Morgunblaðið - 30.07.1977, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JULt 1977
UMFERÐARRÁÐ og lögreglan starf-
rækja um verslunarmannahelgina upp-
lýsingamiðstöð f lögreglustöðinni við
Hverfisgötu, Reykjavík. Starfssemi
hennar hefst kl. 13.00 á föstudag og er
starfrækt fram á mánudagskvöld kl.
24.00.
Miðstöðin mun safna upplýsingum um
umferð, ástand vega, veður og annað sem
ferðafólk kann að vera akkur f. Beinar
útsendingar verða f útvarpi alla dagana.
Auk þess er fólki heimilt að hringja til
stöðvarinnar f sfma 83600.
Frá F.Í.B.
Til öku-
manna
Varahlutir
F.Í.B. vill af gefnu tilefni
hvetja bifreiðaeigcndur til að
hafa nauðsynlegustu varahluti
meðferðis cr þeir fara út á
land í bifreiðum sínum, t.d.
kerti, platinur, kveikjuþétti,
kveikjuhamar, kveikjulok,
viftureim og góðan varahjól-
barða.
Vegna hinna mörgu bilteg-
unda er vegaþjónustubilum
F.Í.B. ómöglegt að hafa með-
ferðis varahluti í allar tegund-
ir bifreiða og vill þvi benda
ökumönnum á að hafa með-
ferðis nauðsynlegustu hluti.
Samband við vegaþjónustu-
bíla F.l.B. er i gegnum.
Gufunesradfó
sfmi 22384
Brú-radfó
sfmi 95-1112
Sigluf jarðar-radfó
sfmi 96-711108
Akureyrar-radfó
sfmi 96-11004
Seyðisfjarðar-radfó
sfmi 97-2444
Hornaf jarðar-radfó
sfmi 97-8212
Nes-radíó
sfmi 97-7200
tsafjarðar-radfó
sfmi 94-3065
Bilarnir hlusta á 2790 khz
einnig hlusta þeir á rás 19 CB
(27.185) mhz.
Eftirtaldir staðir eru mið-
stöðvar fyrir vegaþjónustubíla
F.l.B. og geta bíleigendur látið
liggja skilaboð til bílanna þar:
Veitingaskálinn Þrastalundi
Hótel Valhöll Þingvöllum
Botnsskála Hvalfirði
Söluskálinn Hvftárbrú
Söluskálinn Vfðigerði V-Hún.
Söluskálinn Kirkjubæjar-
klaustri
Vegaþjónustubílar F.l.B.
munu senda upplýsingar um
staðsetningar til upplýsinga-
miðstöðvar Umferðarráðs,
Lögreglunnar og Félags ís-
lenzkra bifreiðaeigenda sem
síðan mun útvarpa þeim reglu-
lega meðan vegaþjónustubílar
eru við störf. Vitað er að eftir-
farandi bifreiðaverkstæði hafa
opið um Verslunarmannahelg-
ina.:
Bflver Stykkishólmi
Bflaverkstæðið Kirkjubæjar-
klaustri, einnig hjólbarðavið-
gerðir
Verkstæði Björns Vfglunds-
sonar, Kolbeinsgötu 11,
Vopnafirði
Bflaverkstæðið Holt Snæfells-
nesi, einnig hjólbarðaviðgerð-
ir
Smurstöð B.P., Höfn, Horna-
firði
Bflaverkstæði Kaupfélagsins,
Hvolsvelli
Hjólbarðaverkstæðið Hellu
Bflaverkstæðið Vfðigerði,
Vfðidal
Bflaverkstæði Kaupfélagsins
Vfk, Mýrdal
Varahlutaverzlun K.Á., Sel-
fossi
Staðsetning
vegaþjónustubfla
Þjónustutími: Laugardagur
30. júlí kl. 14.00—21.00. Mánu-
dagur 1. ágúst. kl. 14.00—23.00
F.Í.B 2 Húnavatnssýsla
F.Í.B. 3 Hvalfjörður — Kjós
F.Í .B. 4 Arnessýsla
F.Í.B. 5 Borgarfjörður
F.I.B. 6 Dalvík og nágrenni
F.t.B. 7 A-Skaftafellssýsla
F.Í.B. 8 V-Skaftafellssýsla
F.Í.B. 9 Út frá Akureyri
F.Í.B. 10 Mosfellsheiði —
Þingvellir
F.Í.B. 12Vestfirðir
F.Í.B. 13 Hvolsvöllur
F.Í.B. 15 Austfirðir
F.Í.B. 16 Hafnir — Grindavík
(hlustar eingöngu á CB rás 19
27.185 mhz)
F.Í.B. 17 Snæfellsnes
F.Í.B. 11 í nágrenni mótssvæða
— staðsetning óákveðin.
