Morgunblaðið - 06.11.1979, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 06.11.1979, Blaðsíða 46
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1979 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1979 25 Guimar setti Evrópumet Skúli dæmdur úr leik ÍSLENSKU kraftlyftingamenn- irnir sem þátt tóku i heimsmeist- arakeppninni í kraftlyftingum um helgina i Ohaio í Bandaríkj- unum stóðu sig með mikilli prýði þó ekki tækist þeim að komast á verðlaunapallinn. Ein helsta von okkar á mótinu, Skúli Óskarsson, sem varð sér úti um silfurverð- laun í siðustu keppni, varð fyrir því óhappi að falla úr keppninni. Skúli gerði ógilt í hnébeygju. Hann byrjaði á 190 kg þyngd og tókst að lyfta henni en beið ekki eftir klappi frá dómurunum áður en hann hóf lyftuna og var lyftan þvi dæmd ógild. í annari tilraun Skúla rifnuðu keppnisbuxur hans, og um leið hlaut hann slæman hnykk og lyftan mis- tókst. Nú voru góð ráð dýr þvi aðeins tvær mínútur voru í næstu tilraun. Það tókst þó að bjarga keppnisbuxunum og koma Skúla i þær timanlega þó að naumt stæði. En allt þetta hafði slæm áhrif á kappann og i siðustu tilrauninni mistókst honum að lyfta 190 kg og var þar með úr keppninni. Sannarlega leiðinlegt, því að hann hafði búið sig vel undir þessa keppni. Skúli keppti í 75 kg flokki, sigurvegari varð Bandaríkja- maðurinn Mark Brigdes og var hann í algjörum sérflokki, lyfti samanlagt 830 kg. Var það 80 kg meira en næsta manni tókst að lyfta. Mark er heimsmethafi í þessum flokki. Annar varð Kan- adamaður, lyfti hann 750 kg. Svíinn Backlund varð þriðji með 740 kg, bætti fyrri árangur sinn um 15 kg. Sverrir Hjaltason keppti í 82.5 kg flokki og varð sjötti af 14 keppendum. Sverrir bætti fyrri Lyftlngar • Skúla mistókst í hnébeyjunni á HM i lyftingum og var því dæmdur úr leik. Ekki hans dagur greinilega. árangur um 17,5 kg, lyfti 260 kg í hnébeygju, 155 kg í bekkpressu og 300 kg í réttstöðulyftu. Bretinn Russ Colins sigraði í þessum flokki, lyfti 815 kg samanlagt. Gunnar Steingrímsson keppti í 90 kg flokki og varð í fimmta sæti af tíu keppendum. Gunnar lyfti 300 kg í hnébeygju, 180 kg á bekk og gerði sér lítið fyrir og setti Ísl.-Norðurl.- og Evrópumet í réttstöðulyftu, fór upp með 330 kg. Samtals setti Gunnar 5 íslands- met á mótinu. Gunnar, sem er frá Vestmannaeyjum, hefur sýnt miklar framfarir í lyftingaíþrótt- inni á undanförnum árum. Sigur- vegari í þessum flokki varð Cam- pel frá Bandaríkjunum, lyfti 870 % Oskar Sigurpálsson keppti í 110 kg flokki og hafnaði í fimmta sæti. Óskar lyfti 330 kg í hnébeygju, 175 kg á bekk og 315 í réttstöðulyftu, samanlagt 820 kg. Sigurvegarinn í flokknum lyfti 965 kg, var það Bandaríkjamaðurinn Cook. í yfirþungavikt stóð Arthur Bogason sig með ágætum, lyfti 822,5 kg samanlagt sem er mesta þyngd sem nokkur íslendingur hefur lyft svo vitað sé í keppni. Arthur hafnaði í fimmta sæti í sínum þyngdarflokki. Sigurvegar- inn í flokknum lyfti 1040 kg. Lars Hedlund er sigraði hér heima á NM-mótinu varð í þriðja sæti, lyfti 962,5 kg. íslenska liðið hafnaði í 9. sæti á mótinu af 17 þátttökuþjóðum. Fararstjóri íslenska liðsins og formaður lyftingasambands Islands, Ólafur Sigurgeirsson, var dómari á mótinu. — þr. Elnkunnagjðlin Keppt á hljólaskíðum INGÓLFUR Jónsson varð Reykjavíkurmeistari í keppni á hjólaskiðum, en fyrsta keppnin i þeirri íþróttagrein fór fram í Mosfellsdal um heigina. Keppni fer fram eigi ósvipað og um skiðagöngu væri að ræða, en gengið er 8 kílómetra. Tími Ingólfs var 25 minútur og 9 sekúndur. 