Morgunblaðið - 09.09.1978, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1978
33
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
ny n
aðeins til að þjóna drápsfýsn sinni.
Sem betur fer eru vötn hér á
landi enn ekki svo menguð, að
fiskur sé ekki neysluhæfur, en ég
býst við, að innræti íslenskra
sportveiðimanna sé hið sama og
annarstaðar gerist.
Það er þetta hugarfar, sem
þyrfti að mildast. Og ef breyting
yrði í lífstefnuátt, eins og svo mjög
er þörfin á, mundi mildi koma í
stað harðýðgi og ónauðsynlegt
dýradráp mundi þá leggjast niður
og heyra fortíðinni til.
Án hugarfarsbreytingar verður
ekki komist á sanna framfaraleið
og farsæl framtíð verður ekki án
bættra lífsambanda. íslensk þjóð
gæti hér orðið fyrst til að móta þá
stefnubreytingu, sem duga mætti
•til farsælla lífs, til handa öllu lífi
jarðar, bæði mönnum og dýrum.
Ingvar Agnarsson
• Tilkynning
Hinn 3.9. 1978 kom ég inn í
Hressingarskálann því að þar kem
ég oft og ég ætlaði að fá mér kaffi
sem ég geri einnig oft. Ég gekk
beina leið inn á herrasnyrtinguna
því að þar þurfti ég að koma við
áður en ég pantaði kaffi. Þegar ég
kom inn á snyrtinguna leit ég inn
á klósettin og sá að þar var enginn
pappír. Ég gekk í átt til aðalsalar
en þegar ég kem að lengsta borði
næst aðalsal, er stendur í endan-
um á gangingum frá salerni,- þá
var mér litið í hornið á því borði.
Þar situr maður nokkuð stórvax-
inn einn við borð. Ég vatt mér að
manninum, kynnti mig og spurði
hvort hann væri veitingamaðurinn
en hann kynnti sig ekki en spurði
mig hvers vegna ég spyrði. Ég
tjáði honum þá að það væri enginn
pappír á klósettunum og spurði
hvort það væri enginn sem sæi um
að hirða þar. Stóri maðurinn stóð
upp, tók undir handlegg mér og
leiddi mig að útidyrunum. Hann
opnaði dyrnar en ýtti mér ekki út.
Hann hafði þau ummæli við mig
að menn sem koma beint af
götunni hefðu ekkert að gera þar
inni. Þar sem maðurinn snerti ekki
við mér frekar gekk ég beina leið
inn í aðalsalinn og pantaði kaffi
sem ég fékk mjög fljótt og færði
mér það ung og fögur stúlka
bráðkurteis. Ég veit nafn hennar
en birti'það ekki.
Sveinn Sveinsson
Sólvallagötu 3.
íyrrverandi veitingamaður en
vinnur nú á vinsælasta veitinga-
stað horgarinnar.
• Vísukorn
Velvakanda hefur borist vísa
þessi og er hún ort í kringum
kosningarnar í vor:
Hástöfum ef víða vellir
vitur telstu af almúga
en þann sem harðast hurðum
skellir
hylla skal sem foringja.
Velvakandi þakkar fyrir vísuna
og ef einhverjir fleiri eiga vísur í
fórum sínum um sama efni væru
þær vel þegnar eins allar aðrar
vísur sem okkur eru sendar en
munið eftir að gefa okkur upp
nafn.
Þessir hringdu . . .
• Óvirðing
Selma Þorvaldsdóttiri
í sumar hefur oft verið gott
veður og þá hef ég oft farið niður
í bæ. Það hryggir mig mjög þegar
ég sé þjóðfána fyrir utan verzlanir,
t.d. Rammagerðina, hvað þeir eru
skítugir. Það er varla hægt að sjá
litina í þeim fyrir óhreinindum.
Mig langar mjög til að koma því
á framfæri hvort ekki væri hægt
að laga þetta og hreinsa fánana.
Þetta er mjög leiðinlegt fyrir
útlendingana sem koma hingað.
Þessar þjóðir taka svo vel á móti
EF ÞAÐ ER
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
okkur Islendingum þegar við er beinlínis móðgun við þessar
heimsækjum þeirra lönd að þetta elskulegu þjóðir.
