Morgunblaðið - 20.10.1970, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1970
5
Geta Kínverjar og
Rússar náð sáttum?
Ágreiningurinn „er ekki djúp
stæðurw segir fyrrum sendi-
herra Breta í Moskvu
Nýlega kom út í London
bók um sovézka utanríkis-
málastefnu, sem valdð hefur
mikla athygli og umræður,
m.a, vegna þess að höfundur-
inn er Sir William Hayter,
fyrrum sendiheirra Breta í
Moskvu. Hayter dregur mjög
i efa þá kenningu að stefna
Sovétríkjanna hafi breytzt í
höfuðatriðum og heldur því
einnig fram, að deila Kin-
verja og Bússa sé ekki eins
alvarleg og látið hafi verið i
veðri vaka. Greinin hér á
eftir var rituð af Iain Hamil-
ton, fyrrum ritstjóra vikurits
ins Spectator, fyrir Forum
World Features.
London — FWF
Stundum hl'ánar og stund-
um frýs, en hvað sem kann
að gerast á yfirborðinu, er
harður sífrerinn undir. Grund
vallarafstaða sovézkra ráða-
manna til Vesturlanda er
mjög lík því, sem er undir
efsta jarðlagi landssvæðanna
i norðri: Gaddfreðin. Stund-
um kemur þetta í ljós á yfir
borði diplómatiskra athafna
Sovétmanna, stundum ekki.
En þetta er til staðar —
óbreytt varðandi grundvallar
fjandskapinn; óhjákvæmilegt.
Þetta eru helztu niðurstöð-
ur Sir Willjam Haiyter’s í
stuttri en djúpskyggnri rann
sókn hans á sovézkri utanrik-
ismálastefnu, en árangur rann
sóknarinnar er nú kominn i
bók sem heitir „Rússland og
heimurinn“. Bókin ber eink-
unnarorð úr helzta verki
frumkvöðuls stjórnmálaskýr-
inga, Niccolo Machiavelli:
„Ég tel það rétt að segja frá
hlutunum eins og þeir eru
samkvæmt sannleikanum,
fremur en eins og þeir eru
taldir vera.“ Að þvi marki,
sem það er rétt, svo notuð
séu orð skáldsins T.S. Elliot’s
að „mannkynið þolir ekki mik
ið af raunveruleika", er hér
ekki um að ræða efnismeð-
höndlun sem er að skapi
þeim, sem vilja fremur skugga
en raunverulega hluti, t.d.
þeirra, sem vilja trúa á kenn
inguna um „samdrátt" Banda
rlkjanna og Sovétríkjanna.
Satt er það, að þjóðarhags
munir þessara tveggja stór-
velda, ef þeir eru skilgreind
ir í þröngri merkingu, virð-
ast lítt eða ekki rekast á. En
engu að síður, segir Sir Willi
am, þegar til kastanna kem-
ur er ekkert traust mögulegt
midli þessara tveggja stór-
velda, þrátt fyrir gagnkvæma
hagsmuni á vissum sviðum
(eins og t.d. í samdrætti
framleiðslu kjarnorkuvopna,
sem verða æ dýrari, og það
að þau reyna að forðast að
rekast saman í heimshlutum á
borð við Austurlönd nær.).
Hvemig má þetta vera?
Hugmyndafræðilegi ágrein-
ingurinn er að sjálfsögðu aug
ljós. En það sem öðru frem-
ur eyðileggur gagnkvæmt
traust, er það sem Sir Willl-
am kallar ósamsvörun varð-
andi ástandið.
„Heimsmynd kommúnism-
ans neyðir Rússa til þess að
trúa þvi, að kerfi þeirra
verði aldrei öruggt fyrr en
það ráði alls staðar. Á hinn
bóginn trúa Bandaríkjamenn
því ekki, enda þótt þeir ugg-
laust telji að heimurinn yrði
betri ef hann tæki upp banda
ríska líflshætti, að stjómmála
kerfið heima fyrir sé nauð-
synlega háð þvi, að það verði
tekið upp alis staðar."
Að bera saman stjómmála-
mælsku framám£mna sov-
ézkra og aðgerðir, sem
ákveðnar eru í leyni í for-
sætisnefndinni og hjá KGB
(rússnesku leyniþjónustunni)
verður til þess að menn
koma auga á augljósar and-
stæður. Orðin eru enn bylt-
ingarkennd og árásarsinnuð,
en margar athafnir og að-
gerðir, um þessar mundir, a.
m.k., eru vamarkenndar og
íhaldssamar. Er hægt að
greina skýrt á milli, eins og
oft er haldið fram, þjóðhags-
muna Sovétrikjanna og til-
gangs hinnar byltingar-
kenndu hugmyndafræði
þeirra? Sir William Hayter
kemst að þeirri niðurstöðu, að
svo sé ekki. „Hér er um tvö
nöfn að ræða á sama hlutn-
um“, segir hann. Kringum-
stæður breytast og aðferðir
George Kennan
— ástæðulaus ótti.
ast einnig. En grundvallar-
stefnan er hin sama.
