Morgunblaðið - 11.10.1977, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 11.10.1977, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. ÖKTÖBER 1977 17 Valur og Víkingur, — liðin sem flestir spá að berjast muni um íslandsmeistaratitilinn í handknattleik I ár, mættust i Laugardalshöllinni á sunnudaginn og fóru leikar svo að Vikingar sigruðu með einu marki, eftir skemmtilegan leik. Þessi mynd var tekin í leiknum og sýnir Valsmanninn Bjarna Guðmundsson gefa sendingu inn á linuna tii Steindórs Gunnarssonar. Standard STANDARD Liege, liðið sem Ásgeir Sigurvinsson leikur með i Belgiu vann 4—2 sigur i leik sinum við belgisku meistarana, FC Brúgge, i belgísku 1. deildar keppninni i knatt- spyrnu á sunnudaginn. Komst Standard með þessum sigri sinum i efsta sætið í deildinni, og hefur liðið hlotið 15 stig eftir 11 leiki. Fjögur önnur félög hafa sama stigafjölda, þannig að Ijóst má vera að baráttan um belgiska meistaratitilinn verður hörð i ár. Ásqeir Sigurvinsson átti stjömu- á toppinn leik með liði sínu á laugardaginn, — átti hann t.d. þátt i tveimur mark- anna sem Standard skoraði, og segja belgísku blöðin hann hafa verið einn bezta mann vallarins. Er Standard spáð mikilli velgengni i 1. deildar keppninni i vetur, og þá ekki sizt vegna hæfileika Ásgeirs Sigurvins- sonar. Lið það er þeir Marteinn Geirsson og Stefán Halldórsson leika með í 2. deild i Belgiu, Royal Union, tapaði leik sínum um helgina og er það nú i neðsta sæti i deildinni. , ....... '^v * iaHH Þannig fór Geir Halisteinsson meó Finnana á laiifíardajíinn. Hann knöttinn á félajta slna. sem þá voru oft á auöum sjó. HINN kunni enski knatt- spyrnutnaður Jaek Charlt- on gerði á laugardaginn samning við 3. deildar félagið Sheffield Wednes- day og tekur hann nú við framvæmdastjórastörfum hjá félaginu. Jaek Charlton var á sínum tíma í heimsmeistaraliði Englands, og lengi vel var hann einn af máttar- stólpum Leeds-liðsins. Eftir að hann hætti að leika knattspyrnu tók hann við framkvæmdastjóra- störfum hjá 1. deiidar liðinu Middlesbrough. Þótti Chariton standa sig frábærlega í því starfi, og var Middlesbrough i hópi efstu liðanna í 1. deild meðan hann hélt þar um stjórnvölinn. En i s'umar ákvað Charlton skyndilega að segja skilið við Middlesbrough og voru þá strax mörg lið á eftir honum. Lét Charlton ekki til leið- ast að taka að sér framkvæmda- stjórn fyrr en nú og má mikið inum sem allra lengst í þessum leik, lengja sóknir sinar? En það kunnu þeir heldur ekki. Þeir höfðu sjaldnast þolinmæði til þess að reyna að leika upp á að skora, heldur reyndu trekk í Irekk úr vonlitlum færum. Kunnáttuieysi Finnanna kom lika í veg f.vrir að þeir gætu hamið Geir Hallsteinsson i þessum leik, en Geir fór oft mjög illa með Vörn Kiffens, stundum svo að leik- menn liðsins voru á fjórum fótum á gólfinu, eftir að Geir hafði leikið á þá. Sjálfur skoraði Geir 8 mörk i leiknum og átti góðan þátt í mörgum mörkum öðrum, með þvi að galopna vörn Kiffens fyrir samherjum sinurn, með leik- brellum og hraða. Var Geir áber- andi bezti maður vallarins, sérstaklega í fyrri hálfleik. Uthald hans er hins vegar ekki komið i sem bezt horf — hann var áberandi þyngri i hreyfingum i seinni hálfleiknum og þær snöggu hreyfingar sem Finnarnir höfðu ekkert svar átt við i fyrri hálf- leiknum, hurfu að