5 menn kepptu, en nokkrir forfölluðust af óviðráðanlegum ástæðum, voru það skiðamenn Ólafsfirðinga. Annar varð Aðalsteinn Guð- mundsson, tími hans var 28,38 minútur. Þriðji varð svo Páll Guðbjörnsson á 31,18 mínútum, en þess má geta, að Páil er ekki nema 50 ára. Það var einnig keppt í kvenna- flokki, en fjórar dömur skráðu sig. Rannveig Helgadóttir var sigurvegari og systir hennar Helga varð önnur. Þær Ástþórs- dætur Hulda og Hlin urðu í 3.-4. sæti, en kvenfólkið gekk 3 kiló- metra. Lið UMFN Gunnar Þorvarðarson Guðsteinn Ingimarsson Brynjar Sigmundsson Jónas Jóhannesson Stefán Bjarkason Július Valgeirsson Sturla örlygsson Ingimar Jónsson Jón Matthíasson Lið Fram. 3 Simon Ólafsson 3 2 Þorvaldur Geirsson 2 2 Björn Magnússon 1 2 Ómar Þráinsson 1 2 Björn Jónsson 1 2 Guðmundur Hallsteinsson 1 1 Þórir Einarsson 1 1 Hilmar Gunnarsson 1 l Ágúst Jónsson 1 Dómarar. Sigurður Valur Halldórsson og Jón Otti ólafsson — 3. Atakalítill sigur Njarð- víkinga gegn nýliðum Fram NJARÐVÍK átti ekki í erfiðleik- um með að sigra Fram, eina liðið i úrvalsdeildinni enn án stiga, i Njarðvikum á laugardag. Njarðvíkingar sigruðu Fram 86—75 í úrvalsdeildinni i körfu- knattleik. Viðureign Njarðvík- inga og Framara var ekki viður- eign mikilla tilþrifa. Sérstaklega var leikurinn daufur framan af og litið skorað — hittni beggja liða ákaflega slæm, mikið um að leikmenn tækju of mörg skref og rangar sendingar margar. Njarðvíkingar náðu þegar undirtökunum en skorun var mjög lág. Eftir 10 mínútna leik var staðan 14—10 Njarðvík í vil. Suðurnesjamenn náðu að auka þann mun i niu stig, 19—10, en þegar aðeins þrjár mínútur voru til leikhlés skildu þrjú stig, 27—24. Þá hins vegar var engu líkara en Suðurnesjamenn segðu hingað og ekki lengra — loka- kaflann skoruðu þeir 11 stig gegn aðeins þremur Fram og leiddu 38—27 í leikhléi. Það var fyrst og fremst góður leikur Gunnars Þorvarðarsonar, sem tryggði Njarðvíkingum for- ustu. Hann var drjúgur við að skora í fyrri hálfleik — brást vart UMFN—Fram 86—75 skot, ólíkt því sem var með suma félaga hans. Þannig skoraði Ted Bee ekki stig í fyrri hálfleik og var undarlega mistækur en hann hef- ur undanfarið átt við meiðsli að stríða. Leikmenn Fram mættu ákveðnir til síðari hálfleiks og þegar sex mínútur voru liðnar af síðari hálfleik skildu aðeins tvö stig — 44—42. Þá tóku Suður- nesjamenn á honum stóra sínum, settu leikreyndari menn liðsins inn á og skoruðu grimnit, 15 stig gegn aðeins tveimur á næstu þremur mínútum. Staðan breytt- ist í 59—44. Á 13. mínútu fékk John Johnson sína fimmtu villu eftir að hafa áður fengið tækni- víti. Hann var allt annað en ánægður með úrskurð dómara og hafði flest á hornum sér í leiknum. Það var til að munda ljótt að sjá til hans þegar Guðmundi Hall- steinssyni hafði orðið á að missa knöttinn og brjóta síðan á Njarðvíking þannig að UMFN fékk þrjú stig. John