Morgunblaðið - 16.09.1971, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ,. FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1971
15
Níræd:
Guðrún Sveinsdóttir
Hvammstanga
Gamlar endurminnlngar H. Tr.
um símstöðina þar o.fl.
ÞAÐ rifjuðust upp fyrir mér
margar góðar æskumínningar,
þegar ég sá þess getið nýlega í
Morgunblaðinu, að Messuð Guð-
rún Sveinsdóttir frá Hvamms-
tanga væ-ri orðin níræð, — ekkja
Þórðar Sæmundasonar, fyrslta
símstöðvarstjóra á Hvamms-
tanga, og móðir Debóru Þórðar-
dóttur, stöðvarstjóra þar í mörg
ár, allt fram á árið 1970. Þjón-
ustutími þeirra var samtals 52
ár.
Þessar minningar mínar voru
sem sagt tengdar símanum og
kynningu við þessa mætu fjöl-
skyldu á uppvaxtarárum mínum.
Einn síðsumaffdag 1917 þótti mér
óvenjulega hátíðlegt að horfa úr
brekkum Vatnsnesfjalls, þar sem
ég var að reika um, daginn sem
þessi vaxandi staður — og stóri
staður, í mínum augum — var
að komast í símasamband við um
heiminn. Nú þurfti ekki lengur'
að fara austur að Lækjamóti í
Víðadal til að síma, eins og
mamma gerði þegar pabbi var
fy<rir sunnan á sumarþingum. Mér
fannst Hvammstangi þennan dag
vera unglingur með útþráL, sem
langaði til að komast í kynni við
; marga fjarlæga staði, rétt eins
og mig langaði sjálfan.
Þórður Sæmundsson skósmiður
á Hvammstanga var upprunninn
í Bsejarhreppi í Hrútafirði vest-
anverðum. Guðrún var fædd á
Svarfhóli í Borgarfírði, missti
föður sinn ung og ólst upp í Staf
holti. Ingibjörg amma hennar i
föðurætt mun hafa verið föður
systir Þuríðar á Svarfhóli.
Þórðu.r og Guðrún voru komin
fyrir nokkrum árum frá ísafirði
til Hvammstanga, þegar síminn
var lagður þangað. Man ég eftir,
að faðir minn sagði: Við hæítum
ekki við Þórð fyrr en hann lét tii
leiðast. Hann getur samt haldið
áfram að smíða skóna. Seinna
hey.rðí ég hann hrósa happí yfir
þvi með nokkuð íbyggnu öryggí,
að hann knúði fast á Þérð að
taka að sér þetta erilsama þjón
ustustarf (og lágt launaða) í
þágu almennings, enda yrðu
menn stundum, ef þörfin kallaði,
að vinna fleíri störf en þeir sækt
ust eftir. Ekki er þó víst, að hann
hafi grunað í fyrstu, að þessi fjöl
skylda myndi stjóma og þjóna á
þessarí vaxandi simstöð í meira
en hálfa öld. Hitt e.r margreynt,
að börn með ágæta eðliskosti for
eldra, og uppeldi eftir því, ásamt
fyrirmynd foreldranna um sam
vízkusemi í starfi, alúð og lipurð
við alla og auðsæja ást á skyldu
sinni, —■ þau börn. verðu furðu
fljótt ábyrg og þroskuð í starfi.
Elzta dóttirín, Sig.i'íður, man vel
eftír því, þegar hún átta ára var
látín standa. uppi á stól til að
svara og hringja, svona við og
við, eins og pabbi og mamma
gerðu, því að frú Guðrún tók iðu
lega þátt í símagæzlunni, þegar
með þurfti.
Seinna fór Sigríður litla að setj
ast í stólinn. Hún starfaði við
stöðina til 18 ára aldiws. Eítir það
lá leiðin til símstöðvanna til
beggja handa, á Blönduósi og
Borðeyri, síðan á ísafirði. Þar var
daglegur vinnutími ærið langur
í þá daga og mikið álag á síma-
línum.
Nákvæm regla var frá upphafi
á öllu, sem viðkom hinni nýju
símstöð á Hvammstanga, nema
símatímanum, að þvi leyti, að
beiðnum var einnig sinnt utan
við lögmætan símatíma eins og
hægt var. En það áleit fjölskyld
an heyra undir aðra veglu, sem
hún kappkostaði að fylgja, nefni
lega að láta hjálp við símanotend
ur ganga fyrir öllu. Þetta kom
sér vei, miðað við þær lífsvenj-
ur, sem fólk í héraðinu var vant
við, og samgöngur þeirra tíma.
Símaþægindin reyndust þvi
miklu notalegri fyrhr það, hversu
notalegt var að koma í þetta íbúð
arhús, sem var svo mjög i ör-
tröð, og mæta þar alúð allra,
eldri og yngri og fúsleik til fyrir
greiðslu.
