Morgunblaðið - 21.02.1979, Blaðsíða 22
r
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1979
radauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
Akureyringar
Rabbfundur um framkvæmdastefnu Akureyrarbæjar 1979 veröur
haldinn í Kaupvangsstræti 4, fimmtudaginn 22. febrúar kl. 20.30.
Rætt veröur um bygglngarframkvæmdlr og gatnagerö. Fundurinn er
öllum opinn.
Sjálfstæöisfélag Akureyrar.
Stjórnmálaskóli
Sjálfstæðisflokksins
kvöld- og helgarskóli
12.—24. marz 1979
Skólanefnd Stjórnmálaskóla Sjálfstæöisflokkslns hefur ákveöiö aö
efna til kvöld- og helgarskólahalds 12.—24. marz.
Meginþættir námsefnis veröa sem hér segir:
1. Ræðumennska
2. Fundarsköp
3. Um Sjálfstæöisstefnuna
4. Form og uppbygging greinaskrifa
5. Stjórn efnahagsmála
6. Utanríkis- og öryggismál
7. Almenn félagsstörf
8. Starfshættir og saga ísl. stjórnmálaflokka
9. Stefnumörkun og stefnuframkvæmd Sjálfstæöisflokksins
10. Staöa og áhrif launþega og atvinnurekendasamtaka
11. Um stjórnskipan og stjórnsýslu
12. Þáttur fjölmiöla í stjórnmálabaráttunni.
Skólahaldiö fer fram í Valhöll, Háaleitisbraut 1, og hefst á kvöldin kl.
20:00, laugardagana kl. 10:00 og 14:00, sunnudaginn kl. 14:00.
Þátttaka tilkynnist í síma 82900. Skólanefndin.
Leshringur um
Sjálfstæðisflokkinn
4. fundur um leshring Sjálfstæöisflokkinn
fer fram í kvöld aö Valhöll, Háaleltisbraut
1 og hefst kl. 20.
Frummælandi Þorvaldur Qaröar Kristj-
ánsson og mun hann ræöa um jafnvægis-
árin 1959—1971.
Nýir þátttakendur velkomnlr.
Samband ungra Sjálfstæöismanna
Sjálfstæðismenn
Garðabæ
Sjálfstæöisfélag Garöabæjar og Bessastaöahrepps heldur aöalfund
sinn miövikudaginn 28. febr. 1979 kl. 20.30 aö Lyngási 12.
Auk venjulegra aöalfundarstarfa mun Birgir isleifur Gunnarsson
borgarfulltrúi mæta á fundinn og fjalla um skipulag og störf
Sjálfstæöisflokksins.
Stiórnin
Félag sjálfstæðismanna
í Árbæjar og
Seláshverfi
Skákkvöld
Ákveöiö hefur veriö aö efna til skákkvölds aö Hraunbæ 102,
suöurhlíö (neöri jaröhaBö). Miövikudag 21. febrúar kl. 20.30.
Væntanlegir þátttakendur taki meö sér töfl. Allir velkomnir.
Stjórntn.
Verkalýðsskóli
Sjálfstæðisflokksins
Verkalýösráö Sjálfstæöisflokksins hefur ákveöiö aö Verkalýösskóli
Sjálfstæöisflokksins veröi haldlnn 24. febrúar — 3. marz 1979.
Megintilgangur skólans er aö veita þátttakendum fræöslu um
verkalýöshreyflnguna, uppbyggingu hennar, störf og stefnu.
Ennfremur þjálfa nemendur í aö koma fyrlr sig oröi, taka þátt í
almennum umræöum og ná valdi á hinum fjölbreyttu störfum í
félagsmálum.
Maginpættir námsakrár varöa aam hár aagir:
1. Saga og hlutverk varkalýöshreyfingarinnar.
Leiöbeinandi: Gunnar Helgason, forstööumaöur.
2. Kjarasamningar, fjármál og ajóöir vorkalýósfálaga.
Leiöbeinandi: Björn Þórhallsson, form. L.f.V.
3. Frasösluatartssmi á vogum varkalýöshrsyfingarinnar.
Leiöbeinendur: Hersir Oddsson, varaform. B.S.R.B. og Magnús L.
Sveinsson, varaform. V.R.
4. Stjórnun og uppbygging verkalýösfálaga.
Leiöbelnandl: Sverrir Garðarsson, form. F.I.H.
5. Trúnaóarmsnn á vinnustóóum.
Leiöbeinandl: Hilmar Jónasson, form. Rangæings, Hellu.
