má nota tii að
miða yfirborðið við. Hæðin á
Eystri Svínahnjúk, hæsta tindi
Grímsfjalls, var mæld af dönsk-
um mælingamönnum 1956, en
hæð hinna punktanna hefur ekki
verið ákvörðuð nákvæmlega til
þessa. Mælingarnar á yfirborði
Grímsvatna hafa sem kunnugt
er mikla þýðingu í sambandi við
spár varðandi jökulhlaup og gos
á þessu svæði.
Þeir 15 menn aðrir, sem nú eru
á jöklinum, munu ferðast eitt-
hvað um á snjóbílum, en þeir eru
alls 3 í leiðangrinum. Er búizt
við, að farið verði á Öræfajökul
og til Esjufjalla.
Leiðangrar sem þessi hafa ver-
ið farnir árlega að undanfórnu.
Hafa þeir verulega vísindalega
þýðingu, en auk þess hafa ail-
margir fengið sjaldgæft tækifæri
til skemmtiferða um Vatnajókul.
Hlíf krefst 15% grunn
kaupshcekkunar
BLAÐIÐ Hjálmur, sem gefið er
út af verkamannafélaginu Hlíf í
Hafnarfirði, hefur nýlega verið
borið á vinnustaði þar í bænum. I
blaðinu er- birtar tillögur félags-
ins um breytingar á samningi við
vinnuveitendur, en honum var
sagt upi frá 1. júní sl. eins og
fjöidamorgum öðrum kjarasamn-
ingum.
Tillögur Hlífar eru í mörgum
liðum, en þetta eru helztu atriði
þeirra:
Grunnkaup allt hækk' uni 15%
(þ.e. um 10% fyrir utan þá 5%
hækkun, sem ákveðin var í nýsett-
um lögum um útflutningssjóð o.
fl.).
Á laugardögum og öðrum dög-
um fyrir h ,idaga hefjist helgi-
dagavinna strax að lókinni dag-
vinnu.
Tímakaupsmaður, sem hefur
unnið hjá vinnuveitenda í 6 mán-
uði og allt að 12 mánuðum, eigi
rétt á að fá greitt fyrir allt að 7
veikindadaga (nú er þessum mönn
um ekki greitt fyrir veikindadaga,
e hins vegar fyrir allt að 7 daga,
sem þei_ eru forfallaðir vegna
slysa).
Tímakaupsmenn í fastavinnu
verði ráðnir á fast vikukaup.
Atvinurekendur borgi sem svar
ar 1% af greiddum vinnulaunum
verkamanna í félagsheiniiiissjóð
Hlífar. Þá sé haldið eftir % af
launum verkamanna, og það einn-
ig látið renna til sjóðsins. Nú
greiða hvorki atvinnurekendur né
verkamenn i sjóðinn með þessum
hætti.