Morgunblaðið - 31.05.1968, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 31.05.1968, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 196«. Arndís Jónsdóttir Minning í DAG verður lesin til moldar Arndís Jónsdóttir, Njálsgötu 9 er andaðist 25. maí. Amdís var fædd í Fróðhúsum í Mýrarsýslu 22. desember 1884. Foreldrar hennar voru Jón bóndi Kristjánsson bónda á Brekku í Norðurárdal Árnasonar. Koná Jóns föður Arndísar var Guð ríður Helgadóttir frá Mel Hraunhreppi á Mýrum. Helgi Brandsson faðir hennar átti Guð- ríði Þorsteinsdóttur prests á Staðarhrauni, Einarssonar prests á Reynivöllum í Kjós Torfa- sonar prófasts á sama stað, er var bróðir sr. Jóns Halldórsson- ar í Hítardal. Þau Arndís og sr. Bjarni Þorsteinsson tónskáld á Siglufirði voru systkinabörn. — Hún átti því til góðra að telja og bar á ýmsan hátt svipmót ættar sinnar. Foreldrar Arndísar eignuðust og son Helga að nafni, en þau systkin máttu sjá á bak foreldr- um sínum ung að árum, á stuttu árabili. Andaðist móðir þeirra Guðríður Helgadóttir 1893 og faðir þeirra Jón Kristjánsson 1895. Hafði þá Helgi verið tekinn til fósturs að Auðnum á Vatns- leysuströnd og var síðan búsett- ur í Keflavík. En Arndís dvald- ist með föður sínum unz hann andaðist og hlaut þá fóstur hjá vinafólki foreldra sinna á Hamri í Þverárhlíð, hjá þeim hjónuro Þórunni Eiríksdóttur og Þorr steini Sigurðssyni. Hlaut hún þar hið bezta uppeldi og bar ávallt hlýjan hug og ræktarsemi til þessa heimilis, er hún taldi hafa verið sitt annað foreldra- hús. Arndís var vel gerð kona, námfús og aflaði sér ung þeirrar menningar sem hún mátti, eink- um um saumaskap og húshald. Hún giftist 29. október 1910 Tryggva Árnasyni frá Syðra- Langholti í Hrunamannahreppi. Hann var trésmiður og byggði mörg hús, þar á meðal nokkrar kirkjur. En snemma sneri hann sér að líkkistusmíði og var út- fararstjóri um langt árabil í Reykjavík. Tryggvi var smiður góður, hagsýnn hæfileikamaður. Þau hjón bjuggu lengst af á Jón Einarsson framkvæmda-stjóri sem andaðist 26. þ.m. verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju laugardaginn 1. júni kl. 10.30 f.h. Hólmfríður Eyjólfsdóttir börn og tengdaböm. Njálsgötu 9, þar hafði Tryggvi og verkstæði sitt. Arndísi og Tryggva búnaðist vel, hús þeirra var hið vistlegasta, án sérstaks íburðar. Hjá þeim hjónum voru tengslin sterk við sveitalífið, eignuðust þau á efri árum jörð- ina Suðurkot í Grímsnesi, á fögr- um stað við Hvítá og Sog, og dvöldu þar oft á sumrum. Arndís var kona fríð sýnum, virðuleg í framgöngu, margfróð og minnug. Hún var vel gefin eins og hún átti kyn til, unni tónlist og skáldskap og las mikið. Þessi hógværa og hlédræga kona eignaðist því marga vini er gleymdu henni eigi þótt árin liðu, heldur minnast þess hve gott var að dvelja með henni og eiga tal við hana. Enda var hún kona góðviljuð, en margir komu til hennar húsa vegna starfs manns hennar. Þau hjón eignuðust tvo sonu, Árna, áður hæstaréttardómara, nú sendiherra í Svíþjóð, kvænt- an Sigrúnu Ögmundsdóttur, og ólaf rafmagnsverkfræðing og raf veitustjóra, kvæntan Sigríði Ingi mundardóttur. Á heimilinu á Njálsgötu 9 var ríkjandi reglu- semi og gestrisni. Komu margir skólabræður þeirra Árna og Ól- afs þangað á námsárunum og áttu þar góðu að mæta. Árið 1952 andaðist Tryggvi Árnason eftir nokkra vanheilsu Eftir það bjó Arndís ein í húsi þeirra. Var henni mikið yndi að sjá á heimili sinu barnabörn sín og aðra vandamenn og vini. Blessuð sé minning hennar. Pétnr Þ. Ingjaldsson. ARNDÍS JÓNSDÓTTIR verður í dag kvödd hinztu kveðju. Hér verða ekki rakin æviatriði hennar, það hefur þegar verið gert hér á undan. En mig lang- aði aðeins að minnast hennar með nokkrum þakklætis- og kveðjuorðuna fyrir allt, sem þessi góða kona var mér. Það er oft