Morgunblaðið - 21.09.1978, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1978
7
„Dalakofa-
sósíalismi"
Alþýöubanda-
lagsins
Réttur er undarlegt
tímarit meö skrýtnum
skoðunum. Þaö er eins
og Þá, sem í Þaö skrifa,
hafi dagað uppi hug-
myndafræöilega séð fyrir
mörgum áratugum. Þótt
par sé stööugt fjallaö um
Þjóðfélagsmál, er aldrei
stafkrókur um Það líf,
sem lifað er í landinu. Allt
er meira og minna upp-
stillt, tilgerðarlegt og til-
búið.
Þó er ekki loku fyrir
Það skotið, að maður,
sem skrifar í Rétt, geti
hitt naglann á höfuöið, og
Þaö er einkum Þegar peir
eru aö lýsa hver öðrum
hvítflibbakommarnir:
„Ekki skal ég leyna Því
að mér finnst á stundum
eins og Þaö sé dálítið
reimt í kringum AlÞýðu-
bandalagið og að Þar séu
á sveimi ýmis og ólík
fyrirbæri. Ég Þykist
kenna Þar anarkisma af
margskonar tagi, aftur-
hverfa rómantík, trotsk-
isma og ýmsa gamla
barnaajúkdóma vinstri
hreyfingar. Stundum er
Þar á ferö einskonar
dalakofa-sósíalismi eða
Þá marxisminn í leik-
fangalandi sem skyldar
ekki nokkurn mann til
neins. Um sírenusöng
venjulegs kratisma skal
hér ekki rætt né heldur
afskræmdar vestrænar
útgáfur af sósíalískum
viðhorfum runnum upp á
fjarlægum slóðum og við
gjörólíkar aðstæður.“
Höfundur Þessara um-
mæla er Ásgeir Blöndal
Magnússon, gamall
stalínisti. Hann hefur
gegnum tíðina verið
góður línudansari í hin-
um marxísku fræðum, er
ýmsu vanur en ofbýður
nú svo söfnuðurinn í
Alpýðubandalaginu, aö
hann líkir honum viö
reimleika, skottur og
móra.
Taugaspenna
vegna skatta-
viöaukanna
Jón Sigurösson rit-
stjóri Tímans er hæg-
lætismaður og skrifar oft
vel, Þegar hugur hans er í
jafnvægi.
Og Það er hann til
allrar haimingju oftast.
Nema síðan ný ríkisstjórn
var mynduð og einkan-
lega eftir að efnahags-
ráðstafanirnar voru gerð-
ar.
í forystugrein sinni í
gær fjallar hann m.a. um
tekjuskattsviðaukann og
álagningarmál verzlunar-
innar út frá Því sjónar-
miði, aö Það sé í rauninni
óheiðarlegt, a.m.k. frá
siðferðilegu sjónarmiöi,
að leita réttar síns fyrir
dómstólunum. Hér er
sýnishorn af Þessum
furðuskrifum:
„Um Þessar mundir
bendir margt til pess að
verið sé að draga saman
viðinn að tveimur nýjum
bálköstum frelsísins sem
sjálfsagt er ætlað að lýsa
og ylja Þjóðinni um
stund. Annars vegar er
Þar um að ræða „Við-
reisnarfélag" um verzlun-
arálagningu, en hins veg-
ar Félag „sannra" skatt-
greiðenda.
Og svo sem vænta má
hafa Þeir báðir, Pétur
Þríhross ög Júel Júel
Júel, gengiö fram með
boðskap sinn á síðum
Morgunblaösins aö forn-
um hætti.“
Það er auðvelt fyrir
kálfinn að skvetta úr
klaufunum. Það er líka
ódýr lausn að leysa fjár-
hagsvanda ríkíssjóðs
með pví að leggja á nýja
og nýja skatta, án tillits til
Þess hvort Þeir eru
löglegir eöa ekki.
Skattsvikin
og rauöa
pressan
í Þjóðviljanum í gær er
verið aö reyna að koma
skattsvíkaorðí á gegnan
embættismann fyrir Það
eitt, að honum ofbýður
skattlagningin í landinu.
Þetta er sú aðferð, sem
rauða pressan beitir.
Flestum Þykir ærið aö
láta leggja einu sinni
skatt á sömu tekjurnar.
Nú á að gera Það tvisvar
sinnum og Þá eru tekju-
skattarnir komnir upp í
70%. Ekki kæmi á óvart,
Þótt reynt yrði að næla í
Þessi 30%, sem eftir eru,
með pvi að leggja á í
Þriöja sinn.
Þegar Þannig er komið
aftan að mönnum, reyna
Þeir að verja sig. Óhæfi-
lega há tekjuskatt-
prósenta stuðlar að
skattsvikum. Fyrir pví er
örugg reynsla. Enda er
Þaö af Þeim sökum sem
tekjuskattarnir koma svo
óréttlátlega og misjafn-
lega niöur. Eða hver trúir
Því, aö skattskráin sé
réttur mælikvarði á
peningaráð manna?
stimplun 1
tttt straimur rofni
_ 5000
STIMPILKLUKKA
er kristalstýrd mm
óhád tídni mm
gengur í fimm sólarhringa á
eigin rafgeymi ef straumur
rofnar mmm
ER STIMPILKLUKKA FYRIRl
LAN D5 BYGGÐI N A1
hvetur starfsfólk til stundvisi
</L
SIMF5TIHIEUBII.
C/> ^
---^--3?-----------
Hverfisgötu 33 Sími 20560
Fáksfélagar
Smölun í Geldinganesi, fer fram laugardaginn 23.
sept.
Hestar veröa í rétt kl. 13—15.
Tekið verður í haustbeitarlönd upp á Kjalarnesi
og veröa hestaeigendur sjálfir aö koma hestum
sínum þangaö.
Bílar veröa á staönum til flutninga.
Hestamannafélagiö Fákur
1UDO
Innritun á byrjunarnámskeið
virka daga kl. 13 til 22
í síma 83295.
Japanski þjálfarinn Yoshihiko lura kennir.
Judodeild Ármanns
DflLE GARNEGIE
frá
Hvaða gagn gætir pú haft af pví?
Lítum á nokkrar tilvitnanir
Þátttakendum:
★ ég hef öölast meira hugrekki og og sjálfstjórn og á
auðveldara aö skilja þrar og óskir annarra án
sífelldrar gagnrýni.“ (G.S.)
★ „Ég læröi aö vera ekki meö ótímabærar áhyggjur af
því sem aldrei gerðist og fékk kjar til þess að
standa upp á fundum og segja mína meininu."
(H.G.)
★ „í námskeiöinu öðlaðist ég meira sjálfsstraust og
laeröi aö leysa mín eigin vandamál.” (J.l.)
★ „Ég læröi aö virkja lífskraftinn og námskeiöiö
opnaði fyrir mér nýtt sviö S mannlegum samskpt-
um.“ (H.P.)
★ „Ég læröi aö varpa frá mér biturleika og svartsýni
og taka upp bjartsýna og lifandi afstööu gagnvart
lífinu.“ (J.l.)
Ef þú hefur áhuga á einhverjum þessara kosta og vilt
virkja betur þína eigin hæfileika, þá ráðleggjum viö
þér, aö taka þátt í DALE CARNEGIE NÁMSKEIÐINU.
FJÁRFESTING í MENNTUN GEFUR ÞÉR ARÐ
ÆVILANGT.^r
SIMI82411
Einkaleyfi á Islandi
STJÓRNUNARSKÓLINN
Konráö Adolphsson.