„Lögmál
ferðamannsins“
Þá er þess að geta að vega-
þjónustubilar F.Í.B. munu
stöðva bílaumferð á nokkrum
stöðum út um land og afhenda
upplýsingar frá Náttúru-
verndarráði um lögmál ferða-
mannsins og útivistarmerki
svo og bækling frá F.l.B. með
helstu upplýsingum um félag-
ið. Þá fylgir einnig ruslapoki
með ið pakkanum.
Hvenær
fæst bensín?
Bensinstöðvar oliufélaganna
í þéttbýli verða opnar á sama
hátt og um venjulega helgi,
þ.e. laugardag frá kl.
7.30—21.15 og sunnudag og
mánudag kl. 9—21.15. i dreif-
býlinu, þar sem bensinstöðvar
eru viðast hvar í tengslum við
greiðasölu er yfirleitt opið
lengur, til kl. 23.30 að jafnaði.
Talstöðvar-
þjónusta
Þá skal geta þess að Félag
farstöðvareigenda verður með
30 radíó opin um helgina og
aðstoða þau ferðafólk við að ná
sambandi við lögreglu og
lækna eða aðra í neyðartilvik-
um, sem upp kunna að koma.
Ferðir
um
helgina
Ferðafélag tslands
Farnar verða allmargar ferð-
ir á vegum Ferðafélagsins,
1—3 daga og hefjast eftirtald-
ar ferðir kl. 20 á föstudags-
kvöld:
Þórsmörk
Landmannalaugar
Veiðivötn — Jökulheimar
Hvannagil — Emstrur
Skaftafell — Jökulsárlón
Strandir — Ingólfsf jörður
Ferðir laugardag kl. 8.00 ár-
degis:
Snæfellsnes — Breiðafjarðar-
eyjar
Hveravellir — Þjófadalur
Kerlingarfjöil
Á sunnudag kl. 13.00 verður
gengið á Skálafell við Esju og
á mánudag kl. 13.00 verður
gengið á Skálafell á Hellis-
heiði.
(Jtivist
Um Verslunarmannahelgina
fer Utivist í sex ferðir, þar af
þrjár stuttar einsdags ferðir og
þrjár yfir alla helgina. Styttri
ferðirnar eru farnar kl. 13.00
frá B.S.Í. Fara þær hér á eftir:
1) Fjöruganga í Örfisey
2) Fjörugönguferð um Vatns-
leysuströnd.
3) Kræklingsferð í Hvalfjörð.
Lengri ferðirnar eru farnar
kl. 20.00 á föstudagskvöld og
fara þær hér á eftir:
1) Ferð í Þórsmörk.
2) Ferð í Núpsstaðaskóg.
3) Gönguferð á fjöllin i kring-
um Akureyri. (Flogið norður).
Hvar
safnast
menn
saman?
Bindindismót í
Galtaiækjarskógi
Dagskrá mótsins i Galta-
lækjarskógi hefst með diskó-
teki kl. 21 á föstudagskvöld, en
mót þetta er einkum fjöl-
skyldumót og er gert ráð fyrir
að 3—4 þúsund manns sæki
það, en hægt er að taka við allt
að 5 þúsund manns.
A iaugardag verður mótið
sett formlega fyrir hádegi og
síðan er keppni í góðakstri.
