Morgunblaðið - 15.05.1980, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 15.05.1980, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. MAI1980 15 Kaffisala Kven- félags Laugar- nessóknar Hin árlega kaffisala Kvenfélags Laugarnessóknar verður í. dag, uppstigningardag, strax að lokinni messu í Laugarneskirkju. Kaffi- salan verður í veitingahúsinu Klúbbnum við Borgartún. Messa hefst kl. 14.00 og mun séra Jón Bjarman prédika. Kaffisala Kvenfélagsins hefur löngum verið vel sótt enda vel til hennar vandað og er örugglega hægt að mæla með henni að þessu sinni. Konurnar í Kvenfélaginu sýna ótrúlega fórnfýsi og dugnað í starfi sínu, en þessi kaffisala er aðeins einn liðurinn í því mikla starfi sem þær inna af hendi. Þáttur þeirra í fjáröfluninni fyrir byggingu safnaðarheimilis Laugarnessóknar hefur verið mik- ill, enda til mikils að vinna. Nú er unnið að því að gera þennan stóra áfanga safnaðar- heimilisins fokheldan og þarf því mikið fé til þess að endar nái saman. En draumurinn um safn- aðarheimili er senn að verða að veruleika og ekki líður á löngu þar til hægt verður að bjóða upp á kaffisölu í glæsilegum safnaðar- sal. Húsnæðisskortur hefur löngum staðið starfi Kvenfélagsins og öðru safnaðarstarfi fyrir þrifum. Þess vegna er það von kvenfé- lagskvenna og annarra sem að safnaðarmálum vinna að sóknar- fólk sýni samstöðu og áhuga í þessu máli. Kaffisalan er árviss og skemmtilegur liður í safnaðar- starfinu og fjáröflunarstarfinu og hvet ég alla velunnara Laugar- neskirkju að fjölmenna bæði í messu og kaffisöluna. Jón Dalbú Hróbjartsson sóknarprestur. Rúðubrot fyrir 17 milljónir króna í skólum borgarinnar Gífurlegar skemmdir hafa orðið á skólahúsum borgar- innar í vetur. Hafa rúður verið brotnar í skólunum fyrir nærri 17 milljónir á fjórum mánuðum eða frá áramótum til aprílloka. Alltaf getur orðið slys og farið rúða, en þarna er víða um vísvitandi skemmdarverk að ræða, svo sem sjá má af tölum. Þessi rúðubrot eru misjöfn eftir hverfum og skólum. Mestar hafa skemmdirnar orðið í Fellaskóla, þar sem kostað hefur 5,8 milljónir að bæta tjónið. Er það langmest, en tveir aðrir skólar, Árbæjarskóli og Réttarholtsskóli, hafa orð'ið fyrir rúðubrotum fyrir 1,4 millj- ónir. Fer hér á eftir listi yfir skólana og kostnaðinn af glervið- gerðum þar frá 1/1 til 30/4 í vetur: Austurbæjarskóli 220.849.- Laugarnesskóli 125.256.- Melaskóli 692.008- Langholtsskóli 157,676.- Hlíðaskóli 161.874- Breiðagerðisskóli 298.810.- Árbæjarskóli 1.436.206.- Vogaskóli 279.506,- ' Vesturbæjarskóli 350.764,- Álftamýrarskóli 731.479,- Hvassaleitisskóli 131.881,- Breiðholtsskóli 591.330,- Fossvogsskóli 808.312,- Fellaskóli 5.892.790,- Hólabrekkuskóli 684.765,- Ölduselsskóli 961.829.- Kleifarvegur 15 138.632,- Hagaskóli 305.500.- Kvennaskólinn 83.482,- Réttarholtsskóli 1.479.630.- Fjölbrautarskólinn 454.628.- Fjölbr.sk. íþr.m.virki 134.341,- Ármúlaskóli 623.428.- Samtals kr. 16.744.976.