Morgunblaðið - 19.07.1979, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 1979
Fram sigraði
baráttuglaða
Breióabliksmenn
FRAM er komið í fjögurra liða
úrslit í bikarkeppni KSÍ, bar
sigurorð af Breiðablik í átta liða
úrslitum á Laugardalsveiiinum í
gærkvöldi með þremur mörkum
gegn einu. Leikurinn var allan
tímann mjög líflegur, þrátt fyrir
að mikil rigning væri meðan á
leiknum stóð og völlurinn gerði
leikmönnum Iffið leitt, þvf hann
var afar háll. Það var því mesta
furða hversu leikmönnum beggja
liða tókst að sýna góða knatt-
spyrnu. Þrátt fyrir að lið Fram
næði þirggja marka forystu í
leiknum gáfust leikmenn Breiða-
bliks aldrei upp og börðust af
miklum dugnaði og áttu svo
sannarlega skilið að skora fleiri
mörk í leiknum, en tvö stórgóð
marktækifæri þeirra runnu út í
sandinn.
Fyrsta mark leiksins kom á 12.
mínútu. Hafþór Sveinjónsson gaf
laglega sendingu inn í vítateig
Blikanna og á höfuð Guðmundar
Steinsson sem nikkaði boltanum
snyrtilega í fallegum boga í mark-
hornið fjær, yfir markvörð Breiða-
bliks. Var vel að marki þessu
staðið.
Síðara markið í fyrri hálfleik
kom á 25. mínútu, eftir horn-
spyrnu. Varð nokkur þvaga inni í
markteig UBK og þar náði Gunn-
ar Bjarnason að skalla boltann út
á Guðmund Steinsson sem skoraði
sitt annað mark með skalla af
stuttu færi framhjá varnarmanni
og markverði UBK, sem var svo
sannarlega illa á verði.
Besta tækifæri Blikanna kom
rétt fyrir lok fyrri hálfleiks, er
Trausti gat bjargað föstu skoti
Hákonar af frekar stuttu færi svo
til á marklínu.
I síðari hálfleiknum komu Blik-
arnir mjög ákveðnir til leiks og
voru sýnilega staðráðnir í að gefa
ekkert eftir. En þrátt fyrir það
voru það Frammarar sem urðu
fyrri til að sýna kiærnar. Á 54.
mínútu leiksins sækja þeir upp
hægri kantinn og þaðan sendir
Guðmundur Steinsson góðan bolta
út á miðjuna til Baldvins Elías-
sonar sem kom á fullri ferð og
skaut föstu skoti sem hafnaði í
netinu án þess að Sveinn mark-
vörður gerði minnstu tilraun til
þess að verja. Virtist hann alveg
frosinn. Átti hann góða möguleika
á að ná til boltans hefði hann
reynt.
Staðan 3—0, og nú virtist Fram-
liðið slaka á, en Breiðabliksmenn
létu ekki mótlætið brjóta sig niður
heldur héldu ótrauðir áfram og
uppskáru eins og þeir sáðu. Á 60.
mínútu skorar Sigurður Grétars-
son, eftir að Gunnar Bjarnason
hafði gert þau mistök að senda
lausan bolta á Guðmund mark-
vörð.
Sveinn markvörður Breiðabliks verður
Steinssonar sem ekki sést á myndinni.
að sjá á eftir boltanum í netið eftir fastan
skalla Guðmunar
L)Ó8m. Mbl. Kristján.
Fram —
UBK
3:1
Sigurður Halldórsson komst inn
í sendinguna, brunaði upp og
renndi síðan á nafna sinn Grétars-
son sem gat fyrirhafnarlítið kom-
ið boltanum í netið.
Á 66. mínútu fá Blikarnir gullið
tækifæri til að minnka muninn í
eitt mark, er Heiðar Breiðfjörð
brýst laglega í gegnum vörn Fram
og er á auðum sjó. Guðmundur
markvörður kemur út á móti en
Heiðari brást illilega bogalistin er
hann skaut framhjá af stuttu
færi.
