Morgunblaðið - 01.04.1960, Síða 15
Fðstudagur I. apríl 1960
MORCUWBLAÐIÐ
15
sem vmnum
RAUDMAGI
Vorhattur
Hér kemur eitt lítið sýnis-
horn af vorhatiatízkunni, hár
kúfhattur, úr gráu filti. Beige
litað rúskinsbelti er spennt í
kringum hattinn. Þegar fer að
líða að sumri og hitna í veðri,
er gert ráð fyrir að skipta um
kúf og þá notaður kúfur úr
grófu strái.
ÞAÐ kemur vatn fram í munn
inn bæði á ungum og gömlum,
þegar minnzt er á rauðmaga,
þennan feita, bragðgóða fisk,
sem aðeins veiðist vissan hluta
á árinu, snemma á vorin.
En það er ekki sama á
hvern hátt hann er matreidd-
ur, hæglega er hægt að eyði-
leggja hann með rangri með-
ferð, sérílagi ofsuðu, o.fl. —
Flastir kjósa hann glænýjan
og soðinn og er þá aðferðin
þessi:
Rauðmaginn er hreinsaður
úr heitu vatni, öfugt við flest
ar aðrar fisktegundir. Rauð-
maginn er afhausaður, slægð-
ur og heitu vatni hellt á hann,
eða rekinn ofan í sjóðandi
vatn. Skafinn, þar til allir
gaddar eru farnir af honum
og hann er mjúkur. Sé hvelj-
an ekki borðuð, þarf ekki að
skafa rauðmagann, heldur er
hún rifin af.
Catalonia Arroz
OSS hefur borizt eftirfarandi
uppskrift frá Hansínu Helga- .
dóttur Tossa de Mar á Spáni.
Er uppskriftin af þjóðarrétt-
inu Catalonia Arroz, og í hana
þarf:
1 pk. humar eða 2 pk. rækj-
ur, 12—14 kræklingar (skel-
fiskur), 250 gr. ýsu eða þorsk- \
flak, 250 gr. nauta-, kinda- eða —
svínakjöt, % kjúkling, 3 stk.
laukar (meðalstærð), 5 stk.
tómatar, 1 bolli grænar baun-
ir, 600 kr. hrísgrjón, % 1. vatn,
salt og pipar eftir smekk.
Nota skal stóra steikar-
pönnu. Feiti (olía eða smjör-
líki) hitað á pönnunni, þá rasp
aður laukurinn og tómatarnir
og þeir brúnaðir. Síðan er
smátt skorið kjöt og kjúkling-
inum bætt á pönnuna, látið
brúnast svolítið, þá er fiskur-
inn settur á, sem hefur verið
skorinn niður í frekar smáa
bita. Því næst er humárinn
(eða rækjurnar) og skeljarn-
ar, sem eru hafðar í skelinni
og baunirnar settar saman við.
Ca. Vz 1. af vatni er hellt yfir,
eða svo að fljóti vel yfir. Þeg-
ar sýður er hrísgrjónunum
bætt i og allt soðið í 20 mín.
„Arossið“ er borið á borð á
Fyrsta dags
umslög R.K.Í.
FYRSTA dags umslög sem Rauði
Kross íslands gefur út í tilefni af
alþjóða-flóttamannaárinu eru til
sölu á skrifstofu RKÍ næstu daga
frá kl. 1—5, ennfremur í blaða-
sölu-turninum við Reykjavíkur
Apótek Ritfangaverzluninni,
Laugaveg 12 og Frakkastíg 30.
pönnunni og nægir þessi upp-
skrift fyrir 6.
Frú Hansína lætur þess enn
fremur getið, að fyrir Reyk-
víkinga sé bezt að leita skelj-
anna á Vatnsleysuströndinni
eða í Hvalfirði og eflaust víð-
ar. Gæti það orðið regluleg
skemmtiferð fyrir fjölskyld-
una að fara á kræklingafjöru,
ekki síður en á berjamó.
Rauðmaginn er skorinn í
þunnar sneiðar og soðinn í 5—
10 mín. í vatni, sem salt og
edik hefur verið sett í. Borð-
að með soðnum kartöflum og
ediki. Gott er að hafa pipar-
rótarsósu með rauðmaganum.
Lifrin er oft borðuð með og þá
soðin með rauðmaganum eða
sér í saltvatni í um það bil 10
mín. Oft verður hveljan eftir
af rauðmaganum og er hún þá
borðuð til kvölds og geymd í
ediki.
Hlutfallið er: 2—3 rauðmag-
ar, lVz líter vatn, 1 matsk. salt,
2 matsk. edik.
Rauðmagasúpa
Rauðmaginn er hreinsaður,
hveljan er ekki tekin af. Vatn,
edik, salt og lárberjarlauf sett
í pott. Þegar sýður, er rauð-
maginn settur út í og þegar
suðan kemur upp af honum
er froðan veidd ofan af. Soðin
í 10—15 mín. Tekinn upp úr.
Smjörlíki brætt, hveiti hrært
út í og þynnt út með hinu
síaða fisksoði. Soðið í 10 mín-
útur Edik og sykur sett í eftir
smekk. Á endanum eru sveskj
urnar settar út í ásamt vatn-
inu, sem þær hafa soðið í.
Rauðmaginn er borðaður með
súpunni og soðnar kartöflur.
Hlutfallið er: 2—3 rauðmag-
ar, lVz líter vatn, 15 gr. salt,
1 matsk. edik, 5 lárberjarlauf,
25 gr. smjörl., 25 gr. hveiti,
sveskjur, vatn og sykur, edik
og sykur.