Um kvöldið eru dansleikir á
tveim stöðum, hljómsveit Ólafs
Gauks leikur á palli og hljóm-
Skyndihjálp
ÞEGAR slys verður, er fjöl-
margt er þarf að hafa i huga,
og framkvæma i réttri röð. Hér
á eftir verður fjallað um mikil-
vægustu atriðin, en þau eru að
sjálfsögðu ekki tæmandi.
Ef komið er að slysstað, þarf
að athuga i fljótu bragði hvað
gerst hefur. Síðan skal ákveða
hvað gera á, en gæta þess jafn-
framt að sýna stillingu og yfir-
vegun.
Hér koma fjórar meginregl-
ur í skyndihjálp, sem skulu
hafðar til viðmiðunar.
1. Komið 1 veg fyrir frekari
skaða.
2. Hraðhjálp (tryggja öndun,
stöðva ntjklar blæðingar)
3. Sækja hjálp
4. Almenn skyndihjálp.
Nánar tiltekið: Reynið að
koma i veg fyrir að hinn slas-
aði verði fyrir frekari áföllum.
Bjargið honum úr þeirri
hættu, sem hann kann að vera
i. 2) Ef hinn slasaði er með-
vitundarlaus og andar, á að
leggja hann á grúfu, eða hlið-
arlegu til að minnka hættuna á
því að hann kafni i ælu. Ef
hann andar ekki verður að
hefja blástursaðferðina strax.
3) Ef um miklar blæðingar er
að ræða skal stinga fingri f
sárið og þrýsta þannig að blæð-
ingin stöðvist. Síðan skal
leggja hinn slasaða niður og
helst lyfta hinum slasaða lik-
amshluta hærra og búa um sár-
ið með sáraböggli. Ef blæðir i
gegnum umbúðirnar skal
binda að því með nýjum
böggii, án þess að taka hinar
fyrri af. 4) Nú er fyrst komið
að þvi að ná i hjálp það er ef
hjálparmaður er einn. Ef um
fleiri en einn hjálparmann
væri að ræða færi einn strax
og sækti hjálp.
Að lokum ef tilkynnt er um
slys, er nauðsynlegt að vera
rólegur og tala hægt og skýrt.
Tilkynnið eftirfarandi:
1) Hvar slysið hafi orðið.
2) Hvað komið hefur fyrir.
3) Hversu margir eru slasaðir.
4) Hver hringir og hvaðan.
Almenn skyndihjálp: Búa
um sár. Styðja við brot t.d. með
teppum, peysu eða úlpu.
Hindra lost með þvf að lyfta
upp fótum og láta höfuðið
liggja lægra, til að auka blóð-
streymi til heilans. Gæta þarf
þess að hinum slasaða verði
aldrei kalt. Breiða undir hann
og yfir með teppum eða hlýj-
um fatnaði.
ALDREI MA GEFA
SLÖSUÐUM EÐA
KÖLDUM AFENGI.
sveitin Meyland i samkomu-
tjaldi. A sunnudeginum er
messa kl. 13.30 sem sr. Björn
Jónsson á Akranesi annast,
barnasamkoma kl. 15 þar sem
m.a. hljómsveit Ölafs Gauks
skemmtir, og barnadansleikur
kl. 16. Kvöldvaka hefst kl. 20
og þar flytur Vilhjálmur
Hjálmarsson ræðu dagsins og á
dagskrá eru einnig eftirherm-
ur í umsjá Jörundar, þjóðdans-
ar, glíma, bingó og siðan dans.
Aðgangur að mótinu öllu kost-
ar kr. 3.000 börn yngri en 12
ára fá ókeypis aðgang.