- Snæbjörn Jónasson vegamálastjóri: Snæbjörn Jónasson birtist í blaði yðar þann 29. apríl. I stað þess að láta sér nægja að gagnrýna niðurstöðu Vegagerðar- innar fyrir mat það, sem lagt er á þá þætti sem úrslitum ráða um valið, er ráðist með skömmum og svívirðingum á þann starfsmann Vegagerðarinnar sem falið var að vinna verkið. Honum er borin á brýn fölsun staðreynda, hlutdrægni í starfi og vansæmandi vinnubrögð. Aburður af þessu tagi er i hæsta máta fjarstæðukenndur í augum þeirra sem þekkja til starfa Eiríks. Hann á engra hagsmuna að gæta varðandi tengingu Inn- Djúps annarra en hagsmuna al- mennings, og er ég þess fullviss að hann hefir unnið að þessu verki af óhlutdrægni, samviskusemi og al- úð. Með þökk fyrir birtinguna. innsk furusmíó Lundiahillukerfió er ódýrt og einfalt í uppsetningu Lundia hillukerfið er selt í stykkjum, þannig að hverri einingu hagar þú eftir eigin smekk. Lundia hillukerfið er úr massívri finnskri furu, mjög ódýrt og einfalt í upp- setningu. GRÁFELDUR HF. ÞINGHOLTSSTRÆTI 4. S. 2 6626. Tilvalið í stofuna, barnaherbergið, ganginn, skrifstofuna, verslunina. . . Hringið og biðjið um upplýsingabækl- ing. í stíl við Lundia hillukerfið, höfum við einnig fáanlega klappstóla og borð. Herra ritstjóri. Vegna blaðagreinar, sem birt var í blaði yðar þann 29. apríl sl. undir fyrirsögninni „Vegastríð á Vestfjörðum", langar mig til að biðja yður um að birta eftirfar- andi. Árið 1975, þegar þingmenn Vestfjarðakjördæmis sáu hilla undir möguleika á að hægt væri að veita fé til tengingar Inn- Djúps, fólu þeir Vegagerð ríkisins að gera tillögu um hvar sú tenging skyldi vera við aðalvegakerfi landsins. Þá var Björn Ólafsson umdæmisverkfræðingur í Vest- fjarðakjördæmi, og var honum falið verkið. Hann skilaði álits- gerð vorið 1976, sem lögð var fyrir þingmenn og tekið fram, að hér væri um frumathugun að ræða. í álitsgerð þessari er gerð grein fyrir þeim valkostum, sem álitleg- astir eru, og tíundaðir þeir þættir sem úrslitum ráða um leiðarvalið, svo sem kostnaður, vegalengdir, hæðir fjallvega, veðurfar eftir því sem um er vitað o.s.frv. Niðurstaða þeirrar skýrslu var, að einna álitlegast virtist að fara um Þorskafjarðarheiði og Þor- geirsdal niður í Þorskafjörð. Þar sem hér var ekki um endanlega niðurstöðu að ræða, gafst tóm til að halda áfram athugunum og gagnasöfnun, með- an beðið var eftir að tímabært væri að veita fé til vegagerðarinn- ar. Þegar Björn hætti sem umdæm- isverkfræðingur tók Eiríkur Bjarnason við starfi hans og féll það í hans hlut að halda áfram athugunum á leiðarvalinu. Eftir áramót í vetur sendi hann uppkast að nýrri álitsgerð til yfirmanna sinna í Reykjavík til yfirlestrar. Niðurstaða þessarar skýrslu var að Kollafjarðarheiði væri besti kosturinn, en munur lítill á henni og fyrrnefndri leið um Þorgeirsdal. Við yfirmenn Eiríks féllumst á röksemdir hans, gerðum smávægi- legar breytingar á álitsgerðinni, sem við töldum eðlilegar, og var hún að því búnu lögð fyrir þing- menn Vestfjarðakjördæmis sem endanleg tillaga Vegagerðarinnar. Það hefur lengi legið í loftinu, að ekki bæri öllum vestfirðingum saman um hvar tenging Inn-Djúps ætti að vera. Við áttum því von á blaðaskrifum og fundasamþykkt- um, sem féllu að eða gengu á móti tillögu okkar, en enginn okkar átti von á grein eins og þessari sem EF ÞAÐ ER FRETT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐENU Ómak- leg árás

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.