Morgunblaðið - 24.11.1978, Page 2
34
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1978
Rætt við
spákonuna
Amý
Engilberts
Já, ég þykist hafa séð fyrir feigð
í lófum fólks," svarar hún hugsi.
„Þá reyni ég að tala um eitthvað
annað. Ég hef líka séð glæpa-
hneigð í lófum fólks, sem ég þykist.
vita að stundi ekki slíkt atferli.
Undirmeðvitundin mótar línur
lófans. Ég hef lesið í lófa glæpa-
manns sem var nýsloppinn úr
fangelsi og sagði hann mér það
síðar. Einkennin voru svo sterk í
lófa hans að ég var hreinskilin en
þau koma fram í of stuttri
hjartalínu og beinni. „Hvernig
vissuð þér þetta?" spurði hann mig
og tjáði mér síðan að hann hefði
verið tekinn fyrir hvíta þrælasölu.
Jú, ég hef spáð fyrir frægu fólki,
til að mynda gríska söngvaranum
George Mustaki. Helztu einkenni
hans virtust vera frekjuleg frama-
girni, ótrúlegt sjálfstraust og
síngirni. Ég hef séð þessa sömu
eiginleika í lófum fleiri frægra
manna. Auk einstaks næmis sem
virðist slíku fólki oft sameiginlegt
eins og valdasýkin sem kemur
fram í lófum stjórnmálamanna og
lýsir sér í bungu á júpítershæð
undir vísifingri. Langur vísifingur
bendir oft til ofstækis.
Ég skipti lófum í þrjár megin-
tegundir: Verklega hönd, hugsandi
hönd og ástríðufulla hönd. Flestir
hafa blandaðar hendur. Það kom
þó til mín um daginn ung, íslenzk
stúlka með sérstaka hönd, svokall-
aða Venusarhönd. Er það í eina
skiptið sem ég hef séð slíka hönd í
raunveruleikanum. Venusarhönd-
Amý flettir í bók um
lófalestrarfræði.
in er tákn kvenhandarinnar full-
komnu eins og nafnið bendir til.
í París hef ég stundum verið
fengin til þess að fara í líkhús og
lesa úr lófum látins fólks. Það er
óþægilegt að horfa í hendur á
líkum en þremur dögum eftir lát
fólks mást línurnar úr lófum þess.
Ástæðan fyrir að ég hef verið
beðin um þetta er sú að ættingjar,
yfirleitt eftirlifandi makar hafa
viijað forvitpast um fortíð hinna
látnu.
Eftirminnilegustu lófarnir eru
hendur geðveiks fólks og mongóla.
Þunglyndi og geðveilur koma fram
á greindarlínunni. Hjá mongólum
renna greindar- og hjartalínan
saman við líflínuna, alveg eins og í
höndum apa. Rannsóknir á
simpönsum hafa m.a. leitt í ljós að
þeir geta ekki þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir náð meiri þroska en
tveggja til þriggja ára barn.
Hjá Hitler endaði greindarlínan
Þannig lítur þá stjörnu-
kort út. Þetta er kort
Amý sjálfrar gert af
einum frægasta stjörnu-
spekingi Frakka nú á
dögum, Pauletta Bigot.
í einhvers konar eyju, sem bendir
til að slíkt fólk endi ævi sína farið
á vitsmunum. Ur lófa Stalíns
mátti lesa að hann var ósveigjan-
legur, klókur en gæddur
diplómatískum hæfileikum í rík-
um mæli þótt svo kölluð árangurs-
lína í lófa hans sýndi misgjörðir.
Stutt hjartalína hans benti til
kulda og hörku ög önnur tákn í
lófanum til vonbrigða í einkalífi.
Það er mjög auðvelt að greina
tilfinningalegt ástand fólks með
lófalestri, sérstaklega kvenna. Það
gleður mig mest þegar ég sé
tilfinningalegt jafnvægi en það
kemur fram i öllum línum lófans
— og er fremur sjaldgæft," bætir
hún við.
„Þann dag er
lífiðekki
lengur til“
„Undanfarin ár hef ég fengið
sífellt meiri áhuga á stjörnuspeki,
sem er eldgömul fræðigrein upp-
runnin frá Mesopótamíu. Ég var
við nám í stjörnuspeki hjá
Pauletta Bigot. Hún þykir færasti
stjörnuspekingur Frakka og gerði
fyrir mig þetta stjörnukort," segir
Ámý og sýnir okkur umrætt kort,
sem hún segir mjög vandasamt
verk að vinna. „Astrólógían er
mjög vandmeðfarin fræðigrein. Til
að útbúa stjörnukort einstaklinga,
þarf nákvæma tímasetningu á
fæðingarstund viðkomandi, því
afstaða himintunglanna breytist á
fjögurra mínútna fresti.
