Morgunblaðið - 23.10.1973, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 23.10.1973, Qupperneq 10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÖBER 1973 10 Agnar Guðnason: „Eigi er smjörs vant, þá smári fæst” Óskar Gunnarsson, forstjóri Osta- og smjörsölunnar. FYRIR nokkrum árum var það ekki óalgengt, að neytendur f höfuðborginni væru óánægðir yfir því að geta ekki fengið smjör eða osta frá ákveðnum mjólkurbúum. Nú orðið er sjaldgæft, að á þetta sé minnzt. Með hliðsjón af þvf má draga þá ályktun, að vel hafi tekizt til með uppbyggingu og starf- rækslu Osta- og smjörsölunnar. Eftir að hafa rætt við Óskar Gunnarsson, forstjóra fyrirtæk- isins og gengið um glæsileg húsakynni, þar sem snyrti- mennska rfkir hvarvetna, er auðvelt að skilja þann góða árangur, sem náðst hefur á þeim 15 árum, sem sölu- samtökin hafa starfað. ÖSKAR, ÞIÐ ERUÐ HÆTT- IR AÐ AUGLYSA GÆÐA- SMJÖR! — Já, það er einfaldlega vegna þess, að „gæða“hugtakið er mjög teygjanlegt. Benda má á, hve mörgum finnst kæst skata eða vel verkaður hákarl sannkallaður gæðamatur. Eins er með mjólkurafurðir, smekkur manna getur verið misjafn, jafnvel er til eldra fólk, sem mundi telja það gæða- smjör, sem næði ekki einu sinni öðrum flokki nú. Frá upphafi hefur smjörið verið flokkað hér í tvo flokka, en á árinu 1969 hættum við að kalla I. flokk „gæðasmjör". HVERNIG ER GÆÐAMATIÐ? — Við förum þar eftir reglu- gerð, sem gefin var út 1962. Starfandi er matsnefnd, 3ja manna, skipuð af landbúnaðar- ráðuneytinu. Tveir þeirra eru mjólkurtæknifræðingar og einn mjólkurfræðingur. Hvert skipti, sem rjómi er strokkaður hjá mjólkurbúunum, er sent hingað smjörsýni, 2,5 kg að þyngd. Þetta sýni er geymt hér í 3 vikur við 15° C hita. Ef það hefur ekki breytzt á þessum tfma, uppfyllir skilyrði um vatnsinnihald, sem má ekki fara yfir 16%, gott að smyrja með þvf og í alla staði óað- finnanlegt, fer það í L flokk. Þeir, sem dæma smjörið, vita ekki um framleiðslustað þess. Þegar sýnið hefur verið dæmt, þá má fyrst setja það smjör á markaðinn, sem sýnið var tekið úr. Saltmagn i smjöri er breyti- legt. I venjulegu smjöri er salt- innihaldið 1%, einnig höfum við smjör með 2,2% salti og svo er hægt að fá ósaltað smjör. HVAÐ UM SYRT SMJÖR? — Slíkt smjör var flutt inn frá Danmörku á árunum 1960—’61. Það féll ekki neyt- endum hér vel í geð, svo við höfum ekki talið ástæðu til að* haf a sýrt smj ör á markaðnum. HRÆRIÐ ÞIÐ SAMAN SMJÖRI FRA FLEIRI MJÓLKURBtJUM FYRIR PÖKKUN? — Nei! Það hefur okkur aldrei dottið í hug, enda þjónar það engum tilgangi. Ef smjör fer í I. flokk, þá eru gæðin þau sömu, bragðið hið sama, hvar sem það er framleitt. Munur getur verið á litnum. Á sumrin er smjörið gult, en á veturna hvítt. Þetta myndi breytast, ef kýrnar yrðu fóðraðar í ríkari mæli en nú, á heykögglum og votheyi. Eii við höfum ekki leyfi til að setja litarefni i smjörið, en það er gert sums staðar erlendis. EF FÓLK ALlTUR SIG HAFA FENGIÐ SVIKNA VÖRU, HVAÐ GERIÐ ÞIÐ ÞA? .