Morgunblaðið - 24.11.1978, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1978
37
Frá kaupsýslumönnum
Milljón prósent menn er saga
íslensks kaupsýslumanns, heild-
salans Engilberts Ármannssonar.
Hér er sagt frá dæmigerðum
ævintýramanni og bóhem sem
eignast stórt fyrirtæki og verður
einn af ríkustu mönnum landsins.
Ungan dreymir hann framtíðar-
drauma, sættir sig ekki við að vera
búðarloka og yfirgefur skerið. Frá
Kaupmannahöfn fréttist það af
honum að í félagi við landa og
skáld hafi hann selt Heklu fyrir
þúsund krónur danskar og sé
kallaður Prinsen af Island. I öðru
bréfi frá honum til foreldra og
systkina kveður við annað hljóð.
Hann biður um aðstoð, segist ekki
hafa nóga peninga og vera stund-
um kalt. Bréfinu fylgir mynd af
honum þar sem hann stendur
„alskeggjaður úti á Winnipegvatni
klæddur í götótt strigaföt með
niðursuðudósir á fótum. Hann var
að dorga niður um gat á ísnum“.
Kjartan, hinn jarðbundni bróðir
Engilberts, biður fjölskylduna að
hafa ekki áhyggjur „af þessu
knekti" og heldur áfram: „Hann
klárar sig nokk. Verið þið viss.
Best gæti ég trúað að hann væri
kominn í slagtog við þennan
Chicagonagg, A1 Capone eða hvern
andskotann sem hann nú aftur
heitir. Hann Berti. Þetta hefur
ólafur Gunnarsson
verið bandvitlaust frá fæðingu.
Hann kemur nokk heim einn
daginn."
Engilbert snýr heim og ér búinn
að ná sér heldur betur í góð
umboð. Ernir, sonur Kjartans,
ræðst í vinnu til hans. Drengurinn
lærir kúnstir sölumennskunnar og
breytist smám saman úr skáld-
hneigðum vingli í mann sem
Tíllitssemi kostar
ABjrLrAo1# wlmllil#! 1
bjargar sér í viðskiptalífinu.
Eitthvað virðist hann þó vera
orðinn vantrúaður á vald pening-
anna undir lokaræðu föður síns
um „græðgislæti“ veraldarinnar.
Kjartan er alger andstæða Engil-
berts, maður trúr þeim orðum
Lao-tse sem eru einkunnarorð
bókarinnar að við þann sem ekki
keppir við aðra geti enginn keppt
og einfeldnin sé helsta dyggðin.
Ólafur Gunnarsson er rithöf-
undur sem hefur gaman af að
segja sögu. Bók hans ber sannri
frásagnargleði vitni. í henni er
víða að finna kynlegar og
skemmtilegar sögur. Sumar þeirra
styðjast við fyrirmyndir. Til dæm-
is mun mörgum verða hugsað til
viss kaupsýslumanns í Reykjavík
við kynni af Engilbert. Sama er að
segja um Furstann sem auðvitað
er enginn annar en Karl Einarsson
Dunganon. Fleiri hliðstæður má
finna. En það skiptir ekki höfuð-
máli. Aðalatriðið er að bók Ólafs
Gunnarssonar er lifandi saga, að
mínu mati með skemmtilegri
bókum eftir ungan höfund sem ég
hef lesið lengi.
Meðal eftirminnilegra persóna í
Milljón prósent menn er Grímur
Guðmundsson í Teppahöll Engil-
berts. Grímur þessi er undir
smásjá Engilberts sem stjórnar
fyrirtæki sínu með harðri hendi
þegar hann er ekki á fylliríi eða í
útlöndum. Vandræðaskapur
Gríms í búðinni verður með
kátlegustu þáttum sögunnar.
Engilbert kallar Grím ánamaðkar-
grósser vegna þess að hann drýgir
tekjur sínar með því að tína
ánamaðka í kirkjugarðinum og
selja laxveiðimönnum þá.
í Milljón prósent menn eru
litríkar frásagnir af veislum
Engilberts. Hann er sífellt að
segja af sér sögur úr útlöndum,
hvernig hann hafi síður en svo
Bðkmenntir
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
dáið ráðalaus þegar vanda bar að
höndum. Þessar sögur breytast í
meðförum hans og fara eftir því
við hvern hann talar hverju sinni.
Höfundi tekst einkar vel það
listbragð að láta þessar sögur
þróast og verða æ lygilegri.
Inni í miðri bók er frásögn sem
nefnist Tímavélin 1917 og segir frá
vetrarhrakningum á íslenskri
heiði. Lokakaflinn: Epilogue 1917
segir þessa sögu á ítarlegri hátt.
