Morgunblaðið - 23.11.1977, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 23.11.1977, Blaðsíða 30
30 .......i------------------------------- MORGUNBLAÐJÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. NÖVEMBER 1977 Getraunaþáttur Morgunblaösins: NU VERÐUR UT- VARPINU SKÁKAÐ HERMANN Gunnarsson, (þróttafréttamaður útvarpsins, skákaði öllum helstu opin- berum tippurum fslands og Englands f fyrsta getraunaþætti Morgunblaðsins, sem hóf göngu sína í síðustu viku. Var Hermann með 8 rétta og var því sigurinn frekar magur. Um árangur Mbl. er það að segja, að varla verður erfitt að gera betur í þetta sinn og framvegis. Við vorum þó ekki aftastir á merinni. Það sæti skipa Sunday People og Alþýðublaðið og var árangur þeirra slikur, að það voru mikil mistök að titla tippara þeirra blaða sérfræðinga í blað- inu i síðustu viku. Þeir höfðu alls 3 rétta hvort biað og settu þau svartan blett á Getraunaþáttinn. Seðillinn er að þessu sinni mjög erfiður, en menn ættu ekki að örvænta, því undir slíkum kringumstæðum, stendur Mbl. sig oftast best. Arsenal — Derby 1. Arsenal er ósigraðir á heima- velli. Og treystum við því, að liðið haldi sinu striki gegn liði Derby, sem á misjöfnu gengi að fagna þessar vikurnar. Aston Villa — Neweastle 1. Um spána fyrir þennan leik, á ekki að þurfa að fjölyrða. Bristol City — Middlesbrough x. Bristol-liðið hefur verið að taka sig á undanfarið og er auk þess ávallt vandsigrað á heimavelli. Boro er óútreiknanlegt lið og til alls liklegt. Því tippum við á jafn- tefli. Everton — Coventry x. Bæði þessi lið eiga nú geysilega langa sigurgöngu að baki og spáum við, að hvorug umræddra sigurgangna taki enda. Gerum við það ef vera skyldi að leikmenn liðanna læsu Getraunaþáttinn. Leicester — Liverpool x. Liverpool gengur illa um þessar mundir, en Leicester hefur verið heldur að hressast undanfarið. Spáin er jafntefli, því að Liver- pool er ávallt vandsigrað. Norwich — Birmingham 1. Norwich eru geysisterkir og ósigraðir á heimavelli og sjáum við ekki fram á nokkra breytingu á því að þessu sinni. Nottingham Forest — WBA 1. Leikur þessi verður ugglaust jafn og spennandi, en spá okkar er sú að Forest bæti einum sigrin- um enn í sarpinn. Manchester City — Chelsea 1. Þrátt fyrir sæmilegt gengi Chelsea undanfarið, ætlum við að tippa á heimasigur, því að á heimavelli, er Manchester-liðið oftast sterkt. QPR — Manchester Utd x. Lundúnaliðið hefur náð þokka- legum árangri undanfarið ef frá er talið stórtap þeirra á laugar- daginn var. United hefur sótt í sig veðrið, eftir afleitan kafla og telj- um við því jafntefli rökréttast, hvað sem öðrum kann að þykja. West Ham — Leeds 2. WH á enn eftir að vinna sinn fyrsta leik á heimavelli og teljum við, að illsigranlegt lið. Leeds verði ekki fyrsta liðið til að falla á Upton Park. Wolves — Ipswich x. Ipswich hefur ekki unnið leik á útivelli það sem