Morgunblaðið - 12.06.1965, Side 11
MORG 0 N BLAÐIÐ
11
Laugárdagur 12. juni 1965
SAMBAND UNGRA SJALFSTÆÐISMANNA
ÆSKAN OG FRAMTIÐIN
RITSTJORAR: GUNNAR GUNNARSSON, JON E. RAGNARSSON
OG RAGNAR KJARTANSSON
Sumarstarf Heimdallar hafið
Ferðastarfsemi - Félags-
heimili - Þjóðmálaklúbbur
KÚ um þessar mundir er sum-
arstarf Heimdallar FUS að hefj-
ast. Hefst það með gróðursetn-
in'jarferð í Heiðmörk sunnudag-
inn 13. júní, en síðari hluta júní-
mánaðar verður fyrsta helgarferð
félagsins.
Sumarstarfsemi Heimdallar
verour venju fremur fjölbreytt
að þessu sinni enda hefur starfs-
aðstaða félagsins gjörbreyzt með
opnun Félagsheimilis Heimdallar,
en starfsemi þess hefur frá upp-
hafi gengið betur en forráða-
menn félagsins óraði fyrir. Ann-
ars staðar á síðunni er skýrt frá
eumarstarfi Heimdallar í einstök-
um dráttum.
H eiðmerkurf erð
Fyrsti þáttur ferðastarfsemi
Heimdallar að þessu sinni verður
gróðursetningarferð í Heiðmörk
eunnudaginn 13. júní. Verður
lagt af stað frá Valhöll um kl.
19,30 en að lokinni gróðursetn-
ingu 1 reit Heimdallar í Heið-
mörk verður þátttakendum boðið
upp á kaffi í Félaigsheimilinu.
Sl. vor fóru Heimdallarfélagar
í fyrsta sinni, um nokkurra ára
skeið, til gróðursetningar í Heið-
mörk. Tókst sú ferð með afbrigð-
um vel og eru þeir félagsmenn
sem geta komið því við eindreg-
ið hvattir til þess að taka þátt í
Heiðmerkurferðinni.
Fjölbreytt ferðastarfsemi
Ferðanefnd hefur undan-
farnar vikur setið á rökstólum
cg skipulagt ferðastarfsemi sum-
arsins. Fyrsta helgarferðin verð-
ui væntanlega í júnílok í Þórs-
mörk.
Formaður ferðanefndar er
Halldór Runólfsson, verkamaður,
sem einnig á sæti í stjórn Heim-
dallar og mun hann ásamt öðr-
um ferðanefndarmönnum bera
Dngir Sjálfstæðismenn
á héraðsmótum
HÉRAÐSMÓT Sjálfstæðisflokks-
ins verða nú með nýju sniði.
Svavar Gests og hljómsveit
hans hafa verið fengin til þess að
annast • öll skemmtiatriði og er
ekki að efa, að sú ráðstöfun mun
njóta mikilla vinsælda úti um
landsbyggðina.
Þá hefur verið ákveðið, að
ræðumenn verði nú þrír á hverju
héraðsmóti í stað tveggja áður,
og mun jafnan einn af þremur
verða ungur Sjálfstæðismaður.
Kú þegar hafa þrjú héraðsmót
verið auglýst og tala á þeim af
hálfu ungra Sjálfstæðismanna
þeir Árni Grétar Finnsson, form.
Sambands ungra Sjálfstæðis-
manna, Óli Guðbjartsson form.
FUS Árnessýslu, og Kalman
Stefánsson bóndi, Kalmanstungu.
Sú ákvörðun að hafa jafnan
einn af þremur ræðumönnum
héraðsmótanna úr röðum ungra
Sjálfstæðismanna er samtökum
þeirra sérstakt ánægjuefni og
ber glöggan vott þess trausts,
sem ungir Sjálfstæðismenn njóta
innan Sjálfstæðisflokksins.
Dngir Sjálfstæðismenn í
stjórn Landsvirkjunar
6TJÓRN Landsvirkjunar er nú
fullskipuð og er sérstök ástæða
til þess að vekja athygli á því,
•ð tveir forystumanna ungra
Sjálfstæðismanna hafa verið
kjörnir til starfa í henni, þeir
Árni Grétar Finnsson, form.
