Morgunblaðið - 19.12.1967, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.12.1967, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. DES. 1967 Fjárlagafrumvarpið til 3, umrœðu Stóraukin framlög til skóla- og hafnarbygginga 10°Jo hœkkun á bótum lífeyristrygginga FJÁRLAGAFRUMVARPIÐ fyr- ir árið 1968 kemur til 3. um- ræðu á fundi Sameinaðs-Alþing is í dag. í gær var útbýtt breyt- ingartillögum við frumva-rpið frá meiri- og minnihluta fjár- veitinganefndar. í breytingar- tillögum meirihluta nefndar- innar kemur fram sundurliðuð fjárveitingaáætlun á næsta ári, svo og til hafnarframkvæmda. Eru fjárframlög til hafnarmann virkja og lendingarbóta hækkuð um 28 millj. kr. Þá er gerð sú breyting að fram lag til almannatrygginga er hækkað um 31,5 millj. kr,. sem stafar af því að bætur lifeyris- trygginga, nema fjölskyldubætur eiga að hækka um 10%. Sýning Jóns Engilberts framlengd með nýjum myndum SÝNING Jóns Engilberts í Unu- húsi fékk mjög góðar viðtökur og stór hluti sýningarmyndanna seldust. Nú hefur Ragnar Jóns- son ákveðið að framlengja sýn- inguna og Engilberts hefur látið nýjar myndir í stað þeirra, sem seldust. Það má segja, að þarna sé ný sýning á ferðinni og er hún opin á sama tíma og verzlanir. Þessi framlengda sýning Engil- berts mun standa fram á aðfanga dag jóla. Meðal nvrra liða sem gert er ráði fyrir að teknir verði upp í fjárlagafrumvarpið er framlag byggingasjóðs safnahúss 1,5 millj. kr.; til byggingar sýninga skála á Miklatúni eftir ákvörð- un menntamálaráðuneytisins 500 þús kr.; byggingastyrkur til Sjálfsbjargar 1,5 millj. kr.; til orlofsheimilis BSRB 1 millj. kr., til byggingar sjómannastofa 800 þús. kr. Þá eru og tekin inn nokkur ný heimildarákvæði m.a. að ábvrgjast allt að 10 millj. kr. lán vegna Rannsóknarstofnunar byggingariðnaðarins á Keldna- holti og að taka allt að 2 millj. kr. lán fyrir jarðhitasjóð. Ssðasta söltun á Eskitirðs iyrir jói Eskifirði, 18. desember. HÉR er nú verið að salta 240 tonn úr Guðrúnu Þorkelsdóttur hjá söltunarstöðinni Auðbjörgu og er þetta síðasta söltun hér á Eskifirði fyrir jól, en saltað verður milli jóla og nýárs, ef síld berst. Það, sem af er hefur verið salt- að hér í 35.482 tiunnur og skiptist söltunin þannig milli stöðvanna: Askja 6616, Augbjörg 10400, 6126, Bára 7200 og Söltunarstöð Sigfúsar Baldvinssonar 5140 tunnur. Mjög er nú orðið jólalegt um að li’tast hér. Margir hafa skreytt hús sín utan fyrir hátíðimar og á veguim bæjarins var reist stórt jólatré og jólastjörnur settar á samkomuhúsið og barnaskólann. Jólainnkaup fólks á Eskifirði verða trauðla jafnmikil í ár og venjulega enda gengislækkun nýafstaðin og mikið keypt fyrir hana. — GW. Washkansky með lungnabólgu — Höfðaborg, 18. des. AP-NTB LOUIS Wasihkansky, fyrsti mað- urinn, sem lifir með hjarta úr annarri manneskju, er nú með Skyggnzt um- hverfis Snorra — eftir Gunnar Benediktsson í GÆR kom út hjá Heims- kringlu bók eftir Gunnar Bene- diktsson, sem heitir Skyggnzt umhverfis Snorra, nokkrar rit- gerðir um Snorra Sturluson, vandamenn hans og vini. Bókin inniheldur sextán ritgerðir þar sem fjallað er um það fólk, sem stóð Snorra næst, börn hans, stjúpsyni, bræður, konur hans, foreldra o.fl. Fréttamaður Mbl. hitti Gunn- ar Benediktsson að máli í gær og spurði .hann um tildrög þess að hann fór að rita bækur sín- ar um Sturlungaöld. Hann sagði: — Þrjár síðustu bækur, sem ég hef ritað um þetta efni, eru fyrst og fremst um þá frænd- urna og rithöfundana, Snorra Gunnar Benediktsson og Sturlu Þórðarson. Kveikjan var