Johnson grýtti knettinum rétt fyrir ofan höfuð Guðmundar, sem var síðan umsvifalaust tekinn útaf og skammaður þar af félögum sínum. Ekki beint hvetjandi til að byggja upp ungan leikmann. Nú en Johnson fór útaf á 13. mínútu. Þá var staðan 65—51. Staðan breyttist lítt þær mínútur sem eftir voru. Njarðvíkingar héldu sínum hlut örugglega — leyfðu öllum leikmönnum að reyna sig. Ekki bara í lok leiksins þegar sigur þeirra var tryggður heldur einnig í fyrri hálfleik. Ákaflega jákvætt fyrir hina ungu leikmenn liðsins — þessu er ekki að heilsa hjá Fram. Einkennandi fyrir liðið hvað hinir ungu leik- menn eru taugaóstyrkir og treysta sjálfum sér lítið. Liðið byggir bara á þremur til fjórum leikmönnum. Aðrir nánast statistar, jafnvel landsliðsmenn. Gunnar Þorvarðarson var að öðrum Suðurnesjamönnum ólöst- uðum bezti maður liðsins. Þá átti Jónas Jóhannesson góðan leik, skorar ekki mikið en geypisterkur í vörninni. Guðsteinn Ingimarsson stjórnar öllu spili liðsins, Brynjar Sigmundsson drjúgur og Ted Bee óx þegar á leikinn leið. Greinilegt að hann er að ná sér af meiðslum. Hjá Fram var Símon Ólafsson yfirburðamaður. Hann var að vísu mjög daufur í fyrri hálfleik — skoraði þá ekki stig en í síðari hálfleik var hann óstöðvandi og skoraði þá hvorki meira né minna en 26 stig. John Johnson skoraði 18 stig en mér er til efs að gildi hans fyrir liðið sé í réttu hlutfalli við stigafjöldann, sem hann skor- ar. Þá var Þorvaldur Geirsson sterkur, bæði í vörn og sókn. Aðrir leikmenn höfðu lítil áhrif á gang leiksins hjá Fram. Stig UMFN skoruðu: Gunnar Þorvarðarson 18, Brynjar Sig- mundsson 15, Guðsteinn Ingi- marsson 13, Ted Bee 11, Stefán Bjarkason 8, Ingimar Jónsson og Júlíus Valgeirsson 6, Jónas Jó- hannesson 4, Sturla Örlygsson og Jón Matthíasson 2. Allir leikmenn UMFN skoruðu því stig. Hjá Fram var Símon Ólafsson stigahæstur með 26 stig, John Johnson skoraði 18, Þorvaldur Geirsson 17, Ómar Þráinsson og Björn Jónsson 5 hvor og Björn Magnússon 4 stig. Dóm- arar voru Sigurður Valur Hall- dórsson og Jón Otti Ólafsson. H.Halls. Gunnar Páll vann Öskjuhlióarhlaupió • Kristján Guðmundar vonast eftir liða mest á fyrir. Ljósm. Mbi. Kristján.. Arason laumar knettinum laglega inn á Iínu til Magnússonar, samvinna sem áhangendur FH eru að í vetur, í leiknum gegn Dönum ytra. íslenska liðið kom óvart í keppninni, reyndist sterkara en nokkurn óraði GUNNAR Páll Jóakimsson ÍR bar öruggan sigur úr býtum í Öskjuhlíðarhlaupinu sem fram fór á sunnudag. Alls tóku 16 karlar og tvær konur þátt í hlaupinu sem er hið fyrsta nokk- urra vetrarhlaupa víðavangs- hlaupara. Hlaupnir voru tveir hringir um Öskjuhlíðina eða alls tæpir átta kilómetrar. Gunnar Páll tók forystu í hlaupinu í upphafi ásamt félaga sinum úr ÍR, Ágústi Ásgeirssyni. Fylgdust þeir að lengst af, en er um einn kílómetri var eftir tók Gunnar mikinn sprett sem færði honum öruggan sigur. Thelma Björnsdóttir sigraði í kvenna- flokki. en auk hennar hljóp í Hanna Friðgeirsdóttir ÍR kvennaflokki. Úrslitin urðu ann- ars sem hér segir: Karlar: 1. Gunnar P. Jóakimsson lR 2. Ágúst Ásgeirsson ÍR 3. Ágúst Gunnarsson UBK 4. Jóhann Sveinsson UBK 5. Jóhann Heiðar ÍR 6. Guðmundur Gislason Á 7. Gunnar