Morgunblaðið - 01.04.1960, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 1. apríl 1960
Ljósastofa Hvítabandsins Fornhaga 8
Er opin íyrir börn og fullorðna alla virka daga
kl. 2—5 e.h.
Bíll
óskast 5—6 manna, árg. 53—56. Útborgun 50 bús.
Tilboð sendist Morgunblaðinu fyrir sunnudagskvöld
merkt. „Bíll 9996“.
Keflavík - Smiðir
Trésmiður óskast helzt vanur verkstæðisvinnu. Hús-
næði gæti komið til mála.
ÞÓRARINN ÓLAFSSON
Sími 2047, Keflavik.
M atráðskona
óskast í veiðiskála frá 15. júní til 31. ágúst. Tilboð
sendist Morgunbl. merkt. „Ráðskona — 9457“.
Vélsmiðir Járniðnalarmenn
Vana vélsmiði vantar til starfa um þriggja mánaða
skeið. Upplýsingar gefnar í dag á herbergi 309
City Hótel.
Vélsmiðjan Stál, Seyðisfirði.
7 ’ Sa^er — Grinder
er eitt af hinum mörgu vin-
sælu >rafmagnshandverk-
færum sem
'fé/acksÆec&e
framleiða —
Þessi verkfæri og varahluti
til þeirra selur
"BENCH GRINOERS
G. Þorsteinsson S Johnson hf.
Grjótagötu 7 — Sími 24250.
7 PORTAg' •
Benedikt Elfar
Minningarorð
BENEDIKT andaðist hér í bæ
hinn 24. þ.m. eftir langvarandi
vanheilsu. Hann var fæddur 27.
I sept. 1892, sonur Árna Stefánsson
ar bónda í Litladal í Djúpadal í
i Eyjafirði fram, og konu hans Ól-
! afar Baldvinsdóttur.
Árni var bróðir Stefáns eldra
Stefánssonar alþm. í Fagraskógi
og er hér um merkar eyfirzkar
bændaættir að ræða.
Hugur Benedikts hneigðist
snemma að skólagöngu og þó
mest að músík. Hann stundaði
nám í Gagnfræðaskóla Akureyr-
ar og síðar Menntaskólanum í
Reykjavík. Stúdentsprófi lauk
hann 1915 og var skráður í Guð-
fræðideild Háskólans hér þá um
haustið. Stundaði hann námið um
sinn, en naut jafnframt söng-
kennslu hjá frú Láru Finsen.
Hugurinn hneigðist nú æ meir að
músíkinni og er Benedikt bauðst
tækifæri til söngnáms erlendis,
greip hann það fegins hendi, þót/ [
hann ættí þá skammt til prófs í
guðfræði.
Söngnámið stundaði hann að-
allega í Berlín undir handleiðslu
Skrifstofuherhergi
til leigu. Uppl. í Fiskhöllinni.
Verzlunin og vinnustofan
£r flutt
að Vesturgötu 3 — Sími 16460.
Fjölbreytt úrval af úrum til íermingagjafa
HELGI SIGURÐSSON, úrsmiður.
Nýleg 2/o herb. íbúð
Til sölu I Laugarneshverfi.
íbúðin er kjallaraíbúð, að mestu ofanjarðar, sólrík
og skemmtileg í 1. fl. standi. Laus í maí.
Nánari upplýsingar gefur
MÁLFLUTNINGSSTOFA
INGI INGIMUNDARSON hdl
Vonarstræti 4 II. hæð. Sími 24753.
SELF POLISHIHG
Þér fáið hinn fullkomna gljáa a
gólfin með notkun hins gamla
enska sjálfgljáandi DRI-BRITE.
Ekkert nudd — engin fyrirhöfn.
Svo auðvelt í notkun!
Gljái, sem- endist . . . og ekki sér á.
Jafnasti fagurgljái, sem hægt er
að hugsa sér. — Reynið sjálf-
gljáandi DRI-BRITE fljótandi
bón, — þegar í dag.