Það er Kjartan, faðir Ernis, sem
teflir í tvísýnu á bíl sínum yfir
Hellisheiði á leið til Reykjavíkur
ásamt bónda, ólettri konu hans,
ungri dóttur og hundi. Þetta er
frásögn í anda þjóðlegs fróðleiks
ágætlega samin og þótt hún muni
eflaust þykja skrýtinn endir bókar
sem nefnist Milljón prósent menn
á hún heima í henni. Á nokkrum
stöðum í bókinni er vikið frá
skipulögðum frásagnarmáta án
þess að farið sé langt út fyrir
ramma heildarinnar.
Vafalaust má deila um efnistök
höfundar. Meðal annars getur
lengd bókarinnar orkað tvímælis.
En það sem m.a. má finna henni til
gildis fyrir utan það hve frísklega
hún er rituð er hin nýstáriega
lýsing á stóru fyrirtæki, kaupsýslu
sem að vísu virðist hin fáránleg-
asta, en er að öllum líkindum ekki
mjög fjarri veruleikanum eins og
hann var þegar hinn stórhuga
Engilbert var og hét.
Húsgagnasmiðir afturkalla
uppsögn kjarasamninganna
Á félagsfundi Sveinafélags hús-
gagnasmiða sem haldinn var 26.
október s.l. var samþykkt að
afturkalla uppsögn kaupliða
kjarasamninganna.
Á fundinum var samþykkt álykt-
un þar sem því var fagnað að
núverandi ríkisstjórn virðist ætla
að taka málefni íslensks iðnaðar og
þróun hans föstum tökum. Hins
vegar var það harmað að fulltrúar
frá stéttasamtökum iðnsveina skuli
ekki eiga sæti í iðnþróunarnefnd. í
ályktuninni er einnig drepið á
uggvænlega stöðu íslensks hús-
gagnaiðnaðar vegna stóraukins
innflutnings erlendra húsgagna. Að
lokum segir í ályktuninni að
fundurinn lýsi samstöðu sinni við
hugmyndir um sérstaka innborg-
unarskyldu innflytjenda fullunn-
inna húsgagna og telur að slíkt geti
verið stuðningur opinberra aðila
við íslenska húsgagnaframleiðend-
ur.
Ályktun um fjármál Menningar-
og fræðslusambands alþýðu var
einnig samþykkt á fundi Sveinafé-
lags húsgagnasmiða. Þar er bent á
að dregið hafi verið úr fjárframlög-
um ríkisvaldsins til sambandsins á
síðustu árum og minnir fundurinn á
að hér eiga hlut að máli stærstu
fjöldasamtök alþýðunnar í landinu.
í lok þessarar ályktunar er gerð sú
krafa að núverandi ríkisstjórn auki
stórlega opinberar fjárveitingar
sínar til fræðslustarfsemi verka-
lýðshreyfingarinnar á fjárlögum
1979.
SVARÐ LIGGUR HÉR í AUGUM UPPI
BETRA VERD - BETRIGREÐSUJKJÖR
Ávinnsluherfi........N.........Kr. 51.322.-
Áburðardreifarar GANDY 10fet ... _ 452.863.-
Áburðardreifarar GANDY 12 fet ... _ 521.863.-
Baggakastarar UMA.............. _ 118.939.-
Heybindivélar I.H.............. _1.895.964.-
Heyblásarar TRIOLIET........... _ 525.956.-
Heyhleðsluvagnar NORMAL G .... _1.896.003.-
Heyþyrlur KUHN 440T............ _ 526.189.-
Heyþyrlur KUHN 440P............ _ 464.112.-
Heyþyrlur KUHN 452T............. _ 639.066.-
Stjörnumúgavélar KUHN 280P .... _ 413.448.-
Stjörnumúgavélar KUHN 402P .... _ 563.466.-
Súgþurrkunarblásarar B1......... _ 649.810.-
Sláttuþyrlur PZ 135............. _ 474.780.-
Sláttutætarar TAARUP DM 1350 . _ 818.664.-
Sturtuvagnar WEEKS 21/2 tonn...... 534.864.-
Sturtuvagnar WEEKS 41/2 tonn...._1.095.124.-
Votheysbönd DUKS 12 metrar........ 689.358.-
XS* Véladeild
m Sambandsins
Ármúla 3 Reykjavík Simi 38900
HAFIÐ SAMBAND VIÐ KAUPFÉLAGIÐ
EÐA BEINT VIÐ OKKUR