Morgunblaðið - 26.06.1976, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 26.06.1976, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JU\I 1976 INNLENT Hann ereini áverki stúlkunnar eftir árekstur á 70km hraða — oghann hverfur á örtáumdögum. Bílbeltid bjargaði lif/ hennar. Veist þú að árekstur á 70 km hraða jafngikiir falli af sjöundu hæð, beint niður á götu. UinfcnVirráð Myndin sýnir veggspjaldið, sem hvetur fólk til að nota bílbelti. Mestislysa- tími í umferð- inni nálgast NU fer sá tfmi i hönd sem umferð um þjóðvegina og hættan á umferðarslysum eykst, en samkvæmt slysa- skýrslum undanfarinna ára verða flest umferðarslys í dreifbýli í júlí og ágúst. Umferðarráð hefur kapp- kostað að beita sér fyrir fræðslustarfi um akstur á þjóð- vegum og í því sambandi er fyrirhugað að birta auglýsingar i dagblöðum þar sem verður að finna fróðleik og ráðleggingar um akstur á þjóðvegum. í kjöl- far þessara auglýsinga verður getraun í dagblöðunum sem byggist á þessum auglýsingum og eru vinningar að verðmæti 400 þús. króna. Þá verða umferðarmál á dagskrá í útvarpinu og má þar m.a. nefna nýjan þátt, sem verður á laugardögum, og nefnist „Ut og suður". Þá mun umferðarráð að venju hvetja fólk til að nota bílbelti og verður prentað vegg- spjald, sem dreift verður út um allt land. Minnisvarði um Odd- geir Eyjatónskáld Hugmyndasamkeppni um minnisvarða KIRKJU- DAGURí KÁLFA- TJARNAR- KIRKJU Á MORGUN, sunnudaginn 27. júní, verður hinn árlegi Kirkjudagur Kálfatjarnar- kirkju. Guðþjónusta hefst í kirkjunni kl. 2 síðd. Þar prédikar séra Ólafur Odd- ur Jónsson, sóknarprestur í Keflavík, en prestur sókn- arinnar, séra Bragi Frið- riksson, þjónar fyrir altari. Tveir einsöngvarar syngja með kirkjukórnum, þau Margrét Matthíasdótt- ir og Hjálmtýr Hjálmtýs- son. Að lokinni kirkjuat- höfn fara kirkjugestir til samkomuhússins Glað- heima í Vogum, en þar hafa konur i Kvenfélaginu Fjólu kaffiveitingar og rennur allur ágóði af veit- ingasölunni til Kirkjusjóðs kvenfélagsins. Formaður sóknarnefndar Kálfatjarnarsóknar, Jón Guð- brandsson mun flytja ávarp og minnast safnaðarstarfsins á síð- asta ári. Hann mun og þakka og minnast við það tækifæri hinna fjölmörgu góðu gjafa sem Kálfa- tjarnarkirkju hafa borizt. Þær hafa verulega auðveldað kostnað- arsama endurbyggingu hinnar fögru kirkju á Kálfatjörn. Hefur þessu verki miðað svo vel, að nú er kirkjan að mestu fullfrágengin hið ytra. Sóknarbörn Kálfatjarnarkirkju og hinn mikli fjöldi velunnara kirkjunnar hér á höfuðborgar- svæðinu hafa ávallt fjölmennt til kirkjudagsins í Kálfatjarnar- kirkju, og dagurinn skipað sinn sess i hugum kirkjugesta, ungra sem aldinna og orðið lyftistöng fyrir kirkju og safnaðarlif. J.G. Taktu eftir marbiettmum Börnunum er kennd íslenzka í sumarbúð- um við Winnipegvatn I AGUSTMANUÐI verður haldið við YVinnipegvatn í Kanada nám- skeið fyrir börn í Kanada í þeim tilgangi að vekja áhuga þeirra á íslenzkri tungu og veita þeim tækifæri tikað tala hana í sínum hópi, svo þeim aukist öryggi bæði í framburði orða og skilningi, svo og að vekja þau til meðvitundar um vestur-íslenzka menningu vf- irleitt, að því er segir í frétt í Lögbergi-Heimskringlu. Slík námskeið hafa áður verið haldin yfir sumarleyfistímann og gefizt vel og notið vaxandi vin- sælda. Börn úr vesturfylkjum Kanada koma saman í 10 daga dvöl við vatnið, tala íslenzku við kennara og sín á milli, fræðast um ísland og islenzkt þjóðerni, stunda listir, iðngreinar og íþrótt- ir, og fá meira að segja tilsögn i að framreiða íslenzka rétti. Sumarbúðirnar eru nokkuð skammt fyrir norðan Gimli við vatnið. Um skipulagningu sér Lorna Tegelsen, en islenzkukenn- arar verða Sigrid Johnson, bóka- vörður við íslenzka safnið á Mani- tobaháskóla, Elva Jónasson frá Gimli, Melvin Mc Ginnis frá Brandan, Kristín Perlmutter, Cameron Arnason og Janice Arnason frá Winnipeg. Þetta verkefni er stutt af menningar- málaaðilum Kanada og Manitoba- fylkis og ennfremur nýtur það stuðnings