HÖGNI HREKKVÍSI
„Viltu vinsamlegast ekki reykja á meöan að hann
er að borða!“
Myndiistaskólinn í Reykjavík
flytur nú í nýtt húsnæði að Laugavegi 118.
Kennsla hefst 9. október.
Börn og unglingar:
5—7 ára mán. og fimmt. kl. 10—11.30
Kennari, Björk Einarsdóttir.
5—7 ára þriö. og föst. kl. 13—14.30
Kennari, Katrín Briem.
Blandaður aldur 5—10 ára þrið. og föst. kl. 10—11.30
Kennari, Katrín Briem.
8—11 ára mán. og fimmt. kl. 15—16.30
Kennari, Sólveig Helga Jónasdóttir.
10—12 ára þriö. og föst. kl. 15—16.30
Kennari, Borghildur Óskarsdóttir.
8—11 ára miö. kl. 15—16.30 og laug. kl. 10—11.30
Kennari Sigrún Gunnlaugsdóttir.
10—12 ára miö. kl. 17—18.30 og laug. kl. 12—13.30
Kennari, Sigrún Gunnlaugsdóttir.
Unglingar 13—16 ára mán. og fimmt. kl. 17—18.30
Kennari, Katrín Briem.
Unglingar 13—16 ára þriö. og föst. kl. 17—18.30
Kennari, Margrét Friðbergsdóttir.
Unglingar 13—16 ára þriö. og föst. kl. 19—20.30
Kennari, Valgeröur Bergsdóttir.
Unglingar 13—16 ára miö. kl. 19—20.30 og laug. kl.
14—15.30
Kennari, Björk Einarsdóttir.
Skólagjöld í barna og unglingadeildum er kr.
22.000 - tímabiliö 9. okt. ‘78—27. jan. ‘79. Allt
efni er innifaliö (leir, glerungar, pappír, dúkur og
fleira.)
Ath. Við veitum 10% systkinaafslátt.
Fullorðinsdeildir
Teiknun fyrir byrjendur (hlutateikn.) mán. og fimmt.
kl. 20—22.15
Kennari, Hilmar Helgason. Verö kr. 26.000.-
Teiknun fyrir byrjendur (hlutateikn.) þriö. og föst. kl.
20—22.15
Kennari, Lísa Guðjónsdóttir. Verö kr. 26.000.-
Modelteikn. fyrir byrjendur, mán. og fimmt. kl.
17.30—19.45
Kennarar, Guörún Svava Svavarsdóttir og Hilmar
Guöjónsson. Verð kr. 33.000.-
Modelteikn. mán. og fimmt. kl. 20—22.15
Kennari, Hringur Jóhannesson. Verö kr. 33.000,-
Modelteikn. þriö. og föst. kl. 17.30—19.45
Kennari, Jón Þ. Kristinsson. Verö kr. 33.000 -
Modelteikn. þriö. og föst. kl. 20—22.15
Kennari Hringur Jóhannesson. Verð kr. 33.000.-
Framhaldsdeild, laugardaga kl. 10—15.15
Kennarar Baltasar, Hringur Jóhannesson og Magnús
Pálsson
Þessi deild er ætluö fólki meö teiknimenntun.
Verö kr. 33.000.- (7. okt.—20. jan)
Höggmyndadeild mánud. kl. 17—22.15 og model-
teikn 1 sinni í viku eftir vali.
Kennarar Hallsteinn Sigurösson, Helgi Gíslason og
Ragnar Kjartansson.
Verð kr. 42.000-
Höggmyndadeild miövikud. kl. 17—22.15 og model-
teikn 1 sinni í viku eftir vali.
Kennarar Hallsteinn Sigurðsson, Helgi Gíslason og
Ragnar Kjartansson.
Verö kr. 42.000-
Ath. Allar deildir miðast við tímabilið 9. okt.
‘78—27. jan.‘79. Innritun fer fram í skólanum á
gamla staönum
Mímisvegi 15 Ásmundarsal
kl. 9—12 og 13.30—18.30 alla daga nema
laugardaga, sími 11990.
Skólagjöld greiðist við
innritun.
Málaradeildir veröa auglýstar síöar.
Myndlistaskólinn í Reykjavík býður ykkur
velkomin í nýtt húsnæöi aö Laugavegi 118.
Skólastjóri.