Morgunblaðið - 20.10.1970, Side 32
KÆLISKÁPAR FRYSTIKISTUR
RAFTORG SÍMI. .. 26660
RAFIÐJAN SÍMI. .. 19194
ÞRJÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1970
Bomullarnœrfatnaður
Dauðaslys
— fullorðinn maður varð
undir timburhlaða
FULLORÐINN maður lézt í
Kópavogi í gær, er timburhlaði,
sem hann var að vinna við, féll
yfir hann. Að svo stöddu er ekki
hægt að birta nafn mannsins.
Slysið var
reglunnar kl.
tilkynnt til lög-
18:20 í gær. Mað-
urinn hafði verið einn að vinna
við timburhlaða, en samistarfs-
ma'ður hans leit til háms öðru
hverju. Fann sá manninn undir
timbriniu og gerði þá strax við-
vart um slysið. Talið er, að mað
urinn hafi látizt samstundis og
hlaðinn féll.
Mikil hálka
á vegum -
VONZKUVEÐI R, hvasst af norð
an og snjókoma, gekk yfir land
ið á sunnudag og ríkti enn á
Norðaustiurlandi í gær. Mikil
hálka myndaðist á vegum á Vest
f jörðum, norðanlands og um norð
austan- og austanvert landið. Á
Suðuriandi kom snjóslitringur í
fjöll en snjó festi ekki í byggð
að neinu ráði. í gær voru um
niu vindstig af norðan á Norð-
austurlandi og éljagangur, þann
ig að ekki reyndist unnt að
koma við snjómoksturstækjum,
þar sem þurfti.
Veðrið gekk inn yfir landið
vestanvert á sunnudag og mynd
aðist þá mikil hálka á vegum á
Vestfjörðum og norðanlands.
Vegir urðu og seinfærir vegna
snjóa en hvergi þurfti snjó-
moksturstækja við á Vestíjörð-
um í gærmorgun utan á Breiða-
dalsheiði.
Á Norðurlandi urðu vegir
verstir í Skagafirði; Siglufjarð-
arvegur lokaðist í Almenning
um og var sendur þangað hefill
í gær. Þá lokaðist vegurinn um
Lágheiði einnig.
Töluverð snjókoma var á veg-
um norðaustanlands og austan í
gær. Vopnafjarðarheiði og
Fremri-háls voru lokuð en slark
fært um Mývatnsöræfi, Jökul-
dalsheiði, Fjarðarheiði og Odds-
skarð. Þar var þó mikil hálka
á vegum og veðurhæð.
Hjá Veðurstofunni fékk Morg-
unblaðið þær upplýsingar í gær,
að veðrið myndi ganga niður
norðaustanlands í dag.
y ~
Frá höfuðstöðvum leitarmanna í gær sunnan undir Kóngshnjúk. Frá þessum stað gengu þeir fé-
iagar Viktor B. Hansen og Egill Fr. Hallgrímsson á laugardag. Jeppinn lengst til hægri er blll
Viktors. — (Ljósm.: BjamleáJur).
Öfundinn þrátt fyrir
umfangsmikla leit
270 manns tóku þátt í leit-
inni í gær — Haldið áfram í dag
MJÖG umfangsmikil ieit var í
gær í BláfjöIIum að manni sem
týndist á laugardag, er hann var
á rjúpnaveiðum ásamt félaga
sínum, Viktors Hansens, «n svo
heitir maðurinn, hefur síðan ver-
ið leitað á sunnudag og í gær allt
fram í myrkur, en án árangurs.
Alls tóku þátt í ieitinni i gær
270 manns frá 16 björgunarsveit-
um undir yfirstjóm Flugbjörgun-
arsveitarinnar og á sunnudag
leituðu um 200 manns. Leitinni
verður haldið áfram í dag í birt-
ingu.
