Morgunblaðið - 28.08.1979, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 28.08.1979, Blaðsíða 44
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 1979 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 1979 25 Framarar skáluðu í kampavíni en Vals- menn voru niðurlútir EINS OG við var að búast voru leikmenn og: aðstandendur Vals og Fram misjafnlega glaðlegir í búningsklefunum eftir leikinn. Framarar fögnuðu ákaft og skál- uðu fyrir sigrinum í kampavíni en Valsmenn voru niðurlútir og tóku samt tapinu vel. Blaðamað- ur ræddi við þjálfara liðanna og fyrirliða eftir leikinn: Ásgeir Elíasson, fyrirliði Fram: I heildina litið var þetta ekki nógu góður leikur. Við vorum of óstyrkir og gáfum okkur ekki tíma til þess að spila. Þá sjaldan við gerðum það gekk okkur ágætlega. Það voru ekki mörg marktækifæri í þessum leik og hvorugt liðanna tók áhættu. Sigurinn hefði getað fallið báðum liðum í skaut en við höfðum heppnina með okkur og í hreinskilni sagt fannst mér kom- inn tími til þess að við hefðum heppnina með okkur, því Valsar- arnir höfðu heppnina með sér í leikjunum gegn okkur í íslands- mótinu fyrr í sumar. Ég var farinn að kvíða framlengingu þeg- ar vítaspyrnan kom og mér létti því mikið þegar við skoruðum. Ég vil nota tækifærið og þakka stuðn- ingsmönnum okkar frábæran stuðning í leiknum. Hörður Hilmarsson, fyrirliði Vals: Ég er auðvitað mjög vonsvikinn yfir þessum úrslitum. Þetta var dæmigerður úrslitaleikur, mikil spenna en hvorugt liðið náði að sýna sitt bezta. Fyrri hálfleikur- inn var slakur en mér fannst við Valsmenn vera betri í seinni hálfleik og ég var orðinn viss um framlengingu þegar vítið var dæmt. Ef leikurinn hefði verið framlengdur hefðum við unnið leikinn því það var farið að draga af Frömurunum. Núna er geysileg pressa á okkur í íslandsmótinu og við erum staðráðnir í að sigra í því. Hólmbert Friðjónsson, þjálfari Fram: Ég er geysilega ánægður með þennan sigur því nú eru einmitt 10 ár síðan ég var þjálfari ÍBK þegar liðið varð Islandsmeistari 1969. Ég tel víst að áhorfendur hafi ekki verið mjög hrifnir af þessum leik eins og hann spilaðist, hann bauð ekki upp á mörg skemmtileg augnablik. Við vissum fyrirfram að Valsmenn voru með heilsteypt- ara og reyndara lið og þeir spila mjög vel ef þeir fá frið til þess. Því lét ég beztu menn Vals vera í sérstakri gæzlu og það tókst vel. Sigurinn hefði getað orðið þeirra eins og okkar en við höfðum heppnina með okkur og áttum það fyllilega inni því við vorum mjög óheppnir í báðum leikjunum gegn Val í Islandsmótinu. Lokamínútan var geysilega spennandi og ég var svo spenntur að ég þorði varla að horfa á Martein þegar hann tók vítaspyrnuna. Nemes, þjálfari Vals: Þetta var mjög lélegur leikur hjá báðum liðum. Vítaspyrnudóm- urinn var mjög hæpinn. Mér fannst persónulega að þetta væri ekki vítaspyrna en auðvitað má um það deila. Hins vegar getur dómari ekki dæmt vítaspyrnu á síðustu mínútunni þegar svona mikið álitamál er hvort dæma á víti eða ekki. Ég hef aldrei séð þennan dómara áður og skil ekki hvers vegna óreyndir dómarar eru látnir dæma úrslitaleiki í bikar- keppni en reyndustu og beztu dómararnir eru látnir vera línu- verðir. -SS. Hvort lið fékk 3,2 milljónir ÚRSLITALEIKUR bikarkeppni KSÍ dregur að sífellt fleiri áhorfendur enda hefur ýmislegt verið gert til þess að gera hann að meiri viðburði í