Hvammstangalínan var um
skeið ekki sem bezt sett. í heild
arkerfinu. Oft var hrósað dugn
aði og heppni beggja hjónanna
og telpnanna við að ná sam-
bandi — og talið mest því að
þakka, sem og rétt var, hvað
þetta fólk kunni vel að sameina
kurteisi og festu.
Þórður lézt árið 1944, og komst
stöðin þá í umsjá Debóru dóttur
þeirra, sem hafði unnið við stöð
ina síðan 1933. Hún va«- skipuð
stöðvarstjóri ári síðar og gegndi
Óskum að ráða
skrifstofustúlku nú þegar til vélritunar-
og símavörzlu.
BREIÐHOLT h.f.
Lágmúla 9.
þvl starfi til 1970, eins og áður
segir.
Yngsta dóttirin, Þuríður, vann
einnig talsvert við stöðina á ungl
ingsárum. Sveinn, yngstur systk
inanna tók einnig sinn þátt. —
Þessi mjög svo menhtandi starfs
skóli í höndum Þórðar og Guð-
rúna.r hefur því verið liður í
ágætu uppeldi allra fjögurra
barnanna, og raunar líka Þórs
sonar Sigríðar, en varð að ævi-
starfi tveggja dætranna.
Guðrún Sveinsdóttir, sem nú
dvelur í Reykjavík hjá Sigriði
dóttur sinni, þakkar Guði dag
hvern fyrir miklu betri heilsu en
hún hafði stundum fyrr á árum.
Hún má gleðja sig við endurminn
ingar um farsælt starf sitt og
sinna. Vel er, þegar hinir hóg-
væru fá að erfa landið.
Með innilegri þökk og beztu
óskum til hennar og allrar fjöl-
skyldunnar lýk ég þessum fáu
línum. Helgi Tryggvason.
FÆST UM
LAND ALLT
Snyrti- ^
vörur
fyrir
ungu
stúlkurnai
uor\y|
\\OR\Y 1
pWORNY
jJ'cajitjj’ath
í SoUedian
Snyrtivörusamstæða; vandlega
valin af Morny. og uppfyllir
allar óskir yðar um A
baðsnyrtivörur. ■wan
Sápa, baðolía, lotion/"^
deodorant og eau de cologne.
Vandlega valið af Morny til að
vernOó húð yðar. Notið Morny
og gerið yður þannig dagamun
daglega.
O. JOHNSON
&KAABER £
Menn oshnst til verkstæðisvinnu
Óskum eftir að ráða menn til vinnu á trésmíðaverkstæði.
Vel borguð vinna fyrir laghenta menn.
Trésmiðjan MEIÐUR
Hallarmúla — Sími 35585.
Járniðnaðarmenn
Óskum eftir járnsmiðum og mönnum vönum járniðnaði.
STÁLVIRKINN,
Skeifan 5 — Sími 85260.
Akranes
FATAGERÐIN H.F., óskar eftir að ráða ungan og reglusaman
mann til að starfa við prjónavélar og fleira.
Umsækjendur sendi tilboð með venjuiegum upplýsingum í
póstbox 66, Akranesi.
Uppboð
Almennt uppboð á lausafjármunum eign þrotabús Plast-
verksmiðjunnar Brákarey, Borgarnesi, fer fram laugardaginn
18. þ.m. kl. 1,30 í verksmiðjuhúsinu.
Selt verður m.a. skrifborð, handverkfæri, plastslöngur og
aurhlífar fyrir bifreiðar, svo og aurhlífamót.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Skiptaráðandinn í Mýra- og Borgarfjaröarsýslu
Ásgeir Pétursson.
Fyrirtœki — Atvinna
Fullorðinn maður sem á gott fyrirtæki, það framleiðir fyrir
erlendan markað, óskar eftir félaga, sem gæti séð um bók-
hald, verið gjaldkeri og stjórnað fyrirtækinu ef á þarf að halda.
Viðkomandi þarf að hafa ráð á að minnsta kosti kr. 1.000,000.
það sem þar er framyfir við skíptíngu er samningsatriði.
Þeir sem áhuga hefðu sendi nafn og upplýsingar til afgreiðslu
blaðsins sem fyrst merkt: „Gott tækifæri — 3043".
Eignist eldhús sem ouð-
velt er nð holdo hreinu
SKÁPA OG BORÐ KLÆDO FORMJCA SEM HALDA
FEGURÐ SINNI ÁR EFTIR ÁR.
Það er ástæðulaust að láta á móti sér að eignast það
bezta þegar það kostar svona lítið meira.
Ótrúíegur fjöldi líta og viðarmynstra að velja úr.
IFORMICA
.- BRANO
tamlnate
G. ÞORSTEINSSON
& JOHNSON H.F.,
Ármúta 1 — Sími 2-42-50.