Morgunblaðið - 26.06.1976, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 26.06.1976, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JUNÍ 1976 23 Minning: Sigurlína Sch. Hallgrímsdó ttir Ég ætla að minnast tengda- móður minnar Sigurlínu Sch. Hallgrímsdóttur, en hún lést að morgni 18. júní síðástliðins. Hún fæddist 7. apríl 1911, dóttir hjón- anna Önnu Jónsdóttur og Hallgríms Sch. Hanssonar, sem ættuð voru af Kjalárnesi. Sigur- lina var fædd að Bergstaðastræti 22 hér í borg og'var því fædd Reykvikingur. Hér ól hún allan sinn aldur. Ung að árumgiftist hún Kristni Mariusi Þorkelssyni, eða hinn 9. maí 1931, og átti því 45 ára hjú- skaparafmæli í vor. Fyrstu bú- skaparár þeirra var ekki ein- tómur dans á rósum, er þau giftu sig var kreppan að komast í al- gleyming, en með ráðdeildarsemi og sparnaði komust þau í gegnum þau erfiðu ár. Kristinn var svo heppinn að hafa fasta vinnu hjá Kol og salt þar starfaði hann þar til það var lagt niður. Siðan hefur hann starfað hjá Rikisskip og starfar enn. Þeim hjónum var það mikið lán að eignast gott heimili og börn. Börn þeirra eru þessi: Sigþóra, gift Jóni Guðnasyni, Margrét, gift Ingólfi H. Jökulssyni, Þorkell E. kvæntur Svövu Ölafsdóttur, Anna J., var gift Herði Ólafssyni en þau slitu samvistum. Hulda I.. gift Snæbirni Kristjánssyni, Hallgrímur, sem enn er í foreldra- húsum og Haukur sem dó barn að aldri. Auk þess ólu þau upp dótt- urdóttur sína sem sitt sigið barn, Sigurlínu Kristínu, gifta Jóni Elt- onssyni. Nýtt félagatal FlS með vöruflokka- skrá Á heimili þeirra áttu börn og þó sérstaklega afa- og ömmubörn gott athvarf. Ég held að heimili þeirra hafi ávallt verið opið vin- um þeirra og annarra vanda- manna enda var öllum tekið sér- lega vel. Ég dáðist oft að þvf hve Lína, en svo var hún kölluð af vinum og vandamönnum. var greiðvikin og hjálpfús. Og alltaf hafði hún nógan tíma. Nú að leiðarlokum vil ég sérstaklega þakka henni fyrir góða við- kynningu og bfð henni góðrar heimkomu og flyt manni hennar. börnum og öðrum vandamönnum minar innilegustu samúðar- kveðjur. Ingólfur 11. Jökulsson Félag íslenzkra stórkaup- manna hefur gefið út fé- lagatal með vöruflokka- skrá. í vöruflokkaskránni er að finna lista yfir flestar tegundir vöruflokka og neðan við heiti hvers vöru- flokks er vísað til númers félaga í félagaskrá, sem hafa með þessa vöruflokka að gera. Á eftir vöruflokka- skránni er að finna félaga- tal F.Í.S. með ýmsum upp- lýsingum um félaga s.s. að- setur, forstjóra eða fram- kvæmdastjóra og vöru- flokka. í bæklingnum segir að tilgangur félagsins sé að efla samvinnu meðal stór- kaupmanna, umboðssala innflytjenda og að gæta hagsmuna félagsmanna á allan hátt og einnig að stuðla að því að verzlunin í landinu sé rekin á frjálsum og heilbrigðum grundvelli og í því sambandi veitir félagið félagsmönnum, er- lendum aðilum og opinber- um stofnunum sem fyllstar upplýsingar um það, sem getur komið þeim að gagni við starfsemi þeirra. SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Biblían segir, að allt samverki okkur til góðs. En þvf trúi ég ekki, þegar ég hugsa um það, sem gerist 1 heiminum og (Iffi sjálfs mfns. Biblian hefur aldrei lofað, að allt samverki okkur til góðs. Loforð Guðs í orði hans er þetta, að „þeim, sem Guð elska, samverkar allt til góðs, þeim, sem kallaðir eru samkvæmt fyrirhugun" (Rómv. 8.28). Þetta erjreyndar eitt dásamlegasta fyrirheit