Morgunblaðið - 12.03.1976, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 12.03.1976, Blaðsíða 21
Stofhfélögin 7 með 650 félaga, nít 165 með 42 þús. félaga Fyrir réttum 60 árum voru stofnuð hér á landi heildarsamtök, er hlutu nafnið Alþýðusamband Islands. Þá voru stofnfélögin 7 með 650 félaga. En nú, á 60 ára afmælinu, hefur ASl vaxið fiskur um hrygg og félögin orðin 165 með 42 þúsund félaga. Alþýðusambandið hefur að undanförnu verið mikið í fréttunum vegna nýafstaðinna verk- falia og í kjölfarið heildarkjarasamninga og þá mikið fjallað í fjölmiðlum um hlutverk þess og uppbyggingu. En á þessum tímamótum er ástæða til að líta um öxl til stofndags Alþýðusambands Íslands 12. marz 1916 og yfir farinn veg. Nokkur aódragandi var að stofnun samtakanna. Verka- lýðsfélögin komu smám saman til sögunnar og tvívegis hafði verið gerð tilraun til að stofna til sambands verkalýðsfélag- anna í landinu, sú fyrri meðal Bárufélaganna um aldamótin og hin síðari árið 1907. Fyrsta stéttarfélagið, sem vitað er um að stofnað hafi verið hér á landi er Prentarafélagið eldra, stofn- að 1887 en starfaði aðeins i ii ár. Verkamannaíélag var stofnað á Akureyri 1894 og varð skammlíft, en sama ár stofnuðu skútusjómenn i Reykjavík fyrstu verka- mannasamtökin, er nokkuð kvað að, Bárufélagið, og fram til aldamóta kom hvort Bárufélagið af óðru. Hið is- lenzka prentarafélag var stofn- að 1897 svo og Verkamanna- félag Seyðisfjarðar, Verka- mannafélagið Dagsbrún kom 1906, en IJagsbrún og Prentara- félagió höfðu forustuna við til- raunina til að mynda allsherjar samtök verkamanna 1907. Segir Skúli Þórðarson sagnfræðingur um það í grein: ,,Voru sam- bandinu þar sett lög, er að lang- mestu voru sniðin eftir lögum verkalýðssambandanna á Norðurlöndum. Kosin var sam- bandsstjórn, er nefndist Sam- bandsráð Verkamannasam- bands Islands. Það er greini- legt, að forgöngumenn samtak- anna voru undir áhrifum jafnaðarstefnunnar, enda var þegar á fyrsta fundi sambands- ráðsins sem haldinn var 15. nóv., rætt um stofnun pólitísks jafnaðarmannafélags. Ýmsir forystumannanna tóku siðar þátt í stofnun Alþýðusam- bandsins og starfsemi þess, t.d. Pétur G. Guðmundsson og Agúst Jósefsson, auk Ottós N. Þorlákssonar, er var í forystu- líði allra þessara samtaka" Enda þótt nokkrir forystumenn berðust ötullega fyrir eflingu Verkamannasambands Islands, reyndist ekki kleift að halda í þvi lífinu til lengdar. Félög verkamanna risu víðsvegar um landið, en heppnuðust misjafn- lega, en mikil deyfð hvíldi yfir verkalýðshreyfingunni allt fram til ársins 1915. Voru þó lífskjör verkamanna mjög bág- borin. „Þegar heimsstyrjöldin fyrri skall á árið 1914, kom brátt til mikillar verðhækkunar og haustið 1915 voru afleiðingar verðhækkunarinnar orðnar mjög tilfinnanlegar fyrir verka- menn í sjávarplássum á Is- landi," segir í grein Skúla Þórðarsonar um upphaf Al- þýðusambandsins. „Tímakaup Dagsbrúnarmanna var þá aðeins40 aurar, en 35 árið áður. Var því viðbúið að verkamenn yrðu að herða enn meir sultar- ólina ef við svo búið ætti að standa og augljóst var að mikl- ar hörmungar voru framundan ef ekki væri hafist handa um úrbætur þegar i stað. Þá um haustið fóru nokkrir áhuga- menn um verkalýðssamtök að vinna að stofnun félags meðal háseta á togurum í Reykjavik. Voru þar fremstir i fylkingu Jón Guðnason o.fl. forystu- menn háseta og með þeim Ölafur Friðriksson og Jónas Jónsson fráHriflu.