athyglisvert hvern- ig vegir okkar samtíðarmann- anna liggja saman. Stundum verða þeir á vegi manns, án þess að nokkur kynni myndist. En svo ber einnig við, að við aðra skapast tengsl, sem vara lengi og jafnvel ævina alla. Leiðir okkar Arndísar lágu fyrst saman áður en ég man eftir mér. Hún gætti mín þegar ég var á öðru árinu. Ég kunni þá, að sjálfsögðu ekki, að meta umönnun hennar mín vegna. En seinna sagði móðir min mér frá henni og minntist hennar þá Móðir okkar Katrín Júlíana Albertsdóttir verður jarðsungin frá Stykk- ishólmskirkju laugardaginn 1. júní kl. 2 e.h. Dagbjört Davíðsdóttir Dóra Davíðsdóttir. Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinarhug við and- lát og jarðarför mó'ður minn- ar, tengdamóður og ömmu Sólveigar Helgu Gísladóttur Siglufirði. Jónas Asgeirsson Margrét Ólafsdóttir Sóiveig Helga Jónasdóttir Asgeir Jónasson. Vilhjálmur Ólafsson fyrrv. bóndi frá Hvammi á Landi, verður jar'ðsettur frá Skarðs- kirkju í Landssveit laugar- daginn 1. júní kL 2 e. h. — Kveðjuathöfn verður í Há- teigskirkju sama dag kl. 10 t h. — Vandamenn. Innilegar þakkir fyrir auð- sýnda hluttekningu og vinar- hug við fráfall og jarðarför sonar míns, bróður okkar og mágs Bergs Gestssonar. Guð blessi ykkur. Pálína H. Þorleifsdóttir Gestur Gestsson Þorleifur Gestsson Díana Sjöfn Eiríksdóttir Júlíus Gestsson Sigurður Gestsson. jafnan með hlýjum orðum og þakkarhug. En svo var það löngu seinna, einn sólríkan sumardag, senni- lega árið 1919, að Arndís heim- sótti gamlar slóðir. Hún kom ekki einsömul, í fylgd með henni voru drengirnir hennar, 6 og 8 ára gamlir. Hún gisti hjá ömmu minni og fóstra, Valdísi Erlendsdóttur og Sigurði Bjarnasyni, en þar átti ég þá heimili. Þessi heimsókn Arndísar er mér enn í dag svo ljós og lifandi. Mynd hinnar góðlegu og glæsi- legu konu er mér enn föst í minni. Svipur hennar var hreinn og ákveðinn, en þó góðlegur. Hún var fríð kona. Hárið mikið, tinnusvart og fór vel, og augun geislandi kærleiksyl og mildi. Og þessa mynd geymdi hún vel þótt aldur færðíst yfir. Með mér og drengjunum henn- ar, Árna og Ólafi, tókust þegar góð kynni, þrátt fyrir aldursmun nokkurn. Við lékum okkur úti á Stóratúni allan daginn til kvölds. Og þessi kynni hafa hald izt síðan. Næstu sumur heimsóttu þeir bræðurnir okkur og Árni dvaldi nokkur sumur, um tíma, hjá ömmu og fóstra. Og árin liðu. — Er ég hóf nám í Kennaraskólanum haustið 1930, lágu leiðir okkar enn saman. Þá varð hið snyrtilega heimili þeirra hjóna, að Njálsgötu 9, mitt annað heimili. Þessa minnist ég nú með hjartans þakklæti til þeirra hjóna. Og nú, þegar leiðir skilja í svip, vil ég sérstaklega þakka þér, Arndís, umhyggju þína, yl þinn og birtu, og allt, er þú hefur verið mér og mínum á samleið okkar. Sonum hennar, fjölskyldum þeirra og öðrum ástvinum fær- um við hjónin okkar hjartan- legustu samúðarkveðjur. Ragnar Gnðleifsson. Ég undirrituð, sem að undan- fömu hefi dvalið í Vífils- sta'ðahæli, vildi mega biðja Morgunblaðið að flytja sr. Braga Friðrikssyni alúðar- þakkir og kveðjur fyrir ynd- islegar bænarstundir, sem hann heldur í Vífilsstaðahæli og veitt hafa sjúklingum þar huggun og gleði. Ennfremur Haraldi Adolfssyni, sem að- stoðað hefir við þessar bæna- stundir með orgelleik. Þá vil ég ennfremur mega nota þetta tækifæri til að flytja fyrrverandi yfirlækni, Helga Ingvarssyni og fjöl- skyldu hans innilegar kveðj- ur og þakklæti fyrir allt það, sem hann hefir fyrir mig gert fyrr og sfðar. Rannveig B. Óiafsdóttir. Innilegar þakkir færi ég öll- um vinum og kunningjum, nær og fjær, sem glöddu mig með kveðjum og góðum gjöf- um á 75 ára afmæli minu 17. maí sL Hermann Hermannsson Mjógötu 3, Isafirði. Lárus Benedikt Þorleifsson — Minning HANN var fæddur 21. júní árið 1920 og því tæplega 48 ára er hann