Frömmurum tókst svo að bjarga
á síðustu stundu er Sigurður
Halldórsson fékk góðan stungu-
bolta upp miðjuna, komst einn í
gegn og brunaði í átt að marki
Fram en Trausti Haraldsson sá
þann kost vænstan að bregða
honum rétt utan vítateigs. Fékk
Trausti gult spjald fyrir brotið en
bægði hættunni frá fyrir vikið.
Ekki tókst Breiðabliksmönnum að
nýta sér aukaspyrnuna, fast skotið
fór í varnarvegg Fram og hrökk út
á völlinn.
Síðustu mínútur hálfleiksins
voru Frammarar öllu sprækari og
sóttu meira án þess þó að bæta við
fleiri mörkum.
Lið Fram var jafnt og mun
sterkari liðsheild, léku þeir oft
mjög yfirvegað og vel saman.
Bestu menn í framlínunni voru
Guðmundur Steinsson og Pétur
Ormslev, vörnir er afar traust
með Gunnar Bjarnason og Mar-
teinn Geirsson, þá átti Ásgeir
Elíasson góðan leik.
Lið Breiðabliks á hrós skilið
fyrir mikinn dugnað í leiknum og
baráttuvilja. Liðið gafst aldrei
upp og með örlítilli heppni hefðu
þeir getað skorað fleiri mörk.
Bestu menn liðsins voru Sigurður
Grétarsson og Helgi Helgason.
-þr.
Matthías skoraði
rétt fyrir leikslok
ÞEGAR 10 minútur voru eftir af
leik ÍA og ÍBK, kom hin leik-
reyndi Matthías Hallgrimsson
inn á fyrir Kristin Björnsson, og
eftir aðeins þriggja mínútna leik
hafði hann skorað mark. sem
tryggði liði ÍA sæti í fjögurra
liða úrslitum bikarkeppninnar.
Það var Árni Sveinsson sem átti
upphafið að góðri sókn ÍA. Hann
gaf góðan bolta til Guðjóns
Þórðarsonar sem sendi boltann
viðstöðulaust inn á miðjuna til
Matthíasar sem tók við honum á
vítateig, Matthías fór sér að engu
óðslega, lék yfirvegað á þrjá
varnarmenn ÍBK-liðsins og
skoraði sfðan með föstu innan-
fótarskoti framhjá markverðin-
um frá markteig. Var þetta eina
markið í mjög jöfnum leik, sem
bar þess öll merki að vera bikar-
leikur þar sem bæði liðin ætluðu
sér að komast áfram og léku því
stífan varnarleik og tóku enga
áhættu.
IA —
ÍBK
1:0
Bikarkeppni KSI
KR
Val
ur i kvöld
í KVÖLD kl. 20.00 mætast í Laugardalnum KR og Valur í
bikarkeppni KSÍ og má búast við hörkuviðureign, því að bæði liðin
eru þekkt fyrir allt annað en að gefa eftir sinn hlut. KR-ingar eru nú
efstir í 1. deildinni, og er óhætt að fullyrða að frammistaða nýliðanna í
deildinni er mjög góð. En knattspyrnuunnendur ættu að fá eitthvað
fyrir sinn snúð í kvöld er úr því fæst skorið hvort liðið kemst áfram.
- þr.
ÍA lék undan vindi í fyrri
hálfleik, en þrátt fyrir að þeir
ættu öllu meira í leiknum, sem fór
fram í leiðindaveðri, rigningu og
roki, tókst þeim ekki að skapa sér
nein umtalsverð marktækifæri.
Allar sóknir brotnuðu á sterkri
vörn ÍBK, með Sigurbjörn
Gústafsson sem besta mann.
Síðari hálfleikur var keimlíkur
þeim fyrri. Keflvíkingar voru þó
nokkru sprækari en áður og sóttu
meira en í fyrri hálfleiknum. Ekki
áttu þeir þó nein góð tækifæri.
Allt virtist stefna í framlengingu
er Matthías tók af skarið eins og
fyrr segir og skoraði.
Bestu menn ÍA í leiknum voru
þeir Sigurður Halldórsson og Jón
Alfreðsson. í liði ÍBK ártu
Sigurður Björgvinsson og Sigur-
björn Gústafsson bestan leik, en
Steinar Jóhannsson sem nú lék
með var mjög frískur í framlín-
unni.