— Þegar fólk kvartar og telur, að smjörið sé skemmt, biðjum við um að fá umbúð- irnar, þá getum við séð hvenær og hvar smjörið var framleitt og hvenær það hefur verið af- greitt frá okkur. Það kemur mjög sjaldan fyrir, að við fáum kvartanir hingað beint. En þau fáu skipti, sem það hefur gerzt, hefur venjan verið sú, að all- langur tími hefur liðið frá því að við afgreiddum smjörið og þar til kvörtunin berst. ER ÞAÐ EKKI MISJAFNT, HVERNIG SMJÖRIÐ FLOKK- AST EFTIR MJÓLKUR- BUUM? Ekki er það áberandi, ef miðað er við smjör, sem kemur til sölumeðferðar hér. I fyrsta flokk fóru á síðasta ári 97,5%. Aðeins 3 tonn af smjöri reyndust óhæf til sölu, en afgangurinn fór i II. flokk. Gæði smjörsins eru það mikil, það er ekki hægt að fullnægja óskum fólks um annars flokks smjör, sem er 57 kr. ódýrara en fyrsti flokkur. GETUR FÓLK KEYPT SMJÖR FRA AKVEÐNUM MJÓLKURBUUM? Ef átthagatryggð fólksins nær einnig til smjörs, þá er ekki úr vegi fyrir það að láta vini eða vandamenn senda sér smjör. Það er ekkert nema gott um það að segja, að fólk. meti framleiðslu sinnar heima- byggðar meira en annarra. En með hlutlausu mati á smjör- gæðum hefur ekki komið fram neinn munur á I-flokks smjöri, hvar svo sem kýrnar hafa bitið gras. HVAÐ VAR MIKIL SMJÖR- SALA A SlÐASTLIÐNU ARI? Heildarsalan í. landinu var 1582 tonn, þar af seldi Osta- og smjörsalan 1100 tonn. Heildar- framleiðslan varð 1608 tonn. A undanförnum árum hefur ostategundum fjölgað. I dag er hægt að velja um 30 tegundir. Neyzlan eykst árlega. Það má þakka meiri fjölbreytni og aukinni húsmæðrafræðslu á vegum Osta- og smjör- sölunnar. Arið 1969 hófst bitapökkun á osti. Mánaðarleg pökkun er nú 25 tonn. Mjögýtarlegarupplýsingareru á hverjum pakka um ostinn. HVAÐ TAKIÐ ÞIÐ FYRIR AÐ SELJA MJÓLKURVÖR- URNAR? A síðastliðnu ári nam kostnaðurinn við rekstur Osta- og smjörsölunnar um 3,2% af heildarsölunni. Ef við höfum ætlað okkur of háa þóknun fyrir söluna, þá kemur það fram í tekjuafgangi í árslok, og honum er þá skipt milli mjólk- urbúanna í hlutfalli við sölu á þeirra framleiðsluvörum. Það jafngildir að mjólkurframleið- endurnir njóta góðs af, ef vel tekst til um rekstur fyrirtækis- ins. Sjálfsagt er það til hags- bóta fyrir alla aðila, því neyt- andinn í þéttbýli hagnast einn- ig á lágum dreifingarkostnaði. Það kemur fram, þegar verð- iagning Iandbúnaðarvara er ákveðin. Á síðastliðnu ári var kostnaðurinn af rekstri fyrir- tækisins jafnvirði 25 aura á hvern lítra mjólkur, sem kom f mjólkurbúin. Eftir Jörgen Schleimann SVIK VIÐ ÍSLANl) Jörgen Schleimann, hinn kunni íslandsvinur og fréttastjóri danska útvarpsins, hefur skrifað eftirfarandi grein í Jyllands- Posten. Mér finnst furðulegt og afskap- lega sorglegt, hvað Danir hafa veitt Islandi og íslendingum lítil- fjörlegan stuðning í deilu þeirra við Breta um viðurkenningu land- helginnar, sem fslenzka rfkis- stjórnin hefur talið nauðsynlegt að færa út, til þess að tryggja efnahag Islands. Vissulega