Morgunblaðið - 27.09.1968, Page 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. SEPT. 1968.
Hann mun leiða mig út til ljóss-
ins, ég mun horfa ánægð á rétt-
læti hans. (Míka. 7.9.)
t dag er föstudagur 27. sept. Er
það 271 dagur ársins 1968. Cosm-
as og Damianus. Árdegisháflæði er
kl. 8.17. Eftir lifa 95 dagar.
Upplýsingar um læknaþjónustu i
borginni eru gefnar í síma 18888,
símsvara Læknafélags Keykjavík-
ur.
Læknavaktin í Heilsuverndarstöð-
inni hefur síma 21230.
Slysavarðstofan í Borgarspítalan
um er opin allar sólarhringinn.
Aðeins móttaka slasaðra. Sími
81212 Nætur- og heigidagaiæknir er
í síma 21230.
Neyðarvaktin svarar aðeins á
virkum dögum frá kl. 8 til ki. 5
sími 1-15-10 og laugard. kl. 8-1.
Keflavíkurapótek er opið virka
daga kl. 9-19, laugardaga kl 9-2
og sunnudaga frá kl. 1-3.
Næturlæknir í Hafnarfirði aðfara
nótt 28. sept. er Grímur Jónsson,
Smyrlahrauni 44, sími 52315.
Kvöld og helgidagavarzla
er í Ingólfs Apóteki og Laugar-
nes Apóteki.
Næturlæknar í Keflavík.
27. sept. Arnbjörn Ólafsson, 28.
og 29. sept. Guðjón Klemenzson, 30
sept. og 1. okt. Kjartan Ólasfson,
2. okt og 3. okt. Arnbjörn Ólafsson.
Ráðleggingarstöð Þjóðklrkjunnar
um hjúskaparmál er að Lindar-
götu 9. 2 hæð. Viðtalstími læknis
miðvd. 4-5, Viðtalstfmi prests,
þriðjudag og föstudag 5.-6.
Framvegis verður tekið á móti
þeim, sem gefa vilja blóð í Blóð-
bankann, sem hér segir: mánud.
þriðjud., fimmtud. og föstud. frá
kl. 9-11 f.h. og 2-4 e.h. Miðviku-
LÆKNAR
FJARVERANDI
Ófeigur J. Ófeigsson fjv. frá 1.9,
til 20.10. Stg. Jón G. Nikulásson
Axel Blöndal fjarv. frá 28.8.—
1.11. Staðg.: Ámi Guðmundsson.
Bergsveinn Ólafsson fjv. frá 16.9-
14.10 Stg. heimilisl. Þórður Þórðar
son.
Bjarni Jónsson fjarrverandi til
septemberloka.
Eyþór Gunnarsson fjv. óákveð-
ið.
Frosti Sigurjónsson fjv. frá 22.7
fiákveðið. Stg. Ólafur Ingibjörnsson
Slysadeild Borgarspítalans.
Gunnar Biering fjv. frá 8/9—
11/11.
Gunnlaugur Snædal fjv. sept-
embermánuð.
Guðmundur Eyjólfsson fjv. til
23. sept. Valtýr Albertsson fjv.
september. Stg. Guðmundur B. Guð
mundsson og ísak G. Hallgríms-
son, Fischersundi.
Henrik Linnet fjv. óákveðið. Stg
Guðsteinn Þengilsson, símatími kl.
9.30-10.30. Viðtalstími: 10.30-11.30
alla virka daga. Ennfremur viðtals
tími kl. 1.30-3, mánudaga, þriðju-
daga og fimmtudaga.
Hörður Þorleifsson, fj.v. til 7.
okt.
Jakob Jónasson fjv. frá 15. 8.
—3. 10.
Jón Hjaltalín Gunnlaugsson fjv
2. sept. til 17. okt. Stg. Halldór Ar-
inbjarnar.
Karl S. Jónasson fjv. frá 11.9
Óáveðið. Stg. Ólafur Helgason.
Karl Jónsson fjv. septembermán
uð Stg. Kristján Hannesson.
Kristjana Helgadóttir, fjarver-
andi frá 12.8-12.10 StaðgengiU Jón
Árnason.