6. Efnahagsmál — vísitölur.
Leiöbeinendur: Brynjólfur Bjarnason, rekstrarhagfræöingur, og
Þráinn Eggertsson, hagfræöingur.
7. Fjölmiólunartækni.
Leiöbeinendur: Magnús Finnsson, blaöamaöur og Markús örn
Antonsson, ritstjóri.
8. Framkoma íajónvarpi.
Leiöbeinandi: Hinrik Bjarnason, framkvæmdastjórl..
9. Þjálfun í ræóumennsku, fundarstjórn og fundarraglum.
Leiöbeinendur: Kristján Ottósson, form. Fél. blikksmiöa og Skúli
Möller, kennari.
10. Félagsmál — kjaramál.
Leiöbelnendur: Ágúst Geirsson, form. Fél. (sl. símamanna,
Guömundur H. Garöarsson, formaður V.R. og Pétur Sigurösson,
fyrrv. alþingismaöur.
Skólinn veröur helgar- og kvöldskóli frá kl. 09:00—19:00 laugardag
og sunnudag meö matar- og kaffihléum, og frá kl. 20:00—23:00
mánudag, þrlöjudag og fimmtudag. Kennslan fer fram í fyrirlestrum,
umræöum meö leiöbeinendum og hringborös- og panelumræöum.
Skólinn er opinn sjálfstæöisfólki á öllum aldri, hvort sem þaö er
flokksbundiö eöa ekki.
Þaö er von skólanefndar, aö þaö sjálfstæöisfólk, sem áhuga hefur á
þátttöku í skólahaldlnu, láti skrá sig sem fyrst í síma 82900 eöa
82398, eöa sendi skriflega tilkynningu um þátttöku til sólanefndar,
Háaleitisbraut 1, Reykjavík.
Gegnum holt og hæðir
LEIKFÉLAG Kópavoifs frumsýn-
ir í kvöld kl. 18.00 nýtt harnaleik-
rit, Gegnum holt og hæðir, eftir
Herdísi Egilsdóttur kennara.
Leikendur eru 23, börn, útiærðir
leikarar og áhutfafólk, en leik-
félaKÍð er hið eina á Reykjavíkur-
svæðinuv sem starfrækt er sem
áhutfamannaleikhús.
„Þetta er reyndar fyrsta leikrit-
ið mitt, skrifað 1974," sagði Her-
dís, er hún var spurð. „Það fjallar
um litla stúlku í sveit, sem er
geðvond og löt, og hvernig foreldr-
um hennar tekst með aðstoð góðra
vætta, það er álfa og trölla, að
venja hana af þessum ósiðum.
Hún lærir, að það er gaman að
vinna og maður getur glaðzt yfir
ýmsu í hversdagsleikanum án þess
að gera kröfur til annarra, að
ánægja fólks í lífinu er að leggja
sitt af mörkum og veita öðrum lið,
því enginn verður hamingjusamur
nema að leggja sig fram. Ekki er
hægt að ætlast til þess, að aðrir
færi manni heim hamingjuna. I
þessu leikriti er enginn skúrkur,
ekki neitt hræðsluefni.
Jú, ég samdi einnig tónlistina,
en ég spila bara eftir eyranu. Eg
hef alltaf leikið mér á hljóðfæri
síðan ég eignaðist það. Ég er ósköp
þakklát fyrir að fá tækifæri til að
vinna með fólki, sem þekkir leik-
húsið. Þetta fólk hefur kennt mér
ýmislegt. Það er eins og að komast
í leikfangaland fyrir mig,“ segir
Herdís og hlær við, „og ég finn, að
það á eftir að verða fróðlegt og
skemmtilegt, ef ég fæ tækifæri til
að vinna á þennan hátt áfram,"
sagði Herdís í lokin.
Leikmynd Gylfa Gíslasonar er
bæði einföld og skemmtileg, en
sviðsmyndin og búningar eru séð
með augum barnsins; margir litir,
álfhóll, tröllahellir, bær, birkitré
og rennandi lækur. Ekki þarf að
færa út og inn af sviðinu. Þá sér
Lárus Björnsson um lýsingu, og
dregur fram með marglitum ljós-
um þau atriði, sem við eiga hverju
sinni. Ruth Petersen sá um dans-
inn í leiknum.