Diors-klauf
ÞRÖNG pils úr þykku efni
verða oft ærið þykk og fyr-
irferðarmikil, þar sem klauf-
in eða lokufallið er, þar er
þarf að margbrjóta efnið sam-
an. Hjá þessu er hægt að kom
ast með því að láta sauminn,
þar sem klaufin á að vera,
opna sig að neðanverðu, og
sauma smá ferkantað stykki á
fóðrið undir klaufinni, eins og
sýnt er á meðfylgjandi mynd.
Nú til dags eru langflest þröng
pils fóðruð.
Þetta er hin svokallaða Di-
ors-klauf, nefnd eftir hinum
franska tízkukóngi Christian
Dior sem látinn er fyrir nokkr
um árum, og átti hugmyndina
að henni. Hann hugsaði ekki
eingöngu um hinar frægu „lín-
ur“ sínar, heldur lét ýmsa sma
muni viðvíkjandi fatnaði sig
miklu skipta. Ef betur er að
gáð, er klaufin ekki einungis
sett í á þennan hátt til þess að
pilsið líti vel út. Mjög auð-
velt er að setja klaufar í hlið-
ar- eða framsauminn á fóðr-
inu, sem veldur því að stúlk-
ur, klæddar slíkum pilsum,
eiga miklu þægilegra með að
ganga og hreyfa sig frjálslega.
Þess skal að lokum getið, að
auðvelt er að útbúa Diors-
klauf á ófóðruðu pilsi. Það er
gert þannig, að stykkið er sett
undir klaufina og það fest í
barmana á hinu breiða saum-
broti.
Námskeið í bókasainsfræðum
HINN 13. apríl n.k. kemur til
Reykjavíkur á vegum upplýsinga
þjónustu Bandaríkjanna Magnús
K. Kristoffersen, bókavörður. —
Mun hann dveljast hér úm mán-
aðatíma, kynna sér íslenzka lög-
gjöf um almenningsbókasöfn og
fyrirhugaðar umbætur á þeirri
löggjöf og halda námskeið í bóka
safnsfræðum í Reykjavík og á
Akureyri. Þá mun hann skoða
bókasöfn í Reykjavík og víðar,
hitta að máli bókaverði og ýmsa
ráða- og áhugamenn um störf og
starfsskilyrði almenningsbóka-
safna. Dagana 12.—16. maí, mun
hann halda tvo til þrjá fyrirlestra
í Reykjavík fyrir kennara og
kennaraskólanemendur.
Magnús K. Kristoffersen, bóka-
vörður, sem er danskur að ætt,
er kunnur áhugámaður og fræð-
ari um almenningsbókasöfn. Hef-
ur hann farið víða um lönd og
haldið námskeið í bókasafnsfræð-
um og flutt fjölda fyrirlestra um
starfsemi og gildi almennings-
bókasafna.
Námskeið
Á námskeiðunum mun Kristof-
fersen gera grein fyrir fenginni
reynslu af gildi almenningsbóka-
safna í ýmsum löndum jafnt á
sviði almennrar sem sérhæfðrar
fræðslu, skýra frá hvernig háttað
er framlögum til amerískra al-
menningsbókasafna, frá fjöl-
þættri starfsemi þeirra og helztu
atriðum skipulags og starfshátta.
Um leið mun hann drepa á rekst-
ur og starf safna í öðrum lönd-
um. Verður lögð áherzla á, að
námskeiðin geti haft hagnýtt
gildi fyrir íslenzka bókaverði og
verður þátttakendum gefinn kost-
ur á að bera fram fyrirspurnir og
óska skýringa. Námskeiðin og
fyrirlestrarnir 'nunu Cara fram
á dönsku.
Verzlunar- og
skrifstofufólk
í austurbænum:
Sjálfsafgreiðsla á bragð
góðum og lystugum inat.
Hraði, Þægindi, Gæði.
Opnað kl. 7 f.h.
MATSTOFA AUSTURBÆJAR
Laugaveg 116.
Rflálfundafélagið
Ó Ð I M IM
Kvikmyndasýning fyrir börn félagsmanna verður í
Trípólibíó sunnudaginn 3. apríl kl. 1:15.
Miðar afhentir í Sjálfstæðishúsinu frá kl. 2—5 í dag
og á morgun.
T i 1 s ö I u :
Volkswagen
sendiferðabifreið
í fyrsta flokks ástandi, með nýrri öflugri miðstöð,
hreifanlegu glerskilrúmi milli stýrishúss og aftur-
hólfs, þrem gluggum á hvorri hlið, sætum fyrir 10
manns, sem hægt er að setja í og taka burtu mjög
auðveldlega. Tilboð er greini nafn heimilisfang og
verð óskast send Morgunblaðinu fyrir 7. apríl n.k.
merkt: „Happ — 9456“.
ITALIA
$Q=^G^Q=^(?^Q=5«íO^Q^Cr::a<Q^<7
Umhverfis jörðina
á matseðli
í kvöld hefjum við ferðina.
Fyrst skreppum við til ÍTALÍU og matseðillinn verður:
SPAGHETTI CON AGLIO e OLIO
★
ZUPPA di SUINACI alla MODENESE
★
BACCALA alla VENEZIANO
★
LA COSTOLETTA alla MILANESE
★
FRITELLE di FARINA BIANCA
★
CAFFE
★
Að auki: PIZZA A LA MAISON
SPAGHETTI ITALIENNE
SPAGHETTI BOLONAISE
★
(skýringar á matseðli fást í Nausti)
Tríó NAUSTS leikur ítölsk lög.
Erlingur Vigfússon syngur ítölsk lög kl. 9:30
Svavar Gests kynnir, segir sögur og . . . smá getraun.
Dans eftir kl. 10:00
Opið til kl. 01:00.