Ég hef mikinn áhuga á stjörnu-
spekinni sem lófalestrinum
vísindalega séð en spái fyrir fólki
til að hafa í mig og á. Ég hef spáð
fyrir alls konar fólki og af mörgu
þjóðerni. Trúðu mér, það hafa allir
áhuga þegar röðin kemur að þeim
sjálfum.
Þó hefur mér fundist erfitt að
spá fyrir löndum mínum. Islend-
ingar eru flestir það lokaðir.
Stundum situr fólk og starir bara
á mig, óttaslegið um að ég sé að
hnýsast í einkamál þess. Eipstöku
sinnum hef ég þó getað glatt fólk
með lófalestrinum eða gefið því
einhverja von ef þannig var ástatt.
Lófalesturinn dregur samt úr mér
heilmikla orku og að kvöldi er ég
yfirleitt spennt og æði í bíó, ef ég
hef spáð allan daginn. Slík hefur
ösin verið hjá mér síðan ég kom
heim síðastliðið sumar.
Konur eru alltaf í meiri hluta
þeirra sem til mín koma. Spádóm-
ar hafa alltaf fylgt konunni enda
hrífst hún oft meira af því
dularfulla. Forvitnin er manninum
í blóð borin og þann dag sem fólk
hættir að hafa áhuga á því
óþekkta — ja,“ segir Amý og
hugsar sig um, „ja, þann dag er
lífið ekki lengur til.“
- II.Þ.
Vetrarfundur
Sambands
ísl. rafveitna
Vetrarfundur Sambands
íslenskra rafveitna verður haldinn
í ráðstefnusal Hótels Loftleiða
dagana 27. og 28. nóvember
næstkomandi.
Á fundinum flytja ávörp Aðal-
steinn Guðjohnsen, formaður SÍR,
og Hjörleifur Guttormsson iðn-
aðarráðherra. Ymis erindi verða
flutt á fundinum. Jóhannes Nordal
stjórnarformaður Landsvirkjunn-
ar talar um stöðuna og horfur í
orkumálum, Þorvaldur Garðar
Kristjánsson alþingismaður flytur
erindi um tillögur skipulagsnefnd-
ar orkumála og Haukur Pálmason
yfirverkfræðingur talar um verð-
lagningu á raforku. Auk þess
flytur Kristján Jónsson rafmagns-
veitustjóri stutta skýrslu um
samanburð á beinni rafhitun og
fjarvarmaveitum.
Keflavík:
Basar Kristniboðsfélagsins
ÁRLEGUR basar Kristniboðsíélagsins í Keflavík verður haidinn í
Tjarnarlundi laugardaginn 25. nóvember og hefst kl. 3. Þar verður
ýmislegt á boðstólum og allt selt á vægu verði.
öllum ágóða af basarnum verður varið til kristniboðs, eins og venja
er, en íslcndingar reka nú kristniboð bæði í Eþíópíu og Kenýa.
Kvígur á Hvalfjarðar-
strönd lítilsvirða símann
Hvanneyri, 15. nóvember
1978.
Símasamband hefur verið
heldur slæmt á Ilvalfjarðar-
strönd undanfarin ár, en nú s.l.
sumr keyrði um þverbak.
Þannig er að siminn liggur á
jörðinni á svokölluðum
Brennumel þar sem unnið er
við að reisa spennuvirki tengt
raflínu til Grundartanga og
byggðarlínu norður í iand.
Þegar starfsmenn þar hafa
farið í helgarfrí koma kvígurn-
ar hans Sveins í Kalastaðakoti
og ef til vill víðar að trúlega til
þess að kynna sér fram-
kvæmdir.
Kvígurnar eru ekki sérlega
nettar, frekar þungstígar. Þá
má búast við því að skilningur
þeirra á þeirri þörf landssímans
að láta símalínurnar liggja á
jörðinni sé takmarkaður. Þetta
hefur valdið því að símasam-
bandslaust hefur verið óeðlilega
oft yfir helgar og fram á
mánudag því viðgerðarmenn
landssímans gera ekki við
sveitasíma um helgar (ef til vill
ekki aðra heldur).
Það er einlæg von manna að
nú þegar vetur sest að verði
símasamband betra. Kvígurnar
verða þá teknar í hús og,
starfsmenn landssímans reyna
ef til vill að koma línunum upp í
loftið eða niður í jörðina.
Ófeigur.