Morgunblaðið - 20.05.1979, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.05.1979, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MAI 1979 UM DAGINN voru í fyrsta skipti teknar myndir af samflugi tveggja Phantom-þotna og hinnar nýju Boeing &3a Sentry. fljúgandi ratsjárstöðvar. Samflug sem þetta hefur hvergi verið leyft áður. bæði vegna þess hve nýjar Sentry-vélar eru og ekki síður vegna þess hve dýrar þær eru. Fleiri myndir og grein um flugið eru á bls. 48—50 í blaðinu í dag. Ljósm. Mbl. Baldur Sveinsson. t>urrfiskur og ufsaflök fyrir 6—700 milljónir króna bíða útskipunar NÚ BÍÐA 500 tonn af saltfiski. þ.e. þurrfiski. afskipunar og 5—000 tonn af blautsöltuðum ufsaflökum og er verðmætið 6 — 700 milljónir króna. Vegna farmannaverkfallsins er að skap- MIKILL ís er nú í höíninni á Raufarhöfn. VeKna þrýstinjís íssins lyftist vír- inn. sem strengdur er fyr- ir hafnarmynnið ok ís komst inn í höfnina. Flestar trillur Raufar- hafnarbúa komust út úr höfninni í gærmorgun, þeg- ast vandra-ðaástand með afskip- un þessa magns, að sögn Val- garðs ólafssonar framkvæmda- stjóra SÍF. Þurrfiskurinn á að fara til Brasilíu, Karabíska-hafsins, ar læna myndaðist, fóru út í Hraunhafnir. Aðrar trill- ur voru teknar upp og kom- ast ekki í bráð út. Rauðinúpur ætlaði í gær- kvöld út. I gær var blanka- lotfn ojí sólskin á Raufar- höfn ok hafnarmannvirki því ekki í hættu á meðan veðrið helst stillt. Frakklands, Afríku og fleiri staða. Hann er tilbúinn til útflutnings en verkfallið setur strik í reikning- inn, sérstaklega vegna þess að ekki er hægt að skipuleggja fram- haldsflutninga frá Evrópu á með- an allt er í óvissu vegna verkfalls- ins, að sögn Valgarðs. Verðmæti þurrfisksins eru 300 milljónir króna. Blautsöltuðu ufsaflökin fara til Vestur-Þýzkalands, þar sem þau eru notuð til sjólaxgerðar. Fyrr- greint magn, að verðmæti 3—400 milljónir króna á samkvæmt samningum að vera komið í hend- ur kaupenda. Bíleigendur mótmæla á morgun FÉLAG íslenzkra bifroiðaeigenda mun standa fyrir mótmælaaðgerð- um á morgun og þriðjudag vegna henzinhækkana og skattheimtu ríkisins af benzíni. Á morgun klukkan 19,30 ætla bíleigendur að þeyta bílhorn í 2 mínútur og FIB hefur hvatt bíleig- endur til að hreyfa ekki bíla sína á þriðjudaginn í mótmælaskyni. Fara 1—2 bátar á tilraunasíldveiðar? Mikill ís í höfn- inni á Raufarhöfn Land byr jad ad rísa vid Kröflu .LAND rís nú nokkuð hratt eins og það hefur oft áður gert í byrjun en síðan hefur risið hægt á sér.“ sagði Hjörtur Tryggvason er Mbl. náði tali af honum i gær. „Við fórum norður á Gjástykki á miðvikudag og þá mældist sterk- asti skjálftinn 3.7 stig á Richter og skjálftar voru tíðir. Landið gekk í bylgjum undir okkur og gliðnun er orðin um hálfur annar metri. Jarðhitasvæðið hefur stækkað frá norðri til suðurs. Kvikuhlaup var hægara en áður, 250 rúmmetrar á sekúndu en hraðinn hefur mestur verið um 800 rúmmetrar. Sigið varð um 70 sentimetrar en land var búið að rísa meir en áður. Við förum í dag norður í Gjástykki að kanna risið nánar og þær breyt- ingar, sem hafa orðið,“ sagði Hjörtur Tryggvason að lokum. Bænadagur þjóðkirkjunnar: Beðið fyrir kristnu uppeldi bama á Islandi HINN almenni bænadagur er í dag. sunnudaginn 20. maí. í ávarpi hr. Sigurbjörns Einars- sonar biskups. sem hann ritar í tilefni bænadagsins. lætur hann í Ijós þá ósk. að í tilefni barna- árs verði við guðþjónustur predikað og beðið fyrir kristnu uppeldi barna á íslandi. Ávarp biskups er birt í heild á bls. 51 f blaðinu f dag. í ávarpi sínu segir hr. Sigur- björn Einarsson m.a.: „Þetta er víðtækt efni. í raun og veru felur það í sér allt sem er á bak við hugmyndina um sér- stakt barnaár. Það þjóðfélag, sem væri mótað af kristnum anda, væri börnum hollt og gott. Ef uppeldismál væru traustlega byggð á kristnum skilningi á manninum og kristnu verð- mætamati, myndi vel horfa um mótun barna og aðhlynningu að þeim. Ef kristilega mótuð ábyrgðarvitund fyrir Guði væri vakandi og virk í heiminum, væri hann börnunum hollari vist og hættuminni en nú er.