Morgunblaðið - 13.04.1960, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 13.04.1960, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 13. apríl 1960 MORClJlSBLAÐiÐ 11 Kertnedy vex ásmeginn KKNNEDY vann prófkjörið í Wiscounsin-fylki. Menn biðu úrslitanna með mikilli eftir- væntingu, enda þótt Wiscoun- sin sendi aðeins 31 fulltrúa á þingið, sem velur forsetaefni demokrata, en þar þarf 761 at- kvæði til sigurs. Baráttan fyr- ir kosningarnar í Wiscounsin var almennt talin fyrsta stigið á lokauppgjöri þeirra flokks- bræðranna Humpherys og Kennedys. Nixon lét ekki sjá sig Og þeir félagarnir tókust á af svo miklu afli, að Nixon féll aigerlega í skuggann prátt fyr ir ítrekaðar tilraunir repu- blikana til að vekja athygli manna á því, að þessar kosn- mgar væru ekkert einkafyrir tæki demokrata. Fyrir kosningarnar var Kennedy talinn sigurstrangleg astur demokrata — og ekki er aðstaða hans lakari nú en fyrr. Hann hlaut 468 þús. atkv. Humphery 366 þús. og Nixon 336 þús. Fyrir kosnirfgarnar sendu republikanar út bréf til tugþúsunda sinna manna og Kennedy skoruðu á þá að styðja Nixon. Hann tók engan þátt í kosn- ingabaráttunni, enda hafði hann engan mótframbjóðanda til að fást við. Kaþólskan hafði sitt að segja — Oð einmitt þess vegna hlaut hann minna fylgi en hið raunverulega fylgi republik- ana er í Wiscounsin. Fullvíst er að margir kaþólskir úr þeirra hópi hafi snúizt á sveif með Kennedy, sem er kaþólsk ur — og úrslitin eru talin tölu- vert áfall fyrir Nixon, enda þótt hann fengi fleiri atkvæði en almennt var búizt við. I>að, sem þessar kosningar sýna þó fyrst og fremst er, að trúarskoðanir Kennedys hafa áhrif, hann hefur unnið ka- þólska republikana til fylgis við sig. Og einmitt þéssi stað- reynd er meira en lítið óþægi- leg fyrir alla keppinauta Kennedys. Of selnt Fylgismenn þeirra Stevens- ons og Symingtons, sem hvor- ugir tóku þátt í kosningabar- áttunni, lögðúst á eitt með Humphery. Það átti að stöðva uppgang Kennedys fyrir fullt og allt. En það tókst ekki. Nú færast átökin yfir til Vestur Virginiu. Þar reyna keppinautarnir enn að stöðva hinn kaþólska Kennedy. En er það um seinan? Enska knattspyrnan ; 730 þús. manns sáu landsleikinn 37. umferð ensku deildar- keppninnar fór fram sl. laugar- dag og urðu úrslit leikjanna þessi: 1. deild: Arsenal :— Chelsea ............. 1:4 Blackburn — Newcastle .......... 1:1 Blackpool — Birmingham ......... 0:1 Bolton — Preston ............... 1:1 Everton — Tottenham............. 2:1 Fulhem — Leícester.............. 1:1 Luton — Manchester U............ 2:3 Manchester City — W.B.A........ 0:1 N. Forest — Burnley............. 0:1 Sheffield W. — Leeds ........... 1:0 2. deild: Aston Villa — Bristol City...... 2:1 Helgitónleikar 2. páskadag ANNAN páskadag kl. 9 verða fluttir helgitónleikar í Laugar- neskirkju. Þar verður m. a. flutt kirkjusónata fyrir fiðlu og orgel og tokkata fyrir orgel eftir dr. Hallgrím Helgason, en bæði þessi verk eru ný og nú flutt í fyrsta sinn. Leikur höfundurinn sjálfur á fiðlu, en einleik og und- irleik á orgel annast Páll Kr. Pálsson. Þá syngur Alþýðukórinn, SVIR, fjölmörg íslenzk kirkju- leg lög, ísl. þjóðlög eða lög eftir ísl. höfunda. Dr. Hallgrímur Helgason stjórnar kórnum og hefur séð um raddsetningu. í kirkjunni verður einnig ritn- ingalestur og bæn. Prestur er séra Garðar Svavarsson. Er ætl- azt til að allir kirkjugestir biðji faðirvor upphátt með prestinum. Að lokum syngur söfnuðurinn Vor guð er borg á bjargi traust. Við útgöngu gefst kirkjugest- um kostur á að gefa í sjóð til hljóðfærakaupa fyrir kórinn. Brighton — Hull............... 1:1 Bristol Rovers — Middlesbrough 0:2 Huddersfield — Plymouth........ 