mestu. Undirritaður var búinn að spá því að FH-ingar yrðu um miðju 1. deildar keppninnar i vetur, en líklegt er aó FH-ingar verði ekki langt frá toppnum að þessu sinni, eins og svo oft áður. Þrátt fyrir að áberandi veikleikar séu i liðinu — m.a. skortir það langskyttur, en heildarsvipur liðsins og liðs- vinnan með ágætum og vörn FH- liðsins i leiknum á laugardaginn virkaði mjög heilste.vpt, vann vel og hafði góðar hreyfingar. Mun það örugglega styrkja liðið mikið að Auðunn Oskarsson nálgast nú sitt gamia form, og eins ef Sæmundur Stefánsson hefur æfingar af krafti, en báðir þessir leikmenn eru framúrskarandi varnarmenn. Auk Geirs Hallsteinssonar reyndist Janus Guðlaugsson og Guðmundur Arni Finnunum erfiðir á laugardaginn, svo og Þórarinn Ragnarsson, sem er þó áberandi þyngri en hann var i fyrra. Þessir fjórir leikmenn skor- uðu 23 af 29 mörkum í leiknum. Hjá finnska liðinu vaki frammi- staða leikmanns nr. 15. Kari Lehtolainens, einna ■ mesta athygli, en hann ef elzti og leik- reyndasti maður félagsins og kunnáttumeiri en flestir félaga hans. Vert er að geta sérstaklega frammistööu hinna dönsku dóm- ara leiksins. Þar voru á feröinni rnenn sem kunnu sitt fag, og að mati undirritaðs sýndu þeir framúrskarandi dómgæzlu. Leyfðu hæfilega mikiö og griptt inn í leikinn af ákveðni þegar þess gerðist þörf. ógnaði að vörn þeirra og fékk oftast tvo menn á móti sér, en sendi síðan Jack Charlton — fær nú það hlut- verk að rífa Sheffield Wed upp. Sjá „í stuttu máli“ bls. 23. Eftir að hafa horft að leik FH og finnska liðsins Kiffens í Evrópukeppni bikarhafa í hand- knattleik í tþróttahúsinu í Hafnarfirði á laugardaginn sann- færðist maður um að sterkasti leikur Kiffens í þessari keppni hefði verið að gefa leiki sína, svo sem félagið reyndar áformaði. Stjórn Evrópusambandsins leyfir hins vegar ekki að leikir séu gefn- ir og því fara ba'ði FH og finnska liðiö með mikiö fjarhagslegt tap út úr fyrstu umferðinni og ha*tt er líka við að finnska liöið fari einnig með niðurlægjandi ósigur, 13—29. Reyndar er seinni leikur liðanna eftir og fer hann fram á heimavelli Kiffens. Vafalaust stendur liðið sig eitthvað betur þar, en mikiö má samt vera ef FH-ingar vinna ekki góðan sigur í þeim leik. Hafnfirðingarnir eru einfaldlega mörgum gæðaflokk- um betri en finnska liðið og þurfa ekki að ná neinum stjörnuleik til að vinna stórt. Miðaö við hérlend lið er Kiffen sem sæmilegt 2. deildar liö. eða ef til vill tæplega það. Oft var sem leikmenn liðsins væru byrjendur i handkanttleiksíþróttinni — kynnu ta*plega að kasta og gripa. og ber frammistaða og kunnátta liósins finnskum handknattleik ekki fagurt vitni. Þetta lið er finnskur bikarmeistari og háði --------------------------------- Texti:Steinar J. Lúðvíksson Mvndir: Kristinn Olafsson. V_____________________________ J harða baráttu við annað félag um finnska meistaratitilinn í fyrra og í þvi eru hvorki fleiri né færri en 10 finnskir landsliðsmenn! Það eina sem unnt er að hrósa finnska liðinu fyrir var barátta, en hún nægir þó skammt þegar engin kunnátta er fyrir. Hefði t.d. ekki verið skynsamlegt fyrir Finnana að reyna aö halda knett- I IDrúttlr | CHARLTON TIL SHEFFIELD WED FHFER MEÐ16M0RKI NESTITIL FINNLANDS Kiffen var auðveld bráð ákveðinna Hafnfirðinga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.