Kristjánsson Á 8. Einar Sigurðsson UBK 9. Leiknir Jónsson Á 10. Óskar Guðmundsson FH 11. Sigurjón Andrésson IR 12. Þórarinn Sveinsson HSK 13. Ársæll Benediktsson ÍR 14. Guðmundur Ólalsson IR 15. Kristján Magnússon Á 16. Kristinn Hjaltalin Á Konur: 1. Thelma Björnsdóttir UBK 2. Hanna Friðgeirsdóttir ÍR min. 25:25,2 25:47,2 26:45,6 26:52,8 27:48,0 27:57,8 28:11,2 28:12,0 28:25,8 29:00.0 29:24,4 30:55,2 31:14,2 31:23,4 32:34,6 34:33,0 min. 16:07,6 18:16,8 Allir í eyðimörkina! SAUDI-Arabar áttu lið á HM unglinga i handknattleik eins og fram kom og var lið þeirra meðal þeirra sem Island lagði að velli í keppninni. Olíuprinsarnir eru al- gerir byrjendur í íþróttinni eins og úrslit í leikjum þeirra bera með sér. En þeir ætla sér stóran hlut i framtiðinni, handboltinn fellur í góðan jarðveg þarna suður á eyðimörkunum. Arabarnir eiga næga peninga og seðlarnir eiga að vera stökkpallur- inn að heimsmælikvarða í hand- bolta. í Arabíu eru nú 20 félög sem stunda handknattleik og á HM unglinga í Danmörku var gert opið standandi tilboð. Arabarnir buðu þá suður með sér 40 leik- mönnum úr 8 efstu liðum keppn- innar (þ.á m. íslandi) og eiga tveir að leika með hverju félagi. Hver sem vill getur farið og kjörin, sem í boði eru, eru ekkert minna en æðisgengin. Skattfrjálsar tekjur, einkabifreið (ekki af smærri gerð- inni), einbýlishöll auk urmul fríðinda. Bara fyrir það að leika handbolta og stuðla að kennslu íþróttarinnar í Arabíu. Ekki er vitað um undirtektir á þessu stigi, en eins og að framan greinir, fengu menn næði til að hugsa sig um. Talið er að a.m.k. einhverjir dönsku leikmannanna hafi haft áhuga á að reyna sig, en hvort einhverjir íslendingar hafi áhuga er ekki vitað. Öruggt má telja að austantjaldspiltarnir fari hvergi þó þeir hefðu kannski á því áhuga. gg. Islenska liðið átti enn betra skilið HM unglinga i handknattleik er nýlokið og Island hafnaði þar í 7. sæti eins og fram hefur komið. Það er sannarlega stórgóður ár- angur, en leitt til þess hins vegar að vita, að ísland hafði betra liði á að skipa en sum liðanna sem Iéku um efri sæti. Þetta kann að hljóða remb- ingslega, en undirritaður sá þrjá siðustu leiki íslenska liðsins i Danmörku og fullyrðir, að með heppni hefðu þeir allir getað unnist. Fyrst var leikurinn gegn Dönum. Danir voru logandi hræddir fyrri leikinn og til marks um það má benda á, að leikmenn og þjálfari liðsins lágu yfir myndspólum af íslenska lið- inu i samtals átta kiukkustundir. Og þegar islenska liðið hitaði upp fyrir leikinn, stóð Michael- sen þjálfari í dyragættinni og starði á leikmenn liðsins allt þar til upphitun var lokið og leikur- inn átti að hefjast. Leikurinn æxlaðist siðan þannig, að hann var í járnum allt fram yfir fertugustu minútu, en þá meidd- ist Andrés Kristjánsson illa og var borinn burt, rakleiðis á sjúkrahús. Leikurinn tafðist við þetta í tíu mínútur og voru lslendingar ekki samir eftir það, enda hafði Andrés átt stórleik. Þrátt fyrir að fslendingar misstu að nokkru leyti móðinn, var aðeins eins marks munur Dönum i hag rétt fyrir leikslok, en tvö hraðupphlaup Dana gerðu út um leikinn. í heiidina séð, var lítill munur á liðunum, ef nokkuð var, þá lék ísland skipulegri