Kristinn Björnsson fjarv. frá 24.
sept., óákveðið. Stg. HaUdór Arin-
bjarnar.
Ólafur Tryggvason frá 23.9-2010.
Stg. Þórhallur Ólafsson, Dómus
Medica.
Ragnar Arinbjarnar fjv. septem-
bermánuð. Stg. Halldór Arinbjam-
ar, sími 19690.
Ragnheiður Guðmundsdóttir fjv.
frá 1.9 Óákv.
Sæmundur Kjartansson fjv. frá
13.9—1.10.
Valtýr Bjarnason fjv. óákv. Stg.
Jón Gunnlaugsson.
Spakmæli dagsins
Þeim, sem gera sig ánægða með
venjulegt rykkilín, sendir Drottinn
erkibiskupskápu. V. Hugo.
Somræður eru einungis iullhomnur með góðum
vindli, segir Huns Wulfi, vindlufrumleiðundi
Hundrað ára afmæli P. Wulff
vindlaverksmiðjanna var 3. sept
ember, s.l. Þetta eru stærstu
vindlaframleiðendur Danmerk-
ur, og allur obbinn af þeim,
sem á annað borð þekkja eitt-
hvað til vindla kannast við þá.
Fyrirtækið stofnaði ungur
maður frá Holsetalandi, Peter
Wulff, og hefur framleiðslan æ
síðan verið í eigu fjölskyldunn
ar.
Slagorð fyrirtækisins „Nihil
sine labore" ... ekkert án fyrir-
hafnar ... hefur skáldið Hóra-
tíus lagt til.
Hans Wulff, sonarsonur stofn
andans, annar forstjóra fyrir-
tækisins, er um þessar mundir
hérna í heimsókn, og var svo
vingjarnlegur að gefa Morgun-
blaðinu nokkrar upplýsingar.
— Hvemig og hvar kaupið
þið tóbakið?
— Það gemm við á einskon-
ar uppboðum, sem haldin em í
Bremen. Fyrst koma kaupmenn
irnir og kynna sér í nokkurn
tíma tóbakið, sem til sölu er,
og síðan er tilboðum skilað til
seljanda, og em þau öll lokuð.
Setjum nú svo, að tilboðum sé
skilað klukkan níu að morgni.
öll em þau opnuð í einu, og er
þá tilgangslaust — of seint — að
hækka tilboð sitt.
— Þér sögðuð Bremen. Af
hverju?
— Áður fyrr vom þessi upp-
boð haldin í Hollandi, í Amster
dam, en það hefur síðar þótt hag
kvæmara að halda þau í Brem-
en.
■— Þetta er þá Indónesíu tó-
bak, sem þið notið?
— Já, með fleiru, bróðir
minn hefur verið í Brasilíu og
séð um innkaup þar á tóbaki
fyrir okkur.
— Eitthvað rámar mig í, að
yztu blöðin á vindlum ykkar séu
sérlega ljúffeng. Hver er ástæð-
an?
Það er satt þau em góð. í
yzta lagið, sem þekur vindiUnn
notum við eingöngu lauf frá
Súmatra. í næst yzta lagið not-
um við síðan lauf frá Java, og
innan í látum við tóbak frá
Brasilíu.
I léttari vindlana blöndum við
einnig Javönsku tóbaki við Bra-
silíu laufið. Það krefst því þekk
ingar og æfingar að geta keypt
rétt lauf.
— Eflaust — en þarf ekki
stundum að tefla á tvær hættur?
— Ekki er ég þeirrar skoð-
unar. Tóbak er auðvitað mis-
gott, en vindlatóbak hefur ein-
göngu orðið fyrir eðlilegum,
náttúrulegum efnabreytingum,
kemur því „beint af skepn-
unni“.
— Kom faðir yðar einnig til
íslands?
— Já, hann kom hingað þris-
var eða fjórum sinnum.
Fyrst kom hann 1918 eða T9,
til að stofna frímúrararegluna.
Hann er því einn feðra hennar
hérlendis. Þá bar fundum hans
og Magnúsar Kjaran saman og
hófst þar með löng og gagn-
kvæm vinátta ...
Faðir minn lézt, meðan á
seinni heimsstyrjöldinni stóð.
