Morgunblaðið - 12.03.1976, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 12.03.1976, Blaðsíða 20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1976 19 ATþýðusamband íslands 60 ára starfskraftar forustunnar hafa farið í stritið um aurana og ekki gefizt tóm til að sinna öðru. En nú eftir samningana vonum við, að við höfum 14 mánuði, sem er meira en hægt hefur verið að tala um undanfarin ár. Jú, satt er það, að samningum er ekki alveg lokið alls staðar, en maður vonast til að það leys- ist sem allra fyrst. Okkur veitir ekki af þvi, Islendingum, að allir vinni hér. — Það er rétt að við stöndum betur hvað atvinnu snertir en þjóðir í kringum okkur. Hins vegar er maður ekki óttalaus. Það getur verið stutt í að hætta sé á ferðum. Greina má ýmsa fyrirboða. Ungu fólki gengur ekki vel að fá vinnu og ef ein- hver losar sig úr vinnu, er ekki jafn gott og hefur verið að komast i vinnu aftur. Sem bet- ur fer er atvinnuleysi samt að- eins timabundið og staðbundið. Ymislegt vekur þó ótta, eins og ég sagði áðan, bæði af efna- hagslegum toga og ekki siður vegna svörtu skýrslunnar um fiskstofnana, sem getur valdið erfiðleikum. Að minnsta kosti verður maður að halda hyggi- lega á spilunum, svo ekki valdi verulegri hættu. Spurningunni um það hverjir hafi verið stærstu áfangarnir á undanförnum árum hjá ASl, svaraði Björn: — Fyrir utan launabaráttuna, vil ég nefna lífeyrissjóðina, sem við sömd- um um 1969 og áttu að skapa nýjan grundvöll fyrir lifeyris- þega. Og kerfisbreytingin nú, sem á að hafa það í för með sér að okkar fólk og helzt lands- menn allir njóti verðtryggðs líf- eyris í samræmi við kaupgjald, og að peningar þess eyðileggist ekki í verðbólgunni. Þá færðum við i tal gagnrýni, sem heyrzt hefur, að fólk, sem árum saman hafi greitt sín gjöld, hafi ekki full félagsrétt- indi nema hafa sérstaklega lagt leið sina á skrifstofu verkalýðs- félaganna til að ganga formlega í félagið. Björn sagði, að þarna mundi mest vera um skólafólk að ræða. Það gæti valið um að gerast félagar eða greiða vinnu- réttindagjald, gæti þá fengið bráðabirgðaskírteini. En hann kvað það rétt að menn verða ekki löglegir félagsmenn nema þeir gangi sérstaklega í verka- lýðsfélagið. — Talið er að í stórum drátt- um höfum við næstum 100% skipulagningu á því fólki, sem er í þeim stéttum sem um ræð- ir, sagði hann. Hér fylgja því ýmis réttindi að vera í verka- iýðsfélagi. Og i flestum tilfell- um er það nægileg hvatning fyrir fólk til að ganga í félögin, enda hefur þetta gerbreytzt á siðustu árum, eftir að ég fór að hafa kynni af þvi. Fólk hefur t.d. ekki án verkalýðsfélagsins forgangsrétt að vinnu, ekki rétt til atvinnuleysisbóta og ekki rétt til greiðslna úr sjúkrasjóð- um félaganna. Nær 100% þeirra, sem lögum samkvæmt eiga heima i sambandinu, eru í félögum. Bæði löggjöfin og vinnusamningar taka mikið af þvi ómaki, sem annars þyrfti að hafa. Þetta er eitt af þvi, sem gerir faglega skipulagningu færa. E.t.v. er þó neikvætt að þurfa ekki að halda uppi áróðri fyrir því að menn gangi í félög- in. — Léleg fundarsókn? Þjóðlif- ið hefur breytzt. Menn hafa svo mörgu öðru að sinna en að fara á misjafnlega leiðinlega fundi. Þó held ég að fáir geti leikið það eftir okkur, að fá 12—15 þúsund manns á fundi á einum sólarhring, eins og um daginr. þegar fjallað var um aðalsamn- ingana okkar. Það þætti alls staðar annars staðar gott. Þeir fundir voru ótrúlega vel sóttir. Við þurfum ekki að kvarta. Stœrsta verkefni ASI: Þó 60 ára afmæli Alþýðusambands lslands beri upp á 12. marz, ætla samtökin ekki að halda upp á