Biblí- unnar. En því fylgir skilyrði: Við verðum að elska Guð og reyna að gera vilja hans. Þegar vió elskum hann af hjarta, þá komumst við að raun um, að allt samverkar okkur til góðs. Það táknar, að jafnvel sjúkdómur og sorg, erfiðleikar, ástvinamissir, gleði eða skortur, aðstæður þær, sem við búum við — allt verður okkur til góðs. Þér spyrjið kannski, hvernig þetta megi verða. Almáttugur Guð, sem allt þekkir, hið liðna, líðandi stund og framtíðina, hann stjórnar svo tilvikum lífs okkar, að allt verður til að efla heill okkar, hvað svo sem það er. Hugsum okkur, að Guð tæki frá yður barn, sem þér unnið hugástum og bindið miklar vonir við. Guð vissi betur en þér, af því að hann sér framtíðina. Nú er barni yðar borgið hjá honum og svo mun verða um eilífð. Hugsum okkur að þér yrðuð veikir. Guð hefur leyft það í kærleika sínum. Ef til vill verður sú reynsla til þess, að þér nemið staðar og farið að hugsa um hann og lærið að nýju að lesa Bibliuna yðar og biðja. Munið aðeins að elska hann og treysta honum fullkomlega. Þá fer aldrei illa, séð frá sjónarmiði Guðs. — Ársskýrsla Landsbankans Framhald af bls. 19 til lækkunar á lausaskuldum við bankann, 177 m.kr. til 2ja ára, til greiðslu annarra lausaskulda. Auk þess breytti bankinn 52 m.kr. af skammtfma lánum í lán til nokkurra ára. Hagdeild Lands- bankans gerði þann veg athugun á 264 fyrirtækjum í sjávarútvegi. REKSTUR OG HAGUR BANKANS Lausafjárstaða bankans batnaði verulega. I byrjun árs var hún neikvæð um 2915 m.kr. í lok árs- ins var hún jákvæð um 297 m.kr. og hafði því batnað skv. reikning- um bankans um 3.212 m.kr. Þessi bætta staða stafaði m.a. af sér- stökum samningi við Seðla- bankann, þar sem 1250 m.kr. skammtimaláni var breytt i fjögurra ára lán. Auk þess notaði Landsbankinn 980 m.kr. skulda- bréf, sem hann eignaðist við skuldabreytingar í sjávarútvegi, til þess að greiða niður lausa- skuldir við Seðlabankann. Nettó- inneign bankans erlendis nam 899 m.kr. i árslok 1975 og hafði aukizt um 454 m.kr. á árinu. Afkoma bankans varð mun betri á árinu 1975 en árið áður. Stafaði þetta bæði 'af aukningu starfseminnar og vaxtahækkun- um á árinu 1974. Tekjuafgangur, auk vaxta af eigin fé, varð 250 m.kr. (83 m.kr. árið áður). A árinu tókst að halda i horfinu með eigið fé bankans, sem nam 1744 m.kr. i árslok 1975 og hafði því aukizt um 387 m.kr. á árinu. Eigið fé nemur nú 10% af innlánum bankans. UTIBU bankans. 1 Reykjavik eru nú 6 útibú Landsbankans. Heildarvelta aðal- bankans í Reykjavik með úti- búum þar og í nágrenni borgar- innar varð 2049 milljarðar króna á árinu 1975 og hafði aukizt um 59% frá árinu áður. Afgreiðslur urðu 7.6 milljónir talsins og hafði fjölgað um 8%. Innlán hækkuðu um 2705 m.kr. eða 30%. Utlán um 2796 m.kr. eða23%. Bankinn rekur nú 12 útibú utan Reykjavíkur, auk 7 afgreiðslu- staða í tengslum við þau. Heildar- velta útibúanna nam 374 milljörð- um króna, hafði aukizt um 47%. Afgreiðslufjöldi í útibúunum jókst um 15%. Heildarinnlán úti- búa úti á landi jókst um 1360 m.kr. eða 31%. Heildarútlán hækkuðu um 1454 m.kr. eða 18%. Staða' útibúa gagnvart aðal- bankanum batnaði mikið á árinu. útfaraskreyllngar btómouot Groðurhúsið v/Sigtun simi 36770 Minning: Magnús Steinþórsson frá Stykkishólmi Fyrir fáum dögum barst mér á öldum ljósvakans frétt um að Magnús Steinþórsson væri látinn. Magnús hefi ég ekki séð síðas- liðin 50 ár, en þó hefur hann furðu oft komið í hug