Eftir stríð, vildi fjölskyldan
treysta vináttuböndin við ís-
land, og kom ég hingað með
konu minni í sumarfrí. Hún hef
ur mikinn áhuga fyrir islenzkum
bókmenntum, og prýða heildar
verk Kambans, Halldórs Lax-
ness og Gunnars Gunnarssonar
bókasafn okkar.
Siðan hefur mér orðið tíðrat-
að hingað. Þetta er held ég,
átjánda ferðin mín til íslands.
Og nú fer ég í kurteisisheim-
sókn í Tóbakseinkasöluna. Þetta
aldrei farið inn á þá braut í
vindaliðnaði sínum að láta nú-
tímaefnabreytingar verða ráð-
andi eða hafa áhrif.
— En í stríðinu, hvernig gekk
þetta þá?
— í stríðinu var erfitt að fá
tóbak, þ.e. gott tóbak. Við feng
um það frá Balkanríkjunum,
Þýzkalandi, Frakklandi, Rúss-
landi, og víðar að. Þeir vindlar,
sem við framleiddum úr því,
féllu í heldur lágan gæðaflokk.
— Við héldum áfram að fram-
leiða góða vindla, en skiljan-
lega var það í æ minna mæli,
en við vildum heldur skilja
góða flokka frá lélegum, en að
Hr. Hans Wulff, sem framletðir þá ágætu dönsku vindla!
er vináttuheimsókn.
— Hápunkutur samskipta minn
við ísland, var, fannst mér, vera
fyrir nokkrum dögum, er ég
fékk tækifæri til að kynnast fyrr
verandi Forseta íslands, herra
Ásgeiri Ásgeirssyni í Kaup-
mannahöfn!
— Það er sagt, að þér hafið
styrkt íslenzkan námsmann?
— Það er varla umtalsvert.
Ég hef nokkuð liðsinnt elsku-
legri ungri stúlku frá Húsavík,
sem hefur lagt stund á lyfja-
fræði í Kaupmannahöfn. Það er
aðeins til að reyna á einhvern
hátt að endurgjalda það vinar-
þel, sem mér hefur mætt á ís-
landi.
— Eru ekki ýmsir leyndar-
dómar í starfsgrein Wulff fyrir-
tækisins, sem eru varðveittir eins
og „sjáaldur augna“?
— Nei, ég held, að Danir hafi
blanda þeim saman í framleiðslu
og lækka með því kröfurnar og
hætta orðstír okkar.
— Gerðir vindlanna eru marg
ar, sem þið framleiðið?
— Já, um það bil þrjátíu mis
munandi gerðir, og gengur vel.
Þá flytjum við út um allt, til
Kenya, Saudi Arabíu o.fl.
— Eru munnstykki á nokkr-
um vindlanna?
— Nei, Danir framleiða enga
vindla með munnstykkjum!
Wulff býður gullfallegan vind
il, sem ekki er annað hægt en
að þiggja.
— Þetta er indælt augnablik!
— Já, segir vindlaframleið-
andinn ánægður.
Og góðar samræður eru ein-
ungis fullkomnaðar með góðum
vindli!
M. Thors
FRÉTTIH
Húsmæðrafélag Reykjavíkur er
nú að hefja vetrarstarfsemi sína
og byrjar með sýnikennslu 3 kvöld
í viku, hefjast þau 1 okt. og er
ætlunin að sýna meðferð grænmetis
hvernig eigi að ganga frá því á
réttan hótt í geymslhuólf og frysti
kistur, svo og ýmiskonar grænmet-
isréttir og smurt brauð. 3 vikna
matreiðslunámskeið (kvöldnám-
skeið) byrja 8 okt.
Ætlunin er líka að halda sauma
og föndurnámskeið. 1 dag í viku
er opið hús frá 2-6 fyrir félags-
konur sem vilja hittast, læra og
vinna saman. Námskeið Húsm^ðra
félags Reykjavíkur hafa alltaf í
gegnum árin verið vinsæl og vel
sótt. Þar eru bæði giftar konur og
ógiftar. Þær yngstu hafa verið 16
ára.