hand- knattleik, Danir byggðu mikið á einstaklingsframtaki tveggja geysisterkra leikmanna. Eftir leikinn voru Danir léttir á sér. „Við unnum þrátt fyrir að þessi og/eða hinn var meiddur" og fleira í þessum dúr sást í dönsku blöðunum. Þegar leikur Dana og Rússa nálgaðist, fóru Danir að búa almenning undir tapið. „Þessi er meiddur," hinn getur ekki leikið" o.s.frv. Svo töpuðu Danir auðvitað fyrir Rússum, enda voru birnirnir með langbesta liðið á mótinu. En þjálfari rússneska liðsins sagði samt sem áður, að erfiðasti leikur sinna manna hefði verið gegn íslandi. Danir töluðu mikið um hina sterku og „brutale" íslendinga eftir leik Islands og Dana. Það væri ekki úr vegi að spyrja hver var grófur og hver ekki þegar athugað er, að fleiri Danir voru reknir af leikvelli en íslendingar. Staðreyndin var sú, að bæði liðin tóku hressilega á, en að Danir hafi verið einhverjir saklausir englar er út í hött. Síðan kom leikurinn gegn Ung- verjum. Hann tapaðist 14—17. Það var grátlegt. Nálægt miðjum síðari hálfleik hafði ísland 4 mörk yfir og stefndi í öruggan sigur gegn flatneskjulegu liði Ungverja. En ,þá hljóp allt í baklás og Ungverjar sigu fram úr, án þess að leika betur en þeir gerðu fyrr í leiknum. Jóhann Ingi þjálfari taldi skýringarnar vera sálfræði- legs eðlis og eiga rætur að rekja til tapsins gegn Dönum. Á það skal ekki lagður dómur, en hitt er víst, að íslenska liðið var heilum gæða- flokki betra en það ungverska meðan vel gekk. Samt var liðið fjarri sínu besta í leiknum. Liðið sannaði síðan að það var engin tilviljun að Vestur-Þjóð- verjar voru lagðir að velli, þegar ísland mætti Austur-Þjóðverjum í keppni um 7.-8. sætið. Eftir jafnan fyrri hálfleik lék islenska liðið það þýska 9undur og saman, vann að lokum með þriggja marka mun, en náði mest sjö marka forystu í leiknum. Viðbúið er að íslenska liðið hefði gert enn betur í keppninni, ef liðið hefði leikið fleiri æfingaleiki við öflug lið. Sjálfir sögðu íslensku strákarnir, að þá hefði skort einmitt slíka þjálfun, en ef frá er talinn leikur liðsins gegn Tékkum á Selfossi, lék íslenska unglinga- landsliðið einungis æfingaleiki við íslenska A-landsliðið og félagslið. í þessu sambandi má geta þess, að lið Vestur-Þjóðverja lék 10—12 landsleiki áður en í keppnina kom. Mjög mikilsvert atriði í sam- bandi við frammistöðu íslenska liðsins eru sumaræfingarnar, en unglingalandsliðshópurinn æfði markvisst saman í allt sumar, auk þess sem flest félagsliðin íslensku æfðu í sumar, en það er nýlunda hérlendis. Þetta hafði það í för með sér, að líkamleg þjálfun leikmanna liðsins var í góðu lagi. Var einkum merkilegt að fylgjast með liðinu í síðasta leik HM á fimmtudaginn gegn Austur- Þjóðverjum. Þar keyrði íslenska liðið á fullum krafti frá fyrstu mínútu til hinnar síðustu. Var erfitt að trúa því að leikurinn væri sá áttundi á tíu dögum. Austur- Þjóðverjarnir sprungu gersamlega og áttu ekkert svar við líkamlegu úthaldi íslensku piltafina. Um þetta sagði Theodór Guð- finnsson: „Um tíma í leiknum var ég að niðurlotum kominn og slag- aði áfram eins og draugur. Síðan komst ég yfir þreytuna, þar kom sumarþjálfunin í ljós, ég hef aldrei veriö í jafn góðri þjálfun áður.