mér. Það er ekki vegna afreka hans á opinber- um vettvangi, né að um hann hafi verið rætt í fjölmiðlum, og engan samgang eða kunningsskap hefi ég haft við fólk hans, nei, það er ein bernskuminning er ég geymi er veldur, og nú skal greint frá. Það var einu sinni sem oftar, að sýna átti „Kómediu" í Hólminum, en það var eitt af því dásamleg- asta er við stelpurnar vissum. Ég mun hafa verið 10—11 ára er þetta var. Nú var það, að bæði þótti óþarfi að krakkar færu nema einu sinni á vetri að sjá dýrðina, og ef einu sinni var búið að neita um éitthvað þá var það útrætt mál. Vinstúlku mína og mig langaði óstjórnlega að sjá það sem leika átti, en mig minnir að það væri „Happið". Vinstúlka mín var 2 árum eldri, og ekki á því að gefast upp. Við hugsuðum og töluðum, og loks kom henni ráð í hug. Við skyldum biðja hann Magnús Steinþórsson að gefa okk- ur eina krónu, en það var gjaldið fyrir okkur báðar. Ég áleit vin- stúlku mína gengna af vitinu, biðja að gefa sér, hún átti að vita eins vel og ég, að það yrði dýrt fyrirtæki ef upp kæmist. Að sníkja jaðraði við að stela á þeim timum. Hvort sem þetta var rætt lengur eða skemur, þá vildi það nú ein- mitt þannig til að í þessu kemur Magnús gangandi niður Hótelstíg- inn. Þess skal getið að Magnús var ókvæntur ungur maður er þetta var. Ekki get ég fullyrt hvor okk- ar bar upp erindið, en Magnús, þessi ljúfi, hæggerði maður, tók upp budduna, og með góðlátlegu brosi gaf okkur það sem um var beðið. Eins og allir vita, er búsettir voru í Stykkishólmi á þessum ár- um, var mikill samgangur milli nágranna, og kom Magnús stund- um á heimili foreldra minna. Það er ekki að orðlengja það að tveim- ur dögum eftir betlið, kemur Magnús sem oftar heim til okkar, mig brestur orð til að lýsa þeirri skelfingu og skömm er greip mig. þvi ég þóttist þess fullviss að nú væri Magnús kominn til að klaga mig, og í raun og veru þótti mér það maklegt. En Magnús var meira göfugmenni en svo að hann færi að klaga nokkurn, hann bara brosti til mín, þessi hógværi, góði maður. En þessu hefi ég aldrei gleymt, og borið í brjósti innilegt þakk- læti til Magnúsar sfðan. Þetta at- vik, þótt lítið sé (var stórt þá í mínum augum) felur mikið í sér. Fyrst nú eftir 55 ár flyt ég Magnúsi hjartans þökk, ekki bara fyrir krónuna, heldur miklu meira fyrir trúnaðinn er hann sýndi mér. Það var aldrei meiningin að skrifa venjuleg eftirmæli, til þess brestur mig þekkingu á lífi og störfum Magnúsar siðastliðin 50 ár. Guð blessi minningu góðs manns. f_ EF ÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU AUULYSINGA- SÍMINN ER: 22480 t MAGNÚS ÁRNASON frá Sauðárkróki lést að Elliheimilinu Grund, fimmtudaginn 24 júní 1 976 Ásta Björnsdóttir og vandamenn. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi HALLDÓR JÓN GUÐMUNDSSON verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 28 júni kl 3 Ingibjörg Halldórsdóttir, Sigvaldi Þorsteinsson JÚIÍUS Halldórsson, Sigríður Sigurðardóttir. barnabörn og barnabarnabörn. t Dóttír min MARGRÉT GUÐRUN LÚTHERSDÓTTIR Lundargötu 17, Akureyri verður jarðsungin mánudaginn 28 júni kl 1 3 30 frá Akureyrarkirkju Fyrir hönd barna hennar og annarra vandamanna Lára Pálsdóttir. t Þakka sýnda hluttekningu vegnij fráfalls eiginmant^s míns, BJÖRNS GUOMUNDSSONAR, talkennara, frá Næfranesi * Fyrir hönd barna okkar og systkina hins látna Ýrr Bertelsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.