„Það að sjá og heyra íhalds
sama skrifstofubáknsfulltrúa
hafa uppi byltingarslagorð
virðist stundum þversagna-
kennt. En í þessu er engin
þversögn. Til þess að við-
halda þessu gifurlega skrif-
stofubákni og tryggja öryggi
þess þarf byltingu annars
staðar. . . “
Til er önnur ósamsvömn í
jafnvæginu milli Bandaríkj-
anna og Sovétríkjanna. Hana
mættu gjaman hugleiða þeir
vestrænu vinstrisinnar sem
halda upp á hið Maókennda
álit, að i reynd sé harla lít-
ilá munur á Bandaríkjunum
og Sovétríkjunum: „Þetta er
að vitneskja almennings í
þessum löndum er á tveimur
gjörólíkum stigum. Við get-
um fengið að vita allt um
Bandaríkin ef við viljum;
þar er eitt opnasta þjóðfélag
sem til er. En Sovétríkin
til þess að mæta þeirn breyt-
BYGGINGAMEISTARAR!
VERKTAKAR
1000 w
halogen lamp
NotiO góöa Ijóskastara
til að lýsai upp
vinnustaöi og byggingar.
HEIMILISTÆKISE
SÆTÚNI 8 - SÍMI 24000
eru innsigluð. Geðveikisleg til
hneiging til leyndar felur
ýmsa lifsþætti, sem annars
staðar væru öllum opnir til
rannsóknar, umræðu og gagn
rýni. Stefnan er ákveðin með
leynd, án opinberra um-
ræðna, og þegar loksins er
eitthvað tilkynnt um hana
opinberlega, er það gert á
þann veg að sem minnst
skiljist af því, enda þótt í
l’öngu máli sé.“
1 formála að bók sinni
„Rússland og Vesturlönd á
dögum Leníns og StalSns",
sem fyrst kom út fyrir ára-
tug, segir George Kennan
(sem. kynntist hinni sovézku
afstöðu í utanrikisþjónustu
lands sins líkt og Sir Willi-
am), það aldeilis furðulegt
hversu lítill gaumur væri gef
inn sögu utanríkismálastefnu
Sovétríikjanna á Vesturlönd-
um. Hann beaiti á, að í Sov-
étríkjunum sjálfum, ynnu
áróðurssagnfræðingar að þvi
að byggja mynd, sem yrði
gagnleg þáverandi stefnu sov
ézka Kommúnistaflokksins,
og mjög hallað á vestræna
diplömata og hugsjónir Vest-
urlandaþjóða yfirleitt. Hann
taldi það óskynsamlegt að
hirða ekki um þetta.
„Mynd sú, sem sovézkir
sagnfræðingar vinna nú að
varðandi samskipti Sovétríkj
anna og Vesturlanda, er mik
ilvægur þáttur I þeirri við-
leitni Moskvu að hafa póii-
tisk áhrif á þjóðir, sem eru
að koma fram á sjónarsviðið
sem sjálfstæðar. Margt af
þessu kemur þessum þjóðum
fyrir sjönir sem trúverðugt."
Ótti Kennans á þessum
tima sýnist hafa verið rétt-
lætanlegur. En í reynd hafa
undangengin 10 ár sýnt, að
Þriðji heimurinn veitir áhrif-
um frá Moskvu öflugt við-
nám. Sir William segir: „AJl
ar fyrrverandi nýlendur
unnu sjálfstæði sitt af eigin
rammléik eða var veitt það
án átaka af þeim þjóðum,
sem áður réðu þeim.“ Hinir
nýju leiðtogar drógu mjög í
efa sovézk boð um aðstoðvið
að „útrýma síðustu leifum
heimsveldisstefnunnar“ eða
„berjast gegn nýlendustefn-
unni.“ Þeir þágu allt, sem
þeim bauðst hagstætt, en
Trójuhesti sovézkrar hug-
myndafræði hleyptu þeir
ekki inn fyrir dyr. Og I
raun og veru hefur efnahags
aðstoð frá Sovétrikjunum við
Framhald af bls. 24
PANTIÐ NÚ ÞEGAR MYNDATÖKUNA
OG STÆKKANIR.
ÚTBÚUM JÓLAKORT EF ÓSKAÐ ER.
Laugavegi 13 — Sími 17707.
HUNDRAÐ KRÓNUR Á MÁNUÐI
Fyrir EITT HUNDRAÐ KRÓNUR á mánuði seljum við
RITSAFN JÖNS TRAUSTA
8 bindi f svörtu skinnlíki
Við undirskrift samnings greiðir kaupandi 1000 krónur. SÍÐAN 100 KRÖNUR Á MÁNUÐI.
Bókaútgáfa GUÐJÓNSÓ
Hallveigarstíg 6a — Sími 15434