af er, en gert nokkur jafntefli. Ulfarnir eru af- ar misjafnir og þorum við því ekki að tippa á heimasigur. Jafn- tefli. Bolton — Tottenham x. Hér mætast efstu liðin í annarri deild og vegna mikilvægi leiksins, teljum við, að hvorugt liðanna muni hætta á neitt og leiknum því lykta með jafntefli. — gg. Blikarnir nú efstir í 3. deild BREIÐABLIK úr Kópavogi hefur tekið forystuna I 3. deildinni I handknattleik. Vann Ifðið Njarð- vfkinga á laugardaginn með 20 mörkum gegn 15, en I leikhléi var staðan 8:6 UBK I vil. Leikurinn fór fram I hinu nýja og glæsilega íþróttahúsi í Mosfellssveit, en þangað hafa Blikarnir flutt heimaleiki sína f 3. deildinni. A undan leik UBK og UMFN léku Afturelding og Haukar vin- áttuleik og var mjótt á mununum allan tfmann, en Haukar höfðu þó vinninginn f lokin. Furðuðu áhorfendur sig á þvf hve lítill munur virtist á liðum úr 1. og 3. deild f þessum leik. Handknatt- leiksdeild ÍR AÐALFUNDUR Handknattleiks- deildar ÍR verður haldinn næst- komandi föstudag, 25. nóvember, og hefst klukkan 20 í félagsheim- ilinu að Arnarbakka 2. Venjuleg aðalfundarstörf. Getrauna- spá Mbl. Morgunblaðið •© 1 X? 3 *© JQ. < 2 38 JO bC co Q 2 a u 01 > C >o CZ) Tíminn Útvarpið Vfsir c c "> 3 A Sunday Mirror Sunday People Sunday Express News of the world Sundav Telegraph SAMTALS 1 X 2 Arsenal — Deby 1 i 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 13 0 0 Aston V. — Newcastle 1 1 I 1 1 1 X 1 1 1 1 1 1 12 1 0 Bristol — Middlesbrough X X 1 1 X 1 X 1 X X 2 X X 4 8 1 Everton — Coventry X i X 1 1 1 1 1 1 X X 1 1 9 4 0 Leicester — Liverpool X 2 X 2 1 X 2 X 2 2 2 X 2 1 5 7 Man.city — Chelsea 1 I 1 1 1 X 1 1 1 I 1 1 1 12 1 0 Norwich — Birm.ham 1 1 X 1 X 1 X 1 1 1 1 1 I 10 3 0 N. Forest — WBA 1 X 2 1 X 1 2 1 1 1 1 I 1 9 2 2 QPR — Man. Utd. X 2 2 1 2 2 X 1 1 1 X X X 4 5 4 West.H. — Leeds 2 2 X X 1 X 1 2 X 2 X 1 X 3 6 4 Wolves — Ipswish X X X X 1 X 1 X 1 X 2 X X 3 9 1 Bolton — Tottenh. X X 1 1 1 X 2 X X 1 X X X 4 8 1 HoMó krokkor! Hver haldiði að sé að svamla í jólabókaflóðinu? Já, það er ég, PÁLL VILHJÁLMSSON. Algjörlega ósyndur maðurinn. Maður getur ekki einu sinni hrokkið í — nei, haldið sér í kút. Ef ykkur er ekki alveg sama um mig, verðiði að kaupa mig í hvelli. Annars bara sekk ég. Globb . . . globb....bb. Sko, þið farið í næstu bókabúð og segið: Er til bókin PÁLL VILHJÁLMSSON eftir Guðrúnu Helga- dóttur? Þá segir búðarfólkið kannski: Er það sú sem skrifaði JÓN ODD OG JÓN BJARNA og í AFA- HÚSI? Einmitt, segið þið. Þið getið líka gert annað: Biðjið mömmu ykkar eða pabba, afa eða ömmur frænkur og frændur að gefa ykkur bókina í jóla- gjöf. Krafan er: harðan pakka í ár. Ég rígheld mér í bakkann á meðan . . . globb. Ykkar P.s. Munið að þakka fyrir ykkur Bræðraborgarstíg 16, Sími 12923-19156 AUGLYSINGATEIKNISTOFA MYNDAMÓTA Aðalstraeti 6 sími 25810

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.