knattspyrnulffinu en áður var og er það vel. Það er orðið geysilegt fjárhagslegt atriði fyrir lið að komast f úrslitin og nánast eins og happdrættisvinningur fyrir þau lið sem það gera. Að þessu sinni greiddu 5894 aðgangseyri og komu 9 miiljónir til skipta. Þar af fékk hvort lið 3,2 milljónir króna en KSÍ 2,6 milljónir. Ljósm. Emilía. • Guðmundur Baldursson ver með tilþrifum skalla Atla Eðvaldssonar eftir hornspyrnu. Guðmundur var einn af beztu leikmönnum Fram í leiknum. wKm-Wmm ™ Wm ttl mv . W • Bikarmeistarar Fram 1979. Talið frá vinstri, neðri röð: Kristinn Atlason, Marteinn Geirsson, Hafþór Sveinjónsson, Kristinn Jörundsson, Símon Kristjánsson, Rafn Rafnsson, Pétur Ormslev, Gunnar Guðmundsson, Guðmundur Baldursson og Jón Jensson. Standandi f.v. Hólmbert Friðjónsson þjálfari, Friðrik Egilsson, Guðmundur Steinsson, Gunnar Orrason, Gunnar Bjarnason, Ásgeir Elíasson, Trausti Haraldsson, Baldvin Elíasson, Júlíus Marteinsson, Hilmar Guðlaugsson, formaður Fram, Vilhjálmur Hjörleifsson liðstjóri og Lúðvík Halldórsson formaður knattspyrnudeildar Fram. Li6sm Eml,ía Söguleaur endir a tilþrifalitlum leik Vítaspyrna á lokamínútunni færöi Fram bikarinn EINN tilþrifaminnsti úrslitaleik- ur bikarkeppni KSÍ hlaut sögu- legan endi. Eftir að Fram og Valur höfðu barizt í 89 mínútur í Laugardalnum á sunnudaginn án þess að koma knettinum f netið og við blasti framlenging vakn- aði leikurinn skyndilega til lffs- ins. Guðmundur Steinsson, hinn ungi og eldsnöggi framherji Framara brauzt framhjá Magn- úsi Bergs og var að komast í skotfæri þegar Magnús reyndi að ná til boltans. Guðmundur féll við og Þorvarður Björnsson dóm- ari dæmdi umsvifalaust vfta- spyrnu. Leikaraskapur hjá Guð- mundi sögðu Valsmenn, hárrétt- ur dómur sögðu Framarar. Undirrituðum virtist ótvírætt vera brotið á Guðmund og vfta- spyrna þvf réttur dómur og sú skoðun styrktist við að horfa á atvikið f sjónvarpi. Marteinn Geirsson fékk það erfiða hlut- verk að framkvæma spyrnuna en hann brást ekki félögum sfnum á úrslitastundu heldur skoraði mjög örugglega og innsiglaði sigur Fram, sem nú vann sinn fyrsta meiriháttar titil f 6 ár. Það var maður þessa úrslita- leiks, Ásgeir Elíasson fyrirliði Fram, sem átti heiðurinn af upp- hlaupi Framara. Hann náði bolt- anum á vallarhelmingi Vals, lék laglega á tvo Valsmenn og sendi knöttinn síðan út í vinstra hornið til Guðmundar. Guðmundur lék upp að endamörkum framhjá Manúsi, sem féll við. Síðan lék Guðmundur á annan Valsmann og svo aftur á Magnús, sem á ný var kominn í vörnina. Magnús gerði örvæntingarfulla tilraun til þess að ná boltanum af Guðmundi og teygði fótinn fram en virtist um leið krækja í Guðmund svo hann féll kylliflatur. Dómarinn var í mjög góðri aðstöðu til þess að sjá brotið og hann dæmdi vítaspyrnu án þess að hika. Ekki var að sjá að leikmenn Vals mótmæltu þessum dómi nema hvað Hörður Hilmars- son sparkaði knettinum langar leiðir í burtu og fékk fyrir gult spjald en hann mun ekki hafa gert þetta í mótmælaskyni vegna dómsins heldur vegna mikilla og skyndilegra vonbrigða, að því er dómarinn sagði eftir leikinn. GUTTARNIR GÁFU TÓNINN Veður var mjög gott á sunnu- daginn, hlýtt en smávegis gola. Fólk tók að streyma að Laugar- FRAM — _____A VALUR ■■“U dalsvellinum löngu fyrir leik enda léku 5. flokkar félaganna forleik og höfðu margir gaman af. Fram- piltarnir unnu 2:0 og