Bambands ungra Sjálfstæðis-
manna, sem kjörinn var af Al-
þingi c»g Birgir fsl. Gunnarsson,
1 varaformaður S.U.S., sem kjör-
tnn var af hálfu borgarstjórnar
Reykjavíkur.
Birgir fsl. Gunnarsson
Þeir Árni og Birgir hafa báðir
starfað í samtökum ungra Sjálf-
stæðismanna um langt skeið og
kunna ungir Sjálfstæðismenn vel
að meta það traust, sem þeim og
samtökum þeirra er sýnt með
kjöri þessara tveggja forystu-
manna þeirra í Landsvirkjunar-
stjórn.
Árni Grétar Finnsson
veg og vanda af sumarferðum
félagsins.
Ferðir Heimdallar voru með
afbrigðum vel sóttar og vel
heppnaðar s.l. sumar og er ekki
að efa að svo verði einnig að
þessu sinni, Ætlunin er að taka
upp ýmsar nýjungar i ferðastarf-
seminni, svo sem kynningarkvöld
fyrir þátttakendur í félagsheim-
ilinu, þar sem kynntir verða þeir
staðir sem fara skal til og hugsan
lega myndakvöld að lokinni
hverri ferð. Heimdallarferðirnar
eru öllum opnar og er ekki nauð-
synlegt, að þátttakendur séu fé-
laigsbundnir í Heimdalli.
Starfsemi Félagsheimilisins í
sumar
Þegar Félagsheimili Heimdall-
ar tók til starfa í marzmánuði
sl. gerði stjóm félagsins ráð fyr-
ir, að starfsemi Félagsheimilisins
mundi fyrst og fremst verða til
reynslu þar til næsta haust, þar
sem próf voru þá að hefjast í
fiestum framhaldsskólum borgar
innar. Reyndin hefur hins vegar
orðið sú að heimilið hefur verið
geysivel sótt og opið flest kvöld
hverrar vikur. Eiga forráðamenn
þess miklar þakkir skyldar fyrir
vel unnin störf við að koma starf-
semi þess í gang,
í sumar er ætlunin að Félaigs-
heimili Heimdallar verði opið
tvö kvöld í viku hverri, þriðju-
daga og föstudaga og oftar ef
ástæða er til. Sem fyrr verða þar
seldar veitingar við vægu verði,
töfl og spil liggja frammi o.s.frv.
Formaður Félagsheimilisstjórn
ar er Magnús Gunnarsson.
Þjóðmálaklúbbur Heimdallar
Yfirleitt hefur öll pólitísk
starfsemi laigst niður á vegum
Heimdallar yfir sumarmánuðina.
Að þessu sinni er ætlunin að gera
hér breytingu á og innan tíðar
mun Þjóðmálaklúbbur Heimdall-
ar hefja starfsemi sfna Mun
klúbburinn halda fundi hálfs-
mánaðarlega og er hann opinn
öllum félagsmönnum í Heimdalli.
Tilgangurinn með stofnun
Þjóðmálaklúbbsins er að skapa
vettvang fyrir unga Sjálfstæðis-
menn í Reykjavík til þess að
ræða saman í stærri hóp en áður
hin ýmsu stjórnmálalegu við-
fangsefni sem á döfinni eru -
hverju sinni og jafnframt að
leitast við að beina inn í ákveð-
inn farveg skoðunum og hug-
myndum ungra Sjálfstæðismanna
um þau mál. Hver fundur verð-
ur sérstaklega vel undirbúinn og
þátttakendum sent stutt yfirlit
yfir viðfangsefni hvers fundar
fyrirfram og síðan verður gerð
skýrsla yfir niðurstöður hvers
fundar og þær hugmyndir, sem
þar hafa fram komið.
Það er von Heimdallar, að
þessi nýbreytni muni mælast vel
fyrir og að þátttaka verði góð í
starfi Þjóðmálaklúbbsins.
Fjórðungsþing ungra
Sjálfstæóismanna
á Noriuríandi
Heffst í Bifröst, á Sauðárkroki í dag kl. 16
Dr. Gunnar G. Schram Sr. Gunnar Gislason Stefán Jónsson
RÆÐUMENN: Dr. Gunnar G. Schram — Stefdn Jónsson frd
Kagaðarhóli — Stefón Steíónsson bæjarverkfræðincrux
Dr. Gunnar Gíslason alþingismaður mœtir á tundinum