sú, að ég ætlaði mér að rannsaka ábyrgð höfðingja á Sturlungaöld á því, að ísland komst undir Noregskonung, ábyrgð þeirra hvers um sig. Þá skrifaði ég bókina ísland hefur jarl, sem hefur inni að halda ritgerðirnar Sturlu Sighvatsson, Snorra Sturluson, Þórð kakala, Þorgils skarða, Gissur jarl og Sturlu Þórðarson. Við það verk rann það upp fyrir mér, að Snorra þyrfti að skyggna alveg sérstaklega. Hann kom mér fyr- ir sjónir annar en hann hafði almennt verið í fræðibókum. Þá tók ég að kynna mér hvað um Snorra hafði verið skrifað af viðurkenndum fræðimönnum og skrifaði þá bókina Snorri skáld í Reykholti. Næst tók ég fyrir að rannsaka Sturlu Þórð- arson og á hvern hátt hann, með frásögnum sínum í íslend- ingasögu, væri valdur að því, hverjar skoðanir menn höfðu fengið á Snorra og afstöðu hans til einstakra mála. Þá skrifaði ég bókina Sagnameistarinn Sturla. Að þessu loknu þótti mér sem umsögn mín um Snorra hefði meir verið fólgin í því að rífa niður eldri skoðanir en koma með jákvæðar lýsingar á þess- ari merku persónu og til þess að bæta dálítið úr því, tók ég þann kost, að líta á einsíaka þætti og einstakar persónur, sem koma við sögu hans og láta viðbrögð hans við einstökum atburðum varpa ljósi á gerðir hans. væga lungnabólgu, að því er segir í tilkynningu frá Groote Schuur sjúkrahúsinu í dag. Hins vegar virðist lungnabólgan eng- in áhrif hafa haft á hið nyja hjarta Washkanakys. Stórir pensilín-skammtar hafa engin áhrif haft á hjartasta;f- semina og þykir það enn einn sigurinn fyrir dx. Ohristian Barn ard, skurðlækninn, sem hjarta- græðsluna framkvæmdL Dr. Barnard segir, að hann hafi gefið Washkansky 20 millj. einingar af pensilíni, þó með hálfum huga vegna ófyrirsjáan- legra á'hrifa, sem pensil’ínið hefði getað haft á hjartastarfsemina. í ljós kom, sagði dr. Barnard, að hjartað starfaði með full- komlega eðlilegum hætti. Síðustu fregnir frá Höfðaborg herma, að lungnabólgan nefði versnað l'itillega, þó ekki svo að Washkansky sé talinn í lifs- hættu. Njörður P. Njarðvík Síldin stór og falleg ,Neskaupstað 18. desember SÍLDIN er yfirleitt stór og fall- og segja sjómenn. að hún sé að komast í vetranhorfið. Á þessum slóðum eru engin erlend skip. Rússneski flotinn er töluvert austar og sunnar. í gær og í nótt voru saltaðar 900 tunnur úr einum bát, Bjart- ur NK, á söltunarstöðinni Ás, en allar aðrar stöðvar eru hætt- ar. í kvöld er von á einum báti. Börki NK, með 289 tonn og verður síldin söltuð og fryst eins og hægt er. ,Niöjamá!nráCiineytið‘ — skáldsaga eftir Njörð P. Njarðvík NIÐJAMÁLARÁÐUNEYTIÐ hei'tir ný bók, sem Helgafell gefur út. Höfundur er Njörður P. Njarðvík, lektor í Gautaborg og er þetta fyrsta skáidsaga hans, í tilkynningu Helgafells um bókina segir að þessi Reykja- víkursaga draga miiskunnarlaust dár að ofríki skrifstofuvaldsins í nútíma velferðarþjóðfélagi og verzlun hinna pólitísku flokka með sálir kjósendanna. Og síðan segir orðrétt: „Þegar hér er komið hefir ríkisva'ldið tekið að skipuleggja barneignir land- eignir landfólksins, og þarf nú sérstakt leyfi til að eignast af- kvæmi. Hefir reyndar mar.gt ólíklegra skeð þegar þesis er gætt hve ríkisvald velferðarþjóðfé- lagsins telur sér skylt að hafa fjölþæbt afskipti af lífi þegn- anna. Og vitaskuld eru þessi leyfi veitt eftir pólitískuim regl- um: sá flokkur sem er við völd hverju sinni veitir ekki andstæð- ingum niðjaieyfi. Nema þeir eigi svo góða að í stjórnarherbúðun- um, að þeir geti talað við réfta menn, eins og það er kallað. Söguhetjan er ungur bankamað- ur og