Morgunblaðið - 15.11.1980, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 15.11.1980, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1980 Brldge Umsjóni ARNÓR RAGNARSSON Bridgedeild Sjálfsbjargar Nýlega er lokið tvímennings- keppni hjá deildinni. Spilað var í einum 12 para riðli. Úrslit urðu þessi: Theodór A. Jónsson — Jóhann P. Sveinsson 656 Páll Sigurjónsson — Hlaðgerður Snæbjörnsd. 599 Þorbjörn Magnússon — Ragnar Halldórsson 595 Gunnar Guðmundsson — Gísli Guðmundsson 582 Meðalárangur 550. Mánudaginn 17. nóvember hefst hraðsveitakeppni og eru félagar beðnir að mæta stund- víslegá kl. 19.30. Bridgedeild Skagfirðinga- félagsins Tveimur umferðum af fimm er lokið í tvímenningskeppninni. Spilað er í tveimur 10 para riðlum og er staða efstu para þessi. Jón Hermannsson — Ragnar Hansen 252 Sigmar Jónsson — Sigrún Pétursdóttir 241 Jón Andrésson — Haukur Hannesson 237 Andrés Þórarinsson — Hjálmar Pálsson 236 Bjarni Pétursson — Ragnar Björnsson 235 Björn Eggertsson — Karl Adolphsson 230 Meðalárangur 220. Næsta umferð verður spiluð á þriðjudag kl. 19.30 í Drangey, félagsheimili Skagfirðinga. Bridgefélag Breiðholts Sl. þriðjudag hófst þriggja kvölda hraðsveitakeppni með þátttöku 5 sveita. Staðan cftir fyrsta kvöldið: Baldur Bjartmarsson 495 Bergur Ingimundarson 437 Meðalskor 432 Nk. þriðjudag verður spiluð önnur umferð. Fyrirhugað er að bæta við tveimur sveitum með meðalskor. Þeir sem hafa áhuga hafi samband við Baldur í síma 30088 eða Hermann í síma 41507. Spilað er í húsi Kjöts og fisks, Seljabraut 54, og hefst keppnin kl. 19.30. Bridgefélag Hafnarfjarðar Þegar 6 umferðir eru búnar (13 sveitir) er staða efstu sveita þannig. Kristófer Magnússon 97 Aðalsteinn Jörgensen 78 Sævar Magnússon 74 Olafur Valgeirsson 72 Ólafur Gíslason 69 Næsta umferð verður spiluð mánudaginn 18. nóv. Spilað verður í Gaflinum við Reykja- nesbraut og hefst spilamennsk- an stundvíslega kl. 19.30. Bridgedeild Barðstrendinga- félagsins 2. umferð í Hraðsveitarkeppn- inni var spiluð mánudaginn 10. nóvember í Domus Medica og er staða sex efstu sveita nú þannig: Óli Valdemarsson 945 Ágústa Jónsdóttir 913 Viðar Guðmundsson 894 Ragnar Björnsson 873 Gunnlaugur Þorsteinsson 869 Vikar Davíðsson 867 Rætt við fulltrúa í fræðsluráði um leikrit Alþýðu- leikhússins „Fræðsluráð hefur á tveimur fundum rætt erindi frá barna- hópi Alþýðuleikhússins, þar sem farið er fram á heimild fræðslu- ráðs til sýninga á nýju leikriti í grunnskólum borgarinnar. Leikrit þetta, sem hlotið hefur nafnið „Pæld-í-ðí“, fjallar um kynferðismál og er einkum ætlað nemendum í efri bekkjum, eða 7. til 9. bekk. Fræðsluráð leitaði álits skóla- rannsóknadeildar menntamála; ráðuneytisins um leikritið. I bréfi menntamálaráðuneytisins, dags. 17. október, kemur fram, að þrír námsstjórar hafi gefið umsögn um verkið og telji sig geta mælt með sýningu þess í efstu bekkjum grunnskólans. Þá segir í umræddu bréfi, að ráðu- neytið muni ekki banna, að leikritið verði sýnt í efstu bekkj- um grunnskólans, telji fræðslu- ráð og einstakir skólastjórar það eðlilegt. Sýningar yrðu því á ábyrgð fræðsluráðs og skóla- mann fræðsluráðs og fulltrúa Framsóknarflokksins, Braga Jósefsson fulltrúa Alþýðuflokks- ins, Elínu Pálmadóttur fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Hörð Bergmann fulltrúa Alþýðu- bandalagsins í fræðsluráði. Voru þau spurð að því hvers vegna þau hefðu tekið ofangreinda afstöðu til beiðni leikhússins og á hverju þau byggðu hana. „Ég fór og horfði á leikritið að sjálfsögðu," sagði Kristján Bene- diktsson. Þar ræddi ég við margt af fólki, m.a. tvo lækna sem höfðu fylgst með æfingunum og verið til ráðuneytis. Mér finnst þetta að ýmsu leyti mjög athygl- isvert verk. Það er skemmtilegt og fjallar um kynlíf í megin atriðum á frjálslegan og eðli- legan hátt. Þó skal ég viður- kenna að einum þætti í leikrit- inu hefði ég persónulega viljað sleppa, það er þátturinn sem fjallar um kynvillu. En við