Morgunblaðið - 11.06.1958, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 11. júni 1958
MORCUIVBL AÐtb
15
— í fáum orðum sagt
Framh. af bls. 9
nema eyðimerkurganga. Hann
hafði margoft reynt að hætta
að drekka, en ekki tekizt.
Kunningi hans benti honum á
að tala við mig. Hann kom
heim til mín og ég sagði honum
þá skoðun mína, að drykkjuskap-
urinn byggðist á sambandi við
illar verur og eina leiðin til að
lækna hann væri sú, að snúa sér
til Jesús í einlægni og biðja um
hjálp. Maður gæti svo gert ýmis-
legt til að styrkja viljakraft
sinn, en bænin væri aðalatriðið.
Við báðum svo sameiginlega um
hjálp, þessum manni til handa.
Síðan fékk ég honum reglur sem
ég sagði að hann skyldi fylgja
næstu þrjár vikurnar og skyldi ég
svo heimsækja hann að þeim
tíma liðnum. I>essi maður hefur
aldrei bragðað áfengi síðan og er
nú efnaður maður hér á Suð-
urlandi. Ég gæti sagt yður fjölda
dæma, en þetta verður að nægja.
Ég gerði sjálfur margar tilraun-
ir til að hætta að drekka og hef
ég skýrt frá sálarástandi mínu
um það leyti í litlum pésa, sem
heitir: „Leyndardómur of-
drykkjunnar“. Sá sem fyrstur
benti mér á sambapdið við hina
illu anda, var Þórður Sveinsson
læknir. Mig langar aðeins til að
segja yður frá því: í niðurlæg-
ingu minni hugkvæmdist mér
einn dag að fara til Þórðar
Sveinssonar læknis og leita ráða
hjá honum. Þegar ég kom til
Þorðar, sat hann í stól sínum og
hlustaði á útvarp. Hann bauð
mér sæti við endann á skrifborð-
inu og við tókum tal saman. Ég
sagði honum, að ég væri til hans
kominn sökum þess, að ég væri
orðinn of drykkfelldur og vildi
gera enn eina tilraun til að losna
undan þeirri ástríðu. Þórður vék
eitthvað að því, að ég mundi
vera „næmur“, en ég vissi varla
þá, við hvað væri átt með því.
Svo snýr hann sér að mér og
segir: „Vitið þér af hverju menn
drekka?“ Mér varð ógreitt um
svar, en mun hafa sagt, að það
mundu sjálfsagt liggja til þess
margar orsakir og misjafnar.
„Nei, það er aðeins ein höfuð-
ástæða til drykkjuskapar manna
og það er of náið samband við
lágar verur, sem eru á sveimi hér
á jörðinni og ná með einhverjum
hætti sambandi við næmgeðja
menn“.
„Nú, hann er þá svona.
— Ég mátti svo sem vita
það, að ekki væri til mikils að
fara til þessa uppgjafalæknis,
þegar yngri læknar gátu ekki
hjálpað", hugsaði ég, en upphátt
sagði ég fátt eða ekkert. Ég var al
inn upp við þá hugsun, að svokall-
aðir „yfirnáttúrulegir“ hlutir og
trú á anda eða ósýnilegar verur,
væri hindurvitni og hégómi. En
Þórður hé’. áfram:
„Þessar verur ná því betra sam
bandi við mann, því óhreinni sem
líkaminn er og því meira sem hann
er sýktur af tóbaksr.autn, vín-
nautn eða öðru slíku. Þess vegna
er fyrsta stigið að hreinsa líkam-
ann og það verður bezt gert með
heitum böðum". Þetta þótti mér
ekki svo fráleitt og tjáði hon-
um, að mér væri Ijúft að reyna
þess konar böð sem hann fyrir-
skipaði. Þetta var fyrsta soorið,
sem ég steig til að losna við
drykkjuhneigðina. Ég átti oft tal
v.J Þórð Sveinsson eftir þetta og
reyndist ann mér alltaf hin
mesta hjálparhella. Hef ég sann-
færzt um, að hann hafði rétt fyr-
ir sér i öllum greinum. Ég komst
að þvi siðar með aðstoð skyggnr-
ar konu að sá sem hafði einna
verst áhrif á mig af framliðnum
verum, var maður nokkur sem dó
með þeim hætti að hann féll út
um glugga á húsi hér í Rvík ár -
ið 1920. Var hann oft í skrifstofu
minni og hafði hin verstu áhrif
á mig. Annars skulum við sleppa
þessu. Ég get fagnað því nú á sex-
tugsafmæli mínu, að íg hef unn-
ið bug á drykkjuhneigð minni,
það er aðalatriðið. Það er kannske
stærsti sigur sem ég hef -mnið.