íslenzkra samtaka vestra og einstaklinga. „BJARTAR vonir vakna“, “Ship ohoj“, „Ég veit þú kemur“, allt eru þetta lög sem allir þekkja eftir Oddgeir Kristjánsson tón- skáld frá Vestmannaeyjum, en lög þau sem hann gerði um langt árabil fyrir Þjóðhátíð Vest- mannaevja urðu flest landskunn, en i eftirfarandi fréttatil- kynningu segir frá ákvörðun Eyjamanna um að reisa Oddgeiri minnisvarða á Stakkagerðistúni í Eyjum, þar sem hann stjórnaði svo oft Lúðrasveit Vestmanna- eyja á hátfðisdögum sem hvers- dagslegum góðviðrisdögum: A fundi í Rótaryklúbbi Vest- mannaeyja á s.l. hausti kom fram sú hugmynd, að reisa Oddgeiri heit. Kristjánssyni, tónskáld, minnisvarða hér í Eyjum. Færi vel á, að hrinda þessari hugmynd í framkvæmd nú á árinu 1976, þvi að í ár eru 10 ár liðinn frá því hann iést. Stjórn klúbbsins hafði þegar samband við nokkur félög hér í Nefnd þessi hefur þegar haldið nokkra fundi um þetta mál, einnig hefur verið haft samráð við ekkju Oddgeirs, frú Svövu Guðjónsd. svo og dóttur þeirra hjóna Hrefnu Oddgeirsdóttur. Hafa þessar umræður nú leitt til þess, að hleypt hefur verið af stokkunum hugmyndasamkeppni um gerð minnisvarðans. Áætlað er að varðanum verði valinn staður á Stakkagerðis- túninu sem nú er verið að skipu- leggja sem útivistarsvæði fyrir Eyjarnar. Verðlaun verða veitt fyrir beztu hugmyndina að mati nefndarinnar og eru 50.000,— kr. í boði fyrir hana. Skilafrestur er ákveðinn til 1. ágúst n.k. Tillögum, merktum „Hug- myndasamkeppni", ber að skila í Box 114 í Vestmannaeyjum fyrir 1. ágúst n.k. Allar nánari upplýsingar varðandi þetta mál, er hægt að fá hjá Stefáni Runólfssyni i símum 1402 og 1845 og svo hjá Jóhanni Björnssyni í símum 1189 og 1131 í Vestmannaeyjum. Ætlun nefndarinnar er svo að kynna þá beztu hugmynd er fram kemur fyrir bæjarbúum og leita síðan til þeirra um fjárstuðning við þetta fyrirtæki, þannig að þessu ástsæla tónskáld okkar Eyjaskeggja verði reistur hér verðugur minnisvarði, sem ofur- títill þakklætisvottur fyrir þá auð- legð er hann arfleiddi okkur að. Fréttatilkynning frá nefndinni. „Ekki það versta...” Oddgeir Kristjánsson tónskáld Eyjum, sem Oddgeir starfaði i, og fór fram á að þau kysu einn mann í undirbúningsnefnd til að hrinda þessari hugmynd í framkvæmd. Brugðust þessi félög fljótt og vel við og tilnefndu eftirtalda menn í nefndina: Sigurjón Sigurðsson frá Bílastöðinni Einar M. Erlends- son frá Lúðrasveitinni, Eirík Guðnason frá Akóges og svo Þórarinn Magnússon kennara, frá Bæjarstjórn Vestmannaeyja, auk þessara manna situr stjórn Rotarýklúbbsins í nefndinni. ráðamanna fyrirtækisins hefur Ríó slegið öll sölumet hjá fyrir- tækinu með alls um 40 þús. ein- tök. Að sögn Halldórs Ástvalds- sonar verzlunarstjóra hjá Fálkan- um hefur nýja platan nú þegar fengið góðar viðtökur og mun fyrsta upplagið vera í þann veginn að seljast upp. Ríó sendir frá sér nýja hljómplötu — „ÞRÁTT fyrir nafnið getum við fullyrt að hér er ekki um að ræða það versta af öllu sem við höfum sent frá okkur“ — sögðu þeir Rfó-félagar um útkomu nýjustu plötu þeirra „Verst af öllu...“ Er þetta sjöunda breið- skífan sem Ríó sendir frá sér og svipar henni mjög til hinna fyrri, með léttu yfirbragði og smellnum textum Jónasar Friðriks. Ólafur Þórðarson er þó ekki með að þessu sinni, en hann mun nú vera önnum kafinn við gerð eigin hljómplötu með frumsömdu efni. Á plötunni eru tólf lög, tíu er- lend með textum eftir Jónas Frið- rik og þeir Gunnar Þórðarson og Ágúst Atlason eiga sitt lagið hvort. Hljóðritun plötunnar fór fram I London í marz sl. og stjórn- aði Gunnar Þórðarson upp- tökunni auk þess sem hann á verulegarr þátt í hljóðfæraslætti og söng á þessari plötu. Reyndar varð Gunnar fullgildur félagi í Ríó fyrir nokkrum árum er hann hóf afskipti af hljómplötugerð þeirra félaga og hann ferðaðist líka með þeim um Ameríku þvera og endilanga hérna um árið. Utgefandi plötunnar er sem fyrr Fálkinn h/f en að sögn for-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.