“ AÐKOMAÁ SAM- STARFI ÍSLEN/KRA ALÞÝÐUMANNA Frétt um stofnun Alþýðusam- bands Islands, sem 7 verkalýðs- félög stóðu að, er að finna í bókinni „Ar og"dagar“, sem Gunnar M. Magnúss tók saman. Er hún dagsett 12. marz 1916 og hljóðar hún svo: I dag voru stofnuð heildarsamtök verka- lýðsins hér á landi, er hlotið hafa nafnið: Alþýðusamband Islands. Nokkur aðdragandi er að stofnun samtaka þessara. A sl. ári hreyfði Ottó N. Þorláks- son því á fundi í Dagsbrún, að nú væri rétti tíminn kominn til þess að stofna slíkt samband 1907, en þau samtök urðu ekki til frambúðar. Nú samþykkti Dagsbrún að kjósa tvo menn til þess að leita samvinnu við félögin i Reykjavík og Hafnar- firði. Skrifuðu þeir bréf til Hins íslenzka prentarafélags, til Hásetafélagsins, Verka- kvennafélagsins Framsóknar, Bókbindarafélagsins, Hlifar í Hafnarfirði og Hásetafélagsins þar. Þessi 7 félög skipuðu svo hvert tvo menn í undirbúnings- nefnd. Síðan voru kjörnir full- trúar á stofnfund, sem hófst í dag. Jónas Jónsson frá Hriflu, sem var ritari á stofnfundinum, lagði fram frumvarp að lögum fyrir sambandið. I stjórn Al- þýðusambandsins voru kjörin: Ottó N. Þorláksson úr Dags- brún, forSeti, Ölafur Friðriks- son úr Hásetafélaginu, vará- formaður, Helgi Björnsson úr Dagsbrún, gjaldkeri, Jón Bald- vinsson úr Prentarafélaginu, ritari, aðrir stjórnarmenn: Jónina Jónatansdóttir úr Verkakvennafélaginu Fram- sókn, Sveinn Auðunsson úr Hlíf og Guðmundur Davíðsson úr Dagsbrún. I nóvember sama ár heldur fréttin áfram: Fyrsta reglulega sambandsþing hefur nú verið haldið. Jón Baldvinsson var kosinn forseti sambandsins. Á þinginu voru gerðar smábreyt- ingar á lögum og stefnuskrám. Eftir það eru stefnumið Al- Kröfuganga 1. maf 1935. Fiskpökkun í Revkjavík. Togari afgreiddur við hafnarbakkann um það levti sem Alþýi þýðusambandsins mörkuð þannig: 1) Tilgangur sambandsins er að koma á samstarfi meðal is- lenzkra alþýðumanna, er sé reist á grundvelli jafnaðar- stefnunnar og miði að því að efla og bæta hag alþýðu and- lega og líkamlega 2) Rétt til að ganga í Alþýðu- sambandið hafa öll íslenzk verkalýðsfélög, er vilja hlita reglugerð sambandsins. En þau félög, sem hafa atvinnurek- endur innan sinna vébanda, ná ekki inngöngu í sambandið nema á sambandsþingi og minnst 2/3 af fulltrúum félag- anna séu því hlynntir. En sam- bandsstjórn getur að öðru leyti tekið inn í sambandið hvert það félag, sem á skilyrðislausan rétt á inngöngu samkvæmt lögum þessum, en þó skal það siðar borið undir sambandsþing. Stefnumarki sinu ætlar sam- bandið að ná með þessum ráðum: 1) Að öll félög, sem í sam- bandið ganga, skuldbindi félagsmenn sína til þess að halda kauptaxta hinna félag- anna á þeim stað og á því svæði, sem kauptaxtinn nær til. 2) Að semja á sambandsþingi og ákveða stefnuskrá, sem sé bindandi fyrir öll félög í sam- bandinu og ekki verði breytt aftur nema á sambandsþingi. 3) Að kjósa til opinberra starfa fyrir bæjarfélög, sveita- félög og landið allt eingöngu menn úr sambandinu, sem fylgi hiklaust og í hvivetna stefnu- skrá sambandsins, nema svo standi á, að sambandið bjóði engan mann fram til kosninga. 4) Að efla samvinnufélags- skap og gefa út blöð og bækl- inga. 5) Að greiða fyrir stofnun verkalýðsfélaga, sem gangi í sambandið. SAMBAND VERKALÝÐS- FÉLAGA OG PÓLI- TÍSKUR FLOKKUR Hvert einstakt félag á að hafa fullt frelsi um sín innri mál, innan laga sambandsins, en í opinberum afskiptum verður hvert félag að fylgja eindregið stefnuskrá sambandsins. Þá er gert ráð fyrir þvi, að hin ein- stöku félög sambandsins innan kjördæmanna myndi innbyrðis samband, og skulu fulltrúar þeirra koma sér saman um frambjóðendur í því kjördæmi í allar opinberar stöður, er kjósa skal í. En hver frambjóðandi skal skrifa undir stefnuskrá sambandsins og skuldbinda sig að starfa í öllu samkvæmt henni. Ennfremur skal sam- bandsstjórn samþykkja fram- bjóðendur af hálfu sambands- ins. I bókbandsstofu Isafoldarverksmiðju, þegar vélamenningin var gengin f garð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.