En ef þér ’ iljið, get ég að lokum
minnzt nokkrum orðum á Dag-
renningu. Áhugi minn á Biblíunni
!
og pýramídafræðum hófst, þegar
ég var á Norðfirði 1937. Þá
í kynntist ég dálitlum enskum pésa,
(eftir Adam Rrtherford, sem heit-
ir „Hin mikla arfleifð íslands".
Þar voru sagðir ýmsir undarlegir
' hlutir um ísland, sem síðar komu
fram, eins og t.d. þao, að landið
yrði sjálfstætt ríki 1941, en eng-
r inn hafð' búizt við, að það yrði
• fyrr en 1944. Fór svo, að ég tók
að kynna r-iér þessa hluti og lagði
sérstaka stund á Biblíuna. Leitaði
j ég að rökum fyrir kenningum
i Rutherfords cg við það efldist trú
; mín mjög. Það getur enginn orð-
ið annað en trúaður, sem les spá-
dóma Biblíunnar, nema kannske
I prestarnir. Ég veit það ekki. En
j eitt veit ég. spádimar Biblíunnar
i eru guðs orð. Þegar ég hóf pess-
ar athuganir mínar, sp rrði ég
j sjálfan mig þessarar grundvatiar-
spurningar: Er Bibhan guðs orð
eða er hún mannaverk? Ég þykist
hafa komizt að raun um, að hún
er guðs rð, og á því hef ég byggt
lífsskoðanir mínar og kenningar.
Við það hef ég öðlazt meiri s’.iln-
ing á ýmsum hlutum en ég hafði
áður. Pýramídafræðin er ný vis-
indagrein, óskyld Biblíunni að
öðru leyti en því, að spádómar
þeir, sem í Biblíunni finnast á
mættu máti, eru ritaðar í Keops-
pýramída með stærðfræðilegu
táknmáli. I að er allt og sumt. Til-
gangurinn með þessu grúski mínu
er sá að bæta fólkið, hjálpa því
til að öðtast trú á æðri mátt og
eignast nýjan titgang með ’í"i
sínu. Ég vil breyta mönnum eins
og ég hef sjálfur breyczt. Ég hef
öðlazt hamingju og rósemi hug-
ans í þessari leit minni og hví þá
ekki að láta aðra njóta góðs af
því?
— Þetta er mikið stökk frá
umfangsmikitli stjórnmáiastarf-
semi og afskiptum af opinberu
lífi.
— Nei, ekki svo mjög, mér
finnst þetta þvert á móti vera
framhald af pólitíkinni. Að vísu
varð ég á sínum tíma að gera
upp á milli þess að vera „fínn
opinber itarfsmaður" eða „ófinn
pýramídaspámaður“. Ég valdi hið
siðarnefnda. Það var að minnsta
kosti ekki eins sálardrepandi! Nú,
mér finnst líka að ég hafi öðlazt
nýtt viðhorf, en gömlu félagarnir
dagað uppi; enn eru þeir að rífast
um efnahagsmálin í útvarpinu á
sama hátt og við gerðum fyrir 20
árum. — M.
Hafnarfjörður
Stúlka sem er góð í skrifstofureikning óskast til
afgreiðslu í brauðbúð. Uppl. í síma 50263.
SMURT BRAUÐ
Snittur og matpakkar
allan daginn
Matbarinn Lækjargötu 6
Sími 10340
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í girðingu. Undirbygging, steyptur
garður, stöplar, timburgrindverk. Lengd girðingar
um hálfur kílómeter.
Lýsing ásamt uppdráttum sækist til Jóhannesar
Kristánssonar, skrifstofu Rafmagnsveitu Reykja-
víkur, Tjarnargötu 12.