“ Það virðist óhjákvæmilegt annað en að íslensk lið undirbúi sig meira eða minna allt árið, eí takast á að halda í við þá bestu í íþróttinni. Það er greinilegt aé Islendingar standa vel að vígi varðandi framtíðina, þarna er á ferðinni góður kjarni að komandi landsliði. Sagði Jóhann Ingi, að margir þessara leikmanna myndu knýja fast’ á landsliðssæti strax í vetur og ekki væri ætlunin að halda þeim fyrir utan það. Piltarnir láta vel af Jóhanni Inga sem þjálfara, honum tókst að magna upp framúrskarandi sam- stöðu innan hópsins og lofaði ekki of miklu eins og hefur hent suma. Þessi glæsilegu úrslit eru því ekki síður sigur fyrir Jóhann Inga en landsliðið. 7. sætið á HM er hörkuárangur og notalegt að hugsa til þess að liðið átti enn betra skilið. KK. • Gunnar Páll Jóakimsson (t.v.) sigraði félaga sinn Ágúst Ásgeirsson í Öskjuhliðarhlaupinu um helgina. Ekkert óvænt í þýsku deildinni BORUSSIA Dortmund sigraði Schalke 0-4 í vestur-þýsku deild- arkeppninni og heldur því tveggja stiga forystu. Schalke átti möguleika á því að sauma að efstu liðinum, en liðið er við topp deildarinnar, en allt kom fyrir ekki. Berkemeier skoraði fyrir Schalke á 13. mínútu leiksins, en tvö mörk á tveimur mínútum tryggðu Dortmund sigur. mörkin skoruðu þeir Geyer og Votava á 20. og 21. mínútu. Úrslit leikja í deildarkeppninni um helgina voru þessi: Bochum — Kaiserslautern 0—0 Werder Bremen — Bayern Munchen 1—4 FC Köln — Hertha 2—2 Frankfurt — Duisburg 6—0 Stuttgart — Brunswich 2—0 Dússeldorf — Bayer Leverkusen 1—1 Dortmund — Schalke 04 2—1 1860 Munchen — HSV 0—2 Bayer Uerdringen Mönchengladbach 0—1 HSV var ekki í nokkrum vand- ræðum með að sigra 1860 Múnch- en þó að á útivelli væri, Kevin Keegan og Ivan Buljan skoruðu mörk liðsins hvort í sínum hálf- leik. Eintrakt Frankfurt hafði ekki hug á að dragast aftur úr efstu liðunum og sigraði í því skyni Duisburg með 6 mörkum gegn engu, þrjú mörk í hvorum hálfleik. Brend Hölzenbein (2), Cha Kun Bum, Nickel, Karger og Körbel skoruðu mörk liðsins. Þá kom stórsigur Bayern Múnchen á -útivelli gegn Werder Bremen nokkuð á óvart. Dieter Höness skoraði tvívegis og þeir Niedermayer og Rummenigge sitt hvort markið, en eina mark Brem- en skoraði Dressel. Köln lenti í hinu mesta basli með botnliðið Hertha Berlín. Það stefndi að vísu lengst af í sigur Kölnar, Engels og Starck skoruðu fyrir Köln og staðan var 2—1 þegar nokkrar mínútur voru til leiksloka, en þá skoraði skyndilega Holger Bruck jöfnunarmark Herthu, en fyrra mark liðsins skoraði Bruck einnig. Staðan í deildinni er nú þessi: Borussia Dortmund liamburger SV Eintracht Frankfurt FC Schalke 04 Bayern Múnchen Borussia Monchengib. FC Köln Vfb Stuttgart FC Kaiserslauter Vfl Bochum Bayer Leverkusen Fortuna DUsseldorf Bayer tirdingen Msv Duisburs Werder Bremen 1860 MUnchen Hertha Bsc Berlin Eintracht Brunswick 11 8 1 2 24:13 17 11 632 23:11 15 11 704 24:14 14 11 5 3 3 20:12 13 11 53 3 19:13 13 11 533 23:18 13 11 4 4 3 19:18 12 11 5 24 19:18 12 11 4 34 19:14 11 11 4 34 14:11 11 11 3 5 3 14:20 11 11 4 25 25:26 10 11 4 25 12:16 10 11 4 25 14:22 10 11 3 25 13:24 8 11 2 36 9:18 7 11 2 3 6 10:20 7 11 1 22 8:24 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.