gáfu meist- araflokksmönnunum þar með tón- inn. Fyrir leikinn voru leikmenn kynntir fyrir Björgvin Schram, fyrrverandi formanni KSÍ, en hann var heiðursgestur leiksins og var það vel til fundið. Hófst nú leikurinn og voru menn vongóðir um að hann yrði fjörugur og skemmtilegur því þarna áttust jú við tvö af beztu knattspyrnuliðum okkar og að- stæður voru allar eins og bezt varð á kosið. En fjörið lét því miður bíða eftir sér. Framararnir sóttu meira til að byrja með en síðan náðu Valsmenn valdi á miðjunni og fóru að sækja. En það var sama sagan báðum megin, varnirnar voru mjög traustar og hleyptu nánast engu í gegn. Tækifæri voru því sárafá og fátt sem gladdi augað. Valsmenn fengu ágætt tækifæri á 16. mínútu þegar Hörð- ur gaf góða sendingu á Guðmund Þorbjörnsson sem skaut af víta- teig en skot hans fór naumlega yfir. Þorvarður dómari var nokkuð spar á flautuna í f.h. og varð það til þess að nokkur harka hljóp þá í leikinn en enginn var samt bókað- ur. í seinni hálfleik hafði Þorvarð- ur aftur á móti góð tök á leiknum. Fyrri hálfleikurinn sniglaðist áfram og áhorfendur voru greini- lega ekki allt of ánægðir. Undir lok hálfleiksins náðu Framarar sér aftur á strik og sóttu þá meira. Pétur Ormslev átti skot í hliðar- netið á 30. mínútu eftir sendingu frá Ásgeiri og á 40. mínútu fór Guðmundur Steinsson illa að ráði sínu þegar hann gat gefið boltann á þrjá félaga sína í dauðafæri en fyrirgjöfin var óvönduð og lenti beint í andstæðingi. VALSMENN SÆKJA í SIG VEÐRIÐ Seinni hálfleikurinn var ekki tilþrifamikill en þó öllu fjörugri en sá fyrri. Valsmennirnir voru mun ákveðnari í seinni hálfleikn- um og sköpuðu sér nokkur góð færi. Olafur Danivalsson skallaði naumlega framhjá á 62. mínútu og á 65. mínútu átti Albert Guð- 'mundsson þrumuskot naumlega yfir. Sævar miðvörður Vals meiddist í byrjun hálfleiksins og kom Vilhjálmur Kjartansson inn í staðinn og Framarar skiptu Kristni Jörundssyni inná fyrir Gunnar Guðmundsson um miðjan hálfleikinn til þess að fá meiri brodd í sóknina. Framarar fengu líka sín tækifæri og á 72. mínútu skaut Marteinn naumlega yfir eftir hornspyrnu. Á 73. mínútu fengu Valsmenn sitt bezta tækifæri. Vörn Fram sleppti Atla Eðvaldssyni lausum úr gæzlu eitt augnablik og það sá Hörður Hilmarsson. Hann sendi boltann langt fram völlinn og skyndilega var Atli frír með bolt- ann og brunaði að markinu. En í stað þess að leika með boltann alla leið skaut Atli af vítateig en Guðmundur markvörður sá við honum og varði skot Atla frábær- lega vel neðst í horninu. Á 82. mínútu tók Atli mikinn sprett upp allan völlinn og skaut að markinu en Guðmundur var aftur vel á verði og sló boltann í horn. Þrem- ur mínútum síðar tók Guðmundur Þorbjörnsson hornspyrnu og gaf boltann beint og á höfuðið á Atla sem skallaði laglega að markinu en enn á ný sá Guðmundur mark- vörður við honum og sló boltann yfir með miklum tilþrifum. En ekki vildi boltinn í markið hjá Fram og það voru svo Framarar sem gerðu út um leikinn í lokin eins og áður er getið. LIÐIN Sem fyrr segir var leikurinn ekki skemmtilegur á að horfa, lítið um fallega samleikskafla en þess meira um rangar sendingar og önnur mistök. Var þessi leikur keimlíkur leik sömu félaga í bikar- úrslitunum 1977, þegar Valur vann 2:1. Framarar gripu til þess ráðs að hafa beztu menn Vals í sérstakri gæzlu, þ.e. þá menn sem halda spilinu gangandi