Mbl. hitti Sigurð Waage, sem
Tvö drukkna
— er bifreið fór í sjóinn við Oddeyrartanga
Utvarps-
umræður
í KVÖLD hefst fyrsta umræða
um fjárlaigafrumvarpið og verð
ur henni að venju útvarpað. —
Héfst útvarpið kl. 20 á ræðu
Magnúsar Jónssonar, fjármála-
ráðfherra, og hetfur hann ótak-
markaðan ræðutíma. Síðan fá
talsmenn annarra stjórnmála-
flokka stundarfj órðungs ræðu-
tíma og mun Hannibal Valdimars
son tala fyrir Frjálslynda og
vinstri menn, Halldór E. Sigurðs
son fyrir Framsóknarflokkinn,
Birgir Finnsson fyrir Alþýðu-
flokkinn og Geir Gunnarsson
fyrir Alþýðubandalagið. Að lok
um fær svo fjármálaráðherra
fimmtán mínútur til andsvara.
Akureyri, 19. október —
SÁ sorglegi atburður varð hér
snemma í gærmorgun, að tvö
ungmenni, piltur og stúlka,
drukknuðu, er bíll, sem þau
voru í lenti fram af bryggju og í
sjóinn við Oddeyrartanga. Stúlk
an hét Lára Harðardóttir, 15
ára, Lundargötu 17, Akureyri,
en pilturinn Sigurður Brúni
Brynjólfsson, 18 ára Grettisgötu
72, Reykjavík. Með þeim í bíln
um var María Sölvadóttir Ak-
átti niágranni einnar stúlkunnar.
Sá hafði hins vegar iánað bíl-
inn þetta kvöld kunningja sínum,
Sigurði Brúna Brynjólfssyni,
sem staddur var á Akureyri í a't
vinnuleit.
Framhald á bls. 23
Viktor B. Hansen.
stjóirinaiðii leitinni í gær og saigði
(haran að leit hetfði hatfizt í gær
kl. 10 og var leitað ó því svæði
sem Viktor varð viðslkila við fé-
laga siinn. Um 150 manms leituðu
þanmig að aðeiins voru 6 metra'r
í milJi mainraa. Leitaið var til suð-
Framhald á bls. 2
Fyrsta
síldin
FYRSTA síldin barst til llorna-
fjarðar á laugardag; tæpar 600
tunnur af Breiðamerkurdýpi.
Mestan afia hafði ísleifur IV —
350 tunnur.
Síldin var feit og fór að mestu
í salt en nokkuð þó i frystingu.
Yiktor var hress, þegar
ég skildi við hann
Sigurður Brúni Brynjólfsson
Lára Harðardóttir
ureyri, 15 ára, en hún komst lífs
af og er hún eina vitnið að slys-
inu.
Aðdragandi slyssins var sá, að
þrjár stúlkur, allar 15 ára og
búsettar á Oddeyri, voru á heim
leið atf dkóladansleik klukkan
rúmlega eitt á sunnudagsnótt.
Þegar þær komu í Hafnarstrarfi
veifuðu þær ökumanni sex
imanna fólksbíls en þalnn bíl
segir Egill Fr. Hallgrímsson,
f élagi týndu r júpnaskyttunnar
EGILL Fr. Hallgrímsson heit-
ir félagi Viktors Bemhards
Hansens, sem er týndur og
leitað er í Bláfjöllum. Egill
hefur tekið þátt í leitinni allt
frá upphafi og í gær hitti
Mbl. hann að máli í Bláfjöil
um. Féllst hann þá á að
segja sögu sína, en þeir
Viktor eru vinnufélagar hjá
Slippfélaginu í Reykjavík.
Höfðu þeir oft áður farið sam
an á rjúpnaveiðar, en aldrei
fyrr á þessar slóðir.
— Við lögðum af stað úr
bænum um kl. 13 á laugardag
og fórum á Bronco-bifreið
Viktors. Um kl. 14,20 vorum
við komnir upp í Bláfjöll
eigi alllangt frá Hákolli. Við
gengum nokkurn spöl saman
frá bílnum, þá fór ég til vest
urs, en hann til austurs. Þeig
ar ég skildi við Viktor var
hann hress og kátur.
— Ég kom svo aftur að bíln
um um kl. 16,30 og beið þar
til kl. um 19. Þá fór ég frá
bílnum ti’l þess að skyggnast
um eftir Viktori og kom ekki
aftur að bílnum fyrr en um
kl. 21. Þá var hann enn ekki
kominn, svo að ég ákvað að
skilja bílinn eftir og ganga
norður á veginn, en það er
um 2ja klukkustunda gangur
Framhald á bls. 23