er engin ástæða til að ætla, að danska ríkisstjórnin hafi látið undir höfuð leggjast að tala máli Islands við Breta eftir veniu- legum diplomatískum leiðum. En er það nóg? Hefur það haft áhrif á brezku ríkisstjórnina? Og hefur þetta sýnt dönsku þjöðinni nógu áþreifanlega, að danska stjórnin líti málið alvarlegum augum og telji sig það njiklu skipta? I hreinskilni sagt, finnst mér fátt bendatil þess. Engin þjóðarhreyfing hefur heldur reynzt vera með erfiðu stríði íslands hér í Danmörku. Skýringin er líklega sú, að yfir- gnæfandi meirihluta dönsku þjóð- arinnar finnst Island aðeins vera landfræðilegt hugtak, sagnfræði- legt og bókmenntafræðilegt, þegar bezt lætur, og Islendingar eru okkur flestum óþekkt þjóð. Þetta er mikil hneisa, því að Island og Islendingar vinna meira á við nánari kynni en nokkurn gæti grunað. Kannski gætir einnig hjá nokkrum Dönum vissrar beizkju vegna þess, hvernig islentjingar slitu sig endanlega lausa frá Dan- mörku með stofnun lýðveldisins 1944, þegar Danmörk var her- numin af Þjóðverjum. Slík beizkja er aftur á móti mjög óviðeigandi, og hana er aðeins hægt að skýra með algerri fávizku um þá byrði sögulegrar sektar, sem Danir bökuðu sér gagnvart Islandi í þau fjögur hundruð ár, sem samvistir þjóð- anna stóðu. Alger fávizka um þá ósegjanlegu þjáningu, sem Is- lendingum var búin af völdum dönsku einokunarverzlunarinnar, eftir að hún var innleidd 1602. I raun og veru ber það vitni um íslenzka hófsemi og stillingu, já, og ég hika ekki við að segja veg- lyndi, að Danir eru eins vel liðnir á islandi nú og raunin er, þrátt fyrir sögulegar samvistir. Og í raun og veru höfum við getað séð sömu stillingu og sama veglyndi á sjónvarpsskjánum hjá forsætisráðherra Islands og yfir- mönnum og áhöfnum varðskipa islenzku landhelgisgæzlunnar, jafnvel þegar þeim hefur verið ögrað á hinn freklegasta og gróf- asta hátt með brezkri fallbyssu- pólitik. Þessi afstaða hefur verið sam- boðin þjóð, sem hefur fyrir löngu afneitað meginreglunni um her- styrk með samþykkt frá Alþingi og gert grófasta glæpinn, morðið, að fyrirbæri sem heyrir til al- gerra undantekninga. Ef einhver þjóð á jörðinni á þá skilið stuðning annarrar þjóðar í krafti háþróaðrar siðmenningar, andlega menningarþroska, vak- andi Iýðræðisvitundar og mann- úðlegs hugarþels, þá er það, án nokkurs vafa, íslenzka þjóðin. Islendingar hefðu líka hiklaust átt að fá sem víðtækastan stuðn- ing Dana í strfði, sem, hvað áhrærir íslenzku þjóðina, snýst um sjálfan grundvöllinn að efna- hagslífi þjóðarinnar, en hvað áhrærir mótaðilann, Stóra-Bret- land, snýst ekki um annað en vopnavald til þess að verja hefð- bundin forréttindi og gróðalindir óverulegs hluta brezks atvinnu- lífs. Framkoma Breta hefur hingað til ekki verið samboðin mikilli þjóð. Hún hefur aðeins verið sam- boðin hefðbundnu stórveldi. Og við getum ekki verið þekktir fyrir þann litla stuðning, sem við höfum veitt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.