2:0 Ipswich — Derby ................ 1:1 Leyton Orient — Liverpool 2:0 Lincoln — Charlton ........... 5:3 Portsmouth — Rotherham......... 2:0 Stoke — Cardiff ............... 0:1 Sunderland — Scunthorpe....... 1:0 Swansea — Sheffield U. ....... 2:1 130 þúsund áhorfendur sáu landsleikinn milli Skotlands og Englands, sem fram fór á Hamp den Park í Glasgow. Leikurinn endaði með jafntefli 1:1 og eru nú 23 ár síðan Skotar hafa sigr- að Englendinga í landsleik á heimavelli. Síðast sigruðu Skot- ar árið 1937 og þá með þremur mörkum gegn einu. — Leikur- inn sl. laugardag var frekar lé- legur þrátt fyrir góðar aðstæður og mikinn spenning. Veðrið var gott, logn og þurrt. Fyrri hálfleikur var frekar jafn og skiptust liðin á góðum marktækifærum. Á 6. mínútu átti t.d. Flowers gott skot á mark, en það lenti í stöng. Á 17. mínútu eiga Skotar mjög gott upphlaup, sem endaði með að Leggai skor- aði af 15 metra færi. Var staðan því í hálfleik 1:0 Skotum í vil. — Englendingar byrjðu vel í síð- ari hálfleik og á 49. mínútu áttu þeir gott upphlaup, gekk knött- urinn frá Flowers til Dakars, er gaf góða sendingu til Charlton, en í þann mund er hann ætlaði að skjóta, þá var honum hrint ó- löglega og dómarinn dæmdi víta- spyrnu, sem Charlton skoraði örugglega úr. — Flestir reiknuðu nú með að Englendingar myndu sækja sig, en það fór á annan veg, Skotar tóknu nú leikinn í sínar hendur og geta þeir kennt framherjum sínum um að ekki tókst að sigra England í þetta sinn, því þeir misnotuðu illa góð tækifæri. — England hafði þó í síðari hálfleik tækifæri að sigra því á 74. mínútu var dæmd önnur vítaspyrna á Skotland. Charlton tók spyrnuna, en skaut beint í fang markmannsins. Dómarinn fyrirskipaði að vítaspyrnan skyldi tekin aftur og þá skaut Charlton framhjá. — Sigur Ever- ton yfir Tottenham kom óvænt. Leikurinn var vel leikinn og mjög spennandi. — Fyrir Everton skoruðu Harris, en Jones skoraði mark Tottenham. Poftabíóm Grænar PLÖNTUR, PÁLMAR og afskorin BLÓM Veitum upplýsingar um meðferð plantnanna. Gefið stofunum nýtt líf með fallegum blómum. Gróðrastoðin GARÐUR Elísahet Foss Frú Fáein minningarorð FJÖRÐA apríl sl. lézt hér á Land- spítalanum frú Elísabet Foss. Banamein hennar var heilablæð- ing og bar því andlát hennar brátt að. Frú Elísabet var fædd 22. sept. árið 1890 og var því á sjötugasta aldursári sínu er hún lézt. Foreldrar frú Elísabetar voru Kristján hæstaréttarforseti Jóns- son Sigurðssonar frá Gautlönd- um, og konu hans Önnu Þórarins dóttir Böðvarssonar prófasts í Görðum. í Reykjavík ól frú Elísabet nær a’lan aldur sinn. Hún ólst upp hjá foreldrum sínum í hópi hátt- prúðra systkina. Var það orð á, að þar yxi upp fallegur hópur, bæði í sjón og að mannkostum. Nú er þessi hópur gáfaðra og göfugra 'systkina nær allur til moldar genginn. Eftir lifa tvær systur, frú Sólveig