Morgunblaðið - 04.03.1978, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. MARZ 1978
Systir okkar, + SIGRÍÐUR ÁRMANNSDÓTTIR,
lést að morgni 1 marz i Hrafnistu
Jón J. Ármansson, Þorvaldur Ármansson, Gunnar Ármansson, Ásgeir Ármansson.
+
Eiginkona mín,
DAGBJÖRT VILHJÁLMSDÓTTIR,
Austurgötu 33,
Hafnarfirði,
andaðist að morgni föstudags 3 marz á St. Jósefsspítala, Hafnarfirði
Fyrir hönd ættingja
Jón Eiríksson.
Móðir okkar, + KRISTÍN VILHJÁLMSDÓTTIR,
lést að Hrafnistu marz s.l
Fyrir hönd annarra vandamanna.
Guðrún S. Jóhannsdóttir, Benedikt B. Blondal
+ Maðurinn minn og faðir, LUÐVÍK EINARSSON. andaðist I Landakotsspitala 28 febrúar Gyðríður Jóhannsdóttir, Jóhanna Lúðviksdóttir.
Elskulegur eiginmaður minn, ^ INGIMAR GUÐJÓNSSON, Ásvegi 1 5, Reykjavik, sem lést 25 febrúar, verður jarðsunginn mánudaginn 6 marz kl 3 frá Fossvogskirkju. Þeim, sem vildu minnast hins'látna er bent á Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra Fyrir mina hönd, foreldra, tengdaforeldra, systkina, barna hins látna og annarra vandamanna Rósa Halldórsdóttir.
+ Faðir okkar, tengdafaðir og afi, STEFÁN GUÐJÓNSSON, Eiðsvallagötu 30, sem andaðist á Frjórðungssjúkrahúsi Akureyrar 26. febrúar s 1 verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju mánudaginn 6 marz n.k kl 1 3.30 Hreiðar Stefánsson, Jenna Jensdóttir, Hermfna Stefánsdóttir, Hreiðar Aðalsteinsson, Sigurlína Stefánsdóttir, Einar Árnason, Rósa Stefánsdóttir, og barnabörn.
-
+ Þökkum innilega auðsynda samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar og tengdamóður, BJARGAR E. FINNSDÓTTUR, Miklubraut 70. Friðþjófur H. Torfason, Halldóra Torfadóttir, Högni Torfason, Guðbjörg Guðbjartsdóttir, Ásthildur Torfadóttir, Arnór Þorláksson, Aðalheiður Torfadóttir, Ragnar Ásmundsson. Helga Gunnarsdóttir.
+ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður og ömrrTa, SOFFÍU SIGURJÓNSDÓTTUR. * Ásta Kristinsdóttir, Kristinn Ó. Karlsson, Lilja Kristinsdóttir, Þorsteinn Kristinsson, Dagbjört Torfadóttir. og barnabórn.
Oskar Agúst Sigur-
geirsson — Minning
F. 19. ágúst 1902
D. 22. íebrúar 1978
1 upphafi var orðið,
ok orðið var hjá Guði,
<>K orðið var <>uð,
það var í upphafi hjá Guði.
Allir hlutir eru xjörðir fyrir það,
ok án þesa varð ekkert til, sem til er orðið.
í því var iíf.
ok Iífið var Ijós mannanna,
ok Ijósið skín í myrkrinu.
ok myrkrið hefur ekki tekið á móti því.
Dauðinn er ekki endalok, held-
ur upphaf nýs lífs. Lækning er
fengin og ljós hins nýja lífs blasir
við.
Oskar Agúst Sigurgeirsson var
fæddur í Reykjavík þann 19.
ágúst 1902. Hann var fyrra barn
hjónanna Ingibjargar Sigurðar-
dóttur, Jónssonar á Byggðarenda
við Frakkastíg í Reykjavík og
+
Sonur okkar, bróðir, mágur og frændi,
ARELÍUS VIGGÓSSON,
sem lézt 1 9 febrúar s I var jarðsunginn frá Fossvogskirkju 27 febrúar
s.l.
Þökkum innilega auðsynda samúð og vinarhug I okkar garð
Viggó Brynjólfsson,
Ardis Arelíusdóttir og fjölskylda,
Bogabraut 18, Skagaströnd.
+ Amma mín, GUÐBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR, sem andaðist 26 þ m verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, mánu- daginn 6 mars kl 1 0.30 Fyrir hönd aðstandenda, Leó Kristjánsson.
+ Pökkum innilega auðsýnda samúð við andlát oq útför. JÚLÍÖNU S. GUÐMUNDSDÓTTUR, áður Nönnustíg 13, Hafnarfirði. F,h tengdabarna og barnabarna Börnin.
Innilegar. þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andfát og
jarðarför,
ELÍNBORGAR BENEDIKTSDÓTTUR,
Vesturgötu 56,
Sigríður Kristjándsóttir.
+
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts móður okkar og
tengdamóður,
SIGURBJARGAR EINARSDÓTTUR.
Ásmundur Einarsson,
Anna Einarsdóttir, Sigurður E. Garðarsson,
Hildur Einarsdóttir, Egill Ágústsson.
+ Innilegar þakkir til allra er sýndu hlýhug og samúð við andlát og útför
föður okkar, tengdaföður og afa,
PETRUS B. GUÐMUNDSSONAR,
fyrrum bónda Laxnesi,
Mosfellssveit
Drífa Pétursdóttir, Pétur Þór Gunnarsson.
