Morgunblaðið - 24.11.1978, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1978
53
TT TT
VELVAKANDI
SVARAR Í SÍMA
10100KL. 10— 11
FRA MÁNUDEGI
0 Þulir útvarps
„Eflaust má ýmislegt finna
að málfari þula útvarpsins og
annarra sem koma þar fram. Sagt
var um Árna Oddsson að hann
hefði verið gallalaus. En er eng-
inn af þulunum gallalaus? þar á
ég við hvort enginn þeirra tali
lýtalaust mál, hafi gailalausan
framburð, sem hægt sé að taka til
fyrirmyndar.
Að mínum dómi eða réttara
sagt áliti hefur Ragnheiður Ásta
Pétursdóttir mjög aðlaðandi og
skýran framburð. Hún er til fyrir-
myndar á þessu sviði, og hefur
verið lengi. Með því að hlusta á
Ragnheiði Astu ættu þeir sem við
útvarpið vinna að geta lært. Þó er
ástæða til að Ríkisútvarpið athugi
hvort ekki sé þörf á frekari
kennslu málsnjallra manna í út-
varp. Mætti jafnvel hafa smá
námskeið fyrir þá sem hefðu að-
laðandi málróm og málfar. Það
má ekki taka orð mín svo að ég sé
að setja út á þulina í heild, því fer
fjarri. T.d. hefur Pétur Pétursson
fegurstan málróm, sem þulur af
karlkyninu hefur haft í útvarpinu
til þessa. Enda búinn að gleðja
ótalinn fjölda hlustenda með rödd
sinni. Fjölga þarf slíkum snilling-
um i útvarpi eftir megni. Þau
feðgin bera því af þarna ásamt
Jóni Múla Árnasyni. Er Jón mjög
áheyrilegur og fimur orðasnill-
ingur og dylst það engum sem á
hann hlustar, en eins og er kann
ég bezt við Ragnheiði Astu. Virð-
ingarfyilst,
Þorsteinn Jónsson.
Þessir hringdu . . .
0 Góður þáttur í
morgunútvarpi
Anna Bergþórsdóttir:
— Ég vildi fá að leggja nokk- ,
ur orð í belg varðandi þáttinn
Morgunpóstinn. Ég hlusta alltaf á
þennan þátt, þvi að meðr finnst
hann verulega áheyrilegur og
góður og finnst ekki rétt að öllu
leyti sú gagnrýni, er fram hefur
komið á þennan þátt. Ég vinn
vaktavinnu oft langt fram yfir
miðnætti og ríf mig samt sem
áður alltaf upp á morgnana til að
hlusta á þennan ágæta þátt.
0 Skátar moki?
Ein gömul, eins og hún vildi
láta nefna sig, bað fyrir þá beiðni
til skáta og unglinga annarra,
hvort ekki væri mögulegt að þeir
vildu rétta gömlu fólki hjálpar-
hönd við að moka snjó af tröppum
sínum. Sagði hún að gamla fólkið
gæti þetta ekki, en þyrfti samt að
ganga um og væri varhugavert i
miklum snjó. Kvaðst hún ekki
vera að fara fram á neina þegn-
skylduvinnu, heldur að unglingar
gætu boðist til að vinna þetta og
yrði þeim síðan greitt fýrir það.
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pitursson
Á samsovézka úrtökumótinu
Daugavpils í ár kom þessi staða
upp í skák þeirra Ziljbersteins,
sem hafði hvítt og átti leik, og
Kims.
^ Er hann þræll?
Lára:
— Eg vildi fá að bæta aðeins
við það sem sagt var á dögunum
hjá Velvakanda um stæðisvörðinn
hjá Alþingi, en mér finnst satt að
segja stundum að hann sé háif-
gerður þræll, sem hleypur út úr
Þórshamri i hvaða veðri sem er til
þess að opna fyrir einum og ein-
um bíl þingmanna sem koma
þarna. Finnst mér naumast sæm-
andi nokkrum manni að fara fram
á svona þjónustu og spyr hvort
ekki væri alveg eins hægt að taka
upp sektir gegn því að leggja i
merkt bilastæði og gætu þá sekt-
irnar runnið i hinn fátæka ríkis-
sjóð. En þessar aðferðir minna
jafnvel á vinnumenn i Austur-
löndum.
HÖGNI HREKKVÍSI
S'Zr3 S\GSA V/öGA £ \iLVZ9AU
Glugga- og
huróaþéttingar
Tökum aö okkur aö þétta opnanlega glugga, úti-
og svalahuröir.
Þéttum meö SLOTTLISTEN
innfræstum varanlegum þéttilistum.
Ólafur Kr. Sigurösson hf.
Tranavogi 1, sími 83499.
„Hann hefur dregið allar lokur
frá skilningarvitum sínum“
segir Erlendur Jónsson um
Guölaug Guömundsson, höfund bókar-
innar ÁSTIR í AFTURSÆTI
Og Erlendur bætir við:
. .. „Hvort sem nú hinn ungi vatnsdælingur í
bílstjórasætinu hefur fundið sig sem eins konar
Ara fróða sem forsjónin væri þarna að útvelja til
að skrásetja sögu þessara kynlegu tíma eður
eigi þá er svo mikið víst að hann hefur dregið
allar lokur frá skilningarvitum sínum og fest á
sálarfilmu sína þær furðulegu senur sem fyrir
augu og eyru bar“ .. .
. . . ,,og kemur mér ekki á óvart þó bók hans
beri hátt á metsöluhimninum fyrir komandi
Jór ■ ■ •
MYNDSKREYTT VERÐLAUNABÓK
Bókaútgáfan Örn og Örlygur
Vesturgötu 42, sími 25722
19. Hxe7+! - Kxe7, 20. Bb4+ -
KÍ7, 21. Bd5+ - Ke8, 22. De6+ -
Kd8, 23. Bb7+ - Dd7, 24. Ba5
mát. Sigurvegari á mótinu varð
hinn 15 ára gamli Kasparov, hann
hlaut 9 v. af 13 mögulegum og er
langyngstur þeirra sem hafa unnið
sér rétt til þess að tefla í úrslitum
á Skákþingi Sovétríkjanna. Jafn
Kasparov að vinningum, en lægri á
stigum varð I. Ivanov, en í 3.-7.
sæti komu þekktir kappar, þeir
Kaupreitschik, Mikhailchisin,
Kapengut, Panchenko og
Tseshkovsky, sem allir hlutu 8lA
v.
m<z m Bá
# 'úWr/tfQO WO\(KO%M-
tOV/4 'QoK'bKHAo'bÖVÍ f Y//I05-
sW /|' \|()t>W9dV? 'QfNCrf'■
tá Yi/ftr
s?a9 ötúq Aoó-
UNUYf Á Y\£0.