ekkja Sigurð- ar Eggerz og frú Asa ekkja B. Kronika skipstjóra, búsett í Roskilde. Elísabet fékk í föðurhúsum ágæta menntun sem barn og unglingur. Síðan fór hún í Verzl- unarskóla íslandi, og lauk þar námi. Hún ferðaðist talsvert er- lendis, og las mikið af góðum bókum og var því prýðisvel menntuð kona. Eftir verzlunarskólanámið gekk Elísabet í þjónustu Lands- símans og starfaði þar til hún giftist. Maður hennar var Jón læknir Ólafsson frá Hjarðarholti en síðar tók sér nafnið Foss. Eftir það að þau hjónin slitu samvistum ákvað Elísabet að hefja sjálfstæðan atvinnurekstur. Hún fór þá fyrst til útlanda og stundaði þar verklegt nám í líf- stvkkjagerð. Er hún kom aftur faeim hóf hún verzlunarrekstur og stofnsetti lífstykkjagerð. Það var fyrsti iðnrekstur í þeirri grein hér á landi. Verzlunina og iðn sína rak hún í mörg ár með ágætri forsjá og af miklum dugnaði. En svo vildi það mikla óhapp til að eldur kviknaði í húsinu og brunnu bæði vörubirgðir og verkstæði. Þá seldi hún fyrirtækið. Taldi hún ailtaf að það hefði verið mikil yfirsjón. Starfsleysið átti illa við bana, og gerði lífið ekki eins ánægjulegt og áður hafði verið í hópi glaðværðs og vinsamlegs starfsfólks. Börn frú Elísabetar, dóttir og sonur eru' löngu upp- komin og lifa móður sína. Aslaug dóttir hennar er gift norskum manni, Gisholt að nafni, ofursta í norska hernum. Þau búa í Osló. Á stríðsárunum dvaldi hún hér heima hjá móður sinni og tveir synir hennar. Þeir urðu Elísabetu mjög kærir. Hilmar, sonur hennar, starfar hér í bæ sem dómtúlkur og skjala þýðandi. Þau mæðgin bjuggu lengi saman og reyndist hann móður sinni þá bæði umhyggju- samur og góður sonur. Hann er kvæntur Guðrúnu Guðmunds- dóttur, Jóhannessonar forstjóra. Engum er fulllýst ef gengið er fram hjá því, sem með honum hrærist innra, og mestu veldur um dagfar hans og athafnir. En það fá ekki allir að skyggnast inn í sálu þeirra, sem hlédrægir eru. Og Elísabet var ein þeirra göfugu kvenna, sem ekki bera hjarta sitt á torgin, né hrópa samúð sína út yfir múginn. En þeir áttu hana að vini, sem veröld brást. Og eflaust verða þeir aldrei taldir, sem hún hughreysti eða rétti hjálparhönd. Ég sem þessar línur skrifa, hefi við andlát henn- ar misst vinkonu sem í áratugi var mér flestum konum kærri. Það skarð verður ekki fyllt með kveinstöfum og skal því ekki fleira þar um sagt. En margar stundir á heimili hennar liða mér aldrei úr minni. Elísabet var falleg kona bæði í æsku og á efri árum. Og fegurð- in vekur gleði. Þess vegna voru allir glaðir í návist hennar. Fagurt bros ber hita og birtu inn í sálir manna. Og þessi sam- úðarrika kona átti það bros sem stafar frá heitri djúpri sálu. S. Iðnaðarbúsnœði 300 ferm. á efri hæð í nýju húsi í Vogunum til leigu 14. maí n.k. Tilboð merkt: „300 — 3151“ sendist afgr. Mbl. fyrir 20. þ.m. G eymsluhúsnœði fyrir vörulager, 70—100 ferm., á götuhæð, óskast til leigu sem fyrst. Þarf að vera upphitað og skilyrði til aðkeyrslu nauðsynleg. Vinsamlegast leggið upp- lýsingar á afgr. Mbl. merktar: „Lager — 4313“. 1 REYKJAVÍK Sýningarsalur Ásmundar Sveinssonar Freyjugötu 41 er til leigu fyrir sýningar tímabilið 1. mai til 1. okt. næstkomandi. Upplýsingar í símum 24105 og 16326.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.