Iþróttahátíð
að Eiðum
Ungmenna- og íþróttasam-
band Austurlands stendur fyr-
ir móti á Eiðum og hefst það á
föstudagskvöld með dansleikj-
um er U.Í.A. stendur fyrir og
verða í Valaskjálf og Félags-
lundi á Reyðarfirði. Kl. 14 á
laugardag verður mótið sett og
verður þá háð íslandsmót 3.
deildar i frjálsum Iþróttum og
kl. 20 hefst kvöldvaka í há-
tíðartjaldi á mótssvæðinu og
verða þar ýmis skemmtiatriði í
höndum krakkanna og ungl-
inganna sjálfra sem sækja
mótið frá hinum ýmsu sam-
böndum. Þá er dansleikur fyr-
ir 12—16 ára og dansleikir í
Valaskjálf og að Iðavöllum kl.
24 er varðeldur, og flugelda-
sýning á mótssvæðinu á Eið-
um.
Kl. 10 á sunnudagsmorgni
hefst keppni í frjálsiþrótta-
móti U.Í.A. yngri aldursflokk-
um og eru um 500 krakkar
skráðir til keppni. Kl. 13.30
verður hátiðardagskrá sem
hefst með skrúðgöngu, síðan
flytur Tómas Arnason ávarp,
lúðrasveit og Halli og Laddi
skemmta, fallhlífarstökk verð-
ur sýnt og svo knattspyrna.
Dagskrá mótsins lýkur með
dansleikjum að Iðavöllum og í
Valaskjálf. Boðið er uppá
ýmiss konar leiktæki fyrir
börnin, svo sem rólur og sand-
kassa o.fl. Aðgangseyrir er kr.
2.000 fyrir báða dagana.
Laugahátíðin 1977
Héraðssamband Þingeyinga
stendur að Laugahátiðinni ’77
sem fer fram að Laugum i
Þingeyjarsýslu og verða þar
dansleikir föstudags-, laugar-
dags- og sunnudagskvöld. Á
laugardag er m.a. kvikmynda-
sýning, keppni i knattspyrnu
kvenna, sýnt fallhlífarstökk og
íþróttir og leikir. Meðal dag-
skráratriða á sunnudag er
barna- og unglingaskemmtun
kl. 13.30 og sjá þar um atriði
Ragnar Bjarnason og Ómar
Ragnarsson.
Rauðhetta ’77
Rauðhetta ’77 verður haldin
að Ulfljótsvatni. Bandalag ísl.
Skáta stendur fyrir hátíðinni.
Setning verður föstudag kl.
21.00. Sætaferðir verða frá
B.S.l. kl. 20.00 og 21.00. Föstu-
dagskvöld leika hljómsveitirn-
ar Eik og Póker fyrir dansi,
einnig diskótekin Amor og Ás-
lákur. A laugardag verður
margt til afþreyingar þ.m.
tívoli, opið íþróttasvæði, hesta-
leiga og bátaleiga. Þá má
nefna svifdrekasýning
skemmtidagskrá með Rió,
Randver, Búktalarinn Guð-
mundur og margir fleiri.
Kynnir verður Ómar Valdi-
marsson. Um kvöldið verða
dansleikir með sama sniði og
kvöldið áður. Barnagæsla verð-
ur fyrir börn á aldrinum 3—9
með dagskrá allan laugardag-
inn. Á sunnudag verður dag-
skrá með svipuðu sniði og á
laugardag utan þess að þá
verður fyrsta svifdreka-
keppnin á Islandi. Sjúkra-
gæzla verður á mótinu allan
timann og sér Hjálparsveit
skáta i Reykjavík um hana
ásamt tveimur læknum. Einn-
ig verður gæsla á vatriinu sem
hjálparsveitir skáta sjá um.
Skemmtun í
Húnaveri
1 Húnaveri verður haldin há-
tíð um verslunarmannahelgina
og verða dansleikir föstudags-,
laugardags- og sunnudags-
kvöld. Það er hljómsveit Þor-
steins Guðmundssonar, sem
leikur fyrir dansi, en um
skemmtiatriði sjá Gylfi Ægis-
son, Jörundur og Baldur
Brjánsson. Á laugardaginn
verður skemmtun öllum opin,
þar sem sömu aðilar skemmta,
og er aðgangur ókeypis. Góð
tjaldstæði eru við Húnaver.