“ Að vestan í leit að ættingjum hér UNG STÚLKA að nafni Mary Olson frá borginni Fargo í Norður-Dakotafylki í Banda- rfkjunum leit inn á ritstjórn Mbl. í vikunni í þeirri von, að Mbl. gæti orðið henni að liði í leit hennar að ættingjum sinum hér á Fróni. Stúlkan kvað afa sinn vara Ólaf Guðmundsson Ólafsson frá Álftanesi, en hann tók upp eftir- nafnið Olson er hann kom vestur um haf. Ólafur fluttist vestur 12 ára gamall ásamt eldri systur sinni. Lézt hann fyrir fjórum árum. Vestra giftist hann konu af skozkum ættum, Christine McBain frá Winnipeg, og taldi Mary þau hafa gifzt árið 1912. Ólafur starfaði lengst af hjá Singer-fyrirtækinu í Fargo og Minneapolis. Þau Ólafur og Christine eign- uðust tvo syni, Edwin B. Olson og Dan E. Olson, en Dan er faðir Mary. Edwin býr nú í Washing- ton D.C. en bjó áður í Minnea- polis. Dan er ljósmyndari í Fargo. Mary sagði, að afi hennar hefði átt frænda að nafni Benedikt Benediktsson er bjó í Seattle, en hefði flutzt aftur til íslands fyrir nokkrum árum. Benedikt og Ólafur hefðu að öllum líkindum verið systkinabörn og væri Bene- dikt sennilega á sjötugsaldri. Vonast Mary til að komast í samband við einhverja ættingja sína hér á landi og er hún stödd í Goðheimum 8 í Reykjavík og hægt er að ná sambandi við hana í síma 30781. Sjávarútvegsráðuneytið hefur nú til athugunar hvort leyfa á tilraunasíld- veiðar við Suðurland í júní n.k. Sagði Lórður Ásgeirs- son skrifstofustjóri við Mhl. í Kær, að vel kæmi til Kreina að heimila 1 — 2 hátum að stunda þessar veiðar. Eins og fram kom í Mbl. í gær, er nú mikil eftirspurn eftir frystum síldarhrogn- um og fæst mjög hátt verð fyrir hrognin. Gunnar Flovenz framkvæmdastjóri Yfirborgar- fógeti hættir Friðjóni Skarphéðinssyni yfirborgarfógeta í Reykjavík hefur verið veitt lausn frá embætti frá 1. september n.k. Síldarútvegsnefndar hefur sett þá hugmynd fram í grein í Ægi, að stefna skuli að því í sumar að gera tilraun til þess að veiða síldina fulla af hrognum svo kanna megi hagkvæmni þess að veiða síldina í því ástandi. Skólameist- aranum á ísafirði veitt lausn SKÓLAMEISTARA Menntaskólans á ísafirði, Jóni B. Hannibalssyni, hefur verið veitt lausn frá embættinu samkvæmt hans eigin ósk frá og með 1. september n.k. og hefur staðan verið auglýst laus til umsóknar. i - .., Veiddi 70 punda lúðu með haka ÞAÐ er mjög sjaldgæft að menn veiði lúðu með haka, en það gerðist í Vest- mannaeyjum fyrir skömmu. Þeir feðgar Sigurður Jóelsson og Jócl sonur hans voru fyrir vest- an Dranga að kippa. „Jóel sló af,“ sagði Siggi Jóels í spjalli við Mbl., „og ég var frammi á. Mér sýndist ufsi vaða austar því ég sá svartan sporð slást upp úr sjónum. Við sigldum á staðinn, en þá sá ég allt í einu hvítan sporð og þá var ekki um að villast. Lúðan lá þarna í yfirborðinu og við urðum að bakka til þess að sigla ekki fram hjá henni, en þrátt fyrir það var hún kýrr. Þegar við komum svo að henni sáum við hvað um var að vera. Hún hafði þrælað upp stórri ýsu og var að leika sér að henni eins og köttur að mús, glefsaði í hana og blóðrispurnar á kviðnum sáust greinilega en hún reyndi ekkert til þess að gleypa hana. Nú, lúðan var svo upptekin af þessum leik að hún vissi ekki fyrr en hakinn stóð í henni. Ég hélt henni með hakan- um þar til Jóel kom með ífæruna og þá vippuðum við henni inn fyrir borðstokkinn. Þá tók hún fyrst við sér og barðist af alefli, en það var of seint fyrir hana, hún var komin inn í okkar landhelgi. Þetta var 70 punda lúða, en ég hef ekki fyrr lent í því að taka hana ofan á.“ Bensi fyrir vestan Eyjar. Ljós- mynd Mbl. Sigurgeir. Lúðan lék sér að ýsu eins og köttur að mús

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.