Stórleikur í
útimótinu strax
fyrsta kvöldið
ÍSLANDSMÓTIÐ í handknattleik utanhúss hefst í Hafnarfirði í kvöld
kl. 18.45. Áður en mótið hefst flytur Júlíus Hafstein formaður SHÍ
stutt ávarp. Að því loknu leika FH og Þróttur í mfl. kvenna, og síðan
sömu félög í mfl. karla. Síðasti leikur kvöldsins er sfðan á milli
íslandsmeistaranna 1978, Hauka og meistaranna frá 1977, Vals.
Handknattleiksunnendur ættu því að sjá spennandi leiki strax fyrsta
leikkvöldið. Mótinu verður sfðan fram haldið næstu kvöld og leikið er
við Lækjarskólann í Hafnarfirði.
Þau félög sem oftast hafa
sigrað í hinum ýmsu flokk-
um í útimótinu í
handknattleik:
Mfl. karla
Þátttakendur 10 lið: F.H., Valur,
Víkingur, Fram, Haukar, K.R.,
I.R., Þróttur, Ármanri, Stjarnan.
Fyrst var leikið 1948 og er þetta
því 32. mótið.
Þau lið sem sigrað hafa eru:
F.H. 17 sinnum, Valur 6 sinnum,
Ármann 3 sinnum, Fram 2 sinn-
um, Haukar, Víkingur, K.R. 1
sinni hvert.
Mfl. kvenna
Þátttakendur eru alls 9 lið: F.H.,
Valur, Fram, Víkingur, Haukar,
K.R., Þróttur, Í.R., UMFN. Fyrst
var leikið 1941 og er því leikið í 39.
sinn.
Þau lið sem sigrað hafa eru:
Valur 10 sinnum. Fram 7 sinnum,
K.R. 6 sinnum, F.H. 4 sinnum,
Ármann 5 sinnum, ÍBÍ 3 sinnum,
ÍBA, Haukar, Týr, 1 sinni hvert
lið.
II. fl. kvenna
Þátttakendur eru alls 6 lið: F.H.,
Yalur, Víkingur, Fram, Haukar,
Ármann. Fyrst var leikið í 2.
flokki kvenna árið 1960 og er þetta
því 20. mótið.
Þau lið sem sigrað hafa eru:
Valur 5 sinnum, Ármann 4 sinn-
um, Fram 4 sinnum, Völsungar 3
sinnum, ÍBK, Haukar, UBK, 1
sinni hvert.
1 flokkunum þremur hafa eftirtalin félög sigrað:
F.H.
Valur
Fram
Ármann
K.R.
Völsungur
Haukar
ÍBÍ
ÍBA
ÍBK
Týr
UBK
Víkingur
Mfl. k.
17
6
2
3
1
0
1
0
0
0
0
0
1
Mfl. kv.
4
10
7
5
6
0
1
3
1
0
1
0
0
II. fl. kv.
0
5
4
4
0
3
1
0
0
1
0
1
0
Samt.
21
21
13
12
7
3
3
3
1
1
1
1
1
Knattspyrnuúrsllt
TVEIR LEIKIR fóru fram í 3. deild íslandsmótsins í knattspyrnu í
íyrrakvöld. í D-riðli sigruðu Höfðstrendingar Leiftur, ólafsfirði,
2—1. Það var Þröstur Sveinsson sem skoraði bæði mörk Höfðstrend-
inga með góðum skotum. Mark Leifturs skoraði Guðmundur
Garðarsson. Þá sigruðu Grindvíkingar Stjörnuna í Garðabæ 2—0. Á
Akureyri fór fram leikur KA og Þórs í Akureyrarmótinu í
knattspyrnu og sigruðu KA-menn með 5 mörkum gegn 3. Gunnar
Blöndal skoraði þrjú af mörkum KA í leiknum og Elmar Geirsson tvö.
Mörk Þórs skoruðu Karl ólafsson, Óskar Gunnarsson og Jón
Lárusson.
—gs/ þr.
— sor/þr.