fimm sem stöndum að bókuninni lítum þannig á málið að það sé ekki á okkar valdi að breyta leikverki sem þessu, síst af öllu þar sem um er að ræða erlent verk. Þess vegna urðum við að taka afstöðu til sýningarinnar eins og hún er. Við létum ákvörðunarvaldið að nokkru leyti í hendur skóla- stjóra og kennara. Við lögðumst ekki gegn því að þetta yrði sýnt í skólum, en gerðum það hins Atriði úr leikriti Alþýðu- leikhússins „Pæld'íðí“. FRÆÐSLURÁÐ UM „PÆLD-Í-ÐÍ" Sýningar heimilaðar í skólum utan skólatíma Fræðsluráð Reykjavíkur fékk fyrir nokkru beiðni frá Alþýðuleikhúsinu þar sem farið var fram á heimild fræðsluráðs til sýninga á leikritinu „Pæld-í-ðí“ í grunnskól- um borgarinnar. Leikritið fjallar um kyn- ferðismál. Fræðsluráð fjallaði um beiðni leikhússins á tveimur fundum og samþykkti eftirfarandi bókun sem Kristján Benediktsson, formaður fræðsluráðs, lagði fram á seinni fundinum: stjóra, án hvatningar ráðuneyt- isins, ems og segir í bréfinu. Fræðsluráð er fyrir sitt leyti ekki andvígt því, að umrætt leikrit verði sýnt í grunnskólum borgarinnar, þar sem aðstaða er fyrir hendi og viðkomandi skóla- stjórn samþykkir. Fræðsluráð telur hins vegar, að þær sýningar eigi að fara fram utan venjulegs kennslu- tíma skólans og vera alfarið á vegum leikhússins. Fræðsluráð telur, að leikritið eigi fyrst og fremst erindi til nemenda í unglingadeildum, þ.e. 7. til 9. bekk, og ekki eigi að leyfa yngri nemendum aðgang nema í fylgd foreldra sinna og forráða- manna. Þá telur fræðsluráð, að leikrit þetta eigi ekki síður erindi til foreldra unglinga en ungling- anna sjálfra." Bókun þessi var samþykkt með fimm atkvæðum gegn einu, atkvæði Braga Jósepssonar. Einn sat hjá, Ragnar Júlíusson. Bragi Jósepsson lagði fram eftirfarandi tillögu að bókun: „Fræðsluráð er andvígt því, að umrætt leikrit verði sýnt í grunnskólum borgarinnar nema felldur verði niður sá kafli leik- ritsins, er fjallar um kynvillu. Sama gildir um texta í leikskrá um sama efni. Fræðsluráð telur að leikrit þetta, með áðurnefnd- um breytingum sé jákvætt fram- lag til kynfræðslu í skólum, en henti fyrst og fremst nemendum á kynþroskaaldri, en eigi minna erindi til nemenda innan við tíu ára aldur eða um það bil. Þá telur fræðsluráð að leikrit- ið eigi ekki síður erindi til foreldra og annarra uppalenda en unglinganna sjálfra." Með tillögunni var lögð fram greinargerð þar sem segir m.a. „Fræðsluráð er þeirrar skoð- unar að meðferð leikritsins á | kynvillu sé ekki við hæfi barna og staðhæfingar í leikskrá varð- andi kynvillu sé bæði rangar og villandi." Tillaga Braga hlaut ekki stuðning innan fræðsluráðs. Þá var jafnframt lögð fram á fundunum tveimur beiðni frá Alþýðuleikhúsinu um meðmæli fræðsluráðs við borgarráð um Dr. Bragi Jósepsson styrk til að lækka miðaverð á unglingaleiksýningu. Fræðslu- ráð vísaði beiðninni til borgar- ráðs. „Fjallar um kynlíf á eðlilegan og frjálslegan hátt“ Morgunblaðið hafði samband við Kristján Benediktsson for- llörður Bergmann vegar ekki að tillögu að þetta yrði gert að kennslutæki eða kennsluverkefni í skólunum. Ég geri ráð fyrir að sumir skólar vilji gjarnan gefa nem- endum kost á að sjá verkið en alls ekki gera það að skyldu. Mér er kunnugt um það að sumir skólastjórar hugsa sér að taka það efni sem er til umfjöllunar í leikritinu, til meðferðar og fá til þess jafnvel lækna eða einhverja sem geta fjallað um þessi mál á góðan rnáta." Kristján sagðist búast við því að það sem fram kæmi í leikrit- inu kæmi unglingunum ekki á óvart. „Ég held að unglingar viti mun meira um þessa hluti en við sem erum orðin fullorðin gerum okkur grein fyrir. Mér sýndist það á þessum unglingum sem horfðu á leikritið samtímis mér að það væri ekkert sem kæmi þeim sérstaklega ókunnuglega fyrir sjónir. Þetta fiéll vel í þau, fannst mér. Það var fjallað um málið á eðlilegan og oft á tíðum skemmtilegan hátt. Mér þótti Elin Pálmadóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.