situr þannig í hjarta skrifstofuvaldsins. „Erindarekst- ur í skrifstofuþjóðfélagL spill- ing skrifsitorfuvalidsins er skot- spónn þessarar háðsögu". Bókin er 125 bls., prentuð í Víkingsprenti. Ný Súla til Akureyrar Akureyri, 18. desember. NÝTT fiskiskip kom til Akur- eyrar á laugardaginn, Súlan EA 300. Eigandi er Leó Sigurðsson, útgerðarmaður. Skipið er smíðað í Fredriksstad í Noregi og kom hingað beint þaðan. Súlan er 354 brúttólestir að stærð (um 430 brúttólestir eftir gamla mælikerfinu), er með 1000 hesrtafla Leister-vél og búin öll- um nýjustu og fullkomnuistu sigl ingar- fiskileitar- og fjarskipta- tækjum, þ.á.m. tveimur ratsjám og tveiimur asdictækjuim. I reynsluför gekk Súlan EA 300, 12,9 sjómílur og reyndist skipið afar vel á heimleiðinni, hreppti þó iilviðri, um tíu vindstig, hluta leiðarinnar. Skp9tjóri er Baldvin Þorsteins- steinsson, en 1. vélstjóri Gunnar Þonsteinsson. 14 manna áhöfn verður á skiþinu. Súlan fer nú til síldveiða fyrir Austurlandi, en síðar á togveiðar. Leó Sigurðsson hefur selt gömlu Súluna Smára h/f í Reykjavík og verður hún afhent eftir áramórtin. Hún er 256 brúttó lestir samkvæmt gamla mæli- kerfinu. — Sv. P. Sfjórnarfrumvarp á Alþingi: Atvinnureksfur stöðvaður — ef atvinnurekendur skila ekki opinb. gjöldum starfsmanna á réttum tíma í GÆR var lagt fram á Alþingi stjórnarfrumvarp um heimild til stöðvunar atvinnureksturs vegna vanskila opinberra gjalda. Er þar gert ráð fyrir að kaup- greiðendur, sem skyldaðir eru að halda eftir opinberum gjöld- um af launum starfsmanna, verði settur ákveðinn frestur til skila og megi innheimtumaður láta lögreglu stöðva atvinnu- rekstur kaupgreiðanda þar tli full skil eru gerð, með því m. a. að setja verkstofur. skrifstof- ur, útsölur, tæki og vörur und- ir innsigli. Eigi skal heimilt að beita þessum ákvæðum fyrr en liðinn er mánuður frá lokum skilafrests. f greinargerð frumvarpsins kemur fram, að það er flutt sam kvæmt eindreginni ósk Sam- bands íslenzkra sveitarfélaga. Kemur þar m.a. fram að veru- leg brögð hafa verið að því, að kaupgreiðendur drægju að gera skil á opinberum gjöldum starfS manna sinna og þótt lögtaksinn- heimtu væri beitt þá reyndist hún seinvirk og hafa þannig þeir kaupgreiðendur, sem telja sér hag í því, getað notað opin- bert fé til eigin reksturs um all- langan tíma. Lýst eftir öku- mnnni og vitnum SÍÐDEGIS á laugardag var Volkswagenbíl ekið utan í einn af strætisvögnum Kópavogskaup- staðar, þegar bílarnir mættust á Sóleyjargötu við hús númer 19. Talsverðar skemmdir urðd á strætisvagninum, en ökumaður Volkswagenbílsins flúði af staðn- um. Ökumaður strætisvagnsins sá nokkru áður, hvar Volks- wagenbíll kom á móti, en vagn- inn var á leið suður Sóleyjar- götuna. Sá hann, að bílnum var ekið mjög ógætilega og hægði því ferðina og sveigði eins ná- lægt gangstéttinni og unnt var. Samt skipti það enguim bogum, að Volkswagenbíllinn lenti utan í strætisvagninum og skemmdi hann mikið á hliðinni. Af um- merkjum á staðnum að dæma hefur Volkswagenbíllinn skemmzt mikið á hægra aftur- horni, en ökumaður hans sitakk af eftir ákeyrsluna. Það eru eindregin tilmæli rann sóknarlögreglunnar, að ökumað- uir Volkswagenbílisins gefi sig fram svo og vitni, sem sáu at- burðinn, en hann varð um klukkan 16:40 á laugardag. - HUNDAR Framhald af bls. 1. George Floyd. Hundaeftirlitsmaður héraðs- ins, Bob Cash, segir, að hundar þessir hafi áður fengið á sig kæru fyrir að drepa fjölda katta og kj'ölturakka í nágrenninu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.