Skilatrygging, kr. 50.00.
Sfaða hókara
við embætti mitt er laus til umsóknar. Umsóknir, er
greini menntun og fyrri störf, sendist skrifstofu
minni á Reykjavíkurflugvelli fyrir 1. júlí n.k.
Laun samkvæmt launalögum.
Reykjavík, 9. júní 1958
Flugmálastjórinn
Agnar Kofoed-Hansen.
Vörubíll til sölu
sem nýr Chevrolet vörubíll, smíðaár 1953, keyrður
40 þús. km. Skipti koma til greina. Hagkvæmt verð.
Uppl. í síma 50989 eftir kl. 7 á kvöldin.
TILKYNNING
Af gefnu tilefni skal tekið fram, að skipverjum á
skipum vorum er stranglega bannað að taka að sér
flutning vörusendinga utan farmskrár og fram hjá
hinni almennu póstþjónustu nema sérstök heimild
útgerðarstjórnarinnar sé veitt.
Skipaútgerð ríkisins
Kærar þakkir til ykkar allra sem sýndu mér vinsemd
29. maí.
Ölína Pálsdóttir,
Vesturgötu 23, Hafnarfirði.
Mínar hjartans þakkir flyt ég börnum mínum, tengda-
börnum og barnabörnum og öðrum vinum ogkunningjum,
sem heiðruðu mig með heimsóknum, gjöfum, blómum og
heillaskeytum á 70 ára afmæli mínu 4. þ.m. og gerðu mér
daginn ógleymanlegan.
^ Guð blessi ykkur öll. Lifið heil.
| Kristín Tómasdóttir,
Hafsteini Stokkeyri.
Affgreiðslumaður
óskast strax. Uppl. milli kl. 6—7 í kvöld
(ekki í síma).
Verzl. VÍSIR hf.,
Laugaveg 1.
Plymouth
Plymoutm Belwegere ’55, 4ra dyra, keyrður 7 þús.
km. til sýnis og sölu hjá Barðanum h.f.,
Skúlagötu 40. Tilboð óskast.
Móðir okkar
GUÐRCN asmundsdóttir
frá Gunnarshólma Eyrarbakka,
andaðist þann 10. júní að Elli- og hjúkrunarheimilinu
Grund.
Börn hinnar látnu.
Útför
GUNNLAUGS HILDIBRANDSSONAR
frá Hafnarfirði,
verður gerð frá Fossvogskirkju á morgun, fimmtudag
kl. 1,30.
Rögnvaldur R. Gunnlaugsson.
MAGNHILDUR GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Hvanneyri
andaðist í Elliheimilinu Grund 8. þ.m. Jarðarförin fer
fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 13. kl. 10,30. At-
höfninni verður útvarpað.
Fyrir hönd aðstandenda.
Guðmundur Jónsson, Hvanneyri.
Sonur minn og bróðir okkar
JÓHANN SAMÚELSSON
sem lézt 6.þ.m. verður jarðsunginn fimmtudaginn 12. júní
kl. 3 e.h. frá Fossvogskirkju.
Arndís Árnadóttir,
Guðrún Samúelsdóttir, Ingvi Samúelsson,
Þórunn Samúelsdóttir, Guðmundur Samúelsson.
Kveðjuathöfn í minningu
PETRU GUÐMUNDSDÖTTUR
ljósmóður frá Tungu í Nauteyrarhreppi,
sem andaðist að Sólvangi, Hafnarfirði, 6. þ.m., fer fram
í Hallgrímskirkju 12. þ.m. kl. 2 e.h. Jarðsett verður að
Melgraseyri við ísafjarðardjúp.
Fyrir hönd aðstandenda.
Ásgeir Höskuldsson.
Okkar innilegustu þakkir færum við öllum nær og fjær
fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðar-
för eiginmanns míns og föður, sonar og bróður
RAGNARS PÉTURS BJARNASONAR
Austurveg 65, Selfossi.
Einnig innilegustu þakkir til þeirra sem heimsóttu hann
í veikindum hans, og þeirra sem líknuðu honum og hjúkr-
uðu og réttu honum hjálparhönd á einhvern hátt.
Harrín Elsa Jónsdóttir og hörn,
Þórhildur Hannesdóttir og börn