og þeir leikmenn Fram sem fengu það hlutverk skiluðu því vel. Beztu leikmenn Fram voru Ásgeir Elíasson, sem var bezti maður vallarins, Guð- mundur markvörður og Marteinn Geirsson. Einnig er ástæða til þess að geta frammistöðu Gunn- ars Bjarnasonar, Kristins Atla- sonar og Hafþórs Sveinjónssonar. Guðmundur Steinsson og Pétur Ormslev voru í strangri gæzlu og gátu sig lítið hreyft en góður sprettur Guðmundar í lokin reyndist Frömurum dýrmætur. Vörn Vals átti einnig góðan leik, t.d. átti Dýri óaðfinnanlegan leik svo og Sævar á meðan hans naut við. Magnús Bergs barðist vel að vanda en leikur af óþarflega mik- illi hörku. Hörður Hilmarsson barðist vel á miðjunni, óvenju lítið bar á Atla en hann tók þó góða spretti í s.h. Albert Guðmundsson vann vel en framlínan var óvenju dauf. Það hafa vafalaust verið mistök að setja ekki Inga Björn Albertsson inná í lokin til þess að hressa upp á framlínuna, hann er maður sem með reynslu sinni og markheppni hefði getað snúið leiknum í sigur fyrir Val. í STUTTU MÁLI: Laugardalsvöllur 26. égúst, bikar- keppni KSÍ, úrslit, Fram — Valur 1:0(0:0). Mark Fram: Marteinn Geirason úr vítaspyrnu á 90. mínútu. Áhorfendur: 5894. Áminning: Höröur Hilmarsson bók- aður í s.h. -ss. Lið Fram: 1. Guðmundur Baldursson, 2. Gunnar Bjarnasun. 3. Trausti Haraldaaon, 4. Gunnar Guðmundsson (Kristlnn Jörundsaon á 71. m(nútu), 5. Marteinn Geirsson, 6. Kristinn Atlason, 7. Ásgeir EHasson, 8. Rafn Rafnsson, 9. Pétur Ormsiev, 10. Guðmundur Steinsson. 11. Hafþór Svelnjónsaon. Lið Vals: 1. Sigurður Haraldsson, 2. Magnús Bergs. 3. Grfmur Sæmundsen, 4. Hörður Hilmarsson, 6. Scevar Jónsson (Vllhjálmur Kjartansson á 50. m(nútu), 7. óiafur Danivalsson, 8. Atli Eðvaldsson, 9. Albert Guðmundsson, 10. Guðmundur Þorbjörnsson, 11. Hálfdán örlygsson. Dómari Þorvarður Björnsson, lfnuverðir Eysteinn Guðmundsson og Guðmunur Haraldsson. 100% víti sagði dómarinn EFLAUST verður lengi um það deilt hvort vítaspyrn- an sem dæmd var á Val á lokamínútu bikarúrslita- leiksins hafi verið rettmæt eða ekki. Eftir leikinn ræddi blaðamaður Mbl. við þá „sem við sögu komu“, Þorvarð dómara, Guðmund Steinsson og Magnús Bergs. Þorvarður Björnsson dómari: Þetta var 100% vítaspyrna, um það er enginn vafi í mínum huga. Ég var aðeins 5—6 metra frá og sá því mjög vel hvað gerðist. Guðmundur var kominn framhjá Magnúsi og Magnús krækti fyrir fætur hans aftan frá og felldi hann. Frá mínum sjónarhóli var þetta augljóst brot og ég held að leikmenn hafi almennt verið sammála um að þetta hafi verið vítaspyrna því enginn Valsari mótmælti vítinu svo að ég heyrði. Þetta var nokkð erfiður leikur að dæma, sérstaklega í fyrri hálfleik þegar hljóp svolítil harka í leikinn. Magnús Bergs: Þetta var alls ekkert víti og hefði ég verið dómari hefði ég ekkert dæmt. Ég var að reyna að ná boltanum en um leið bakkaði Guðmundur og lét sig falla um leið. Þetta var hreinn leikaraskapur hjá Guðmundi og dómarinn hefði átt aö sjá það. Guðmundur Steinsson: Ég mótmæli því harðlega að þetta hafi verið einhver leikaraskap- ur. Ég var kominn framhjá Magnúsi þegar hann krækti löppinni í mig svo ég missti jafnvægið. Þetta var pottþétt vítaspyrna og ég er rosalega ánægður með sigurinn í leiknum. -ss. • Rafn Rafnsson skýlir knettinum skemmtilega fyrir Ólafi Danivalssyni. Ljósm. Emilía.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.