þekkts söngkennara W. Freytag-
I Frey, en meðal lærisveina hans
! var t.d. hin fræga söngkona Fri-
ede Hempel. Á þessum árum
hélt Benedikt marga konserta
hér í Reykjavík, á Akureyri og
víðar. Var honum ágætlega fagn
að af áheyrendum, enda fékk
hann og þann vitnisburð, bæði
kennara sinna og annarra að
hann væri mjög efnilegur söngv-
ari. Röddin var mikil og blæ-
brigðarík tenórrödd, talin góð
óperurödd. Söngmenntun góð,
skilningur næmur og maðurinn
söngvinn að eðlisfari. Mörgu
eldra fólki munu enn minnisstæð
ir konsertar hans hér í Bárunni,
sem þá var söngleikahöll bæjar
ins. Sá er þetta ritar er að vísu
ekki dómbær á músík, en býst þó
við að fleirum en honum sé enn
í minni t.d. er Elfar söng Heimi,
lag Kaldalóns, þá nýtt af nál-
inni. Framabraut Elfars á sviði
söngsins varð það ekki slík sem
[ vonir stóðu til og bar þar margt
til, fjárhagserfiðleikar, öldurót
eftir styrjöldina fyrri o. fl. Elfar
dvaldist þó alllengi erlendis, hélt
víða konserta og fékk góða dóma.
I Svíþjóð dvaldist hann alllengi
og stundaði söngkennslu. En
honum fór sem mörgum að heim
þráin greip hann svo að undan
var látið, og nú um margra ára
bil átti Elfar heima hér í bænum.
Stundaði nokkuð músíkkennslu
framan af. Aðstæður til slíks
voru þó að ýmsu erfiðar fyrir
hann enda komst öll músík-
fræðsla hér í annað form en áður
var er Tónlistarskólinn var stofn-
aður. Elfar brá sér þá á annað
ráð. Hann var hagleiksmaður
mikill í höndum og hugmynda-
ríkur á marga lund. Hann tók því
að reka leikfangagerð í allstórum
stíl og að ég ætla fyrstur manna
hér. Gekk sú starfsemi allvel um
stund en aðrir öflugri aðilar tóku
nú upp samskonar starfsemi og
varð það til þess, ásamt hnign-
andi heilsu hans og þungum raun
um er á hann hlóðust, að starf-
semi hans dróst saman. Síðustu
árin hafði hann dregið sig í hlé,
vanheill mjög en dundaði við
hugðarefni sín eftir getu. Elfar
var kvæntur ágætri konu, Þór-
unni Kristjánsdóttur, Gíslasonar
kaupmanns á Sauðárkróki. Hún
lézt frá 3 ungum börnum þeirra
3. sept. 1943 eftir langvarandi og
þung veikindi. Síðar giftust dæt-
urnar tvær, Björg Kristjana og
Áshildui Ólöf til Ameríku, en
iétust báðar á unga aldri. Sonur-
inn er Árni Rafn þekktur hljóm-
iistarmaður hér í bæ, kvæntur
Þorbjörgu Biering. Elfar var fjöl-
gefinn maður. Hann hafði m.a.
miklar mætur á fögrum bók-
menntum, einkum þó fornum ís-
lenzkum svo og bundnu máli.
Hann var stórfróður í fornsögum
og engan mann hefi ég hitt utan
hóps sérfræðinga sem var eins
handgenginn Sæmundar-Eddu
og hann. Ég held hann hafi kunn
að mikið af henni utanbókar og
reyndar fleira úr fornum bókum.
Á sviði skáldskapar, söngva og
fornra kvæða átti hann sinn eig-
in heim. Listamannseðli hans
gerði honum hinsvegar erfiðara
fyrir um veraldarvafstrið. örlög
Benedikts Elfar voru að ýmsu
leyti þung, lífið varð honum á-
fallasamt og vonbrigðaríkt. Allir
eigum við að vísu nokkurn hlut
að því sem aflaga fer. En ör-
laganornirnar virðast líka spinna
nokkuð ríkan þátt í lífi manna
og hér voru þær ekki mjúkhent-
ar. Benedikt Elfar bar höggnar
hlífar vegarmóður, en æðrulaus
með kárlmannslund. Og gleði er
það þeim, sem hann þekktu, að
barnslegt hjarta sitt geymdi hann
hreint og á réttum stað. — T.B.L.