Morgunblaðið - 19.06.1964, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 19.06.1964, Blaðsíða 12
12 MOHGUNBLAÐIÐ Fösludagur 19. Júní 1964 Hvítu kollarnir settu svip á dansinn á Lækjartorgi. dr. Bjarni Benediktsson, kom fram á svalir Alþingishússins og flutti ræðu dagsins, sem birt er heild annars staðar í blaðinu. A eftir ræðunni léku Lúðrasveit- irnar „ísland ögrum skorið“. Þá kom fjallkonan, tignarleg í ís- lenzkum þjóðbúningi, fram á svalirnar og flutti ljóð, sem Tóm- as Guðmundsson hafði sérstak- lega samið í tilefni dagsins, en það er birt annars staðar í blað- inu. Gerður Hjörleifsdóttir,. leik kona, var fjallkonan að þessu sinni og flutti ljóðið. Þessum á- fanga hátíðahaldanna lauk með leik Lúðrasveitanna „Yfir voru ættarlandi“. Geysilegur fjöldi á barna- skemmtuninni Nú fluttust hátiðahöldin á Arn arhól, og var næsti áfangi helgað ur börnunum. Var sá liður með heldur léttari stíl en oft áður og gekk mjög fljótt fyrir sig, án tafa af kynningum á milli. Kunnu börnin sýnilega að meta þetta og var gaman að sjá hve vel tókst að halda athygli þessa barna- fjölda fanginni meðan skemmtiat riði fóru fram. En Arnarhóll var þéttstaðinn svo og nærliggjandi götur, og var það mál manna að annar eins barnafjöldi hefði varla verði saman kominn hér á landi áður á einum stað. Klemenz Jónsson leikari stjórn aði og kynnti barnaskemmtun- ina, en hún samanstóð að miklu leyti af söng tvöfalds kvartetts Blómsveigur frá Reykvíkingum lagður á ieiði .Tóns Sigurðssonar. — Á eftir blómsveignum, bornum af tveimur nýstúdentum, — ganga frú Auður Auðuns, forseti borgarstjórnar; Geir Hallgríms- son borgarstjóri, borgaráðsmeðlimir o.fl. in, vígslubiskup, ríkisstjórn, er- lendir sendiherrar. Klukkan 14.15 kom Forsetí fs- lands út úr Alþingishúsinu og gekk í fylgd með forsætisráð- herra að styttu Jóns Sigurðsson ar við Austurvöll. Á undan þeim úr Þjóðleikhúskórnum, sem söng ýmiskonar lög, klæddur viðeig andi búningum og lék hlutverk in um leið og sungið vár. Inn í miili voru áyarp er Reynir Karisson, framkvæmdastjóri Æskulýðsráðs flutti, dvergarnir úr Mjallhvít komu og skemmtu börnunum, skátar sungu, Þor- grímur Einarsson dansaði brúðu dans, Jan Morávek lék á furðu legustu hljóðfæri og Bessi og Árni Tryggvason fluttu leikþátt og hljómsvéit lék undir stjórn Carls Billichs. Að lokum var sleppt blöðrum, sem svifu upp i geiminn óg hurfu. Nú var að venju komið að þætti íþróttanna, sem fram fóru á íþróttaleikvanginum í Laugar- dalnum. En að þessu sinni varð sú breyting á, að meðan íþrótta sinnaðir fóru á völlinn, hlustuðu aðrir á hljómleika á Austurvelli. Var það góð nýbreytni, sem fólk kunni að meta, enda hlustaði margt manna við Austurvöll. Þjóðhátíðin i Reykjavik -Á rauðum palli, sem komið hafði verið fyrir framan við styttu Jóns Sigurðssonar lék Lúðrasveit Keykjavíkur undir stjórn Páls Pampichlers Pálssoa ar. Og Karlakór Reykjavíkur og Fóstbræður sungu undir stjóra Jóns S. Jónssonar og Ragnara Björnssonar sameiginlega og sinn í hvoru lagi ýmis lög, Þar á með al fluttu Fóstbræður Frelsisljóð, sem Árni Björnsson samdi í til- Framhald á 17. síðu þau að þurfa að bíða prúðbúin fram yfir hádegi. Hátíðahöldin við Austurvöll Eftir hádegi hófust að venju að alhátíðahöldin með skrúðgöngun um frá þremur stöðum. Gengið var frá Melaskólanum, Skóla- vörðutorgi og Hlemmi. Skátar fóru fyrir göngunum með is- lenzka fána og lúðrasveitir léku, Lúðrasveit Reykjavíkur, Svanur, Lúðrasveit verkalýðsins og lúðra sveitir barna og unglingaskóla Reykjavíkur. Komu skrúðgöng- urnar saman á Austurvelli, þar sem Ólafur Jónsson, íormaður Þjóðhátíðarnefndar setti hátið- ina, minntist m.a. 20 ára afmælis lýðveldisins. Þá var gengið í kirkju, þar sem hlýtt var á messu hjá vígslu biskupi sr. Bjarna Jónssyni, sem lagði út af orðunum „Þetta er dagur, sem drottinn hefur gjört, fögnum og gleðjumst á honum“. Magnús Jónsson, óperusöngvari söng einsöng í kirkjunni, dr. Páll ísólfsson, annaðist organleik og Dómkirkjukórinn söng sálm- ana „Lát vorn Drottinn“, „Upp þúsund ára þjóð“ og „Faðir and anna“, Þá gengu gestir úr kirkju til Alþingishússins, forsetahjón- Frh. af bls. 28 kvatt fyrir fullt og allt. Mömm- urnar gátu því ókvíðnar klætt börnin í fínu fötin, þ.á.m. ís- lenzku búningana, sem þau hafa stundum vaxið upp úr, án þess að fá tækifæri til að skarta með á þjóðhátíðardegi, og látið þau óhræddar .fara í hvítu skóna, sem þær hafa staðið í biðröðum til að kaupa undanfarna daga. Laust eftir kl. 10 fór fram fyrsta hátíðlega athöfn dagsins. Forseti borgarstjórnar, Auður Auðuns, lagði blómsveig frá Reykvíking- um á leiði Jóns Sigurðssonar í kirkjugarðinum við Suðurgötu, að viðstöddum borgarstjóra, borg arstjórn og fleiri gestum. Karla kórinn Fóstbræður söng undir stjórn Ragnars Björnssonar. Var það látlaus og hátíðleg athöfn. Þegar því var lokið léku Lúðra sveitir barna og unglinga við Elliheimilið Grund og Dvalar- heimili aldraðra sjómanna und- ir stjórn Karls O. Runólfssonar og Páls Pampichlers Pálssonar. Er þetta í annað sinn sem þetta er gert og var greinilega ákaf- lega vel þegið, bæði af gamla fólkinu og börnum og ungling- um, sem hópuðust að, enda 17. júní upp runninn og erfitt fyrir Löggan kemur kannski ekki alveg í staðinn fyrir mömmu, en það er ósköp gott að fá hana til hjálpar þegar eitthvað bjátar á gengu -tvær ungar stúdínur og báru blómsveig. Lagði forsetinn, herra Ásgeir Ásgeirsson, blóm- sveiginrt frá íslenzku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sig'urðssonar. Á eftir léku lúðrasveitirnar þjóð sönginn „Ó, guð vors lands“. Forseti og forsætisráðherra, Gamla fólkið á Eliiheimilinu var vakið með hornablæstri á þjóðhátiðardaginn. Ungir sem gamlir gengu i daasinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.