öllum ber saman um að nám-
skeiðin séu mjög gagnleg. Stjórn
félagsins hefur á öllum tímum sett
metnað sinn í að gera þessi nám-
skeið eins vel úr garði og frekast
er unnt. Nú eru húsakynnin mjög
vistleg í Hallveigarstöðum og
kennslukona verður í vetur fröken
Dagrún Kristjánsdóttir, sem öllum
er kunn úr útvarpi og víðar.
Allar nánari upplýsingar fást um
námskeiðin £ símum: 12683, 19248
og 14617 næstu daga.
sá NÆST bezti
Ung húsfreyja kom inn í kjötbú'ð.. hér í bæ þar sem fyrir innan
borð stóð danskur afgreiðslumaður.
Húsfreyja bað um kjöt af ársgömlu folaldi.
„Det kalder man nú 'tripp," svaraði sá danski.
daga frá kl. 2-8 e.h. og laugardaga
frá kl. 9-11 f.h. Sérstök afnygli
skal vakin á miðvikudögum vegna
kvöldtimans.
Bilanasími Rafmagnsveita Rvík-
ur á skrifstofutíma er 18-222 Næt-
ur- og helgidagavarzla 18-239.
A.A.-samtökin
Fundir eru sem hér segir: í fé-
lagsheimilinu Tjarnargö u 3c:
Miðvikudaga kl. 21. Föstud. kl. 21
Langholtsdeiid, I Safnaðarheimili
Langholtskirkju, laugardaga kl. 14.
Orð lífsins svara í síma 10000.
I.O.O.F. 1 = 1509278 Va = Fl.
□ Gimli 59689307 — Fjhst.
Garðeigendur — eigum á lager hinar vinsælu brot- steina í vegghleðslur, hell- ur í ýmsum stærðum, einn- ig 6 kantaða og kantsteina. Hellu- og steinsteypan sf. við Breiðholtsv. S. 30322.
Sólbrá, Laugavegi 83 Úrval bamafata, sendum gegn póstkröfu um land allt.
Bifreiðastjórar Gerum við allar tegundir . bifreiða. — Sérgrein hemla viðgerðir, hemlavarahlutir. Hemlastilling hf, Súðavogi 14. - Sími 30135.
Loftpressur — gröfur Tökum að okkur alla oft- pressuvinnu, einnig gröfur til leigv Vélaleiga Símon- ar Símonarsonar, sími 33544.
Rússajeppi óska eftir að kaupa fram- byggðan rússajeppa með dísilmótor. Sími 30935.
Vantar 3ja—4ra herb. íbúð 1. okt. Hámarksleiga 5000 kr. Skil- vísleg borgun. Tilb. sendist til Mbl. merkt: „2030“.
Tilboð óskast í Willy’s jeppa, station, eins og hann er eftir veltu. Lít- ið skemmdur. Uppl. í síma 7028 ikl. 12—1 og 7—8,30.
Einbýlishús eða sérhæð óskast til leigu fyrir fámenna fjölskyldiu í Rvík, Kópavogi eða Garða- hreppi. Tilb. sendist Mbl. merkt: „2012“.
Barnagæzla - Árb.hverfi Get tekið barn á fyrsta eða öðru ári í gæzlu hálfan dag inn. Sími 82378 eftir kl. 5.
Keflavík Til sölu glæsilegar 5 herb. íbúðir í Keflavík í smíðum. Fasteignasalan Hafnargötu 27, Keflavík. Simi 1420.
Kennslu í píanóspili byrja ég aftur 1. október. Katrin Viðar, Laufásvegi 35, sími 13704.
Óska eftir að taka á leigu 2ja—3ja herb. íbúð. Uppl. í síma 16806.
Til leigu Nálægt Miðbænum er til leigu góð þriggja herbergja íbúð. Leigist frá og með 1. okt. n. k. Tilb. til afgr. Mbl. f. 30. þ. im. merkt: „2011“.
Húsnæði 2ja—3ja herb. íbúð óskast strax, sem næst Miðbæn- um. Tvennt fullorðið í heim ilL Tilb. til Mbl. fyrir 1. okt. merkt: „123 — 2035“.
Ung hjón utan af landi óska eftir íbúð til kaups, 2ja—3ja herb. Góð útborgun. Tilb. sendist Mbl. merkt: ,,2010“.