Kristný Pétursdóttir, Gunnar Jón Sigurjónsson,
Fríður Pétursdóttir, Hjalti Jakobsson,
Hreiðar Pétursson, Hugrún Kristjánsdóttir,
Gunnar Pétursson, Ragnheiður Kristjánsdóttir,
Guðmundur Pétursson, Anna Jónsdóttir,
PéturH. Pétursson, Kristjana Kristjánsdóttir,
og barnabörn.
+
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför eiginmanns mins. föður,
tengdaföður og afa,
SIGURLAUGS BJARNASONAR,
Ragnheiðarstöðum,
sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á gjörgæsludeild og
lyflæknisdeild 3B Landsspitalans
Guðlaug Hinriksdóttir,
Sæunn Sigurlaugsdóttir, Helgi Guðmundsson,
Sigriður Sigurlaugsdóttir, Ásmundur Guðmundsson,
Júlíanna Sigurlaugsdóttir, Valdimar Guðmundsson,
Bjarney Sigurlaugsdóttir, Pétur Hermansson,
Hinrik Sigurlaugsson, Guðmundur Sigurlaugsson,
Karitas Sigurlaugsdóttir. Árni Sigurlaugsson.
og barnabörn.
Sigurgeirs Sigurðssonar, Þórðar-
sonar í Steinhúsinu í Reykjavík.
Sigurður Þórðarson var einn
hinna svokölluðu Hólsbræðra.
Þriggja ára að aldri missti
Óskar móður sína. Hún dó af
barnsburði af öðru barni, sem var
drengur. Hann var skírður Ingi-
berg og var tekinn í fóstur af
bróður Ingibjargar, Ólafi, og
konu hans, Sigríði Rósu. Ingiberg
lést sautján ára gamall. Amma
Óskars, Þórkatla Ólafsdóttir, og
Sigurður Jónsson á Byggðarenda
tóku hann þá að sér og var hann
hjá þeim í nokkur ár éða þar til
amma hans andaðist. Þá fór hann
til afa síns og ömmu í Steinhús-
inu, Sigurðar Þórðarsonar og
konu hans Margrétar. Allir voru
þeir sjómenn, faðir hans og afar.
Eftir nokkurn tíma kvæntist
faðir Óskars í annað sinn, Guð-
rúnu Ólafsdóttur, sem var sjó-
mannsekkja. Sigurgeir var þá
formaður á fiskibátnum Hrólfi.
Gæfan entist þó ekki lengi, því
Hrólfur fórst í ofsaveðri úti af
Vestfjörðum vorið 1916. Vika var
þá til fermingar Óskars og stóð
þá drengurinn uppi föður- og
móðurlaus. Stjúpa hans reyndist
honum vel og átti hann öruggt
athvarf hjá henni.
Tólf ára að aldri fór Óskar í
fyrsta róðurinn og varð sjórinn
starfsvettvangur hans ávallt síð-
an..Jirið 1920 lauk Óskar fiski-
skipstjóraprófi frá Stýrimanna-
skólanum í Reykjavík og hinu
almenna stýrimannaprófi 1922.
Einnig lauk hann námi í gufu-
vélafræði sama ár. Arið 1927 hóf
Óskar störf hjá Eimskipafélagi
íslands og starfaði þar til 1968 að
hann lét af störfum sakir aldurs.
Óskar stundaði því sjóinn í 54 ár,
þar af 38 ár hjá Eimskipafélag-
inu. Fyrst starfaði hann sem
háseti á gamla Brúarfossi og
síðan stýrimaður og skipstjóri á
hinum ýmsu skipum Eimskipafé-
lagsins. Síðast var hann skip-
stjóri á m/s Brúarfossi. Hann
sigldi öll stríðsárin og kunni frá
mörgu að segja frá þeim tíma.
Óskar flutti mál sitt á þann hátt
að frásögnin varð ljóslifandi og
hrífandi, enda vandaði hann
málfar sitt svo af bar.
Árið 1931 gekk hann að eiga
Þórdísi Guðmundsdóttur, Gísla-
sonar skipasmiðs, Vesturgötu 30
í Reykjavík. Eignuðust þau Óskar
tvær dætur: Margréti, gifta Jens
Jónssyni, málarameistara, og
eiga þau þrjú börn, og Sigrúnu,
gifta Sigurði Albert Jónssyni,
forstöðumanni Grasagarðs
Reykjavíkurborgar, og eru börn
þeirra einnig þrjú. Þórdís andað-
ist 1972.
Þau hjónin bjuggu lengst af á
Hörpugötu 8 og bjó Þórdís honum
fallegt heimili, enda undi hann
sér vel heima, þegar í land var
komið. I frístundum hafði hann
gaman af lestri góðra bóka. Eitt
hjartans áhugamál hans var að
mála myndir og við það gleymdi
hann oft stund og stað. Austur
við Álftavatn reistu þau hjónin
sér fallegt sumarhús þar sem þau
áttu margar góðar stundir í
snertingu við náttúruna.
Með Óskari er genginn eftir-
minnilegur maður. Dætrum,
tengdasonum og barnabörnum
flytjum við bestu samúðarkveðj-
ur okkar. E.S., Ó.S.