lézt 21. maí sL Lárus var fæddur að Daðastöðum í Núpa- sveit þar sem foreldrar hans, Sigríður Helgadóttir og Þórleif- ur Benediktsson voru í kaupa- mennsku fyrstu hjúskaparái sín. Með foreldrum sínum flutt- isrt hann frá Daðastöðum að Sigurðarstöðum á Sléttu, þar sem faðir hans var ráðsmáður um tveggja ára skeið og síðar á Rifi á Sléttu. Þegar Lárus var sjö ára gamall hófu foreldrar hans sinn eigin búskap að Garði í Þistilfirði og fluttist hann þá þangað með þeim. Að Garði í Þistilfirði ólst hann upp og hóf sín fyrstu störf við bú föður síns en búskap gerði Lárus að sínu ævistarfi. Lárus var foreldrum sínum tryggur og fór aldrei áð heim- an til annarar vinnu, en hóf þess í stað félagsbúskap við föður sinn. Lárus átti eina systur, Steinunni, og fæddist hún á bú- skaparárum þeira að Garði. Ár- ið 1945 tók hann ásamt föður sínum jörðina Efri-Hóla í Núpa- sveit á leigu og fluttist þangað búferlum og bjó þar til dauða- dags. í Núpasveit lifði hann sín beztu æviár. Þar unnu þeir feðgar saman að stækkun jarð- ar og bús, sléttuðu tún sem fyr- ir voru og tóku að beita vélum við búskapinn. Lárus var mjög félagslyndur maður og átti marga vini og kunningja og tók því mikinn þátt í félagsstörf- Þegar hann fluttist að Efri-Hól- um lét hann ungmennafélags- hreyfinguna mjög til sín taka og var um árabil formaður ung- mennafélags sveitarinnar og hélt þar uppi blómlegu starfi. I þeim félagsskap fann hann að verk- efnin voru mörg og margvísleg og gáfu sfarfsglöðu æskufólki ótæmandi verkefni. Það var árið 1956 að fundum okkar Lárusar bar fyrst saman, er ég dvaldi á heimili hans um jólin og við vorum orðnir tengd- ir. Strax við fyrstu kynni duld- ist mér ekki hvem mann hann hafði að geyma. Hjálpsemi við foreldra, systur, systurbörn og hverja þá er hann gat að ein- hverju liði or’ðið var honum í blóð borin og var hann því sí bætandi þar sem hann fann að hann gat einhverju komið til betri vegar. Nú síðustu árin var hann farinn að kenna lasleika sem ágerðist og varð þess vald- andi að þeir feðgar tóku þá ákvörðun að hætta búskap á hausti komandi og flytja suður til Keflavíkur. 1 félagi höfðu þeir keypt sér fbúð sem befð komu þessara samrýmdu fe'ðga til Keflavíkur, en margt fer á annan veg en ætlað er. Eftir langan og óvenjuharðan vetur á því horni landsins sem snjóar, frosthörkur, stórviðri og hafísar hafa leikið bændur landsins hvað harðast lauk Lárus sínu ævistarfi þar sem hann stóð við vinnu sína i annríki vorverka og sauðburðar. Nú um leið og ég kveð þig hinztu kveðju og flyt þér þakk- ir mínar fjrrir allar þær sam- verustundir sem við höfum átt saman, flyt ég þér sérstakar kveðjur og þakkir systur og systurbama, sem minnast þín sem bróður og frænda, sem allt vildi bæta og græða. Eftirlifandi öldruðum foreldrum votta ég mína dýpstu samúð og veit að minningin um hann mun létta þeim byrðina á þessari sorgar stundu. Blessuð sé minning þín. Þórhallur Guðjónsson. MORGUNBLAOIO Aðalfundur Grensássóknar verður haldinn í Breiðagerðisskóla miðvikudaginn 5. júní kl. 20.30. Venjuleg aðalfundarstörf. STJÓRNIN. Garðyrkjumenn Tilboð óskast í standsetningu á lóð fyrir fjölbýlis- hús í Vesturborginni. Upplýsingar í síma 21586 á kvöldin. Innilegar þakkir færi ég öll- um þeim er heimsóttu mig og sendu mér gjafir, blóm og skeyti á áttræðisafmæli mínu 5. maí sl. og gerðu mér dag- inn ógleymanlegan. Auffbjörg Jensdóttir Vestri-Skógtjörn, Álftanesi. öllum vinum minum og vandamönnum er glöddu mig á margvíslegan hátt og sýndu mér sóma á áttræðisafmæli mínu hinn 25. maí, vil ég færa mínar innilegustu þakkir. Þessi afmælisdagur á heimili dóttur minnar og tengdason- ar verður mér ógleymanlegur. Guð blessi ykkur ÖU. Vilhjálmur Jónsson Hrafnistu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.