Morgunblaðið - 29.11.1975, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 29.11.1975, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. NÖVEMBER 1975 ykiöwiuPÁ Spáin er fyrir daginn I dag Hrúturinn 21. marz — 19. aprfl Þú átt f ánægjulogum bréfaskiptum um peninga — eða ástamál. Dagurinn verður annasamur en í kvöld ættirðu að fara í heimsókn eða stunda félagslífið á annan hátt. Nautið 20. apríl — 20. maf Þú verður ifklega að gefa dálftið eftir í dag til þess að halda friðinn. Revndu að setja þig í annarra spor. Gleymdu ekki að offra ástarguðunum einhverju í kvöld. Tvíburarnir 21. maf — 20. júnf Þú mátt búast við einhverju mjög óvæntu f dag, peningum eða kærkominni viðurkenningu. Þú verður í sjöunda himni en reyndu þó að halda þig við staðreyndir daglegs Iffs. Krabbinn 21. júnf — 22. júlí Ilin næma tilfinning þín fyrir kjarna hvers máls nýtur sín vel í dag. Kf vinur þinn leitar aðstoðar þinnar skaitu bregðast vel viðog ráða honum heilt. Ljðnið 23. júlf — 22. ágúst ! dag verða þér allir vogir færir. Taktu engan þátt í deilum um ómerkileg smá- atriði, reyndu heldur að bera klæði á vopnin. Mærin W3)l 23. ágúst — 22. sept. Notfærðu þér vinsældir þfnar og láttu að þér kveða í félagslífinu. Ættingi þinn eða náinn vinur er þín styrkasta stoð þessa dagana. Vogin W/ÍÍT4 23. sept. — 22. okt. Láttu hendur standa fram úr ermum á heimili þínu fyrir hádegi. Lífið ætti að leika við þig f dag og þú stofnar til skemmtilegra kynna þegar líður á kvöld- ið. Drekinn 23. okt. —21. nóv. 1 dag verða heimili og fjölskylda efst á baugi. Leggðu þitt af mörkum til að andrúmsloftið verði sem be/t. Ef þú sýnir lipurð og tillitssemi gengur allt betur. Bogmaðurinn 22. nóv. — 21. des. Nám ok þekkingarleil siíja í öndvegi í dag. Láttu ekki minniháttar erfiðleika hindra þig. I kvöld skaltu gera þér daga- mun en gættu þess að allt sé í hófi. FÍKvÍ Steingeitin 22. des. — 19. jan. Rómantíkin á mjög mikil ítök í þér og vertu ekkert feiminn við að sýna öðrum ást og umhyggju. Þú færð það rfkulega endurgoldið. Isfð'l Vatnsberinn 20. jan. — 18. feb. Bjartsýni og sjálfstraust munu ryðja brautina fyrir þig í dag. Búðu þig undir harða samkeppni en vertu þó hvergi hræddur, gáfur þfnar og kunnátta standa fyrir sínu. Fiskarnir 19. feb. — 20. marz Vertu ekki með of margt í takinu f einu því að þá nærð þú ekki fullnægjandi árangri neins staðar. Taktu þér eitthvað óvenjulegt fyrir hendur í kvöld svona til tilbreytingar. U/ K c»^ \ BO(Jm 5^ l J3L /]/> V :&= TINNI X-9 STAKFSMAÐUR HEyK-PI NÖPM TVEGG7A GLÆPA mannanna ... 0AVTER OG LJÓSKA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.