„Þóra minnir mig á umskipt-
ing,“ sagði Kolbrún Erna Péturs-
dóttir sem gegnir hlutverki Þóru
bóndadóttur. „Þóra er komin á
þann aldur að vilja hitta fólk, er
fín með sig og hangir iðjulaus
allan daginn. Hún er ekki hrædd,
en frekar hissa og reið, þegar hún
hittir tröllastrákana og veit, að
hún kemst ekki heim aftur nema
hún standi sig, og um leið elur hún
strákana svolítið upp. Þetta er
skemmtilegt hlutverk, en erfitt á
köflum. Þóra er bæði löt og geð-
vond og síðar kát og hress. Eg hef
einu sinni leikið áður, það var í
Snædrottningunni í fyrra — þar
lék ég frekju," sagði Kolbrún og
hló. Eg hef þó starfað með leik-
félaginu eins og svo margir. Við
leggjum öll eitthvað til, vinnum í
miðasölu, sælgætissölu, þrífum
salinn og hjálpum til við smíði
sviðsins og yfirleitt allt sem gera
þarf.“
Guðbrandur Valdimarsson, sem
er útlærður leikari, fer með hlut-
verk Hægs, eins tröllastrákanna.
„Ég hef lítið starfað með krökk-
um, en það gerir sýninguna fersk-
ari. Börnin eru einlæg í því sem
þau gera. Ég held, að allir geti
skemmt sér við þetta, ekki síður
foreldrar en börn. Fyrst og fremst
er þó að koma leiknum til skila.
Það þarf að bæta manneskjuna,
þá sem eru rótlausir, iðjulausir og
utanveltu í lífinu eins og Þóra.
Þetta hefur verið mjög skemmti-
legt, við leggjum öll eitthvað af
mörkum, en félagið sem áhuga-
mannafélag byggist á gleðinni við
starfið, og í slíkum félögum er
ekkert hægt að gera með hangandi
hendi, því þá deyja þau.“
„Mér finnst þetta ofboðslega
gaman," sagði Sigríður Guð-
mundsdóttir sem leikur trölla-
mömmu. „Þetta er ekki í fyrsta
sinn, sem ég spreyti mig á fjölun-
um og hef leikið með krökkum
áður, og er reyndar barnakennari.
„Synir mínir" eru óttalegir óláta-
belgir, en beztu skinn inn við
beinið, enda þykir mér vænt um
þá alla jafnt," sagði tröllamamma.
„Þetta er nú mín frumraun sem
leikstjóri," sagði Margrét Helga
Jóhannsdóttir. Mig hefur lengi
langað til að færa upp verk, en hef
verið í það mikilli vinnu, og er
raunar enn, að aðstæður hafa ekki
leyft fyrr en nú. Það er óneitan-
lega erfitt að byrja að leikstýra 23
manns í verki, og sérstaklega
verki, sem ekki hefur verið flutt
áður. Til dæmis þurfti að skrifa
fyrsta þátt fyrir mig fjórum sinn-
um.
Þetta leikrit er fyrst og fremst
ævintýraleikur, en trölla- og álfa-
trú er svo ótrúlega sterk í okkar
sögu. Það sem ég hef lagt áherzlu
á í þessari uppfærslu, er að hafa
ekkert ljótt, gera börnin ekki
hrædd og reynt að hafa hvergi of
mikla spennu, en ná fram einfald-
leik og einlægni og halda ímynd-
unarafli barnanna vakandi en
ekki mata þau of mikið.
Ég er virkilega ánægð með
þessa samvinnu við leikendur og
leikmyndateiknara, en það hefur
óskaplega mikið að segja. Þetta
hefur verið feikilega lærdómsríkt
og ég myndi gjarnan leikstýra
aftur, ef tækifæri byðist. Þessi
hópur er svo óeigingjarn í starfi,
allir hafa gefið vinnu sína, og
vinnugleðin er svo mikil, að það
hefur verið dásamlega skemmti-
legt,“ sagði Margrét Helga.
Sýningin hefst eins og áður
segir í kvöld kl. 18.00. Næsta
sýning verður á laugardag, 24.
febrúar, og hefst kl. 15.00, og
verður leikritið flutt næstu vikur
á miðvikudögum og laugardögum
á sömu tímum.
Hákur og Þrymur að ólátast en álfadisirnar fylgjast hlæjandi með.
Þrymur og Hákur halda af stað með heimasætuna, álfkonan f
bæjarhólnum gefur holl ráð en Hægur og Skælir fylgjast með.
Pabbi, Grímur, mamma og Þóra eftir vistina í Tröllahclli.
Margrét Helga Jóhannsdóttir leikstjóri og Lárus Björnsson
ljósamaður bera saman bækur sínar.