það I dag, heldur I sambandi við alþýðusambandsþingið I haust, að því er Björn Jónsson, forseti Alþýðusambandsins, sagði fréttamanni Mbl. t samtali við hann á þessum tímamótum bar eðlilega fljótt á góma skipulagsmál ASl, sem lengi hafa verið til umræðu og margir telja að brevta þurfi. Björn var spurður hvort hann væri ánægður með uppbyggingu samtakanna eins og hún er eða hvað hann telji að gera þurfi til bóta. — Liðin eru 12 ár síðan Alþýðusambandið samþykkti stefnuskrá í skipulagsmálum, sagði hann. Sú stefna var miðuð við breytingu frá þvi sem var í upphafi, á þann veg að allir sem starfa á sama vinnustað yrðu nú í sama félagi og félögin svo aft- ur i landssamböndum. Þannig yrðu byggð upp 8—9 landssambönd. Sú stefna Björn Jónsson, forseti ASl einnig hafa verið haldin nám- skeið þar fyrir utan. Þetta hefur gengið vel, aðsókn verið meiri en við höfum getað annað, en fyrst og fremst hefur okkur skort fé til þessa verk- efnis. Þá höfum við hafið út- gáfu Vinnunnar aftur og ætlum að gera átak til að koma henni í nýtt og betra horf. Hún kemur nú út á tveggja mánaða fresti, en hugmynd — sem ekki hefur raunar verið tekin ákvörðun um — er að gefa hana út hálfs- mánaðalega og i dagblaðsformi. Við höfum rekið Okkur á að mánaðaritsformið er þungt og efnið ekki lengur á oddinum, þegar það kemur út. Hitt er hagkvæmara. — Sannleikurinn er sá, að Fólk á sama vinnustað verði er enn hin opinbera stefna ASI, en erfiðlega gengur að framfylgja henni, sagði Björn. I okkar augum, sem höf- um að þessum málum starfað, yrði þetta fyrirkomulag ekki síðra. Þar sem verkalýðsfélög hafa tekið sig saman á vinnu- stöðum og samið eins og þau væru í einu félagi, þar hefur losnað um þessa innbyrðis streitu. Togstreitan beinist þá fremur gagnvart öðrum. Ekki er vafi á því — enda höfum við fyrir því reynslu — að betra er að ná samkomulagi um launa- hlutföll á slikum stöðum. Slíkt skipulag mundi treysta sam- heldnina i sambandinu og breyta verulega til bóta í samn- ingum. Hægt er að nefna dæmi um vinnustaði sem styðja þetta. A slíkum grundvelli voru gerðir samningarnir við ál- félagið og við ríkisverksmiðj- urnar, og þeir hafa gefið góða raun. Reynslan af þeim samn- ingum bendir örugglega tilþess að þessi stefnumótun sé rétt frá hagsmunalegu sjónarmiði. — Ég tel að þetta mál sé enn raunhæft og það sé eitt af stærstu innri málum Alþýðu- sambandsins, sem vinna þurfi að. Erlendis eru verkalýðsfélög líka að færast í það horf. Að sumu leyti má segja að lands- samböndin hafi.gengið nokkuð þvert á þetta, en þau þyrftu að breytast um leið og félögin. Erfiðast í þessu sambandi eru gamlar hefðir þ.e. félög með gamla sögu eins og t.d. Dags- brún og Framsókn. En við vinnum að þessu, reynum a.m.k. að láta ekkert, sem gert er í skipulagi, vera í andstöðu við þessa stefnu, létta fremur undir en hitt. En þetta tekur langan tíma, og ég tel að það verði mörg ár .þar til þessi stefna verður komin á að fullu. — Þetta er semsagt eitt stærsta verkefnið í framtiðinni. En af öðrum innri málum vildi ég nefna stórkostlega aukna fræðslustarfsemi, hélt Björn áfram. Sérstök menningar- og fræðslustofnun var sett á stofn með sérstök fjárráð og sérstaka stjórn við hlið miðstjórnar, kosna á þinginu, þó samband sé að sjálfsögðu á milli stjórn- anna. Og víð höfum verið að byrja á ýmsum fræðsluþáttum, þó að frumbýlingsháttur sé á því enn. Við höfum stofnað félagsmálaskóla, sem hefur unnið mikið í námskeiðum, og i einu félagi — segir Bjöm Jónsson, forseti Alþýðusambands íslands

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.